Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021
V
eruleikinn er iðulega snúnari en
okkur hentar. Síðustu misserin
hefur hann verið heltekinn af
veirunni og svo bólusetningum til
að hindra skemmdarverk af henn-
ar völdum.
Sé gengið fram á hópa fólks á miðjum aldri og
eldri á kjaftatörn heyrast orðin AstraZeneca, Mod-
erna, Janssen og Pfizer. Og umræðuefnin um efnin
virðist óþrjótandi, þó vitum við satt best að segja
flest næsta lítið um innihaldið og hvernig það kunni
að haga sér þegar inn í skrokkinn er komið. Við
höfum þó flest tekið eins konar sjálfvirka afstöðu
með þeim ráðleggingum sem mæla með bólusetn-
ingum. Enginn hefur reynt að fela fyrir okkur að
ekkert þessara efna og annarra slíkra er fullrann-
sakað, þótt margir hafi lagt hart að sér og margt
sé vitað. Til þess að rannsókn væri lokið svo öruggt
þætti þyrfti viðbótartíma. Jafnvel tvö ár að mati
þeirra sem vita hvað mest.
En heimurinn hefur ákveðið í leynilegri atkvæða-
greiðslu, sem fór þó ekki fram með neinum form-
legum hætti, og hvergi var auglýst, að hann hefur
ekki fjárhagslegt bolmagn til að bíða bóluefna-
legrar fullkomnunar. Allur þorri fólks í okkar
heimshluta hefur greitt attkvæði með þessari
niðurstöðu, þótt þau atkvæði hafi hvergi verið talin.
Og þessi niðurstaða varð þótt dunið hafi á mann-
skapnum fréttir um margvíslegar aukaverkanir,
sem sumar eru jafnvel meiri og endanlegri en svo
að sakleysislegt orð geti lýst.
Áttu á endanum ekkert val
Hinn kosturinn, að láta veiruna yfir sig ganga,
gekk hreinlega ekki upp. Heiminum var nánast
skellt í lás í heilt ár þótt engan hafi þá grunað að
lokunin stæði svo lengi. En það var einmitt sann-
færingin um að bóluefnin væru skammt undan sem
tryggði bærilega sátt um slíkar aðgerðir, sem eru í
anda þess sem stjórnvöld leyfa sér þegar þau glíma
við styrjaldarástand. Það var þó ekki eins og veir-
an sjálf væri ekki nægileg ógn, heldur hefur verið
reynt að auka við óttann með margvíslegu og æði
óljósu tali um hin og þessi afbrigði, sem gjarnan
eru skírð eftir löndum sem þau eru sögð hafa kom-
ið upp hjá, sem eykur enn á alla bölvun. Því var
haldið að fólki í fjölmiðlum að „afbrigðin“ væru
mun hættulegri og smitin fljótari í förum en gamla
móðurveiran og látið að því liggja að bólusetning
gæti orðið lítil vörn vegna þessa og annarra af-
brigða sem kæmu hugsanlega frá öðrum svæðum
heims.
Það tók langan tíma að leiða þetta furðutal í jörð
á ný og nú virðist það vera sameiginlegt álit
nægjanlega margra, sem vita nægjanlega mikið, að
afbrigðin muni litlu breyta eða engu um varn-
argetu bóluefnanna. Þessi tilraun til æsinga eða
skemmdarverka er því að mestu úr sögunni, og
hún var ekki endilega illa meint og í mörgum til-
vikum borin áfram í meinleysislegri fleytingu trú-
gjarnra um þær gáttir sem eru galopnar á þessum
síðustu og verstu tímum.
Upplagðir fyrir aukaverkanir?
Ekki liggur fyrir, svo augljóst sé, hvers vegna
sumir eru móttækilegri fyrir „aukaverkunum“ en
aðrir og er þá ekki átt við alvarlegustu dæmin, þau
sem liggja á mörkum lífs og dauða, en þau hafa eðli
málsins samkvæmt verið rækilega rannsökuð. En
þeim dæmum sem eru minni háttar er ekki endi-
lega haldið til haga, þótt einhver tilraun sé gerð til
að ná utan um þau.
Bréfritari greindi frá því hér að hann sótti sér
sprautu með AZ-efninu í Höllina föstudaginn 26.
mars sl. og bar þá að verðleikum mikið lof á hversu
gott skipulagið var á því verki öllu. Daginn eftir
kom bréfið til áskrifenda og þá var ritari þess orð-
inn illa haldinn með 39 stiga hita, sem stóð á annan
sólarhring. Þá tóku við ógleði og uppköst sem
stóðu lítið skemur og voru ekki endilega upplífg-
andi. Í vikunum sem fóru í hönd voru vinir og
kunningjar á svipuðu reki spurðir frétta og und-
antekningarlítið höfðu þeir komist frá sinni
sprautu, eins og hún hefði aldrei farið fram. Einn
hafði talið daginn eftir sprautu tilvalinn til þess að
rölta að gosstöðvunum og gerði það eins og að
drekka vatn og flestir hinna virtust hafa verið í
færum til hins sama. En eftir lufsugang undirritaðs
í nokkra daga urðu margir til þess að nefna í hugg-
unarskyni að það væri einkenni AZ að seinni
sprautan væri mun léttvægari en sú fyrri og hefði
hún það fram yfir önnur nafngreind bóluefni.
Sú seinni
Leið nú tíminn og einum 11 vikum síðar var að því
komið að fá seinni sprautuna. Þangað var horfið
glaðbeittur í krafti fyrrgreindra upplýsinga. Þegar
glitti í Laugardalshöllina, sem er eins og hálf-bóla í
djúpum dal, og minnir þannig á þennan gerning
núna, varð ekki betur séð en að bólusetningin hefði
blandast við fótboltakappleik af stærri gerðinni.
Þegar portúgalski kappinn Eusébio keppti með
Benfica hér 1968 voru 18.000 gestir á vellinum og
bréfritari var á meðal þeirra. Biðröðin nú minnti
hann helst á þennan atburð. Frúin lét bréfritara út
úr bíl uppi á Suðurlandsbraut til að koma sér í röð-
ina. Veðrið var bærilegt framan af, en svo tók að
rigna nokkuð, þótt ekki væri það úrfelli. Það var
reyndar notalegt hvað fólkið, sem komið var í
seinni sprautuna sína, tók því vel að bíða í klukku-
tíma og 20 mínútur til að komast í hús og í lang-
þráða sprautu. Það góða fólk, sem var næst bréfrit-
ara, tók þessu öllu eins og einu af lífsins
skemmtiatriðum og sló öllu upp í glens. Ekki kæmi
á óvart þótt ýmsir þarna hafi, eins og bréfritari,
verið í nokkur ár í Austurbæjarskóla og biðu því
sátt og rauluðu í hljóði: „Prúð og frjálsleg í fasi,
fram nú allir í röð,“ eins og gert hafði verið upp-
hátt þar.
Og þegar inn í stóra salinn var komið var allt í
fínum og leikandi skorðum, rétt eins og seinast svo
þakkarefni var. En það var af bréfritara að segja
að hann hafði verið í seinnisprautu-montrússi fram
eftir degi. Þá rauk hitinn upp í 39 gráður og stóð
þannig í tvo daga og er byrjaður að rjátlast niður
þegar þetta er skrifað.
En bónusinn var að maginn var ekki í uppreisn-
arástandi eins og seinast, sem munaði verulega um.
Eins og fyrr sagði hefur bréfritari ekki grænan
grun um það hvers vegna félagar og vinir á líkum
aldri sluppu svona vel síðast. Einhverjir gætu getið
sér þess til að bréfritari hafi átt þetta skilið um-
fram hina, en þótt góðir séu verður sú niðurstaða
ekki keypt sem vísindi.
Bréfritari heyrði í góðum vini út af öðru, sem
lærður er í fræðunum, og hann orðaði það sem svo
Kannski kemur
veiran næst með
sína málsvörn?
Reykjavíkurbréf11.06.21