Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Page 18
Þessir fallegu kertjastjakar/
blómavasar, kallaðir Lifandi
hlutir, eru búnir til úr steini
úr grunni Landspítala.
Morgunblaðið/Ásdís
Þ
að eru nokkrir þræðir sem tvinnuðust
saman og urðu til þess að ég stofnaði
fyrirtækið FÓLK. Ég fékk mjög list-
rænt uppeldi hjá ömmu minni sem hélt nánast
úti myndlistaskóla fyrir okkur barnabörnin. Þar
fengum við að vatnslita, mála, sauma dúkkur og
búa til hluti úr pappamassa. Við fengum að
prófa allt þannig að ég hef alltaf haft þennan
áhuga á sköpun,“ segir Ragna Sara og segir að
áhuginn á hönnun hafi kviknað fyrir alvöru þeg-
ar hún bjó í Danmörku, en þar stundaði hún
meistaranám í viðskiptum með áherslu á sam-
félagsábyrgð fyrirtækja og sjálfbærni í rekstri.
Ábyrgð á gæðunum
„Það voru mjög áhugaverðir hlutir að gerast á
þessum tíma í Danmörku um aldamótin. Nýnor-
ræna hönnunarbylgjan átti sér stað og fyrirtæki
eins og HAY, Normann Copenhagen og Muuto
voru stofnuð og ég fylgdist vel með,“ segir hún
en Ragna Sara fékk vinnu hjá Landsvirkjun eft-
ir heimkomuna árið 2008.
„Þegar ég kom heim var HönnunarMars að
hefja göngu sína og áhugaverðir tímar á Íslandi.
Ég tók eftir því þegar ég fór að skoða hönnun á
Íslandi nánar að það gæti vantað hlekk í þá
keðju sem á sér stað frá hugmynd og þar til
hönnun er orðin að vöru í hillu verslana. Í of
fáum tilvikum gat ég sem neytandi keypt ís-
lensku hönnunina sem ég sá á HönnunarMars í
hönnunarverslun. Ég fór að skoða þetta og mér
fannst vanta vörumerki sem væri útgefandi og
framleiðandi á hönnun, í samstarfi við íslenska
hönnuði. Í fyrstu var hugmyndin að gera vef-
verslun sem myndi selja íslenska hönnun en ég
sá að aðrir voru búnir að gera það og eins gæti
ég ekki tekið ábyrgð á gæðunum. Ég ákvað því
að stofna vörumerkið FÓLK og bauð hönnuðum
til samstarfs til að hanna vörur inn í fyrirfram-
gefna ramma, með umhverfis- og samfélagsmál
að leiðarljósi. Við vinnum eftir sama viðskipta-
módeli og flottu vörumerkin sem ég hafði áhuga
á í Danmörku en bætum sjálfbærni og umhverf-
isvinklinum við í öllu okkar ferli.“
Urðunargámurinn í Sorpu?
Geturðu útskýrt hvað það þýðir að þróa vöru
með áherslu á sjálfbærni?
„Það eru margar leiðir og engin ein rétt eða
best, enda svið í hraðri þróun. Við völdum að
einblína á hráefnin sem við notum í okkar vörur,
hversu langur líftími þess er og hvar það muni
enda þegar líftíma vörunnar lýkur svo það verði
ekki byrði á okkur seinna meir. Þegar við hönn-
um og þróum okkar vörur spyrjum við okkur
alltaf: „Mun þetta enda í urðunargámnum í
Sorpu?“ Það er okkar helsta hræðsla. Vörurnar
okkar eru allar unnar úr náttúrulegum endur-
vinnanlegum eða endurunnum hráefnum. Ann-
ar mælikvarði sem við notum er að skoða kol-
efnissporið. Við erum nú að hefja vinnu, í
samstarfi við erlenda samstarfsaðila, þar sem
við mælum kolefnisspor hverrar vöru fyrir sig,“
segir Ragna Sara og segir að þegar þær tölur
verða komnar í hús verði hægt að grípa til að-
gerða, annaðhvort með því að minnka sporið
eða að kolefnisjafna það með vottuðum aðferð-
um.
Hönnuðir hanna fyrir FÓLK
Að öllu jöfnu er FÓLK ekki með verslun, heldur
selur vörur í hönnunarverslanir og er auk þess
með vefverslun. Í sumar og þegar blaðamann
bar að garði í vikunni er FÓLK hins vegar með
pop-up-verslun á Hafnartorgi og því gott tæki-
færi til að skoða vörurnar með berum augum.
„Okkar helstu viðskiptavinir eru til dæmis
Epal, Hrím, Kokka, Módern, Rammagerðin,
Garðheimar og fleiri. Þannig geta okkar kúnnar
fundið vörur okkar, við hliðina á HAY og Nor-
mann í hönnunarverslunum! Svo erum við með
tvær vefsíður, folkreykjavik.is og folk-
reykjavik.com, og þar getur fólk keypt þessar
alíslensku hönnunarvörur,“ segir Ragna Sara
og segir þau leggja áherslu á minni húsgögn og
húsmuni. Einnig selur FÓLK vörur í erlendar
hönnunarbúðir, eins og Finnish Design Shop,
sem selur vörur sínar á netinu.
Ragna Sara vinnur oft og tíðum þannig að
innanhúss hjá FÓLKi er verkefnið mótað, með
tilliti til notkunar eða efnis, og hönnuður valinn
til að hanna vöruna.
„Hönnuðurinn kemur þá með tillögur út frá
okkar fyrstu hugmyndum. Við höldum svo
áfram að þróa hugmyndina í sameiningu þar til
lokateikning er komin og þá tökum við boltann.
Frumgerðir eru oftast gerðar hér á Íslandi en
varan fer svo í framleiðslu erlendis því mjög oft
reynist of dýrt að framleiða hér,“ segir Ragna
Sara og segir þau vera með sjö hönnuði á sínum
snærum.
„Fyrsta verkefni FÓLKs var þannig að við
Ljósmynd/Sunday & White Studio
Hér má sjá endur-
unnið textílborð.
Morgunblaðið/Ásdís
MULTI-vasinn er afar
smart og kemur í nokkr-
um útgáfum og litum.
Morgunblaðið/Ásdís
Að skapa og
byggja upp
Frumkvöðullinn Ragna Sara Jónsdóttir er stofnandi
og listrænn stjórnandi hönnunarfyrirtækisins FÓLKs.
Þar er lögð áhersla á sjálfbærni og endurnýtingu.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Púðar þessir
eru búnir til
úr loftpúðum
bíla og göml-
um sængum.
Ljósmynd/Sunday & White Studio
Þessi litla
vegghilla er
afar smart.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021
HÖNNUN
Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni
eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Holtagörðum, Reykjavík
512 6800
Smáratorgi, Kópavogi
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Skeiði 1, Ísafirði
456 4566
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til fös. kl. 11–18
Laugardaga kl. 11–17
Sun. 13–17 (Smáratorg)
Sumarútsala
ALLTAÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
DORMA
SMÁRATORGI
OPINÁ SUNNUD.
KL. 13–17