Morgunblaðið - 13.07.2021, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Tæp tvö ár eru frá því Aleksandra
Lugowska flutti hingað til lands frá
Póllandi og settist að í Reykholti,
haustið 2019. Fyrst um sinn vann
hún við afgreiðslu á veitingahúsi í
sveitinni. Þar bar hún þunga bjór-
kúta á dimmum lager en nú tínir
hún alls kyns ber í björtu og grænu
gróðurhúsi hjá garðyrkjustöðinni
DAGA hjá Gunn Apeland.
„Að vinna í gróðurhúsi hjá Gunn
er mér sem lífsbjörg,“ segir Aleks-
andra í samtali við Morgunblaðið.
„Í gróðurhúsinu get ég róað
taugarnar. Þar eru aðeins ég og
náttúran. Vinnan er friðsæl, sem er
akkúrat það sem ég þarf,“ segir
hún og bætir við að vinnunni í gróð-
urhúsinu svipi til þeirrar sem hún
vann á veitingahúsinu. Hvort starf-
ið sé betra fari eftir manngerðinni.
„Það veitir mér mikla gleði að
vinna í kyrrðinni innan um plönt-
urnar og ilmurinn frá berjunum er
unaðslegur. Á sólríku dögunum
finn ég stundum varmann frá
berinu. Þá veit ég að berið er full-
komlega tilbúið til átu.“
Kyrrð innan um plönturnar í Reykholti og ilmur berjanna unaðslegur
Friðsæl
vinna það
sem þarf
Morgunblaðið/Eggert
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Á næstu vikum verður að líkindum
lokið bólusetningu velflestra Íslend-
inga, 16 ára og eldri. Ísland er sem
kunnugt er komið í fremstu röð ríkja
heims í bólusetningu íbúa eftir frem-
ur brösótta byrjun.
Þar munar einna mest um hve vel
framkvæmd bólusetninga hefur
gengið um leið og bóluefni hefur ver-
ið til reiðu hér á landi, en framan af
stóð verulega á því líkt og víðar í
Evrópu. Ekki síður skiptir þó sjálf-
sagt máli hve móttækilegir Íslend-
ingar eru fyrir bóluefni, en ólíkt því
sem þekkist í mörgum öðrum ríkjum
heims gætir hér ekki efasemda um
öryggi og nytsemd bóluefnis svo
heitið geti.
Sígandi lukka er best
Fyrsta bóluefnið barst til Íslands
hinn 28. desember í fyrra, en á súlu-
ritinu að ofan er það sýnt í fyrstu
viku þessa árs og síðan hvernig það
hefur borist til landsins síðan, viku
fyrir viku eftir tegundum.
Sem sjá má barst það afar hægt til
landsins í fyrstu, má eiginlega segja
að það það hafi rétt seytlað inn
fyrstu þrjá mánuði ársins, en svo tók
það að berast í meira magni er komið
var fram yfir páska.
Sem sjá má er það bóluefni Pfizer
sem þyngst vegur, það var ríflega
57% allra skammta á fyrri helmingi
ársins. Ef tekið er tillit til þess að tvo
skammta þarf af öðrum bóluefnum
en Janssen, þá var Pfizer notað til
þess að bólusetja 51% þeirra sem
bólusetningu fengu, 21% fékk Jans-
sen, 20% AstraZeneca og 8% bólu-
efnið frá Moderna.
Lán í óláni bóluefnis
Líkt og sjá má munaði verulega
um lán á bóluefni frá frændþjóðum á
Norðurlöndum. Norðmenn lánuðu
16 þúsund skammta af AstraZeneca,
þegar falsfréttir runnar undan rót-
um forysturíkja Evrópusambands-
ins gengu um að það kynni að vera
skaðlegt eða gagnslítið, en í upphafi
júní komu svo 24 þúsund skammtar
af Janssen að láni frá Svíum.
Sem kunnugt er gekk Evrópu-
samstarf um öflun og dreifingu bólu-
efnis illa framan af og hefur raunar
enn ekki náð sér almennilega á strik,
eins og sjá má af tölfræði um bólu-
setningu í Evrópusambandinu. Þar
hefur enn aðeins náðst að fullbólu-
setja 38% íbúa, en hér er samsvar-
andi tala 70%. Gera má ráð fyrir að
sú tala hækki ört þegar ráðist verður
í bólusetningu ungmenna. Enn hefur
ekki verið ráðist í boðun þeirra, en
Pfizer hefur fengið markaðsleyfi hér
á landi til bólusetningar ungmenna á
aldrinum 12-15 ára.
Bóluefni seytluðu hægt en komu þó
Öflun bóluefna til Íslands
eftir vikum á fyrri hluta árs 2021 Heimild: Landlæknir
0
10
20
30
40
50 þúsund skammtar
Janssen
AstraZeneca
Moderna
Pfizer
2625242322212019181716151413121110987654321
Lán frá Norðmönnum
Lán frá Svíum
- Pfizer notað til bólusetninga rúmlega helmings - AstraZeneca og Janssen notað á fimmtung hvort
- Talsvert munaði um lán á bóluefni frá Norðurlöndum - Stutt í að allir eldri en 16 ára verði bólusettir