Morgunblaðið - 11.06.2021, Page 20
mínu hjá þeim „but didn’t make the cut“,“ seg-
ir Sæja og hlær.
„Hann er mjög fallegur millidökkur grá-
brúnn litur. Inni á böðunum er annar dekkri
litur sem heitir Askja og er úr eldra korti frá
Slippfélaginu. Mjög fyndið þar sem ég ætlaði
einmitt að nota þann lit í nýja kortinu mínu en
svo var hann bara til í gömlu korti hjá þeim.
Ég nota þessa liti þó mikið og málaði til dæmis
húsið mitt að utan með Öskju. Þegar við mynd-
uðum átti eftir að taka niður loftið yfir stofu og
inni á böðum í sturtu en þau loft eiga að vera
dökkmáluð með litnum „Dimmur“. Ég var
hinsvegar svo spennt að mynda hjá þeim að
niðurteknu loftin voru ekki komin þegar við
mynduðum,“ segir Sæja.
Það er sagt að heimilið sé ekki fullkomnað
fyrr en það eru komin falleg gluggatjöld fyrir
gluggana. Sæja tekur undir það.
„Þessi gluggatjöld eru frá Skermi. Í eldhús-
inu eru felligardínur með bastáferð og síð hör/
netatjöld á móti í beige-lituðum.“
Skápurinn í stofunni er ansi fallegur. Hver
var pælingin á bak við hann?
„Til hliðar við stofu er teiknað pínulítið sjón-
varpsrými. Þetta rými fannst mér ekki henta
og sérstaklega ef þú ert með svona stórt og
fínt hús og horfir kannski mikið á sjónvarp þá
nýtist alrýmið illa. Ég kom því með þá hug-
mynd að nota langa vegginn í stofunni undir
sjónvarp en fela það inni í skáp. Þú getur því
rennt hurð og sjónvarpið kemur í ljós en þegar
það er ekki í notkun lokað á það og þá kemur í
ljós falleg hilla. Eigendur voru með hugmyndir
að setja arin líka en ákváðu að sleppa honum.
Ég setti því langan marmarabekk undir skáp-
inn þar sem hægt er að raða til dæmis fal-
legum kertum og fleira ofan á. Þriðja hurðin er
svo aukageymslupláss undir dót. Við bættum
svo rimlum til hliðar við vegginn þar sem sjón-
varpsrýmið var teiknað og náum þá að skýla
ganginum þar sem svefnherbergin eru.“
Eigendur hússins vildu hafa
spa-fíling á baðherberginu.
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2021