Fiskifréttir - 02.09.1983, Qupperneq 7
föstudagur 2. september
7
Oft á tíðum fara skipin ekki í land fyrr en löngu eftir að öll málning er búin af botninum.
Þá sest mikill botngróður á þau og olíueyðsla verður allt að 20% meiri.
Hempels dynamic 7628 botn>
málingin endist í 26 mánuði
Slippfélagið í Reykjavík hefur nú sent
frá sér nýja gerð botnmálningar. sem nefn-
ist Hempels dynamic 7628 og undir hana er
borið á botninn vinyl tjara frá Hempels.
Þessi nýja botnmálning endist í 26 mánuði,
en eldri gerðin frá Hempels endist að með-
altali 12 til 16 mánuði.
Þessi nýja botnmálning hefur nú verið
borin á botn nokkurra íslenskra togara
og þrátt fyrir að nýja málningin sé tölu-
vert dýrari en sú gamla gerir lengri
endingartími það að verkum, að Hem-
pels dynamic 7628 verður mikið ódýrari
þegar fram í sækir. Til dæmis kostaði
Dynamic 7628, sem fór á togarann Elínu
Þorbjarnardóttur kr. 197.000.00, en ef
gamla gerðin hefði verið notuð hefði
kostnaðurinn verið um 150.000.00 kr.
Það hefur oft komið fyrir að menn
hafa málað skip sín með eins árs máln-
ingu, en síðan hafa skipin ekki verið
tekin í slipp í tvö ár. Þegar slíkt gerist
sest mikill botngróður á skipin og olíu-
eyðslan verður allt að 20% meiri.
Slippfélagið bendir á, að þau skip sem
flokkuð eru hjá Veritas þurfi ekki að
fara í slipp nema á tveggja ára fresti og
því ætti að vera mjög hagkvæmt að bera
Hempels Dynamic 7628 á þau skip.
Slippfélagið veitir mönnum nú þá
þjónustu, að það mælir þykkt máln-
ingarinnar á botni skipa, en þykktin
hefur töluvert mikið að segja hvað end-
ingu varðar. Þá eru teknar myndir af
botni skipanna þegar þau eru tekin á
land, þannig að útgerðarmenn geti séð
hvernig botninn lítur út á hveijum tíma
og borið saman myndirnar.
Allir togarar Samtogs f Vestmanna-
eyjum hafa verið málaðir með nýju dyna-
mic málningunni, einnig togarar Bæjar-
útgerðar Hafnarfjarðar, hafrannsókn-
arskipin og sífellt eru að bætast ný skip
í hópinn, sem nýja málningin hefur
verið valin á.
Fjallað um verð á spærlingi
Verðlagsráð sjávarútvegsins var
kallað saman til fundar í gær, fimmtu-
dag, til að fjalla um verð á spærlingi
til bræðslu. Verð á spærlingi var síð-
ast ákveðið vorið 1982.
Margir útgerðarmenn í Vest-
mannaeyjum og Höfn í Hornafirði
hafa nú áhuga á að senda skip sín til
spærlingsveiða , því sjómenn telja að
mikið magn sé nú á ferðinni úti fyrir
suðausturströndinni. Eitt skip, Hug-
inn VE, er nú farið til spærlingsveiða.
Það sem ýtir enn frekar undir menn
að senda skipin til spærlingsveiða er
að heimsmarkaðsverð á mjöli og lýsi
hefur hækkað verulega að undan-
förnu.
Viðgeriir - Viðhald
Nýsmíði
Bjóðum upp á fullkomna dráttarbraut fyrir skip allt að 2000 tonna
eiginþunga.
Kappkostum að veita sem besta viðhalds- og viðgerðarþjónustu á
öllum skipum að þessari stærð.
Plötusmiðja, Vélsmiðja, Trésmiðja og Rafmagnsverkstæði á
staðnum.
Erum byrjaðir framleiðslu skuttogara, sem einnig er hægt að gera
út á nótaveiðar.
Nýsmíðadeild annast smíði stærri og smærri skipa.
Vönduð og góð vinna.
Leitið tilboða og upplýsinga. ■
slippstödin mm
H-F- SKIPASMIÐIR
& VERKTAKAR
Akureyri — Sími (96)-21300 Pósthólf 437.
Telex 2231 - 1S SLIPPUR
Litaratsjá og „videoplotter" í
sama tækinu frá Fureno
Fureno fyrirtækið í Japan hefur nýlega
sent á markað nýja litaratsjá og „video-
plotter", sem er í sama tækinu, en þessi
samstæða nefnist FCR-1411 og GD-2000.
Litaratsjáin sendir út með 10 kw
sendiorku og er gerð fyrir bæði rið-
straum og jafnstraum. Ratsjáin er með
tvo lausa hringi, sem hægt er að hafa í
sjómílum eða metrum. Þá plottar rat-
sjáin feril allra skipa og skilur eftir bláa
Nýja litaratsjáin og „videoplatterinn“ frá
Fureno
rák og er því auðvelt að fylgjast með
stefnum þeirra.
FCR-1411 ratsjáin hefur skala allt
frá 1/4 sjómílu upp í 72 sjómílur og mis-
munandi „skannerlengdir" er hægt að
nota.
Það sem gerir CD-2000 litaplotterinn
frá Fureno einstakan er að hann tengist
inn á ratsjárskerminn og jafnhliða því
að notandinn hefur ratstjármyndina inn
á skerminum og lætur hann sjá um
„plottið" á öðrum skipum, sér GD-2000,
„plotterinn" um að „plotta" feril skips
þíns.
Við GD-2000 videoplotterinn frá Fur-
eno er hægt að tengja litamæli eða hita-
mæli, sem gerir það að verkum að í plott-
ferilinn færðu sjávardýpið eða sjávar-
hitann í tölum.
GD-2000 hefur 10 minni innbyggð og
er hægt að kalla þau fram á skerminn
hvenær sem er, þar velur notandinn sitt
minni og fær þá samstundis út á skerm-
inn hvert hann þarf að stefna og hver
vegalengdin er á ákveðinn stað. Þá er
innibyggt viðvörunarkerfi í plotterinn
og er það stillanlegt. Þannig lætur tækið
skipstjórann vita hvenær komið er á
ákvörðunarstað. Ennfremur eru hreyf-
anlegir breiddar- og lengdarbaugar á
plotternum.
Umboð fyrir Fureno hefur Skiparadio
hf. Vesturgötu 26B Reykjavík.
RÍKISSKIP
Sími: 28822
Brottfarardagar
frá Reykjavík:
VESTFIRÐIR:
Alla þriöjudaga og
annan hvern laugardag
NORÐURLAND:
Alla þriðjudaga og
annan hvern laugardag
NORÐ-AUSTURLAND:
Vikulega fimmtudaga
eða laugardaga
AUSTURLAND OG
VESTMANNAEYJAR:
Alla fimmtudaga
Þjónusta við
landsbyggöina!
Tilkynnið ávallt: BROTTFÖR - DAGSKYLDA 2000/1330
INNKOMA - KVÖLDSKYLDA 2000/2200