Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Qupperneq 17
að viðkomandi gæti velt fyrir sér hvernig hann sem sjúklingur hefði brugðist við veirunni hefði hún komist að. Líkaminn væri jú að bregðast við bólu- setningunni með svipuðum hætti og hann myndi hafa brugðist við veirunni sjálfri hefði hún komist ótrufluð að. Og hún hefði ekki látið neitt stoppa sig, öfugt við bóluefni. Þetta var mjög huggunarrík athugasemd og gerði gott. Var nú komin enn ein röksemd og sérstakt tilefni til að þakka spraut- urnar tvær og láta sér líka bærilega við varn- araðgerðir vakandi líkama gagnvart óvæntum óvini. Að öðrum óværum Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra mennta- mála og dómsmála, gerir einkennilega tvöfeldni stjórnmálaflokks að umræðuefni. Honum þykir slá- andi hve sveiflan í afstöðu Samfylkingarinnar í dægurumræðunni fari eftir því hvaða stórfyrirtæki eigi í hlut: „Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, flutti ræðu undir liðnum „störf þingsins“ miðvikudaginn 2. júní. Snerist hún um „framgöngu forsvarsmanna fyrirtækisins [Sam- herja] gagnvart lykilstofnunum samfélagsins“. Fyrirtækið hefði meðal annars krafist þess með bréfi að menntamálaráðherra gæfi skýringar á um- mælum sínum í ræðustól þingsins. Hún sagði stóra málið „að við [yrðum] með ein- hverjum hætti að geta tekist á við svona fram- göngu sem samfélag“. Það yrði að tryggja „vernd fjölmiðlafólks betur gegn ágangi stórfyrirtækja og tryggja nægjanlegar fjárheimildir til lögreglu, sak- sóknara og annarra eftirlitsstofnana til að hefja rannsókn ef upp kemur grunur um refsivert at- hæfi“. Hún sagði að „kerfið okkar“ yrði „nefnilega að virka og löggjafinn“ yrði „að veita starfsfólki grunnstofnana samfélagsins vernd fyrir svona ásókn“. Menn skulu bugta sig og beygja Rósa Björk krafðist auðmýktar af Samherja, ríkari ástæða en ella væri (fyrir) fyrirtækið að sýna auð- mýkt vegna þess að það hefði heimild til að nýta auðlind sem væri í „eigu þjóðarinnar allrar“. Slík fyrirtæki yrðu „líka að standa undir meiri kröfum en aðrir til samfélagslegrar ábyrgðar“. Vinna í sátt við samfélagið, fylgja lögum og reglum „og ekki bara að greiða fullt gjald til eigandans fyrir nýt- inguna heldur líka sýna eigandanum, sem er ís- lenskt samfélag, virðingu og auðmýkt“.“ Og Björn bendir á: „Fingri er víða beint að stór- fyrirtækjum. Í þessa veru er talað um stórfyr- irtæki um heim allan. Má til dæmis ekki segja að netheimar séu sameign okkar allra, mannkynsins alls? Nú er hvarvetna leitað leiða til að koma bönd- um á „big tech“-fyrirtækin – eða Tech Giants, tæknirisana fimm, Amazon, Apple, Facebook, Go- ogle og Microsoft. Fyrirtækin sem hagnast mest á nýtingu nýrrar tækni og netheima. Málaferlin eru óteljandi og jafnframt tilraunir til að koma á fyrir- tækin skattaböndum, nú síðast af G-7-ríkjunum. Sérkennilegt við umræðurnar hér er sveiflan í af- stöðu Samfylkingarinnar eftir því hvaða fyrirtæki á í hlut. Á tíma Baugsmálsins töluðu þingmenn Sam- fylkingarinnar á allt annan veg en Rósa Björk talar núna. Þá býsnuðust þeir yfir hverri krónu sem rann úr ríkissjóði til að standa straum af rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á mál- efnum Baugs. Þeir vorkenndu einnig eigendum Baugs vegna þess kostnaðar sem þeir urðu að bera til að standa undir vörn sinni. Baugsmenn þurftu ekki að skrifa bréf til ráðherra til að krefja hann skýringa á orðum sínum í þingsal. Þingmenn Sam- fylkingarinnar sáu um að ganga hart að ráðherrum í þágu Baugsmanna. Her álitsgjafa og Baugsmál- gagnið Fréttablaðið auk annarra miðla fyrir- tækisins sá um allt sem sneri að fjölmiðlum og þótti þá fáheyrður dónaskapur að ráðherra leyfði sér að nota orðin Baugsmiðill eða Baugspenni. Var þá rokið upp til handa og fóta af svipaðri hneyksl- un og sækir nú á marga vegna þess að Samherji nýtir sér netið og nýja margmiðlunartækni vegna þess sem fyrirtækið telur óvandaðan fréttaflutning. Um hve ótrúlega langt var gengið til varnar Baugi á stjórnmála- og fjölmiðlavettvangi má lesa í bók minni Rosabaugur yfir Íslandi frá 2011. Þá settu embættismenn sig ekki í kvörtunarstellingar vegna árása fjölmiðlamanna eða kröfðust sér- stakrar lögverndar. Síðan eftir kollsteypuna í hruninu var látið eins og allt eftirlit hefði skort!“ Málsvarnarmenn Þarna er ekkert ofmælt af Birni Bjarnasyni en bók hans „Rosabaugur“ gefur gleggri mynd af þessum þætti en annað skrifað efni til þessa. En það er vissulega athyglisvert, sem Björn bendir á, að þingmaðurinn sem hann nefnir til sögunnar lítur á það sem óheimilt athæfi og sýni skort á „auðmýkt“ gagnvart yfirvöldum, og ekki bara þjóðinni, heldur „þjóðinni allri“ sem virðast tvö ólík hugtök í munni þingmannsins. Ekki verður betur séð en að í þessu tilviki og kannski endranær líti þingmaðurinn svo á að Ríkisútvarpið komi fram sem yfirvald sem al- menningi (öllum almenningi?) beri að sýna auð- mýkt! Sjálfsagt er ekki útilokað að þessa skrítna skilnings gæti óþægilega oft á fréttastofu þessa stjórnlausa fyrirtækis, en varla víða annars staðar. Hingað til hefur það aldrei þótt gagnrýnisefni að menn sem telja sig, með réttu eða röngu, hafa setið undir röngum eða ómálefnalegum sakargiftum taki til andsvara vegna þess. Þeir Gunnar Smári Egils- son og Jón Ásgeir Jóhannesson voru ekki aðeins samferðamenn í hefðbundnum skilningi heldur litu þeir á sig sem fjármálalega stórvesíra, sem stráðu um sig annarra manna lánsfé hérlendis sem erlend- is og virtust iðulega fara af óvarkárni orðum um persónur þeirra sem þeim virtist í nöp við. Þeir þekktu því hvor annan betur en aðrir menn þekktu þá eða kærðu sig um að gera. Það er því óneitan- lega sérstakt að þegar þessir samherjar ákveða seint (JÁJ) eða snemma á ferlinum (GSE) að nú þurfi að bera myndarlega blak af sér, þá gefi þeir félagar báðir út bók undir sama heitinu! Bók Jóns heitir Málsvörn og bók Gunnars heitir líka Máls- vörn, en þar er hafður, með smærra letri, undirtit- ill „mannorðsmorðingja“. Bréfritari hefur hvoruga bókina lesið og getur því ekki lagt mat á það hvort undirtitillinn hefði hæft báðum bókunum jafn vel. En því svipar bersýnilega saman innræti bók- arefnanna, hvernig sem það er svo að öðru leyti, eins og hjörtunum tæru í Súdan og Grímsnesinu. En kannski hefur almennur hugmyndaskortur ráðið mestu um að þannig fór. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ En það var af bréfritara að segja að hann hafði verið í seinnisprautu-montrússi fram eftir degi. Þá rauk hitinn upp í 39 gráð- ur og stóð þannig í tvo daga og er byrjaður að rjátlast niður þegar þetta er skrifað. 13.6. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.