Morgunblaðið - 11.06.2021, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021
Bogi Molby
Pétursson
Löggiltur
fasteignasali
S. 699 3444
farin að kunna helstu byggingarvöruversl-
anir höfuborgarsvæðisins utan að. En ég
flotaði líka gólf, pússaði, sparslaði og málaði
heilmikið. Við erum mjög ánægð með út-
komuna og þótt við höfum ákveðið að gera
þetta aldrei aftur er nýtt áhugamál hjá mér
að fylgjast með fasteignasíðum og láta mig
dreyma um að breyta eignum eftir eigin
höfði.“
Finnst hefðbundnar baðinnréttingar
óspennandi
Hvað gerðuð þið fyrir baðherbergið?
„Ég var með ákveðnar hugmyndir um
hvað ég vildi. Baðherbergið átti að vera
bæði stílhreint og þægilegt ásamt því að
vera auðvelt að þrífa. Ég sankaði að mér
myndum í Pinterest-albúm og vann út frá
því. Mér hafa alltaf fundist hefðbundnar
baðinnréttingar frekar óspennandi og þegar
ég sá baðherbergi með antík-kommóðu und-
ir vaskinn var ég ákveðin í að finna fallega
kommóðu í stað innréttingar. Ég fann eftir
mikla leit tekk-kommóðu í réttri stærð á
Blandi og lét senda mér hana í bæinn frá
Akureyri. Ég pússaði hana og lakkaði og
sagaði úr henni fyrir vaski. Svo var ég svo
heppin að eiga antíkspegil með vængjum
sem passaði fullkomlega yfir vaskinn. Við
Kalli vorum sammála um að fá okkur hvítar
subway-flísar á veggina og svört blönd-
unartæki og féllum svo alveg fyrir dökkum
gólfflísum með marokkósku mynstri. Kalli
hafði aldrei flísalagt áður og lærði það af
kennslumyndböndum á Youtube. Hann
vandaði sig líka mjög mikið og það tók hann
um þrjár vikur að flísaleggja baðherbergið.
Enda mjög vel gert hjá honum.
Ég var heillengi að finna ljós á baðið sem
mér líkaði og endaði á að kaupa svarta úti-
lukt sem mér fannst passa vel við blönd-
unartækin og flísarnar. Ljósið er smávegis
hrátt og var mjög ódýrt. Ég vann sem inn-
kaupastjóri í mörg ár og fór því auðvitað í
allar verslanir og tók út verð og gæði áður
en verslað var. Það eina á baðinu sem ekki
var á afslætti eða ódýrt eru gólfflísarnar en
við fengum svo óvænt staðgreiðsluafslátt af
þeim líka svo við eyddum alls um 800 þús-
und í að gera upp baðherbergið.
Veggflísarnar og handklæðaofninn feng-
um við í Húsasmiðjunni, gólfflísar í Flísa-
búðinni, handklæðahilluna fengum við í
IKEA og sturtuglerið er frá Íspan.“
Fer með ljótu handklæðin í sund
Skipta handklæði og baðmottur miklu
máli?
„Ég viðurkenni að inn á bað fara einungis
handklæði í gráum tónum og hvítu. Hand-
klæðin okkar eru góð blanda úr Rúmfatalag-
ernum og Scintilla. Skræpóttu ljótu hand-
klæðin eru notuð í sundferðir og fyrir
hundinn og fá ekki að hanga á fína baðinu
þegar fólk sér til. Það þarf ekki baðmottu
þegar er hiti í gólfum. Við þurrkum upp
bleytuna jafnóðum.“
Það er mikilvægt að gera húsnæði að sínu
að mati Valgerðar.
„Ef það sem fyrir er er vel farið, prakt-
ískt og fallegt þá má vinna með það. Gamlar
innréttingar og panell geta verið mjög
sjarmerandi og ég myndi sennilega aldrei
rífa niður nýja innréttingu vegna þess eins
að mér líkaði hún ekki. Draumaíbúðin mín
er með hátt til lofts,
bogadregnum gluggum
og flúruðum listum.
Ólíklegt er að ég muni
nokkurn tíma eignast
hana á Íslandi. Ég er
ekki hrifin af kössunum
sem verið er að byggja
núna með öllu glænýju
og ferköntuðu.“
Hvernig lýsir þú stílnum á heimilinu þínu?
„Hann er hlýlegur þar sem við erum með
antíkhúsgögn í bland við ný. Innrétting-
arnar eru nýjar en þó klassískar og við leik-
um okkur með liti á veggjum og húsmunum.
Svo erum við með mikið af plöntum, bókum
og listaverkum. Baðherbergið er lang-
samlega mínímalískasta herbergi heimilis-
ins.“
Áttu þér draumahúsgagn?
„Mig hefur dreymt um að eignast Arco-
gólflampa og Eames-stól. En væri líka
ánægð með hengirúm og garðskála.“
Þykir ekkert eins leiðinlegt og að ryksuga
Hvað keyptir þú þér síðast heim?
„Við féllum fyrir sinnepsgulum hæg-
indastól í Húsgagnahöllinni og þegar
mamma bauðst til að gefa okkur hann í inn-
flutningsgjöf slógum við til. Annars keyptum
við róbótaryksugu nýverið en að ryksuga er
það allra leiðinlegasta sem ég geri og við
eigum tvo fótboltastráka sem bera með sér
grasið inn, loðinn hund og kött. Rykmaurinn
er því nýi besti vinur minn.“
Valgerður segir að sama hvernig innrétt-
ingarnar eru á heimilinu skipti mestu máli
að heimilisfólkinu líði vel heima.
„Við Kalli losuðum okkur við svo mikið af
óþarfa drasli þegar við fluttum en héldum í
það sem okkur þótti vænst um og veitti okk-
ur gleði. Það þarf líka ekki að kosta svo
mikið að gera upp íbúð. Það er hægt að
læra ótrúlegustu hluti á YouTube og gera
sjálf en ég mæli þó alltaf með því að fá fag-
menn í rafmagnið og pípurnar. Það marg-
borgar sig.“
Málverk eftir Snorra Ásmundsson prýðir vegg stofunnar.Flísarnar inni á baði eru Subway-flísar frá Húsasmiðjunni.
Valgerður segir að
sama hvernig innrétt-
ingarnar eru á heim-
ilinu skipti mestu
máli að heimilisfólk-
inu líði vel heima.
Málverk setja
svip sinn á
heimilið.
Parið flísalagði íbúðina sjálf.