Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Qupperneq 19
báðum hönnuðinn Jón Helga Hólmgeirsson að hanna fyrir okkur hillu sem væri auðvelt að setja saman og taka í sundur og sem auðvelt væri að flytja á milli staða. Út úr því fæddist hillan Urban Nomad sem var fyrsta vara FÓLKs og hefur gengið gríðarlega vel,“ segir Ragna Sara og segir hönnuði vera, auk Jóns Helga, Theodóru Alfreðsdóttur, Ólínu Rögnu- dóttur, Rögnu Ragnarsdóttur, Fléttu: Birtu Rós Brynjólfsdóttur og Hrefnu Sigurðardóttur og Tinnu Gunnarsdóttur. Erum útflutningssproti Vörunúmer FÓLKs eru nú um fimmtíu talsins og má þar finna kertastjaka, blómavasa, skálar, hillur af ýmsum toga, ljós og púða. Eins og fyrr segir eru vörurnar umhverfisvænar og jafnvel sumar búnar til úr gömlum hlutum eða endur- nýttu efni. „Við erum í örum vexti. Síðasta ár var auðvit- að skrítið vegna faraldursins en þrátt fyrir það tókst okkur að nær þrefalda söluna. Við erum að halda áfram að þróa vörur og erum komin með einn starfsmann í fullt starf, hönnuðinn Heru Guðmundsdóttur. Annars er þetta fjöl- skyldufyrirtæki, enda erfitt að reka svona fyrir- tæki án stuðnings fjölskyldunnar. Maðurinn minn, Stefán Sigurðsson, hefur verið hér innan- búðar til að stuðla að vexti fyrirtækisins. Við er- um útflutningssproti og það eru spennandi tímar fram undan,“ segir Ragna Sara og segir afar jákvætt og áhugavert að vinna í nánu sam- starfi með mörgum erlendum aðilum á degi hverjum. „Ég er í draumastarfinu. Það sameinar þörf- ina fyrir að skapa og svo að byggja eitthvað upp. Svo er frábært að það hafi tekist að sameina þekkingu mína á innleiðingu sjálfbærni og sam- félagsábyrgðar inn í þennan geira hönnunar og framleiðslu. Fyrir mig og þig sem neytanda ætti að vera forgangsatriði að þekkja innihald vör- unnar sem maður kaupir til að stuðla að betri nýtingu á hráefnum og minni sóun. Nú á Hönn- unarMars vorum við að kynna nýjustu hönnun og vöruþróun okkar sem við köllum hringrás- arvæna hönnun. Þá beinum við sérstaklega sjónum okkar að hráefnum sem við endur- vinnum. Þetta hefur verið ótrúlega skemmti- legt.“ Hráefni alls staðar að hlaðast upp Hluti af því verkefni var að FÓLK fékk Studíó Fléttu til þess að finna hráefni af bílapartasölu og hanna úr því vöru. „Netpartar er ISO-14001 umhverfisvottuð bílapartasala, en eigandann, hana Aðalheiði, langaði að auka hlutfall bílaparta sem væru endurnýttir svo sem minnst fari til spillis. Við ákváðum að fara saman í málið og ég fékk hönn- uðina Birtu og Hrefnu í Fléttu til að finna hrá- efni í Netpörtum sem við gætum nýtt í okkar hönnun og umbreyta þannig úrgangi í verð- mæti. Stúdíó Flétta fór á stúfana og kom með nokkrar hugmyndir en lokaútkoman er þessi frábæri loftpúði,“ segir Ragna Sara og sýnir blaðamanni púða, eða eins konar pullu, sem bú- in er til úr loftpúða úr bíl. „Þeir sem við gerðum fyrir HönnunarMars seldust strax upp. Það er hægt að nota þá á fjöl- breyttan hátt og þeir eru vinsælir hjá börnum. Svo fengum við notaðar sængur hjá Rauða kross- inum sem við notum sem tróð, þannig að það er líka endurunnið,“ segir Ragna Sara, en henni er greinilega mjög umhugað um umhverfismál. „Ef við horfum á heiminn í dag er hráefni að hlaðast upp alls staðar; plast, textíll, málmar og gler. Það er ekki unnið nógu hratt í því að um- breyta hagkerfi okkar úr línulegu yfir í hring- rásarhagkerfi þannig að við erum að vinna í því og hugsa nýja leiðir til að nota þessi hráefni.“ Ragna Sara Jónsdóttir er í draumastarfinu en þar nýtast bæði fyrri störf, nám, reynsla og áhugi á hönnun henni vel. Morgunblaðið/Ásdís ’ Þegar við hönnum og þróum okkar vörur spyrjum við okk- ur alltaf: „Mun þetta enda í urð- unargámnum í Sorpu?“ Það er okkar helsta hræðsla. Vörurnar okkar eru allar unnar úr nátt- úrulegum, endurvinnanlegum eða endurunnum hráefnum. Þessi skemmtilegi hlut- ur nýtist bæði sem vasi og kertastjaki. Morgunblaðið/Ásdís Urban Nomad- hillurnar hafa sleg- ið í gegn. Ljósmynd/Sunday & White Studio 13.6. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 LICATA u-sófi Licata u-sófi í Kentucky koníak áklæði. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 366 x 226 x 82 cm Dormaverð: 369.990 kr. Aðeins 221.940 kr. 40% AFSLÁTTUR SUMAR ÚTSALA TIVOLI SLIM svefnsófi Aðeins 172.425 kr. Ítölsk hönnun. Einstaklega góður svefnsófi. Bakinu hvolft fram á einfaldan hátt, Svefnsvæði 140x190 cm. Fáanlegur í tveimur tónum af bláum lit í áklæði. Fullt verð: 229.900 kr. 25% AFSLÁTTUR SUMAR ÚTSALA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.