Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Side 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021
G
uðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra varð
hlutskarpastur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eft-
ir æsilega baráttu við Áslaugu
Örnu Sigurbjörnsdóttur dóms-
málaráðherra sem varð í öðru sæti.
Nýliðinn Diljá Mist Einarsdóttir
varð þriðja og Hildur Sverrisdóttir
fjórða en þær eru báðar aðstoðar-
menn ráðherra. Tveir þingmenn
flokksins, Sigríður Á. Andersen og
Brynjar Níelsson, náðu á hinn bóg-
inn ekki tilsettu marki og verða ekki
á lista flokksins fyrir þingkosning-
arnar í haust.
Kókaínneysla jókst mikið á Íslandi
frá 2017 til 2020, að því er fram kem-
ur í nýrri rannsókn. Ein helsta heim-
ildin eru holræsi en sýni eru tekin úr
frárennslisvatni í skolphreinsistöðv-
um borgarinnar. Neyslan dróst sam-
an á seinasta ári enda flóknara að
flytja efnið inn til landsins í heims-
faraldrinum.
Akureyringar eignuðust sína fyrstu
Íslandsmeistara í handbolta kvenna
en KA/Þór vann einvígið við Val 2:0.
Þetta er aðeins í annað sinn sem tit-
illinn hafnar utan höfuðborgarsvæð-
isins.
Sveitarstjórn Langanesbyggðar
skoðar möguleika á því að flytja og
setja upp Þórsstofu á Þórshöfn en
stofan er helguð dr. Þór Jakobssyni
veðurfræðingi og leiðöngrum hans
um norðurslóðir og Norður-Íshaf.
Sjónvarpssnúrur og -fjarstýringar
mega muna sinn fífil fegri en fram
kom í byrjun vikunnar að fólk geti
hér eftir klæðskerasniðið eigin upp-
lifun á sínu notendaviðmóti snjall-
sjónvarpa og þarf ekki að sækja
sjónvarpsefni í sérstök öpp mismun-
andi veitna. Þá eru gömlu myndlykl-
arnir að verða óþarfir.
. . .
Eldhúsdagsumræður fóru fram á
Alþingi að kvöldi mánudags. Tals-
menn stjórnarflokkanna hældu sér
af verkum sínum og vöruðu við hug-
myndum stjórnarandstöðunnar.
Bjart væri fram undan yrði haldið
áfram á sömu braut. Stjórnarand-
staðan fann ríkisstjórninni aftur á
móti allt til foráttu og sagði flest
stefna hér í óefni, meðal annars í
heilbrigðiskerfinu. Þá hefðu stjórn-
arflokkarnir ítrekað hafnað eigin
gildum og jafnvel stefnu. Fæstum
brá vegna málflutnings fylkinganna.
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhann-
esson og Eliza Reid fóru í sína
fyrstu opinberu heimsókn frá því
heimsfaraldurinn skall á. Sveitarfé-
lagið Ölfus varð fyrir valinu og báru
heimamenn hjónin á höndum sér.
Guðni kvaddi með tillögu að nýju
slagorði sveitarfélagsins: „Velkomin
í Ölfus. Næg bílastæði.“
Manni nokkrum í Flatey brá í brún
þegar dráttarvélin sem hann var að
fara að nota verpti skyndilega eggj-
um. Er betur var að gáð kom í ljós að
það var í raun æðarkolla sem átti
eggin. Hafði gert sér hreiður undir
dráttarvélinni.
Menn hleyptu ekki síður brúnum
þegar golfkúla fannst í æðarhreiðri á
golfvellinum í Grindavík. Það átti
sér þó líka eðlilegar skýringar en
kylfingurinn Ari Leifsson hafði sleg-
ið lítið eitt út fyrir brautina og
sumsé farið hreiður í höggi. Stugga
þurfti við æðarkollunni til að end-
urheimta kúluna enda taldi hún
hana sína.
Rómantískir söngvar feðraveld-
isins, gjörningur eftir myndlistar-
manninn Ragnar Kjartansson verð-
ur fluttur í hinu þekkta Guggen-
heim-safni í New York 2.-5. júlí.
Ljóst er að KR ver ekki Íslandsmeist-
aratitil sinn í körfubolta karla en
Keflavík sópaði þeim röndóttu út úr
undanúrslitum mótsins. Annað lið en
KR varð síðast Íslandsmeistari 2013.
. . .
Landsbankinn gerir ráð fyrir að
tekjur af ferðaþjónustunni aukist
um 120 milljarða á þessu ári, meðal
annars út af lengri dvalartíma ferða-
manna. Jafnframt telur bankinn að
ferðamönnum fjölgi um 67% frá síð-
asta ári. Ný spá bankans gerir ráð
fyrir 800 þúsund ferðamönnum til
landsins í ár.
Hlutdeild íslenskrar tónlistar er
nú aðeins 21% af heildarsölunni
hér á landi. Sölutekjur innlendra
tónlistarrétthafa vegna ársins
2020 eru aðeins fjórðungur tekna
þeirra árið 2006 að raunvirði.
Bríet var sá íslenski tónlistar-
maður sem mest var streymt í
fyrra.
Einu partíin hér á landi, þar sem lyf
eru höfð um hönd og eitthvað kveður
að, fara enn þá fram í Laugardals-
höllinni. Örtröð var í höllinni í vik-
unni og fram kom að lýðurinn væri
sólgnastur í Pfizer og brögð að því
að menn mættu jafnvel óboðnir í
samkvæmið þegar það efni var í
boði. Þarf að ráða útkastara að hirð-
inni?
Eldgosið í Geldingadal þykir ekki
lengur eins tilkomumikið og áður og
gígurinn lokast smátt og smátt.
Landsmenn eru aftur byrjaðir að
fjölmenna í bíó og sáu 3.700 manns
íslensku kvikmynda Saumaklúbb-
inn fyrstu helgina.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um að
setja á fót hálendisþjóðgarð verður
ekki samþykkt á þessu þingi. Um-
hverfis- og samgöngunefnd segir
mikla vinnu eftir við frumvarpið. Þá
verður stjórnarskrárfrumvarp
Katrínar Jakobsdóttur ekki rætt á
vorþinginu.
Ísland gerði jafntefli, 2:2, við Pól-
land í vináttulandsleik karla ytra.
Robert Lewandowski komst ekki á
blað í leiknum sem alltaf sætir tíð-
indum.
. . .
Heppinn fjölskyldufaðir á fertugs-
aldri sem tók þátt í Víkingalottóinu
vann á miðvikudagskvöld hæsta
vinning sem sést hefur á Íslandi en
hann nam rúmlega 1,2 milljörðum
króna. Fyrstu viðbrögð vinningshaf-
ans voru að fara í góðan göngutúr.
Andleg líðan ungs fólks á aldrinum
18 til 34 ára virðist hafa þróast til
verri vegar á umliðnum mánuðum
samkvæmt lýðheilsuvísum embættis
landlæknis.
Framkvæmdastjórn Landspítala
fundaði stíft í vikunni vegna stöð-
unnar á bráðamóttökudeild spít-
alans og snerust fundirnir helst um
viðbragð til þess að mæta manneklu,
sérstaklega á meðal lækna.
Áformað er að hefja framkvæmdir við
verksmiðju Íslandsþara á Húsavík
næsta vor og verður jarðhiti notaður
til að þurrka þarann við vinnsluna.
Rætt hefur verið um að fjárfestingin
sé á þriðja milljarð króna.
Meirihluti íbúa Borgarbyggðar er
hlynntur því að sett séu upp vind-
orkuver á Íslandi, ef marka má skoð-
anakönnun. Áhuginn er þó heldur
minni á að staðsetja slík mannvirki í
sveitarfélaginu sjálfu.
Tónlistarmenn landsins sprikla nú
af eftirvæntingu enda sér loksins
fyrir endann á samkomutakmörk-
unum. Mikið er auglýst af stór-
tónleikum í haust og sumir óttast
offramboð.
Ef vel var að gáð sást deildar-
myrkvi á sólu að morgni fimmtu-
dags. Tunglið skyggði á 69% af þver-
máli sólar þegar myrkvinn var
mestur.
. . .
Hallveig Thorlacius og Þórhallur
Sigurðsson hlutu heiðursverðlaun
Sviðlistasambands Íslands árið 2021
fyrir ómetanleg störf í þágu ís-
lenskrar barnamenningar og leik-
húslífs þegar Gríman var afhent.
Vertu Úlfur eftir Héðin Unn-
steinsson og Unni Ösp Stefáns-
dóttur hlaut flestar Grímur, sjö
talsins.
Atvinnulausum hefur fækkað mikið
eða um 3.400 á átta vikum. Atvinnu-
leysi er nú 9,1%.
Þrjú hundruð milljónum króna
verður bætt við fjárveitingar til
hjúkrunarheimila landsins á þessu
ári, verði tillögur meirihluta fjár-
laganefndar Alþingis samþykktar.
Í einu af fimm dauðsföllum sem
voru til rannsóknar hjá óháðum að-
ilum var metið ólíklegt til mögulegt
að bólusetning hafi leitt til andláts.
Í hinum fjórum tilfellum var það
metið ólíklegt.
Frumvarp félags- og barna-
málaráðherra um hundrað þúsund
króna eingreiðslu til þeirra sem hafa
verið atvinnulausir í 14 mánuði eða
lengur var samþykkt á Alþingi.
Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur ákveðið
að lána Íslendingum 24 þúsund
skammta af bóluefninu Janssen.
Óttarr Proppé, bóksali, tónlist-
armaður og fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra, tók við sem formaður
stjórnar UNICEF á Íslandi á árs-
fundi félagsins.
Alls hafa 128.645 einstaklingar ver-
ið fullbólusettir við kórónuveirunni
hérlendis. Bólusetning er hafin hjá
86.326 til viðbótar.
Evrópumeistaramót karla í knatt-
spyrnu, kennt við árið 2020, er loks-
ins hafið. Góða skemmtun!
Dráttarvél
verpti eggjum
Loksins var hafist handa við niðurrif á Bræðraborgarstíg 1 í vikunni en húsið brann fyrir tæpu ári, 25. júní í fyrra.
Morgunblaðið/Eggert
06.06.-11.06.
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
KA/Þór fagnaði sínum fyrsta titli í meistaraflokki kvenna í handbolta.
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*
-�-"%
,�rKu!,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali