Morgunblaðið - 13.07.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.07.2021, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. J Ú L Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 162. tölublað . 109. árgangur . GEFUR ÚT TEXTA- VERK TIL HEIÐURS REGNBOGAFÓLKI UNAÐSLEGUR ILMURINN AF BERJUNUM LANGAR AÐ SPILA ÁFRAM Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI ALEKSANDRA Í REYKHOLTI 6 SARA BJÖRK 27BUBBI UGGANDI 28 Ferðamenn halda áfram að leggja leið sína til landsins. Í júní voru erlendir brottfararfarþegar 42.600 talsins, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Eru það sjöfalt fleiri en á sama tíma í fyrra. Bandaríkjamenn voru um helmingur þessa fjölda. Þar á eftir fylgdu Pólverjar, Þjóðverjar, Bretar og Frakkar. Kortavelta erlendra ferðamanna náði 9,42% af heildarkortaveltu í júní, sem er til marks um mikla viðspyrnu í ferðaþjónustunni, þó hún komist ekki í hálfkvisti við árið 2019 sem getur talist síðasta „eðlilega tímabilið“ í ferðaþjónustu. Mun fleiri ferðamenn en á sama tíma á síðasta ári Morgunblaðið/Eggert _ Á fyrri helm- ingi ársins var aflað og dreift 428.585 skömmt- um af bóluefni á Íslandi, langmest af bóluefni Pfi- zer. Ef tillit er tekið til þess að tvo skammta þarf af öðru bóluefni en Janssen kem- ur í ljós að fyrstu 26 vikur ársins var Pfizer notað til bólusetninga á lið- lega 51% þeirra sem boðaðir voru í bólusetningu, 21% fékk Janssen, 20% AstraZeneca og 8% Moderna. Bólusetning hér á landi gekk treg- lega í fyrstu, sem rekja má til örðug- leika við öflun bóluefnis í Evrópu. Eftir að það tók að berast til landsins í einhverjum mæli upp úr páskum hefur hún hins vegar gengið vel og Ísland er komið í fremstu röð í heimi að því leyti, eins og lesa má úr töl- fræði. »13 Pfizer notað til bólusetningar meira en helmings fólks Bólusetning í Laugardalshöll. Esther Hallsdóttir esther@mbl.is Gert er ráð fyrir að heildarkostn- aður við nýbyggingar Landspítal- ans á Hringbraut muni nema 79,1 milljarði króna. Kostnaðarmatið hljóðaði upp á 62,8 milljarða króna árið 2017, uppfært til verðlags í des- ember síðastliðnum, og munar því 16,3 milljörðum króna. Aukið umfang verkefnisins skýrir þessa breytingu að sögn Gunnars Svavarssonar, framkvæmdastjóra opinbera hlutafélagsins Nýs Land- spítala. Stærsta byggingin, meðferð- arkjarninn, verði sjötíu þúsund fer- metrar að stærð í stað 53 þúsunda. Einnig var tekin ákvörðun um að gera þá kröfu að húsið gæti staðið af sér mun öflugri jarðskjálfta en kveðið er á um í byggingarreglu- gerðum. Verkefnið innan rammans „Það er stöðugt verið að rýna áætlanir, bæði tíma- og kostnaðar- áætlanir. Það er mikilvægt að birta stjórnvöldum allar breytingar en um leið að tryggja að verkefnið sé innan áætlunarrammans og verk- efnin séu í samræmi við heimildir Alþingis,“ segir Gunnar í samtali við Morgunblaðið. Kostnaður aukist um 16,3 milljarða - Nýbyggingar Landspítalans verða stærri en stefnt var að MNýr spítali verður … »2 Morgunblaðið/Eggert Framkvæmdir Gert er ráð fyrir öflugri jarðskjálfta en alla jafna. _ Af þeim flugfélögum sem fljúga til Kaupmannahafnar og London, tveggja vinsælla áfangastaða Ís- lendinga, býður Play lægstu flug- fargjöldin. Mest munar 265% á verði á flugi til London ef viðkomandi tekur eina handfarangurstösku með og enga innritaða tösku. Í þeim til- fellum eru ferðir Play ódýrastar en flug British Airways dýrast. Ódýrasta far Play til London kostar rétt rúmar 15 þúsund krón- ur en far til Kaupmannahafnar kostar tæplega 29 þúsund krónur. Innifalið í því er einn persónulegur hlutur sem kemst undir sæti. »4 Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Flug Play býður lægstu flugfargjöldin. Play ódýrast til vin- sælla áfangastaða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.