Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Side 2
Hvað er Netnótan? Við ætluðum að halda upp á tíu ára afmæli Nótunnar árið 2020 en Covid kom í veg fyrir það. Svo ætluðum við að taka upp þráðinn árið 2021 en þurftum að bregða á það ráð að halda upp á afmæl- ið á netformi. Kennarar og stjórnendur taka því þátt í Nótunni nú með síma og spjaldtölvur að vopni. Þetta fer þannig fram að hver skóli útbýr stutt myndband úr starfseminni og þessi mynd- bönd eru birt samhliða því að N4 sýnir þrjá sjónvarpsþætti. Þar er sjónvarpsstöðin búin að klippa skemmtilega saman brot úr þess- um myndböndum og úr hefur orðið fjölbreytt og skemmtilegt sjón- varpsefni. Hvers konar myndbönd eru þetta? Það er leitast við að sýna mikið úr skólastarfinu. Það er til dæmis tekið upp í skólastofum, tekin viðtöl og brugðið á leik. Er þetta eitthvað sem gæti orðið framhald á? Það hefur skapast umræða um það. Þarna gæti verið um að ræða möguleika til viðbótar við hefðbundið form Nótunnar hjá okkur og ég held að það sé ekkert ólíklegt að við munum nýta okkur þetta form við þróun Nótunnar. Er mikil eftirvænting hjá krökkunum fyrir þáttunum? Já, vikulega svara ég tölvupóstum um það hvenær þættirnir verði á dagskrá. Þetta er bæði skemmtileg reynsla og gagnleg fyrir nemendur, kennara og skólana. Hvernig hefur veturinn gengið í tónlistarkennslu? Þetta hefur auðvitað verið skrítið allt saman. En ég hef verið svo ánægjulega undrandi á því hvað fólk hefur verið jákvætt og lausnamiðað þrátt fyrir það álag, óvissu og annað sem þetta ástand hefur skapað. Fólk hefur látið tæknihliðina lítið setja sig úr lagi og hefur náð að halda í þá gleði sem þarf að einkenna tónlistarsköpun. Mér finnst stéttin hafa náð að draga fram allt það jákvæða úr aðstæðunum. Þrátt fyrir erfiða tíma hefur það ekki skyggt á ánægjuna og vil ég hér nota tækifærið og hrósa kennurum og nem- endum um land allt. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon SIGRÚN GRENDAL SITUR FYRIR SVÖRUM Lítið látið setja sig úr lagi Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021 Þ að sem helst bar hæst í fréttum undanfarna viku er bólusetningarfárið með óvenjulöngum röðum við og í kringum Laugardalshöllina. Þar fengu sumir að standa ansi lengi í margra kílómetra halarófu, (kannski örlitlar ýkjur en það má) í grenjandi rigningu á köflum og var mönnum misskemmt. Sumir voru eiginlega bara hundfúlir. Líklega hefur brúnin lyfst aðeins eft- ir að dýrmætu droparnir voru komnir inn fyrir skinn. Það er mikill léttir; það veit ég sem er nú fullbólusett. Og hef því yfir engu að kvarta lengur! En það voru ekkert allir í röðinni í fýlu. Sumir komu líka vel undirbúnir fyrir dvölina löngu í röðinni og mættu með lesefni, eins og rithöf- undurinn Sverrir Norland sem mætti með Proust undir hendinni, auðvitað á frummálinu. Aðrir notuðu tímann og spjölluðu við gamla skóla- félaga sem höfðu kannski ekki sést í áratugi. Það fólk skemmti sér prýði- lega og lét rigningu ekki á sig fá. Einum fannst reyndar röðin frekar óþægileg þar sem sá hitti ansi margar konur sem hann hafði einhvern tímann sængað hjá. Nú eða menn; það fylgdi ekki sögunni. Þetta virtist hafa verið nokkur fjöldi, samkvæmt „áreiðanlegum“ heimildum á Facebook. Þá var víst ekki gott að standa fastur í röð og niðurrigndur í þokkabót. Maður vill jú líta vel út þegar maður mætir gömlum hjásvæfum. En burtséð frá bólusetningum og veðrinu, þá er aldeilis bjart fram undan, sumarið er komið og það á víst að sjást til sólar í næstu viku. Hvernig er annað hægt en að brosa hringinn? Já, og kannski vegna þess að ég er að detta í langþráð sumarfrí; það skemmir ekki fyrir. Annað sumarið í röð mun ég pakka í töskur og troða í litla skottið, henda hvort tveggja tveimur Bandaríkjamönnum og unglingum í bílinn og bruna af stað. Utanlandsferðir bíða enn um stund því Ísland er perla, ekki síst á björtum sumarnóttum. Sumarið er tíminn! Hjásvæfur í röðum Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Maður vill jú líta vel út þegar maður mætir gömlum hjásvæfum. Svanbjörg Hinriksdóttir Innmatur úr rollu. SPURNING DAGSINS Hvaða matur finnst þér vondur? Viktor Örn Gunnarsson Súrmatur. Ingibjörg Jónasdóttir Sagógrjónagrautur er nokkuð sem ég læt ekki inn fyrir mínar varir. Sölvi Snorrason Ýsa. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Fyrsti af þremur þáttum Netnótunnar, sjónvarpsþáttar á N4, verður sýndur í dag. Þættirnir koma í stað Nótunnar, uppskeruhátíðar tónlistarskóla landsins, í ár. Sigrún Grendal er formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS EYJA HINS EILÍFA VORS 28. SEPTEMBER - 07. OKTÓBER - 9 NÆTUR FLUG OG GISTING MEÐ MORGUNVERÐI VERÐ FRÁ Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA MADEIRA 129.900 KR. Fararstjóri Kristín Olga Gunnarsdóttir BEINT FLUGTIL MADEIRA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.