Fiskifréttir - 06.01.1984, Blaðsíða 4
4
föstudagur 6. januar
föstudagur 6. janúar
5
FRÉTTIR
Útgefandi: Fiskifréttir hf. Reykjavík.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þórleifur Ólafsson.
Auglýsingastjóri:
Inga Birna Dungal.
Ritstjórn og auglýsingar:
Þingholtsstræti 5,101 Reykjavík
sími 91 -27006. Pósthólf 871.
Áskriftasími:
91-84053.
Prentun og setning:
ísafoldarprentsmiðja hf,
Áskriftarverð 125 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 35 kr. eintakið.
Kvóti
Nú hefur verið samþykkt, að taka
upp kvótakerfi við botnfiskveiðar
landsmanna. Mjög margir voru
hlynntir þessari tilhögun fram til síð-
asta dags, en að vísu voru einnig
margir andvígir kvótanum. Eftir því
sem meira er rætt um kvótann, þá er
eins og margir, sem voru hlynntir
honum, séu að verða honum and-
snúnir. Þessir menn segja nú, að
betra sé að leggja skipunum lengur
á hverju ári, eins og í desember,
frekar en að taka upp kvóta.
Menn eru hræddir um, að ef kvóta-
skiptingu verði komið á, muni enn eitt
báknið rísa í þjóðfélaginu. Ennfrem-
ur, að aldrei verði hægt að skipta
kvóta niður á réttlátan hátt. Ef miða á
kvótann við afla skipa síðustu þrjú ár,
þá liggur í augum uppi, að þeim skip-
um sem einhverra hluta vegna hefur
gengið illa að fiska þetta tímabil, fá
minna en þau sem vel hefur gengið.
Þetta þýðir einfaldlega, að þessi
sömu skip hafa ekki möguleika á að
ganga vel. Skipin verða verðlaus,
því þeim fylgir svo lítill kvóti. Skip-
stjórar þeirra skipa sem vel hefur
gengið að fiska fá hins vegar að fiska
meira og sumir fá því að fiska út á
forna frægð.
Kvótafyrirkomulag hefur líka sína
kosti. Það leiðir það af sér, að frekar
verður hugsað um að nýta vannýtta
fiskistofna hér við land. Árið 1963
voru veidd 2.300 tonn af sólkola á
íslandsmiðum, og veiddu Bretar
mest. 1982 voru aðeins veidd um 30
tonn af sólkola. Sólkolinn er einn
verðmætasti fiskur hér við land og ef
tækist að veiða kringum 2.000 tonn
af sólkola á næsta ári, þá verður
verðmæti hans svipað 8.000 tonnum
af þorski.
Það er því úr vöndu að ráða fyrir
ráðamenn þjóðarinnar á næstu
vikum og mánuðum um hvað skal
gera. Bákn má ekki fylgja kvóta-
kerfinu. Það er nógu mikið fyrir.
Áqúst Einarsson:
„Okkur stafar minni hætta af bátaafla
Kanadamanna en togaraafla á meðan
núverandi fyrirkomulag er við líði“
Fyrri hluti
Þeir Krístján Ragnarsson formaður L.Í.Ú. og Ágúst Einarsson fulltrúi,
ferðuðust um Kanada fyrir skömmu. Skoðuðu þeir fiskiðjuver, fiskiskip og
hittu forsvarsmenn fyrirtækja að máli. Þeir Krístján og Ágúst fóru þessa ferð
með Magnúsi Gústavssyni, forstjóra Hampiðjunnar, og ferðuðust þeir eink-
um Nýfundnaland og Nova Scotia.
Ágúst Einarsson skrifaði grein um þessa ferð eftir að komið var heim og
birtist hún nú í Fiskifréttum.
Þrír togarar Fishery Products í slipp i Marystown. Togarinn til hægri á myndinni, er flaggskip Fishery Products og er hann teiknaður
af Jóni B. Hafsteinssyni skipaverkfræðingi.
Fiskveiðar frá Kanada eru að
langsamlega mestu leyti stundaðar
frá tveimur ríkjum á Atlantshafs-
strönd Kanada, þ.e. Nýfundna-
landi og Nova Scotia. Þannig var til
dæmis 77% af heildaraflanum árið
1981 landað í þessum tveim
ríkjum, þar af 30% á Nýfundna-
landi og 43% á Nova Scotia. Þau
önnur ríki, sem taka þátt i fiskveið-
unum, eru New Brunswick með um
10%, Quebec með um 8% og Prince
Edward Island með um 6%. Hlut-
deild Nýfundnalands og Nova
Scotia hefur síðan aukist verulega
með auknum þorskafla síðustu tvö
ár. Þannig nam þorskafli Kan-
adamanna á árinu 1981 439 þús-
und tonnum, á árinu 1982 nam
leyfilegur kvóti 521 þúsund
tonnum en aflinn varð um 508 þús-
und tonn. Árið 1983 er heildar-
þorskkvótinn 550 þúsund tonn og
höfðu um 83% af honum veiðst um
mánaðamótin okt./nóv. Ekki er
búist við aukningu á heildar þorsk-
kvótanum á árinu 1984. Skv. spám
fiskifræðinga í Kanada mun þorsk-
kvótinn á árinu 1987 verða um 770
þúsund lestir.
Samtals er ætlað að botnfiskafli
Kanadamanna á árinu 1987 nemi
samtals um 1100 þúsund tonnum
og er þá miðað við að þeir nýti um
90% af „TAC“ þess árs. Til saman-
burðar nam botnfiskafli þeirra árið
1977 450 þúsund tonnum og þar af
voru um 234 þúsund tonn af þorski.
Varðandi aðrar veiðar Kan-
adamanna þá var afli þeirra á
árinu 1981 eftirfarandi:
1. Síld 161 þúsund tonn
2. Humar 22 þúsund tonn
3. Hörpudiskur 90 þúsund tonn
4. annað, t.d. loðna,
makríll o.fl. 139 þúsund tonn.
Nokkur breyting hefur orðið á
kvótum framangreindra tegunda
frá árinu 1981, þannignam heildar
síldarkvótinn á þessu ári 128 þús-
und tonnum. Ennfremur hefur
ástand hörpudisksstofnsins
versnað og verulega dregið úr veið-
unum og má hugsanlega rekja hið
háa markaðsverð á hörpudiski á
Bandaríkjamarkaði til þessa.
Veiðiflota Kanadamanna má
skipta í tvo hluta. Annars vegar
hinn eiginlega úthafsveiðiflota en
hann samanstendur af 150 skipum.
Hins vegar samanstendur floti
þeirra af aragrúa af minni bátum
(inshore fleet) og eru þeir dreifðir
um alla Atlantshafsströnd Kan-
ada.
Til dæmis má nefna að fjöldi
þessara báta er um 9.000 á Nova
Scotia og um 5.000 á Nýfundna-
landi og eftirstöðvarnar, þ.e. um
3000 bátar eru staðsettir í Quebec,
P.E.I. og New Brunswick. Samtals
samanstendur því bátaflotinn af
um 17.000 skipum. Úthafsveiði-
flotinn samanstendur, svo sem
áður sagði, af um 150 skipum sem
öll eru yfir 100 fet að stærð, 120
þeirra eru í eigu eftirfarandi fyrir-
tækja:
National Sea Products og H.B.
Nickerson á Nova Scotia og Fishe-
ries Products, Lake Group og John
Penny & Sons á Nýfundnalandi.
Eignaraðild þeirra 30 skipa sem
eftir eru er mjög dreifð. Af þessum
fyrirtækjum eru National Sea og
Fisheries Products lang stærstir
með um 40-50 togara hvert félag.
Heimsókn til National Sea
Products á Halifax á Nova
Scotia.
Við komuna til Halifax hinn 14.
nóv. lögðum við leið okkar samdæg-
urs á aðalskrifstofur National Sea
Products (NSP) og hittum þar að
máli Earl Demone sem er útgerðar-
stjóri fyrirtækisins.
NSP Ltd. er stærsta útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki í Kanada. Til
þess að gefa hugmynd um stærð
þess, þá nam heildarsala fyrir-
tækisins á árinu 1982 386 milljón-
um dala eða tæpum 9 milljörðum
íslenskra króna.
Á fyrstu 9 mánuðum þessa árs
nam heildarsala fyrirtækisins 347
milljónum $ og hafði aukist úr 278
m.$ frá sama tíma á sl. ári.
Fyrirtækið rekur verksmiðjur og
atvinnustarfsemi á 17 stöðum í
Kanada og þess utan sölufyrirtæki
og verksmiðjur í Bandaríkjunum.
NSP einskorðar sig ekki við bol-
fiskframleiðslu, heldur er með víð-
tæk ítök í humarveiðum og hörpu-
skel o.s.frv. og gerir út í þeim til-
gangi bátaflota. NSP er mjög stórt
á innlendum markaði og má rekja
dijúgan hluta af sölutekjum fyrir-
tækisins til hans. Stærsta verk-
smiðja NSP er í Lunenborg sem er
í tæplega 2 klst. akstursfjarlægð
frá Halifax. Á fundinum með Earl
Demone, útgerðarstjóra fyrirtækis-
ins, lýsti hann starfsemi þess í
stórum dráttum en bauðst jafn-
framt til að fara með okkur í heim-
sókn til Lunenborgar morguninn
eftir, sem við þáðum með þökkum.
Jafnframt kynnti hann okkur fyrir
David Bollivar, sem er aðstoðar-
maður hans og er sérfræðingur í
öllu því sem að aflakvótum lýtur og
er fulltrúi NSP í viðræðum við
stjómvöld um slík mál. Var afráðið
að við hittum hann að máli að
morgni þann 16. nóvember.
Næsta dag var síðan lagt af stað
til Lunenborgar í fylgd Earl Dem-
one. Lunenborg, sem telur um 3000
íbúa, byggir tilveru sína, var okkur
sagt, einvörðungu á atvinnustarf-
semi NSP á staðnum. Það er vægt
til orða tekið að okkur Kristjáni
Ragnarssyni hafi bmgðið er við
litum augum þessa gífurlegu verk-
smiðju, sem veitir milli 1300 og
1400 mönnum atvinnu (auk sjó-
manna). í verksmiðjunni er unnið
á tvískiptum vöktum samtals um
18 klst. á sólarhring 6 daga vikunn-
ar. Framleiðslan er margbreytileg
og er til að mynda eldþús þar sem
framleiddir eru fullbúnir fiskréttir
með sósu og kartöflum. Sú fram-
leiðsla fer að mestu á markað í
Kanada. Á skrifstofu verksmiðj-
unnar hittum við m.a. að máli land-
skipstjóra NSP togaraflotans,
Kohler skipstjóra.
Skýrði hann okkur m.a. frá þeim
reglum sem gilda varðandi öryggi
um borð í skipunum, t.d. er bruna-
æfing um borð í skipum félagsins
a.m.k. mánaðarlega. Gaf hann
okkur ýmis gögn varðandi þau at-
riði. Að loknum fundi með Kohler
skipstjóra skoðuðum við eitt skipa
félagsins Cape Fame, en það er jap-
anskur togari rúmlega 700 lestir að
stærð.
Vorum við sammála um að þessi
togari væri á engan hátt eftirbátur
ísl. togara og var umgangur um
skipið til mikillar fyrirmyndar.
Flestir af nýrri togurum Kanada-
manna eru sérstaklega útbúnir til
veiða í ís og er stál i bol skipsins,
t.d., 26 mm á þykkt. Ennfremur eru
þau útbúin þannig að unnt er að
leggja gálgana niður í skutrennuna
þannig að hægt er að renna vírum
og hlerum í sjó beint aftur úr skut-
rennunni, er þetta gert til að koma
í veg fyrir að ís komist á milli. Þessi
útbúnaður var að sögn skipstjórans
nauðsynlegur þegar skipin eru að
veiðum á hinum svokallaða
norðurþorski úti fyrir strönd
Labrador. Að sögn skipstjórans er
algengt að skipin fylli sig á þeim
slóðum á 3-5 dögum. Allur fiskur
er ísaður í stíur í skipum félagsins,
svo sem í öðrum togurum Kanada-
manna. Löndun var lengi vel fram-
kvæmd með dælu en því er nú hætt
og er losað með „elevatorum" úr
skipunum. Tekur um 6-8 klst. að
landa 150 tonna farmi á þann hátt.
Við löndun er fiskurinn handflokk-
aður í tegundir og stærðir. Flokk-
uðum fiskinum er komið fyrir í
plastkörum sem taka 600 kg. af
fiski. Virtist okkur frágangur á
fiskinum vera til fyrirmyndar og er
greinilegt að mikil áhersla er lögð
á gæði hans.
DUNLOP
Gúmmíbjörgunarbátar
4 — 6 — 8 —
10 og 12
manna til
afgreiðslu
með stuttum
fyrirvara
FOSSNES s.f.
Smiðjuvegi 9,-200 Kópavogi-Simar: 46300 - 46315 - 46569
Sölumaður Hafsteinn Þorgeirsson, heimasími 73639
POWER I1FTER
lyftarahjólbarðar
POWERLIFTER: Hjólbarði af nýrri gerð.
Sérstaklega hannaður fyrir erfið og gróf
verkefni með lögun sem hæfir vel gaffal-
lyfturum og öðrum vinnutækjum I þeim
flokki. Það er mjög sjaldgæft að hann
spryngi vegna þess hve bygging hans er
sterk.
lössnes sf
Smiðjuvegi 9, — 200 Kópavogi
Símar: 46300 - 46315 - 46569
Pósthólf 5002
Framhald í næsta blaði
Tveir togarar National Sea við bryggju í Lunenbourg.
Frystihús Fishery Products í Burin. Það á nú að leggja niður og verður notað til fram-
leiðslu á tilbúnum fiskréttum.
Allar tegundir
FRYSTITÆKJA TIL
SJÓS OG LANDS
.r
Lárétt plötufrystitæki (6 plötustærðir, 3-20
stöðvai)
ÁRATUGA REYNSLA
hérlendis og í 36
öðrum löndum
HEFUR SANNAÐ
GÆÐI og ENDINGU
Lóðrétt plötufrystitæki (10-30 stöðvar)
Kynnið ykkur hin
HAGSTÆÐU VERÐ
og
G0ÐU
GREIÐSLUKJÖR
Lárétt plötufrystitæki með innbyggðri frystivél.
(3 plötustærðir, 3-7 stöðvar)
FRYSTITÆKITIL
SJÓS OG LANDS:
Sönnuð gæði
Hagstæð verð
Greiðslukjör
Við bjóðum mesta
úrval frystitækja til
BLOKKFRYSTINGAR
og
LAUSFRYSTINGAR
„Spiral“-lausfrystitæki (Frá 500 kg/klst ogþaryfir)
HÁTT Á ANNAÐ
HUNDRAÐ
Parafreeze frystitækja er í
VINNSLUSTÖÐVUM og
FISKISKIPUM hérlendis
„ Tunnel“lausfrystitæki (Frá 100 kg/klst og þaryfir)
Við sendum ykkur
MYNDLISTA
með öllum
TÆKNILEGUM
UPPLÝSINGUM
IM
r'v a
„Fluidised Belt“ lausfrystitæki (Frá 500 kg/kist og
þaryfir)
PARAFREEZE UMBOÐIÐ: ÁRNI ÓLAFSSON HF.
VATNAGARÐAR 14, SÍMI 83188