Fiskifréttir - 26.08.1983, Blaðsíða 3

Fiskifréttir - 26.08.1983, Blaðsíða 3
3 föstudagur 26. ágúst ___ ________ ____ Kanadamenn hafa tvöfaldað fiskveiðar á 7 árum —Verðmæti aflans hefur þrefaldast Eins og alþjóð er kunnugt eru Kanadamenn nú helstu keppi- nautar íslendinga á ferðfisk- markaði í Bandaríkjunum og þeir sækja að á fleiri stöðum. Það þarf engan að undra þótt Kanadamenn sæki stíft inn á þá markaði, sem íslendingar hafa náð mestum og bestum árangri á, því síðan Kanada færði fiskveiði- lögsöguna út í 200 sjómflur fyrir 7 árum, hafa landsmenn tvöfaldað fiskveiðar sínar og verðmæti afl- ans hefur þrefaldast. í Kirby skýrslunni svo- nefndu, sem fjallar um fram- tíðar fiskveiðar- og vinnslu Kanadamanna kemur meðal annars fram að verðmæti sjáv- arafurða í Kanada hefur hækkað úr 625 milljónum $ á árinu 1977 í 1,116 milljónir á árinu 1981. í skýrslunni kemur einnig í ljós, og eflaust furða margir Islendingar sig á því, að mikilvægi bandaríska fisk- markaðarins er nú minni fyrir Kanadamenn en fyrir nokkr- um árum. Árið 1977 keyptu Bandaríkjamenn 70% útfluttra kanadískra sjávarafurða, en á árinu 1981 keyptu þeir 66%. En af hverju ekki að grípa niður í skýrsluna, en þar getur að sjá það helsta í sambandi við kanadískar fiskveiðar. Veiðar Árið 1977 veiddu Kanada- menn 515 þúsund tonn af botn- lægum fisktegundum (þorskur, ýsa, ufsi, karfi, o.fl.) en á árinu 1981 var veiðin á þessum teg- undum 779 þúsund tonn. Veiðar á uppsjávarfiskum (síld, loðna o.fl. teg.) námu 287 þúsund tonnum á árinu 1977, en á árinu 1981 var veiðin 224 þúsund tonn. Skelfiskveiðar drógust sam- an á þessu tímabili, eins og veiði á uppsjávarfiskum eða úr 201 þúsund tonni 1977 í 188 þúsund tonn 1981. Kanadamenn áætla nú, að á árinu 1987 muni þeir veiða 1.1 milljón tonna af botnlægum fisktegundum. Verðmæti afla í milljónum dollara. Botnlægar tegundir 121 mill- jón dollarar 1977, en var 264 miljónir dollara 1981. Verðmæti uppsjávarfisks var41 millj. dollara 1977, en51 millj. dollara á árinu 1981. Verðmæti skelfisks hækkaði úr 120 milljónum dollara 1977 í 242 millj. dollara 1981. Framleiðsla afurða jókst einn- ig mikið á þessu 5 ára tímabili. Sem dæmi má nefna, að flaka- framleiðslan var 76 þúsund tonn árið 1977, en var orðin 109 þús. tonn 1981. Framleiðsla á blokk jókst að sama skapi eða úr 44 þúsund tonnum 1977 í 58 þúsund tonn 1981. Framleiðsla á saltfiski jókst einnig mikið á þessu tímabili eða úr 24 þús- und tonnum 1977 í 49 þúsund tonn 1981. Framleiðsla á öðrum afurðum úr botnlægum tegundum uxu úr 60 þúsund tonnum í 104 þúsund tonn á þessu tímabili. Eðlilega hefur verðmæti kanadískra sjávarafurða auk- ist mikið á þessu tímabili, en árið 1977 er talið að verðmæti afurða botnlægra tegunda hafi numið 360 millj. $ en það var 201 millj. $ 1981. Verðmæti skelfiskafurða steig enn meira á þessu tímabili eða úr 206 millj. $ í 388 millj. $ 1981. Heildarverðmæti fiskfram- leiðslu Kanadamanna hækk- aði því úr 526 millj. $ 1977 í 1,116 millj. $ 1981. Á árinu 1977 fóru um 70% framleiðslunnar til útflutn- ings, en árið 1981 var útflutn- ingurinn orðinn 87% af fram- leiðslunni. Á árinu 1977 keyptu Bandaríkin 70% fram- leiðslunnar en 66% 1981. Efna- hagsbandalagsríkin keyptu 14% framleiðslunnar 1977 og svo var einnig 1981, en kaup annara landa hækkuðu úr 16% í 20% á þessu tímabili. Ef litið er á þau verð sem Kanadamenn segjast fá í Bandaríkjunum fyrir þorsk- afurðir sínar, þá segjast þeir hafa selt blokkarpundið á 0.98 $ 1977, á árinu 1981 hafi verðið verið komið í 1.08 $ og í mars mánuði síðastliðnum hafi þeir selt blokkarpundið á 1.18 $. Á árinu 1977 seldu Kanada- menn flök í 5 punda pakkn- ingum á 1.09 $, á árinu 1981 var meðalverðið 1.30 $ og í marsmánuði síðastliðnum var verðið einnig 1.30 $. 31 þúsund í kanadíska fiskiskipa- flotanum - Fiskiskip í íslenska flotan- um, að trillum meðtöldum, eru nú um 900 talsins, en aftur á móti eiga Kanadamenn tæp- lega 31 þúsund fiskiskip og báta. Þá eru talin vera 700 fisk- vinnslustöðvar þar í landi, að því er Kirby skýrslan kana- díska segir. Fiskimenn þar í landi eru sagðir vera 23.000 í fullu starfi og 17.000 hafa sjó- mennsku sem aukastarf. I Kirby skýrslunni segir, að kanadísk fiskiskip undir 65 fetum séu 30.575, fiskiskip af stærðinni 65 til 100 fet eru 138, fiskiskip sem eru 100 fet og lengri eru 251 (þar af eru 148 togarar). Fiskvinnslustöðvarnar eru eins og fyrr segir 700 talsins, þar af eru 225 á Nýfundna- landi, 213 eru í Nova Scotia, 101 á Prince Edward eyju, 42 í New Brunswick og 119 í Que- bec. Við kanadíska sjávarútveg- inn starfa nú um 88.000 manns og skiptist þannig, að fiski- menn í fullu starfi eru 23.000, fiskimenn í hlutastarfi eru 17.000 og fólk sem vinnur við vinnslu aflans í landi telst vera 48.000 GÆÐiN GEFA ARD Atlas litafisksjáin hefur yfirburði á aðgreiningu og úrvinnslu endurvarps frá botni og fiski. Fáanleg bæði til tengingar við aðra botnmæla, flotvörpumæla og ASDIC. Eða sem sjálfstæður tveggja tíðni mælir. • Myndgæði í hámarki á 14" myndlampa með 300.000 punktafrá512 x 642línum. • Botnstækkari og hreyfanlegur stækkari. • Tvær sjálfstæðar fisksjár á stækkurum og grunnskala, ásamt venjulegri botnmynd og dýpistalningu. Allt á sömu sjá á sama tíma. • Ljósgræn botnlínasem gefurgóðaaðgrein- ingu á fiski fast við botn. • Breytanlegt TVC eftir því, hvað hentar hverju sinni, flotvarpa, botnvarpa eða annað. • 6 dýpisskalar ásamt stiglausum skala, sem færa má upp eða niður eftir þörfum. • Tengist beint á botnstykki þess mælis sem óskað er. Allarnánariupplýsingarhjá KrÍStÍnn GunnarSSOH & CO. Grandagarði 7 S: 26677

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.