Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 2

Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Forstöðumaður eignastýringar Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða. Allir sem lokið hafa grunnnámi á háskólastigi geta skráð sig í sjóðinn. Lífsverk var fyrsti lífeyrissjóðurinn sem byggði á aldurstengdum réttindum, tók upp sjóðfélagalýðræði og rafrænt stjórnarkjör. Sérstaða Lífsverks er m.a. hár ávinningur réttinda og val um leiðir fyrir skyldusparnað. Sjóðurinn er ört vaxandi og nemur hrein eign í árslok 123 milljörðum króna. Gildi sjóðsins eru: Heilindi – jákvæðni – ábyrgð Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á www.lifsverk.is Menntunar- og hæfniskröfur: Lífsverk lífeyrissjóður óskar eftir að ráða öflugan einstakling til að leiða eignastýringu sjóðsins. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. • Ábyrgð á starfssviði eignastýringar • Þátttaka í mótun fjárfestingarstefnu og stefnu um ábyrgar fjárfestingar • Greining markaða og fjárfestingarkosta innanlands sem utan • Ákvarðanir um fjárfestingar • Samskipti við innlend og erlend verðbréfafyrirtæki og aðila á fjármálamarkaði • Skýrslugerð og almenn upplýsingagjöf til stjórnenda sjóðsins Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. • Háskólapróf á sviði fjármála, verk- eða tölfræði, eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi • Próf í verðbréfaviðskiptum • Umtalsverð starfsreynsla í eignastýringu eða á fjármálamarkaði • Þekking á ábyrgum fjárfestingum og grænum lausnum • Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni og niðurstöður með skipulögðum hætti • Leiðtogahæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót • Gott vald á íslensku og ensku Íslenski dansflokkurinn óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til að stýra daglegri starfsemi flokksins. Framkvæmdastjóri heyrir undir og vinnur náið með listrænum stjórnanda flokksins. Í boði er mjög áhugavert starf í lifandi og skapandi umhverfi. Helstu verkefni og ábyrgð • Umsjón með öllum fjármálarekstri flokksins • Samskipti við íslensk stjórnvöld, innlenda og erlenda samstarfsaðila • Ábyrgð á samninga- og áætlanagerð, stefnumótun og skýrslugerð • Umsjón með starfsmannamálum • Erlend og innlend samstarfsverkefni • Fjáraflanir • Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtist í starfi • Reynsla af fjármálum og rekstri • Reynsla af stjórnunarstörfum • Framúrskarandi samskiptahæfileikar • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun • Góð íslensku- og enskukunnátta • Þekking og áhugi á menningarstarfi Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí nk Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi, stefania@hagvangur.is Íslenski dansflokkurinn er sjálfstæð ríkisstofnun. Hlutverk hans er að sýna listdans, stuðla að nýsköpun í innlendri listdanssmíði og vera vettvangur til eflingar og framþróunar danslistar á Íslandi. Íslenski dansflokkurinn hefur byggt upp nafn og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum árum. Listrænn stjórnandi er forstöðumaður dansflokksins og aðsetur er í Borgarleikhúsinu. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu flokksins www.id.is Framkvæmdastjóri hagvangur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.