Fiskifréttir - 26.08.1983, Side 1
Siglinga og fiskileitartæki.
Viðgerða og varahlutaþjónusta.
Rafeindaþjónustan
ÍSMM2 hf.
BORGARTÚN 29, P.O. BOX 1369
121 Reykjavík, SÍMAR: 29744 og 29767
BIRGIR BENEDIKTSSON, SIMI 74741
REYNIR GUÐJÓNSSON, SIMI 54636
t---------\^-N
FRETTIR
1. tbl. I.árg. föstudagur 26. ágúst1983
’S norfloat
SQOÍjW Ma
Umboðs- og heildverslun.
Grandagarði 13. Símar: 21915 - 21030
Verðlækkun á blokk á Bandaríkjamarkaði:
Stærsta vinnslufyrirtækið í Kanada leggur
23 togurum og lokar 10 frystihúsum
Kanadamenn bjóða blokkarpundið á 1,12 dollar
Pegar lúðunni var skipað á land í Bolungarvík var henni lyft með lyftara og eins og sjá
máer lúðan engin smásmíði. Það eru starfsmenn Einars Guðfinnssonar hf., semstanda við
hlið lúðunnar. Ljósm.: Haraldur Guðfinnsson.
Dagrún fékk risa-
lúðu í Þverál
Verð á þorskblokk hefur lækkað
nokkuð að undanförnu í Bandaríkj-
unum og í samtali við Fiskifréttir
sögðu þeir Eyjólfur Isfeld Eyjólfs-
son forstjóri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og Guðjón B. Olafs-
son forstjóri Iceland Seafood í
Bandaríkjunum, að blokkarpundið
Fyrirtækið Haraldur Böðvarsson
og Co á Akranesi hefur nú skrifað
undir samning við Skipasmíðastöð
Þorgeirs og Ellerts hf. á Akranesi um
Þjóðhagsstofnun:
Gert er ráð fyrir 250 þús.
tonna loðnuafla í haust
í spá Þjóðhagsstofnunar sem út
kom í byrjun júlímánaðar síðastliðn-
um, kemur fram að gert er ráð fyrir
250 þúsund tonna loðnuafla á þessu
ári. Samkvæmt þessari spá er ljóst,
að ríkissjórn gerir ráð fyrir, að loðna
verði veidd síðustu mánuði ársins.
Miðað við að 250 þúsund tonn af
loðnu verði veidd í haust, gerir
Þjóðhagsstofnun ráð fyrir 4% sam-
drætti í verðmæti heildarafla
landsmanna, sem þýðir 8-9%
verðmætasamdrátt í öðrum afla en
loðnu.
Sjá grein í opnu.
væri nú selt á 1.16 dollara, en
allann fyrrihluta þessa árs var
verðið 1.18 dollarar og um tíma á
síðasta ári fengust 1.20 dollarar
fyrir pundið af blokkinni.
Astæðan fyrir þessari verð-
lækkun er að Kanadamenn hafa
boðið mikið magn af blokk að
kaup á skipi því, sem stöðin er nú með
í smíðum. Samningurinn milli HB og
Co og Þorgeirs og EHerts er bundinn
þeim skilmálum, að viðkomandi
sjóðir og bankar samþykki hann og
þarf það að liggja fyrir hinn 30. sept-
ember næstkomandi.
Nýja skipið á að afhenda í febrúar-
mánuði næst komandi, en Þorgeir
og Ellert hófu smíði á því, er lokið
var við síðasta skip, sem var Hafn-
arey SU , og er smíði nýja skipsins
hálfnuð. Nýja skipið er samskonar
og Hafnarey, 35,2 metrar að lengd
og 8.10 metrar á breidd. Það verður
búið Bergen dísel aðalvél og
Cummins hjálparvél.
Skip HB og Co er einsog Hafn-
areyjan eitt af raðsmíðaskipunum
svonefndu, en Slippstöðin hf. á
Akureyri, er nú að smíða þannig
skip og einnig Vélsmiðja Seyðis-
fjarðar.
Áætlað kaupverð skipsins er um
90 milljónir króna.
undanförnu, en sjávarútvegur þar
í landi á nú í miklum erfiðleikum.
Stærsta sjávarútvegsfyrirtæki
Kanada, National Sea Products til-
kynnti á miðvikudag í síðustu
viku, að það hefði tapað hátt á aðra
milljón dollara á öðrum árs-
ijórðungi þessa árs. I framhaldi af
því tilkynnti fyrirtækið, að það
hefði lokað 10 frystihúsum og lagt
23 togurum fyrirtækisins um óá-
kveðinn tíma.
Fiskifréttir hafa fregnað, að Nat-
ional Sea Products, sé nú að reyna
að losa sig við blokkarbirgðir fyrir-
tækisins, en þær munu nema um 6
milljónumpunda. Ostaðfestar fréttir
segja, að Kanadamenn bjóði nú
kaupendum í Bandaríkjunum
blokkarpundið á 1.12 dollara.
Guðjón B. Olafsson forstjóri Ice-
land Seafood sagði í samtali við
Fiskifréttir, að það væri staðreynu,
að blokkarmarkaðurinn hefði
veikst undanfarið. „Ég held að
blokkarmarkaðurinn verði slakur
á næstunni, eða allt fram í október,
en þá eru vissir möguleikar á, að
markaðurinn batni á ný.“
Guðjón sagði, að Iceland Seafood
væri með yflr 30% söluaukningu
fyrstu 7 mánuði ársins og ágúst-
mánuður nú, liti nú betur út en
sami mánuður í fyrra.
Kvað Guðjón birgðastöðuna hjá
Iceland Seafood vera góða um
þessar mundir, en fyrirtækið hefði
keypt mikið af vöru annars staðar
frá á þessu ári. Meðal annars hefði
það keypt 1/3 af öllum þeim lýsing
sem keyptur var til Bandaríkjanna
fyrstu 6 mánuði ársins, en lýsing-
urinn er aðallega fluttur inn frá S-
Ameríku og er notaður í fiskrétta-
framleiðslu fyrirtækisins.
„Við vorum á veiðum í Þverálnum,
þegar við fengum þessa risalúðu og
hún reyndist vera 201 kfló að þyngd,
eða yfir 400 pund þegar búið var að
gera að henni. Lengdin reyndist vera
2.60 metrar og breiddin 1.30 metrar,“
sagði Hávarður Olgeirsson skipstjóri
á skuttogaranum Dagrúnu frá Bol-
ungavík í samtali við Fiskifréttir, en í
síðustu viki fékk Dagrún stærstu lúðu
sem veiðst hefur við ísland í áraraðir,
ef ekki á þessari öld.
Fiskifræðingarnir Aðalsteinn
Sigurðsson og Gunnar Jónsson
sögðu þegar við þá var rætt, að þeir
myndu ekki eftir að jafn stór lúða
hefði veiðst á síðari árum. Vitað
væri um lúður sem hefðu verið 2.20
til 2.30 metrar, en ekki þar yflr.
Gamlar heimildir segja, að
stærsta lúða sem veiðst hafl á
Islandsmiðum hafl verið 5 metrar
að lengd og sögusagnir frá Ný-
fundnalandi segja að þar hafi veiðst
lúða sem var 6 metrar að lengd, en
þessum sögusögnum er tekið með
varúð af flskifræðingum.
„Þessi fiskur er sá langstærsti
sem ég hef séð á minni sjó-
mannsævi" sagði Hávarður 01-
geirsson. „Við vorum að veiða á 70
faðma dýpi þegar við fengum lúð-
una, ekki á neinni sérstakri lúðu-
slóð. Oft er mikil lús á stórum
lúðum, en það reyndist ekki vera á
þessari," sagði Hávarður að lokum.
Halldor Ássgrímsson, sjávarútvegsráðherra:
My ndarlegt framtak
Það er ánægjulegt til þess að vita,
að nýtt blað hefur hafið göngu sína,
og helgar sig sérstaklega íslenskum
sjávarútvegi. Það er ástæða til að
ætla, að mikill áhugi sé fyrir slíku
blaði og því fái það hinar bestu mót-
tökur. Islenskur sjávarútvegur er og
verður um ófyrirsjáanlega framtíð
ein aðal undirstaða þess þjóðfélags
sem við lifum í. Það er því mikilvægt
að sem nákvæmastar fréttir og upp-
lýsingar komi fram um atvinnuveg-
inn.
Það er mjög áberandi í þeirri
umræðu, sem hefur verið um
íslenskan sjávarútveg að nokk-
urrar vanþekkingar gætir meðal
þjóðarinnar um þýðingu hans og
gildi. Margir láta í ljós þá skoðun
að sjávarútvegurinn sé baggi á
þjóðfélaginu, því hann sé rekinn
að meira eða minna leyti á styrkj-
um frá opinberum aðilum. Bjarg-
ræðið sé því, að sem flest fyrirtæki
í sjávarútvegi fari yflr. Það er
enginn vafi, að ástæða þessarar
vanþekkingar er sú að fleiri, æ
fleiri, hafa aldrei komist í snert-
ingu við atvinnugreinina. Hér
áður fyrr var ekki til sá Is-
lendingur, sem hafði ekki ein-
hvern tímann unnið við störf, sem
tengdust sjávarútvegi.
Með meiri sérhæflngu og vax-
andi hlutdeild opinberra starfa í
þjóðfélaginu verður það mun al-
gengara að fólk kynnist ekki þess-
um störfum af eigin raun. Hlut-
verk fjölmiðla hlýtur að vera að
upplýsa almenning sem allra best
um það sem er að gerast ó hveij-
um tíma. Því miður er það svo að
umfjöllun fjölmiðla um sjávarút-
veg er oft mjög yflrborðskennd.
Þar gætir einnig oft á tíðum
mikillar vanþekkingar og nokkur
hluti þeirra umfjöllunar, sem á
sér stað er byggð á ónógum upp-
lýsingum og jafnvel misskilningi.
Með tilkomu þessa blaðs, sem við
sjáum í fyrsta skipti í dag, vænti
ég að nokkur þáttaskil verði.
Hér er um sérhæft blað að ræða,
sem eingöngu fjallar um málefni
sjávarútvegsins, af mönnum, sem
þekkja mjög vel til.
Það er von mín og trú að útgáfa
þess verði íslenskum sjávarútvegi
til framdráttar og með það í huga
óska ég aðstandendum blaðsins
innilega til hamingju með þetta
myndarlega framtak og vænti
þess að þeim megi vel farnast.
Akranes:
HB og Co semur um kaup á nýju
skipi hjá Þorgeir og Ellert hf.
—Á að afhendast í febrúar-kaupverð 90 millj. kr.