Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021 KNATTSPYRNA Njóttu þess að hvílast í hreinum rúmfötum Háaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Við þvoum og pressum rúmfötin - þú finnur muninn! étmönnum og síðan Marco Van Basten eitt frægasta mark sparksögunnar úr ómögulegu færi. Þið munið á hvaða mínútu leiksins það kom? Auðvitað, 54. Einvaldur Hollands var enginn annar en Rinus Michels, höfundur alsparksins (h. totaalvoetbal). Enginn grískur harmleikur þar á ferð. Síðast en alls ekki síst er það sigurinn sem mörgum Íslendingum er kærastur, þegar Dan- ir lögðu Þjóðverja í Gautaborg 1992 með mörk- um frá John „Faxe“ Jensen og Kim Wilfort. Mark þess fyrrnefnda var í senn óvænt og ánægjulegt enda Faxe kunnur fyrir allt annað á velli en markaskorun; gerði til dæmis aðeins eitt mark 146 leikjum í Búndeslígunni og ensku úrvalsdeildinni. Það var fyrir Arsenal og í fram- haldinu seldust bolir með áletruninni „Ég sá John Jensen skora“ eins og heitar lummur enda líkurnar á þeim gjörningi samkvæmt veð- bönkum minni en að horfast í augu við sjálft Loch Ness-skrímslið. Muniði hver reif dolluna upp að leik loknum? Jú, Lars gamli Olsen. Þið þekkið þessa sögu. Danirnir áttu ekki að vera með á mótinu og voru allir sem einn í sól- baði á Mallorca þegar Júgóslavía liðaðist í sundur og kallið kom. Þá kom sér vel að vera „ligeglad“ að upplagi. Og lygilegur var sig- urinn, sá óvæntasti í sögu EM. Grikkland og allt meðtalið. Þátttökuþjóðum fjölgað Danir eru ein af sex þjóðum sem unnið hafa EM en aldrei HM; hinar eru Sovétmenn, Portúgal- ar, Tékkar, Hollendingar og Grikkir. Þjóðverjar, Spánverjar, Ítalir og Frakkar hafa allir orðið heimsmeistarar, eins Englend- ingar sem enn eiga eftir að vinna EM. Eins og við munum hafa Evrópuþjóðir unnið fjögur síð- ustu HM sem segir sitt um sparkstyrk álf- unnar. Þátttökuþjóðum á EM hefur fjölgað hressi- lega í tímans rás; á fyrstu fimm mótunum, til og með 1976, voru þær aðeins fjórar. Frá 1980 til 1992 voru þær átta og frá 1996 til 2012 sextán og frá og með síðasta móti, 2016, var þeim fjölg- að í 24 og svo verður aftur nú og á næsta móti, í Þýskalandi 2024. Verja Portúgalar titilinn? En hvað gerist í sumar? Vandi er um slíkt að spá. Bæði fyrir ríka menn og reista og okkur, alþýðu manna. Eru Portúgalar þess umkomnir að verja titilinn? Hvers vegna ekki? Með rökum má halda því fram að þeir tefli fram sterkara liði nú en síðast. Ronaldo er enn í fullu fjöri og rótsterkir og bráðungir menn á borð við Rúben Dias, Bernardo Silva, Rúben Neves, Diogo Jota og João Félix hafa bæst í hópinn. Ef ekki nú þá er framtíðin alla vega þeirra; alltént þangað til Ronaldo leggur skóna á hilluna um fimmtugt! Frakkar hafa án efa metnað til að breiða yfir vonbrigðin frá síðasta móti en þeir gerðu sér lít- ið fyrir og urðu heimsmeistarar í millitíðinni, í Rússlandi 2018. Lið þeirra ætti alls ekki að vera veikara í dag. N’Golo Kanté, Antoine Griez- mann og Kylian Mbappé allir á góðu róli, Paul Pogba eitthvað að hressast og búið að draga Karim Benzema aftur á flot eftir meira en fimm ára fjarveru. 33 ára er hann enn 30 marka mað- ur í spænsku úrvalsdeildinni. Fleiri góðkunningjum EM er einnig spáð góðu gengi, það er Spánverjum og Þjóðverjum. Gleymum því ekki að Frakkar, Þjóðverjar og Portúgalar eru allir saman í riðli – riðlinum sem Ísland átti að vera í en Ungverjar stálu sem frægt er af okkur sætinu. Þvílík veisla sem það hefði orðið. En jæja, við sláum okkur bara þeim mun betur upp næst. Gamla nían fallin úr tísku? Við Íslendingar vitum allt um Þjóðverja eftir að þeir tóku okkur í létta kennslustund í forkeppni HM ytra síðasta vetur. Snarpt og léttleikandi lið sem unun er að horfa á. Það er helst að það vanti eitt stykki Robert Lewandowski til að binda endahnút á sóknirnar, eins og hjá Bæj- urum, þar sem margir úr þýska landsliðinu leika, svo sem Joshua Kimmich, Serge Gnabry, Leroy Sané, Thomas Müller og Leon Goretzka. Lewandowski verður á hinn bóginn á sínum stað í pólska landsliðinu sem fáir spá Evrópu- tign. Annars kemur miðherjaskorturinn sjálf- sagt ekki að sök hjá Þjóðverjum enda gamla góða nían ekki í sérstakri tísku nú um stundir. Í því sambandi er skemmst að minnast úrslita- leiks Meistaradeildar Evrópu á dögunum, þar sem bæði Chelsea og Manchester City hófu leik með svokallaðar „falskar níur“. Sá hefur snúið sér við í gröfinni, okkar maður Ludwig van Beethoven, enda var níunda sinfónían hans langt í frá fölsk. Sjálfur Óðurinn til gleðinnar. Spánverjar eru í aðgengilegri riðli á papp- írunum, með Pólverjum, Slóvökum og Svíum. Þeir hafa verið að ummanna lið sitt á undan- förnum árum. Aðeins Sergio Busquets og Jordi Alba eru eftir úr liðinu sem lék úrslitaleikinn 2012 og 14 af 26 mönnum hafa leikið 10 lands- leiki eða minna. Álvaro Morata er eini mað- urinn í hópnum yfir 10 landsliðsmörkum en vonir eru bundnar við kappa á borð við hinn unga Ferran Torres og Gerard Moreno. Hver veit svo nema Úlfurinn knái Adama Traoré taki einn eða tvo kraftspretti. Skemmtilega póst- módernískur leikmaður þar á ferð. Ítalir ættu að rúlla sínum riðli upp en aldrei þessu vant búa þeir ekki að neinni ofurstjörnu. Skiptir svo sem ekki öllu máli enda liðsheild og fyrst og síðast agaður varnarleikur þeirra aðalsmerki sem fyrr. Markahæsti maður er að- eins með 13 landsliðsmörk, Ciro Immobile. Andrea Belotti hefur gert 12. Hvað gera Gullbelgarnir? Verði nýtt nafn grafið á Evrópubikarinn er lík- legast að það verði Belgía. Hin víðfræga gull- kynslóð þeirra tapaði í undanúrslitum á HM 2018 og mun leggja allt í sölurnar meðan kapp- ar á borð við Eden Hazard, Romelu Lukaku og Kevin De Bruyne eru enn þá með báða fætur jafnlanga. Til að byrja með þurfa Belgar að kljást við frændur okkar Dani og Finna og svo Rússa. Króatía kemur einnig til greina, silfurliðið frá síðasta HM. Lykilmenn eins og Ivan Perišić, Luka Modrić, Marcelo Brozović og Dejan Lovr- en eru vissulega teknir að reskjast en langt í frá karlægir. Króatar eru í mjög áhugaverðum riðli með Englendingum, Skotum og Tékkum. Englend- ingar fara sem fyrr fullir bjartsýni inn á stór- mót en þeir eru ófáir sparkskýrendurnir sem hafa enga trú á því að þeir eigi eftir að bæta öðrum bikar við HM-titilinn 1966. Þegar enn var vinstri umferð á Íslandi og Bítlarnir voru á hátindi frægðar sinnar. Það breytir ekki því að hópurinn sem Englendingar tefla fram í sumar er gríðarlega spennandi; mikið um unga og bráðefnilega leikmenn, eins og Phil Foden, Bukayo Saka, Jude Bellingham, Declan Rice, Mason Mount og Jadon Sancho. Þarna eru líka menn á toppaldri, eins og Harry Kane og Ra- heem Sterling. Það er helst að varnarleikurinn og markvarslan sé áhyggjuefni. Sumsé, ef ekki nú þá ábyggilega næst! Síðan kemur kannski bara einhver allt önnur þjóð inn úr himinblámanum og tekur þetta, til dæmis Norður-Makedónía, Austurríki eða Wa- les. Ég meina, EM er þannig mót. Ekkert síður fyrir litla hljóðláta manninn en þann blaðskell- andi stóra. Er það vel. Michel Platini átti mótið 1984 með húð og hári, þegar Frakkar unnu sinn fyrsta Evróputitil. AFP Kylian Mbappé gæti orðið ein af stjörnum EM í sumar en Hörður Björgvin Magnússon verður því miður heima í sófa. AFP AFP AFP Hollendingurinn Marco van Basten með Evrópubikarinn eftir undra- mark sitt gegn Sovétmönnum 1988. Standa Bukayo Saka, Harry Kane og félagar í enska landsliðinu loks- ins uppi sem Evrópumeistarar? AFP Fagna Ílkay Gün- dogan, Leroy Sane og Serge Gnabry fjórða EM-titli Þjóð- verja í sumar?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.