Morgunblaðið - 01.07.2021, Qupperneq 1
Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Heilbrigðisráðherra skipar í
stöðuna til 5 ára frá 1. september 2021.
Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús
og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði og almenna sjúkrahúsþjónustu
í sínu umdæmi. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði
fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins,
varasjúkrahús Landspítala og er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk.
Forstjóri ber ábyrgð á að SAk starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Hann ber
ábyrgð á starfsemi og þjónustu sjúkrahússins, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál
nr. 123/2015 .
Forstjóri skal hafa:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er áskilin.
• Mikla þekkingu á sviði heilbrigðisþjónustu.
• Farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og mannaforráðum.
• Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.
• Hæfni og reynslu til stefnumótunar.
• Menntun og/eða reynslu á sviði verkefnastjórnunar og stöðugra umbóta.
• Mjög góða hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Metnað og vilja til að ná árangri.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera.
Hæfni umsækjenda verður metin af hæfnisnefnd skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu.
Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri, asta.valdimarsdottir@hrn.is.
Umsóknir skulu berast heilbrigðisráðuneytinu, í gegnum ráðningarkerfi ríkisins eða
á netfangið: hrn@hrn.is eigi síðar en 12. júlí nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.
Heilbrigðisráðuneytinu, 26. júní 2020.
hagvangur.is