Morgunblaðið - 13.07.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL
Það er til fyrirmyndar hvað
bólgnustu peningafurstar
heims eru virkir í baráttunni gegn
heimshlýnuninni. Sænskt stúlku-
barn sem nálgaðist
fermingaraldur var
lengi andlegur leið-
togi heimsfursta
sem fylgdu ríkis-
bubbunum fast eft-
ir. En vegna heims-
hlýnunar
þroskaðist hún
hraðar en hún ætlaði og neitar nú
að stýra vörnum gegn heims-
hlýnun nema að fyrst verði tryggð
bólusetning allra í Afríku.
- - -
En bubbarnir ákváðu að halda
sínu striki þótt litli leiðtoginn
væri úr leik. Þeir mættu á 115
einkaþotum, af stærri gerðinni, til
að ræða vandann.
- - -
Vegna þessa þotugangs varð að
fresta öllu pupulflugi í vest-
urhluta Bandaríkjanna um hríð.
Al Gore sagði sem betur fer frá
því á bók að baráttu gegn hlýn-
uninni lyki með tapi upp úr sein-
ustu aldamótum. Menn hafa ekki
enn treyst sér til að brenna ólesið
upplag vegna loftslagsáhrifa. Að-
ens örfáir treystu sér til að lesa
upplagið.
- - -
Sálufélag einfaldra, sem er
helsti stuðningshópur gull-
rassa með heimsábyrg gen sem
hobbí, gætu orðið seinir til fundar
hafi þeir róið yfir Atlantshafið
eins og sú sænska gerði forðum
ásamt fylgdarskipum og flug-
vélum.
- - -
Eldsumbrot á Reyjanesi eru á
við hundruð bubbavélar enda
ekki slökkt á þeim. Sú sænska hef-
ur ekki enn ákveðið hversu lengi
hún samþykki gosið í þágu túrista.
Hún yrði liðlegri réru þeir hingað.
Bill Gates
Einkaþotur
sýna ábyrgð
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt
í ósk lóðarhafa Ofanleitis 14 um að hann láti vinna
frumdrög að tillögu að fyrirkomulagi breyttrar
uppbyggingar á lóðinni, þannig að nýtt hús verði
ekki meira en þrjár hæðir auk bílastæðakjallara.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu nýlega ósk-
aði lóðarhafi leyfis til að rífa 79 fermetra hús sem
stendur á lóðinni og reisa í staðinn íbúðarhús með
6-8 íbúðum. Hið nýja hús á að verða norðar á lóð-
inni en núverandi hús, þ.e. nær Ofanleiti. Upp-
haflega var söluturn rekinn í húsinu en nokkur
undanfarin ár hefur Hamborgarabúlla Tómasar
verið þar með rekstur. Búllan er steinsnar frá
Verslunarskólanum og hafa talsmenn nemenda
lýst yfir eftirsjá að henni verði þetta niðurstaðan.
Skoða þarf vel staðsetningu hússins á lóðinni
með tilliti til nærliggjandi húsa og götumyndar,
segir í umsögn verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa.
Sé valið að gera það verði það á kostnað fyrir-
spyrjanda og án skuldbindinga um afstöðu til til-
lögunnar. Þegar tillaga liggur fyrir og áhrif henn-
ar, verði metið hvort heimilað verður að láta vinna
breytingu á deiliskipulagi þannig að reiknað verði
með íbúðarhúsi nyrst á lóðinni, frumdrögin verða
innlegg í fyrirspurn þessa berist þau.
Ef til þess kemur að vinna tillögu að breytingu
á deiliskipulagi, verði það gert í samvinnu við
verkefnisstjóra hjá skipulagsfulltrúa. sisi@mbl.is
Grænt ljós á íbúðir í stað Búllu
Morgunblaðið/sisi
Ofanleiti 14 Hamborgarabúllan mun mögulega
hverfa í framtíðinni og íbúðarhús rísa í staðinn.
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur
III er nú auglýst til sölu hjá J.
Gran & Co. AS skipamiðlara í
Bergen í Noregi. Ásett verð er 4,5
milljónir evra eða tæpar 660 millj-
ónir króna.
„Við erum bara að skoða málið
með sölu í huga í framhaldinu og
að reyna að komast að raunveru-
legu verðmæti skipsins. Markaður-
inn ræður því. Það hafa ekki komið
neinar formlegar fyrirspurnir en
einhverjir hafa verið að forvitnast
um skipið,“ sagði G. Pétur Matt-
híasson, upplýsingafulltrúi Vega-
gerðarinnar. J. Gran & Co. eru
með skipið í einkasölu.
G. Pétur sagði að Vegagerðin
hefði fengið leyfi samgöngu-
ráðuneytisins til að kanna mögu-
leika á sölu skipsins og mögulegt
söluverð. Ekki liggur fyrir ákvörð-
un um að selja það.
Í auglýsingunni kemur m.a.
fram að Herjólfur III hafi verið
byggður hjá Simek AS í Noregi
1992 eða fyrir 29 árum.
Skipið er 70,5 metra langt og 16
metra breitt og ristir fjóra metra.
Pláss er fyrir 312 farþega og 62
fólksbíla, samkvæmt auglýsing-
unni. Það er knúið tveimur aðal-
vélum og auk þess eru tvær aðrar
vélar um borð. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Herjólfur III „Þjóðvegurinn“ milli lands og Eyja er nú auglýstur til sölu.
Kanna kaupáhuga
- Herjólfur III auglýstur hjá norskri
skipamiðlun - Athuga markaðsverð