Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021
KNATTSPYRNA
Njóttu þess að hvílast
í hreinum rúmfötum
Háaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Við þvoum og pressum rúmfötin
- þú finnur muninn!
étmönnum og síðan Marco Van Basten eitt
frægasta mark sparksögunnar úr ómögulegu
færi. Þið munið á hvaða mínútu leiksins það
kom? Auðvitað, 54. Einvaldur Hollands var
enginn annar en Rinus Michels, höfundur
alsparksins (h. totaalvoetbal). Enginn grískur
harmleikur þar á ferð.
Síðast en alls ekki síst er það sigurinn sem
mörgum Íslendingum er kærastur, þegar Dan-
ir lögðu Þjóðverja í Gautaborg 1992 með mörk-
um frá John „Faxe“ Jensen og Kim Wilfort.
Mark þess fyrrnefnda var í senn óvænt og
ánægjulegt enda Faxe kunnur fyrir allt annað á
velli en markaskorun; gerði til dæmis aðeins
eitt mark 146 leikjum í Búndeslígunni og ensku
úrvalsdeildinni. Það var fyrir Arsenal og í fram-
haldinu seldust bolir með áletruninni „Ég sá
John Jensen skora“ eins og heitar lummur
enda líkurnar á þeim gjörningi samkvæmt veð-
bönkum minni en að horfast í augu við sjálft
Loch Ness-skrímslið. Muniði hver reif dolluna
upp að leik loknum? Jú, Lars gamli Olsen.
Þið þekkið þessa sögu. Danirnir áttu ekki að
vera með á mótinu og voru allir sem einn í sól-
baði á Mallorca þegar Júgóslavía liðaðist í
sundur og kallið kom. Þá kom sér vel að vera
„ligeglad“ að upplagi. Og lygilegur var sig-
urinn, sá óvæntasti í sögu EM. Grikkland og
allt meðtalið.
Þátttökuþjóðum fjölgað
Danir eru ein af sex þjóðum sem unnið hafa EM
en aldrei HM; hinar eru Sovétmenn, Portúgal-
ar, Tékkar, Hollendingar og Grikkir.
Þjóðverjar, Spánverjar, Ítalir og Frakkar
hafa allir orðið heimsmeistarar, eins Englend-
ingar sem enn eiga eftir að vinna EM. Eins og
við munum hafa Evrópuþjóðir unnið fjögur síð-
ustu HM sem segir sitt um sparkstyrk álf-
unnar.
Þátttökuþjóðum á EM hefur fjölgað hressi-
lega í tímans rás; á fyrstu fimm mótunum, til og
með 1976, voru þær aðeins fjórar. Frá 1980 til
1992 voru þær átta og frá 1996 til 2012 sextán
og frá og með síðasta móti, 2016, var þeim fjölg-
að í 24 og svo verður aftur nú og á næsta móti, í
Þýskalandi 2024.
Verja Portúgalar titilinn?
En hvað gerist í sumar? Vandi er um slíkt að
spá. Bæði fyrir ríka menn og reista og okkur,
alþýðu manna. Eru Portúgalar þess umkomnir
að verja titilinn? Hvers vegna ekki? Með rökum
má halda því fram að þeir tefli fram sterkara
liði nú en síðast. Ronaldo er enn í fullu fjöri og
rótsterkir og bráðungir menn á borð við Rúben
Dias, Bernardo Silva, Rúben Neves, Diogo Jota
og João Félix hafa bæst í hópinn. Ef ekki nú þá
er framtíðin alla vega þeirra; alltént þangað til
Ronaldo leggur skóna á hilluna um fimmtugt!
Frakkar hafa án efa metnað til að breiða yfir
vonbrigðin frá síðasta móti en þeir gerðu sér lít-
ið fyrir og urðu heimsmeistarar í millitíðinni, í
Rússlandi 2018. Lið þeirra ætti alls ekki að vera
veikara í dag. N’Golo Kanté, Antoine Griez-
mann og Kylian Mbappé allir á góðu róli, Paul
Pogba eitthvað að hressast og búið að draga
Karim Benzema aftur á flot eftir meira en fimm
ára fjarveru. 33 ára er hann enn 30 marka mað-
ur í spænsku úrvalsdeildinni.
Fleiri góðkunningjum EM er einnig spáð
góðu gengi, það er Spánverjum og Þjóðverjum.
Gleymum því ekki að Frakkar, Þjóðverjar og
Portúgalar eru allir saman í riðli – riðlinum sem
Ísland átti að vera í en Ungverjar stálu sem
frægt er af okkur sætinu. Þvílík veisla sem það
hefði orðið. En jæja, við sláum okkur bara þeim
mun betur upp næst.
Gamla nían fallin úr tísku?
Við Íslendingar vitum allt um Þjóðverja eftir að
þeir tóku okkur í létta kennslustund í forkeppni
HM ytra síðasta vetur. Snarpt og léttleikandi
lið sem unun er að horfa á. Það er helst að það
vanti eitt stykki Robert Lewandowski til að
binda endahnút á sóknirnar, eins og hjá Bæj-
urum, þar sem margir úr þýska landsliðinu
leika, svo sem Joshua Kimmich, Serge Gnabry,
Leroy Sané, Thomas Müller og Leon Goretzka.
Lewandowski verður á hinn bóginn á sínum
stað í pólska landsliðinu sem fáir spá Evrópu-
tign. Annars kemur miðherjaskorturinn sjálf-
sagt ekki að sök hjá Þjóðverjum enda gamla
góða nían ekki í sérstakri tísku nú um stundir. Í
því sambandi er skemmst að minnast úrslita-
leiks Meistaradeildar Evrópu á dögunum, þar
sem bæði Chelsea og Manchester City hófu leik
með svokallaðar „falskar níur“. Sá hefur snúið
sér við í gröfinni, okkar maður Ludwig van
Beethoven, enda var níunda sinfónían hans
langt í frá fölsk. Sjálfur Óðurinn til gleðinnar.
Spánverjar eru í aðgengilegri riðli á papp-
írunum, með Pólverjum, Slóvökum og Svíum.
Þeir hafa verið að ummanna lið sitt á undan-
förnum árum. Aðeins Sergio Busquets og Jordi
Alba eru eftir úr liðinu sem lék úrslitaleikinn
2012 og 14 af 26 mönnum hafa leikið 10 lands-
leiki eða minna. Álvaro Morata er eini mað-
urinn í hópnum yfir 10 landsliðsmörkum en
vonir eru bundnar við kappa á borð við hinn
unga Ferran Torres og Gerard Moreno. Hver
veit svo nema Úlfurinn knái Adama Traoré taki
einn eða tvo kraftspretti. Skemmtilega póst-
módernískur leikmaður þar á ferð.
Ítalir ættu að rúlla sínum riðli upp en aldrei
þessu vant búa þeir ekki að neinni ofurstjörnu.
Skiptir svo sem ekki öllu máli enda liðsheild og
fyrst og síðast agaður varnarleikur þeirra
aðalsmerki sem fyrr. Markahæsti maður er að-
eins með 13 landsliðsmörk, Ciro Immobile.
Andrea Belotti hefur gert 12.
Hvað gera Gullbelgarnir?
Verði nýtt nafn grafið á Evrópubikarinn er lík-
legast að það verði Belgía. Hin víðfræga gull-
kynslóð þeirra tapaði í undanúrslitum á HM
2018 og mun leggja allt í sölurnar meðan kapp-
ar á borð við Eden Hazard, Romelu Lukaku og
Kevin De Bruyne eru enn þá með báða fætur
jafnlanga. Til að byrja með þurfa Belgar að
kljást við frændur okkar Dani og Finna og svo
Rússa.
Króatía kemur einnig til greina, silfurliðið frá
síðasta HM. Lykilmenn eins og Ivan Perišić,
Luka Modrić, Marcelo Brozović og Dejan Lovr-
en eru vissulega teknir að reskjast en langt í frá
karlægir.
Króatar eru í mjög áhugaverðum riðli með
Englendingum, Skotum og Tékkum. Englend-
ingar fara sem fyrr fullir bjartsýni inn á stór-
mót en þeir eru ófáir sparkskýrendurnir sem
hafa enga trú á því að þeir eigi eftir að bæta
öðrum bikar við HM-titilinn 1966. Þegar enn
var vinstri umferð á Íslandi og Bítlarnir voru á
hátindi frægðar sinnar. Það breytir ekki því að
hópurinn sem Englendingar tefla fram í sumar
er gríðarlega spennandi; mikið um unga og
bráðefnilega leikmenn, eins og Phil Foden,
Bukayo Saka, Jude Bellingham, Declan Rice,
Mason Mount og Jadon Sancho. Þarna eru líka
menn á toppaldri, eins og Harry Kane og Ra-
heem Sterling. Það er helst að varnarleikurinn
og markvarslan sé áhyggjuefni. Sumsé, ef ekki
nú þá ábyggilega næst!
Síðan kemur kannski bara einhver allt önnur
þjóð inn úr himinblámanum og tekur þetta, til
dæmis Norður-Makedónía, Austurríki eða Wa-
les. Ég meina, EM er þannig mót. Ekkert síður
fyrir litla hljóðláta manninn en þann blaðskell-
andi stóra. Er það vel.
Michel Platini átti mótið 1984 með
húð og hári, þegar Frakkar unnu sinn
fyrsta Evróputitil.
AFP
Kylian Mbappé gæti orðið ein
af stjörnum EM í sumar en
Hörður Björgvin Magnússon
verður því miður heima í sófa.
AFP
AFP
AFP
Hollendingurinn Marco van Basten
með Evrópubikarinn eftir undra-
mark sitt gegn Sovétmönnum 1988.
Standa Bukayo
Saka, Harry Kane
og félagar í enska
landsliðinu loks-
ins uppi sem
Evrópumeistarar?
AFP
Fagna Ílkay Gün-
dogan, Leroy
Sane og Serge
Gnabry fjórða
EM-titli Þjóð-
verja í sumar?