Freyja - 01.03.1934, Blaðsíða 14

Freyja - 01.03.1934, Blaðsíða 14
14 - F R E Y J A 6. Q og veinandi uppi í rúminu sínu. Öli spurði, hvað væri að honum. Helgi sagði, að það væri tannpína. Öli spuröi, hvort hann vildi koma með sér á skemmtun, sem ætti að vera á morgun. Helgi sagði: s,I\Teieg get það ekki." M fór öli til annars drengs og bauð honum á skemmtunina, og drengurinn þá boðiö. Ragnar Iírist.iánsson. FLATEY 1 BREIÐAPIRÐI. » {>'» tt'ti ti'íl tni U’n'it’ít i( ií.?i;Viíi ti'it'i? i'fu'ínT'tnnrff Síðastliðið sumar fór eg vestur á Flatey^á Breiðafirði og var þar rúma tvo mánuði. Mór þótti ákaflega skrítið á Platey fyrst í stað, snnilega vegna þess, að eg hefi aldrei áöur verið á svona lítilli eyju langt frá landi. En þrátt fyrir þaö þótti mér hara gaman þar. Þó langaði mig nú stundum upp á leind til ^að tína ber, því að það vaxa engin ber á eyjunni. Enda fókkeg líka tvisvar sinnum að fara í berjaför. I fjrrra skiptið fór eg með póstbátnum. Hann lenti fram undan preatssetri, sem heitir Skarðs- stöð. I hitt skiptið fór eg á trillubáti, ^og lentum við þá fram undan bæ, sem heitir Brjánslækur, og er Ííka kirkja þar, eins og á fyrri staðnum. Eg skemmti mér ákaflega vel í seinni ferðinni, enda var þá afar gott veour. Einu sinni fékk eg líka aö fara til fiskjar, og fórum við þá rétt út fyrir eyna og vorum viö þá fjóra tíma í burtu, Það kom líka emu sinni fjrrir, að hval rak upp að eyju þar skammt frá, sem heitir á Sviönum, og fékk eg að fara þangaö, til að sjá hvalinn. En það var í fyrsta skipti, sem eg hefi seð hval. Ríkarður Jónsson. í B E R J A M Ó. Tnnrii' \v\r\\« v/i; tnt» rt tt st u tt Það var einn sunnudagsmorgun, þegar við vorum búnir að reka kýrnar og sækja hestana, að yið fórum inn.ví bæ og báöum húsmóðurina að lofa okkur í berjamó. Hún sagði, að hún ætlaöi að spyrja húsbóndann, og hann sagÓi já. Klukkan eitt um daginn lögð- urn við af stað. Við riðum niður afleggjarann og eg fór af baki og tók úr hliöinu og lét í það aftur. Og svo héldum við áfram, þangað til við vorum búnir aö ríða svolitinn spöl. Þá komum við aö rétt, sem heitir Arnarkambsrétt. Við fórum af baki og skoðu.ð- um réttina og hestarnir fóru að bíta. Svo héldum við áfram, þar til við komum að á, sem heitir Artúnsá, og við riðum upp með ánni, þangað til viö vorum komnir þa.ngaö sem berin voru. Þá spœ sprettum við af hestunum og fórum svo að tína ber. Og svo fóruai við heim. Si,.gurður Arnason.

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/1595

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.