Morgunblaðið - 01.07.2021, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Heyrnar og talmeinastöð er ríkisstofnun sem sinnir greiningu og meðferð vegna
heyrnarskerðingar, heyrnarleysis sem og tal- og raddvandamála.
Um er að ræða fullt starf aðstoðarmanns á heyrnarsviði stofnunarinnar. Við leitum að
drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund til að aðstoða heyrnarfræðinga og heyrnar-
ráðgjafa HTÍ. Starfsmaðurinn beinir skjólstæðingum í rétta og tímanlega þjónustu,
vinnur náið með heyrnarfræðingum og hlýtur sérþjálfun til að vinna ákveðin störf undir
stjórn og á ábyrgð sérfræðinga HTÍ. Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn fái tækifæri
og þjálfun til að þróa sig í starfi með möguleika á fjölbreyttari verkefnum.
Helstu verkefni:
• Kynning hjálpartækja og aðstoð við notkun þeirra
• Skipulag og framkvæmd fjarþjónustu
• Umsjón með þjónustu við öldrunarstofnanir og aðstoð við vinnu heyrnarfræðinga
• Pöntun og móttaka rekstrarvöru og tækja fyrir heyrnarsvið
• Fræðsla til almennings og umönnunarstétta
• Eftirfylgd og stuðningur í kjölfar þess að einstaklingur fær ný heyrnar- eða
hjálpartæki
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Opin og drífandi manneskja með mikla samskiptafærni.
• Góð færni í ensku nauðsynleg og í einu Norðurlandamála æskileg (Dan, Sæn, Nor).
• Góð tölvufærni og hæfileiki til að tjá sig í ræðu og riti.
• Menntun á sviði heilbrigðisvísinda er mikill kostur (s.s. sjúkraliði og hjúkrunarfræði).
Stúdentspróf er lágmarkskrafa.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og
Sameyki hafa gert. Staðan er staðsett í starfsstöð HTÍ að Háaleitisbraut 1,
105 Reykjavík.
Við leitum að hörkuduglegum einstaklingi sem þrífst í þjónustuhlutverki og þykir gaman
að fjölbreyttum verkefnum. Starfið felur í sér mikil samskipti við fjölda viðskiptavina á
öllum aldri og við marga starfsmenn innan HTÍ.
Umsóknir með kynningarbréfi og ferilskrá sendist í tölvupósti á hti@hti.is
(vinsamlegast tilgreinið umsagnaraðila s.s. fyrri vinnuveitanda).
Umsóknarfrestur er til 23. júlí nk. og reiknað er með að starfsmaður hefji störf
í síðasta lagi 1. september.
Fyrirspurnir um starfið má senda á hti@hti.is merkt „Starfsmaður á heyrnarsviði“.
Aðstoðarmaður
Heyrnar og talmeinastöð Íslands auglýsir starf Aðstoðarmanns á heyrnarsviði
Akureyrarbær leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að leiða þjónustu- og skipu-
lagssvið bæjarins. Um er að ræða nýtt stoðsvið sem ber ábyrgð á þjónustuferlum og
þróun þeirra, stafrænum umbreytingum, skipulags- og byggingarmálum sem hluta af
uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins en faglegur hluti skipulags- og byggingamála
er á ábyrgð forstöðumanna þeirra verkefna. Þá ber sviðið einnig ábyrgð á markaðs-
og menningarmálum Akureyrarbæjar, innri og ytri upplýsingum og þjónustu s.s.
rafrænni stjórnsýslu, heimasíðu bæjarins, þjónustuveri, skjalastjórnun, þjónustu við
kjörna fulltrúa, rekstri og umsjón starfsstöðva og mötuneyta, íbúasamráði og atvin-
numálum. Næsti yfirmaður sviðsstjóra er bæjarstjóri.
Um er að ræða nýtt og spennandi starf sem felur í sér tækifæri á að móta og leiða ný-
jungar og krefst skýrrar framtíðarsýnar og náins og uppbyggilegs samstarfs við önnur
svið sveitarfélagsins sem og aðra hagaðila.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun sviðsins í samræmi við
áherslur Akureyrarbæjar
• Stefnumótun og nýsköpun í þjónustu Akureyrarbæjar
• Ábyrgð á þróun og innleiðingu stafrænna þjónustuleiða
• Ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum sveitarfélagsins
• Ábyrgð á atvinnu- og menningarmálum sveitarfélagsins
• Umsjón með almennum stjórnsýsluumbótum og umbótum á sviði gæðamála
• Umsjón með þjónustu við kjörna fulltrúa sem hluta af innri þjónustu
• Ábyrgð verkefna á sviði íbúalýðræðis sem hluti af ytri þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistarapróf er æskilegt.
• Reynsla sem nýtist í starfi
• Reynsla af verkefna- breytingastjórnun er æskileg
• Góð þekking og færni í þróun og innleiðingu stafrænna lausna
• Reynsla og þekking af upplýsingatækni og stafrænni þjónustu
• Framúrskarandi samvinnu- og samskiptafærni
• Hæfni til að leiða hóp, skapa hvetjandi starfsumhverfi og jákvæða
þjónustuupplifun þjónustuþega
• Leiðtogafærni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og drifkraftur
• Rík þjónustulund, áhugi og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og
athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Akureyrarbær er öflugt 19.000 manna sveitarfélag sem leggur metnað sinn í að veita
góða og fjölbreytta þjónustu. Á Akureyri stendur íþrótta- og tómstundastarf í miklum
blóma og menningarlífið setur sterkan svip á bæjarbraginn. Sveitarfélagið er í fremstu
röð hvað varðar umhverfismál, var fyrsta Barnvæna sveitarfélag UNICEF á Íslandi og
er miðstöð Norðurslóðamála hérlendis. Tíminn nýtist vel í dagsins önn þar sem stutt
er á milli staða og auðvelt að tvinna saman vinnu og einkalíf.
Akureyrarbær er líflegur vinnustaður þar sem um tvö þúsund manns starfa í fjöl-
breyttum og krefjandi störfum. Starfsánægja, hæfni og jafnræði eru leiðarljós okkar í
mannauðsmálum.
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst næstkomandi. Sótt er um á alfred.is,
https://alfred.is/starf/svidsstjori-thjonustu-og-skipulagssvids
Óskað er eftir að umsókn fylgi ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar, hæfni til að gegna starfinu og samantekt þar sem fram koma hug-
myndir umsækjanda um uppbyggingu sviðsins og þróun faglegs starfs þess.
Frekari upplýsingar um starfið veitir bæjarstjóri, Ásthildur Sturludóttir,
asthildur@akureyri.is
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í
starfið.
Við leitum að leiðtoga
Hefur þú kraftinn, hæfnina og þekkinguna til að leiða nýtt svið hjá Akureyrarbæ,
þar sem horft er til framtíðar með stafræna innleiðingu og aukna þjónustu í huga?