Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.06.2021, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.6. 2021
LESBÓK
L auga rna r í Rey k javí k
Fyrir
líkama
og sál
w w w. i t r. i s
S ý num hve r t öð ru t illit s s e mi og
virðum 2 m e t ra f ja rlægða rmörk in
SKELLUR Tíminn fer mismjúkum höndum um menn.
Það var alltént upplifun gesta á tónleikum sem Vince
Neil hélt ásamt sólóbandi sínu í Bandaríkjunum á dög-
unum. Gamla brýnið var víst með allt lóðbeint niðrum
sig þetta kvöld og gafst á endanum upp í miðjum Mötley
Crüe-slagaranum Girls, Girls, Girls. „Afsakið mín kæru,
en helvítis röddin er farin. Sjáumst vonandi næst,“ sagði
hann í kveðjuskyni. Þetta er áhyggjuefni í ljósi þess að
Mötley Crüe á að fara í risatúr með Def Leppard, Poison
og fleiri glyströllum sumarið 2022. Til allrar hamingju
er búið að fresta túrnum um eitt ár og Phil Collen, gítar-
leikari Leppard, benti á, í samtali við hlaðvarp Jeremys
Whites, að Neil hefði ár til að taka sér tak. „Vonandi
verður allt með felldu þá. Krossleggjum fingur.“
Með allt lóðbeint …
Vince Neil hefur
verið hressari.
AFP
SVIPTINGAR Írska skapgerðarleikkonan
Dervla Kirwan er íslenskum sjónvarpsáhorf-
endum að góðu kunn, meðal annars úr
dramaþáttunum Blackout, þar sem hún lék á
móti Christopher Eccleston. Nú er hún mætt í
nýjum írskum þáttum, Smother, sem sjón-
varpsstöðin Alibi sýnir. Þar leikur Kirwan
miðaldra konu sem tilkynnir óvænt í afmæl-
isveislu sinni að hún sé að skilja og ætli að
flytja inn til ungs elskhuga síns. Nokkrum
klukkustundum síðar hverfur dóttir hennar
sporlaust og eiginmaður hennar finnst látinn.
Það verður til þess að okkar kona þarf heldur
betur að skoða líf sitt ofan í kjölinn.
Dóttirin hverfur og bóndinn finnst látinn
Dervla Kirwan í nýju þáttunum, Smother.
BBC Studios/RTÉ Ireland
Lips berst ekki með straumnum.
Engin uppgjöf
SEIGLA Okkar besti maður í
málmi, Lips eða Vari, söngvari An-
vil, segir skýringuna á því að víð-
fræg heimildarmynd um þetta ól-
seiga kanadíska málmband féll
betur í kramið í Evrópu en Am-
eríku liggja í samfélagsgerðinni og
ólíku siðferðisþreki þjóða. Falli
Evrópubúum eitthvað í geð, segir
Vari við miðilinn Angels Live In My
Town, og nefnir Svía og Breta sér-
staklega í því sambandi, haldi þeir
tryggð við það fram í rauðan dauð-
ann; sökkvi jafnvel með skipinu.
Kanadamenn og Bandaríkjamenn
búi á hinn bóginn ekki að eins mik-
illi þolinmæði og láti vinsældirnar
bíða eftir sér snúi þeir sér bara að
einhverju öðru. Anvil hefur sam-
viskusamlega reynt að meika það í
43 ár – en án árangurs.
H
annis Martinsson, reynslu-
mikill færeyskur blaðamað-
ur, sem starfar í Dan-
mörku, fær óvænt skilaboð frá dóttur
sem hann vissi ekki að hann ætti
heima í Færeyjum. Dóttirin, sem er
aðgerðasinni og hvalavinur með
meiru, er í þann mund að ljóstra upp
um mikið leyndarmál og óttast að líf
hennar sé í hættu. Hún vill fá föður
sinn heim til að hjálpa sér að segja
safaríka söguna sem komi til með að
skekja samfélagið. Forvitnin grípur
Hannis sem slær til og heldur sem
leið liggur til Færeyja í fyrsta sinn í
þrjá áratugi. Hann er hins vegar ekki
fyrr kominn heim en dóttir hans
finnst látin. Ekki dregur það úr
áhuga Hannisar að rannsaka málið
og leiða fram sannleikann. Og hann
er ekki einn um það, lögreglan hefur
einnig rannsókn undir stjórn danskr-
ar lögreglukonu búsettrar í Fær-
eyjum, Körlu Mohr. Og þetta litla
einangraða samfélag stendur á önd-
inni og spyr sig: Hvað býr hér eig-
inlega undir?
Þannig liggur landið í Trom, fyrstu
glæpaþáttunum fyrir alþjóðlegan
markað sem framleiddir eru og tekn-
ir upp í Færeyjum. Þættirnir, sex að
tölu, byggjast á bók færeyska rithöf-
undarins Jógvans Isaksens en Torf-
inn Jákupsson skrifar handritið.
Leikstjórar eru Daninn Kasper
Barfoed og Íslendingurinn Davíð
Morð skekur
Færeyjar
Davíð Óskar Ólafsson er annar leikstjóra Trom,
fyrstu alþjóðlegu glæpaþáttanna sem gerðir eru í
Færeyjum. Tökum lauk fyrir helgina og segir Dav-
íð Óskar mikillar eftirvæntingar gæta í eyjunum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Skeggrætt á settinu. Davíð Óskar lengst til hægri, þá Marta Óskarsdóttir, Peter
Ahlen, Ásgrímur Guðbjartsson og Owen Fiene.
Ljósmynd/Finnur Justinussen
Óvenjukalt var í Færeyjum í síðasta mán-
uði sem raunar var kaldasti maímánuður í
landinu í sjötíu ár, samkvæmt mælingum.
Þar var til að mynda snjór yfir öllu í þrjár
vikur. Sú umgjörð átti alls ekki við Trom
og fyrir vikið varð tökuliðið að bíða um
sinn og þegar það fór af stað aftur þurfti að
smúla snjóinn og þar fram eftir götunum
til að geta tekið upp. „Síðan snerist veðrið
okkur í hag og við erum búin að vera hepp-
in með það síðan,“ segir Davíð Óskar.
Lengi vel setti heimsfaraldurinn ekki
strik í reikninginn enda liðu margir mánuðir án þess að smit greind-
ist í Færeyjum. „Við þurftum ekki að gera neinar ráðstafanir á sett-
inu; vorum bara frjáls ferða okkar eins og enginn væri faraldurinn,“
segir Davíð Óskar. Það breyttist núna seinni hlutann í maí, þegar
smit kom upp aftur. Þá urðu grímur og spritt aftur staðalbúnaður.
Ekkkert smit hefur þó komið upp á settinu og Davíð Óskar segir vel
ganga að ná utan um þessa nýju bylgju í eyjunum. Eigi að síður þarf
hann að fara í sóttkví við komuna til Íslands á morgun.
Kaldasti maí í sjötíu ár
Ulrich
Thomsen