Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Page 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021 G uðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra varð hlutskarpastur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eft- ir æsilega baráttu við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dóms- málaráðherra sem varð í öðru sæti. Nýliðinn Diljá Mist Einarsdóttir varð þriðja og Hildur Sverrisdóttir fjórða en þær eru báðar aðstoðar- menn ráðherra. Tveir þingmenn flokksins, Sigríður Á. Andersen og Brynjar Níelsson, náðu á hinn bóg- inn ekki tilsettu marki og verða ekki á lista flokksins fyrir þingkosning- arnar í haust. Kókaínneysla jókst mikið á Íslandi frá 2017 til 2020, að því er fram kem- ur í nýrri rannsókn. Ein helsta heim- ildin eru holræsi en sýni eru tekin úr frárennslisvatni í skolphreinsistöðv- um borgarinnar. Neyslan dróst sam- an á seinasta ári enda flóknara að flytja efnið inn til landsins í heims- faraldrinum. Akureyringar eignuðust sína fyrstu Íslandsmeistara í handbolta kvenna en KA/Þór vann einvígið við Val 2:0. Þetta er aðeins í annað sinn sem tit- illinn hafnar utan höfuðborgarsvæð- isins. Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar möguleika á því að flytja og setja upp Þórsstofu á Þórshöfn en stofan er helguð dr. Þór Jakobssyni veðurfræðingi og leiðöngrum hans um norðurslóðir og Norður-Íshaf. Sjónvarpssnúrur og -fjarstýringar mega muna sinn fífil fegri en fram kom í byrjun vikunnar að fólk geti hér eftir klæðskerasniðið eigin upp- lifun á sínu notendaviðmóti snjall- sjónvarpa og þarf ekki að sækja sjónvarpsefni í sérstök öpp mismun- andi veitna. Þá eru gömlu myndlykl- arnir að verða óþarfir. . . . Eldhúsdagsumræður fóru fram á Alþingi að kvöldi mánudags. Tals- menn stjórnarflokkanna hældu sér af verkum sínum og vöruðu við hug- myndum stjórnarandstöðunnar. Bjart væri fram undan yrði haldið áfram á sömu braut. Stjórnarand- staðan fann ríkisstjórninni aftur á móti allt til foráttu og sagði flest stefna hér í óefni, meðal annars í heilbrigðiskerfinu. Þá hefðu stjórn- arflokkarnir ítrekað hafnað eigin gildum og jafnvel stefnu. Fæstum brá vegna málflutnings fylkinganna. Forsetahjónin Guðni Th. Jóhann- esson og Eliza Reid fóru í sína fyrstu opinberu heimsókn frá því heimsfaraldurinn skall á. Sveitarfé- lagið Ölfus varð fyrir valinu og báru heimamenn hjónin á höndum sér. Guðni kvaddi með tillögu að nýju slagorði sveitarfélagsins: „Velkomin í Ölfus. Næg bílastæði.“ Manni nokkrum í Flatey brá í brún þegar dráttarvélin sem hann var að fara að nota verpti skyndilega eggj- um. Er betur var að gáð kom í ljós að það var í raun æðarkolla sem átti eggin. Hafði gert sér hreiður undir dráttarvélinni. Menn hleyptu ekki síður brúnum þegar golfkúla fannst í æðarhreiðri á golfvellinum í Grindavík. Það átti sér þó líka eðlilegar skýringar en kylfingurinn Ari Leifsson hafði sleg- ið lítið eitt út fyrir brautina og sumsé farið hreiður í höggi. Stugga þurfti við æðarkollunni til að end- urheimta kúluna enda taldi hún hana sína. Rómantískir söngvar feðraveld- isins, gjörningur eftir myndlistar- manninn Ragnar Kjartansson verð- ur fluttur í hinu þekkta Guggen- heim-safni í New York 2.-5. júlí. Ljóst er að KR ver ekki Íslandsmeist- aratitil sinn í körfubolta karla en Keflavík sópaði þeim röndóttu út úr undanúrslitum mótsins. Annað lið en KR varð síðast Íslandsmeistari 2013. . . . Landsbankinn gerir ráð fyrir að tekjur af ferðaþjónustunni aukist um 120 milljarða á þessu ári, meðal annars út af lengri dvalartíma ferða- manna. Jafnframt telur bankinn að ferðamönnum fjölgi um 67% frá síð- asta ári. Ný spá bankans gerir ráð fyrir 800 þúsund ferðamönnum til landsins í ár. Hlutdeild íslenskrar tónlistar er nú aðeins 21% af heildarsölunni hér á landi. Sölutekjur innlendra tónlistarrétthafa vegna ársins 2020 eru aðeins fjórðungur tekna þeirra árið 2006 að raunvirði. Bríet var sá íslenski tónlistar- maður sem mest var streymt í fyrra. Einu partíin hér á landi, þar sem lyf eru höfð um hönd og eitthvað kveður að, fara enn þá fram í Laugardals- höllinni. Örtröð var í höllinni í vik- unni og fram kom að lýðurinn væri sólgnastur í Pfizer og brögð að því að menn mættu jafnvel óboðnir í samkvæmið þegar það efni var í boði. Þarf að ráða útkastara að hirð- inni? Eldgosið í Geldingadal þykir ekki lengur eins tilkomumikið og áður og gígurinn lokast smátt og smátt. Landsmenn eru aftur byrjaðir að fjölmenna í bíó og sáu 3.700 manns íslensku kvikmynda Saumaklúbb- inn fyrstu helgina. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um að setja á fót hálendisþjóðgarð verður ekki samþykkt á þessu þingi. Um- hverfis- og samgöngunefnd segir mikla vinnu eftir við frumvarpið. Þá verður stjórnarskrárfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur ekki rætt á vorþinginu. Ísland gerði jafntefli, 2:2, við Pól- land í vináttulandsleik karla ytra. Robert Lewandowski komst ekki á blað í leiknum sem alltaf sætir tíð- indum. . . . Heppinn fjölskyldufaðir á fertugs- aldri sem tók þátt í Víkingalottóinu vann á miðvikudagskvöld hæsta vinning sem sést hefur á Íslandi en hann nam rúmlega 1,2 milljörðum króna. Fyrstu viðbrögð vinningshaf- ans voru að fara í góðan göngutúr. Andleg líðan ungs fólks á aldrinum 18 til 34 ára virðist hafa þróast til verri vegar á umliðnum mánuðum samkvæmt lýðheilsuvísum embættis landlæknis. Framkvæmdastjórn Landspítala fundaði stíft í vikunni vegna stöð- unnar á bráðamóttökudeild spít- alans og snerust fundirnir helst um viðbragð til þess að mæta manneklu, sérstaklega á meðal lækna. Áformað er að hefja framkvæmdir við verksmiðju Íslandsþara á Húsavík næsta vor og verður jarðhiti notaður til að þurrka þarann við vinnsluna. Rætt hefur verið um að fjárfestingin sé á þriðja milljarð króna. Meirihluti íbúa Borgarbyggðar er hlynntur því að sett séu upp vind- orkuver á Íslandi, ef marka má skoð- anakönnun. Áhuginn er þó heldur minni á að staðsetja slík mannvirki í sveitarfélaginu sjálfu. Tónlistarmenn landsins sprikla nú af eftirvæntingu enda sér loksins fyrir endann á samkomutakmörk- unum. Mikið er auglýst af stór- tónleikum í haust og sumir óttast offramboð. Ef vel var að gáð sást deildar- myrkvi á sólu að morgni fimmtu- dags. Tunglið skyggði á 69% af þver- máli sólar þegar myrkvinn var mestur. . . . Hallveig Thorlacius og Þórhallur Sigurðsson hlutu heiðursverðlaun Sviðlistasambands Íslands árið 2021 fyrir ómetanleg störf í þágu ís- lenskrar barnamenningar og leik- húslífs þegar Gríman var afhent. Vertu Úlfur eftir Héðin Unn- steinsson og Unni Ösp Stefáns- dóttur hlaut flestar Grímur, sjö talsins. Atvinnulausum hefur fækkað mikið eða um 3.400 á átta vikum. Atvinnu- leysi er nú 9,1%. Þrjú hundruð milljónum króna verður bætt við fjárveitingar til hjúkrunarheimila landsins á þessu ári, verði tillögur meirihluta fjár- laganefndar Alþingis samþykktar. Í einu af fimm dauðsföllum sem voru til rannsóknar hjá óháðum að- ilum var metið ólíklegt til mögulegt að bólusetning hafi leitt til andláts. Í hinum fjórum tilfellum var það metið ólíklegt. Frumvarp félags- og barna- málaráðherra um hundrað þúsund króna eingreiðslu til þeirra sem hafa verið atvinnulausir í 14 mánuði eða lengur var samþykkt á Alþingi. Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur ákveðið að lána Íslendingum 24 þúsund skammta af bóluefninu Janssen. Óttarr Proppé, bóksali, tónlist- armaður og fyrrverandi heilbrigð- isráðherra, tók við sem formaður stjórnar UNICEF á Íslandi á árs- fundi félagsins. Alls hafa 128.645 einstaklingar ver- ið fullbólusettir við kórónuveirunni hérlendis. Bólusetning er hafin hjá 86.326 til viðbótar. Evrópumeistaramót karla í knatt- spyrnu, kennt við árið 2020, er loks- ins hafið. Góða skemmtun! Dráttarvél verpti eggjum Loksins var hafist handa við niðurrif á Bræðraborgarstíg 1 í vikunni en húsið brann fyrir tæpu ári, 25. júní í fyrra. Morgunblaðið/Eggert 06.06.-11.06. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is KA/Þór fagnaði sínum fyrsta titli í meistaraflokki kvenna í handbolta. Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '* -�-"% ,�rKu!, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Iðnaðareiningar í miklu úrvali

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.