Fiskifréttir - 02.11.1984, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
35. tbl. föstudagur 2. nóvember
HEMPEL’S
DYNAMIC 7628 Botnmálningar ppimi
TROPIC 7644 fyrirþásem
NORDIC 7133 gera kröfur.
Útgerðarfélag Skagfirðinga:
Heildarhagsmunir jafnan
hafðir að leiðarljósi
- segir Bjarki Tryggvason framkvæmdastjóri
Hjá Útgerðarfélagi Skagfírðinga á
Sauðárkróki eru gerðir út 3 togar-
ar, Drangey, Hegranes og Skafti.
Til að kynnast starfseminni nánar
tókum við þar tali framkvæmda-
stjórann.
Hann var fyrst spurður hvernig
aflinn hefði verið á þessu ári hjá
togurunum. Bjarki sagði að afli
þeirra hefði verið mjög góður á
þessu ári en þeir hefðu dregið úr
veiðunum um tíma vegna vinnsl-
unnar. Porskkvóti allra togaranna
er búinn hjá þeim öllum en talsvert
er eftir af öðrum tegundum. Varð-
andi afkomuna sagði Bjarki að
hún hefði verið þolanleg enda hér
um að ræða eitt endurbyggt skip
og tvö eldri.
Þar sem skuttogarinn Drangey
er í hópi þeirra japönsku skut-
togara sem fluttir voru til landsins
fyrir u. þ. b. 10 árum er Útgerðar-
félag Skagfirðinga aðili að félagi
eigenda japanska skuttogara. Við
spurðum Bjarka að því hvernig
starfsemi félagsins væri háttað um
þessar mundir.
Sagði hann að félagið væri nú að
láta vinna drög að því hvernig
hægt væri að endurnýja þessa tog-
ara. Niðurstöður þeirrar rann-
sóknar yrðu sennilega birtar á
næstunni. Nú stæðu fyrir dyrum
viðgerðir á mörgum þessara togara
og virtist sem endurbygging kæmi
einni helst til greina þar sem slíkt
kostaði aðeins um fjórðung af
verði nýs skips. Varðandi kostnað-
inn af slíkum endurbyggingum
sagði hann að flest skipin stæðu vel
gagnvart fiskveiðasjóði og því ekki
óeðlilegt að ætlast til þess að hann
kæmi til móts við útgerðir skip-
anna. Eftir slíkar breytingar yrði
rekstur skipanna mun hagkvæmari
en áður þar sem olíueyðsla myndi
minnka að mun.
Bjarki sagði ennfremur að það
væri skipaverkfræðingur sem ann-
aðist úttektina og hefði félagið
fengið styrk frá sjávarútvegsráðu-
neytinu fyrir þetta verkefni. Skipin
væru sterk og talin þola vel endur-
byggingu. Hann tók sem dæmi um
hagkvæmni slíkra breytinga að
eftir að Hegranesið var endur-
byggt hefði olíueyðsla mínnkað
um 10% og hefði skipið fengið að
veiða óheft hefði aflinn þess vegna
getað tvöfaldast.
Bjarki var spurður að því hvern-
ig samstarfi útgerðarinnar og fisk-
vinnslunnar á staðnum væri
háttað.
Að sögn hans ríkir mjög gott
samstarf milli þessarra tveggja að-
ila og eru heildarhagsmunir jafnan
hafðir að leiðarljósi. Á Sauðár-
króki eru 3 frystihús og anna þau
fyllilega þeim afla sem berst á land.
HVERS VEGNA
AÐ SÆTTA SIG VIÐ
17% VEXTIOG SÍÐAN EITTHVAÐ STIGHÆKKANDI
ÞEGAR ÞÉR BJÓÐAST
26,2 % VEXTIR STRAX
í FYRSTA MÁNUÐIEFTIRINNLEGG
OG FASTAÐ !8%
ÁVÖXTUNÁ12 MÁNUÐUM?
Einn allra banka og sparisjóða býður Útvegsbankinn þér
innlánsreikning með glæstri mánaðarlegri vaxtaábót.
Hún er nú 9.2% og leggst á almenna sparisjóðsvexti.
Vaxtaábótin tryggir þér þannig fyllstu vexti, 26.2%, strax í
fyrsta mánuði eftir stofnun reikningsins.
Jafnframt getur hún skilað þér fast að 28%
ávöxtuná12 mánuðum.
Þú getur tekið út af reikningnum hvenær sem er.
En þann mánuð sem tekið er út reiknast hins vegar engin
vaxtaábót, heldur gilda þá sparisjóðsvextirnir. Strax í
næsta mánuði færðu vaxtaábót og nýtur fyllstu vaxta aftur.
Athugaðu veli
ÚTTEKT HEFUR ENGIN
ÁHRIFÁ ÁUNNA VAXTAÁBÓT
Það hafa ekki allir biðlund eftir stighækkandi ávöxtun. Þess
vegna bjóðum við fyllstu vexti strax. Er nokkur ástæða til
að sætta sig við minna?
GERÐU SAMANBURÐ
Við hvetjum þig til að gera rækilegan samanburð
á öllum þeim innlánsreikningum sem nú eru í boði hjá bönkum og sparisjóðum.
Athugaðu sérstaklega vaxtatímabil reikninganna,
og hvort þú glatir áunnum vöxtum takir þú út fyrr en þú ætlaðir.
ÁBÖT
A VEXTI
BÝÐST ÞÉR BETRA ?
UTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖLL ÞJÓNUSTA