Fiskifréttir


Fiskifréttir - 02.11.1984, Blaðsíða 1

Fiskifréttir - 02.11.1984, Blaðsíða 1
1 Scaniro i þvotta- ' tæki | NETASALAN HE UE I * KLAPPARSTÍG 29,101 REYKJAVÍK, S. 24620 FRETTIR 34. tbl. 2. árg. föstudagur 26. október 1984 Oskar Magnusson AK seldur á uppbo&i - fjölmörg þjónustufyrirtæki verða fyrir skakkaföllum Reiknað er með að skuttogarinn Óskar Magnússon AK verði seldur á opinberu nauðungaruppboði nú á næstunni. Það var norskt fyrir- tæki, sem fór fram á uppboð á togaranum og eigendur hans báðu ekki um fremst til að komast hjá uppboðinu. Samkvæmt heimildum Fiskifrétta, þá verða ýmis þjónustufyrirtæki fyrir skakkaföllum, þegar togarinn verður seldur á uppboðinu, því þau gera ekki ráð fyrir að fá upp í kröfur. Þau fyrirtæki, sem verða fyrir helstu skakkaföllunum, eru veiðarfærasalar nokkrir, trygg- ingafélag togarans, svo og skip- asmíðastöðvar hér innanlands. Þá er talið að einhver önnur nýleg fiskiskip, sem hafa átt í miklum erfiðleikum á undanförn- um árum, verði boðin upp á næst- unni. Óskar Magnússon AK 177, er 499 tonn að stærð. Togarinn var smíðaður hjá Slippstöðinni á Ak- ureyri 1978. í togaranum er 1740 hestafla Alpa aðalvél. Eigendur togarans eru Útgerðarfélag Vest- urlands, en hluthafar í því fyrir- tæki eru á Akranesi og í Borgar- nesi. Þurfti aðeins 3000 lítra af olíu til að klára síldar- kvótann Síldveiðarnar hafa gengið misjafnlega hjá bátunum að undanförnu. en einn og einn bátur hefur fiskað með ágæt- um. Sá bátur sem fyrstur var að Ijúka við eigin kvóta var Guðmundur Kristinn frá Fá- skrúðsfirði. Var báturinn aðeins nokkra daga að fá um 4000 tunnur og fékkst mest af síldinni skammt undan bæjar- bryggjunum á Fáskrúðsfirði. Sagt er að Guðmundur Krist- inn hafi aðeins farið með 3000 lítra af olíu við að veiða eigin kvóta og er ekki vitað til að áður hafi þurft jafn litla olíu til að Ijúka við síldar- kvóta. Skipstjóri á Guðmundi Kristni er Ingvi Rafn. Þcgar Guðmundur Krist- inn hafði lokið við eigin kvóta, tók báturinn við að veiða kvóta Sæbjargar SU. Landað úr Sölva Bjarnasyni á Bíldudal. Ljósm.: Snorri Snorrason. Skipt um skrúfu og hluta af gír í Cuðbjörgu ÍS - fjöldi togara í svipaðar breytingar Þessa dagana er verið að skipta um skrúfu á Guðbjörgu IS í Cux- haven í Þýskalandi. Þá verður skipt um tannhjól í gír togarans og eftir þessar breytingar er talið að olíueyðsla Guðbjargar verði allt að 30% minni en áður. Fjöldi útgerðarfyrirtækja hefur nú áhuga á að setja stærri skrúfur á togara sína og setja í þá niðurfærslugír. Nýr gír og stór skrúfa var sett á Júlíus Gcirmundsson IS fyrr á þessu ári og eyðir togarinn 30% minni olíu en áður, auk þess sem togkraftur skipsins er meiri. Skrúfan sem verður sett undir Guðbjörgu ÍS er 3 metrar í þver- mál og snúningshraðinn á henni er um 150 á mínútu. Búnaðurinn sem fer í Guð- björgu er frá Volda-Liaen í Nor- egi, svipaður búnaðinum sem fór í Júlíus Geirmundsson. Ákveðið er að skipta um gír og setja stærri skrúfu á Guðbjart frá ísafirði. Búnaðurinn sem fer í Guðbjart er sömu gerðar og í Júlíusi Geir- mundssyni. Friðrik Gunnarsson hjá Vélasöl- unni hf. sagði í samtali við Fiski- fréttir, að mjög margar útgerðir hefðu nú áhuga á svona búnaði. Reynslan af Júlíusi Geirmundssyni sýndi að olíukostnaðurinn í veiöi- ferð væri allt 30% minni en áður og því væri búnaður sem þessi fljótur að borga sig. Hafþór með 6 m illj. kr. rækjutúr Rækjutogarinn Hafþór landaði 48 tonnum af rækju á ísafirði fyrir helgi. Talið er að aflaverðmætið sé um 6 milljónir króna. Rækjuna fékk Hafþór á Dhornbanka og er hún mjög stór og hefur þegar verið seld á Japansmarkað. 30 tonn af rækjunni fara í skel á markað, en 18 tonn verða pilluð í landi. Mjög góð rækjuveiði er nú á Dhornbanka. Það sem helst dregur úr veiðum eru brælur, sem hafa verið tíðar undanfarið. iíla horfír með sölu á frystri síld Illa horfir nú með sölu á frystri síld og er það fyrst og fremst það verð sem í boði er, sem stendur í vegi fyrir sölu á síldinni. Miklar birgðir eru nú til í Evrópu af frystri síld og því hefur verð fallið að undan- förnu. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna sagði í samtali við Fiskifréttir, að útlit með sölu á frystri síld væri nú rnjög dökkt. „í fáum orðum má segja, að það verð sem í boði er nægi rétt til kaupa á hráefni. Það er sem sagt ekkert fyrir vinnslu- kostnaðinn,“ sagði Eyjólfur. Norðmenn hafa selt frysta síld nýverið á 409 dollara tonnið c. i. f. og er ekki reiknað með að hærra verð fáist fyrir síldina á næstunni. Samkvæmt þessu er því óljóst hversu mikið verður fryst af síld á íslandi í haust. „Hægt að auka karfasölu til Japan en gæðin verða að vera mikir „Við ættum að geta aukið sölu á karfa til Japan verulega, en þá verðum við að halda miklum gæðum,“ sagði Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson forstjóri SH í samtali við Fiskifréttir, þegar hann var spurður álits á karfasölu til Japan. Undanfarið hafa íslensk fyrirtæki stóraukið sölu á karfa til Japan og hafa SH og sjávarafurðadeild Sain- bandsins selt mest. Þá er skemmst að minnast samningsins, sem Hekla h.f. gerði við japanskt fyrir- tæki, en Hekla kaupir 500 tonn af karfa af SH. Að sögn Eyjólfs þá fæst tiltölulega gott verð fyrir gæðakarfa í Japan. Japanir greiddu með dollurum, en þeir yrðu að reikna kaupvcrð í yen þegar fiskurinn kæmi til Japan og því miðaðist raunverulegt verð við stöðu dollars gagnvart yeni. „Ef við höldum vcl á málum eigum við að geta aukið fisksölu til Japan verulega á næstunni,“ sagði Eyj- ólfur.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.