Morgunblaðið - 13.07.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 13.07.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR Þungar og öflugar undirstöður DVERGARNIR R HNERRIR DURGURJÖTUNN DRAUPNIR ÞJARKUR Þessir dvergar henta vel sem undirstöður þar sem þung og öflug festing er aðalatriði. Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is „Þegar til stendur að byggja upp raforkumannvirki þarf að fara í gegnum gríðarlega miklar rann- sóknir, ferilsumsóknir og þess hátt- ar áður en uppbygging getur átt sér stað. Ef þessar rannsóknir sýna fram á að fýsilegt sé að byggja svona mannvirki út frá efnahags- sjónarmiðum, náttúrusjónarmiðum og öðrum þáttum þá er komið að því að finna kaupendur að raforkunni,“ segir Friðjón Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Qair á Íslandi, um stöðu fyrirhugaðrar uppbyggingar á vindorkuveri á Melrakkasléttu. Greint var frá því í Morgunblaðinu á laugardaginn að byggðarráð Norðurþings samþykkti á fundi sín- um að efna til íbúakönnunar um af- stöðu þeirra til mögulegs vindorku- garðs. Áður var komin fram tillaga frá forseta sveitarstjórnar þess efn- is að falla frá öllum skipulagsbreyt- ingum sem gera ráð fyrir uppbygg- ingu vindorkuversins. Friðjón segir að ekki liggi enn fyrir í hvað raf- orkan yrði notuð verði fyrirætlanir þeirra að veruleika en segir mikinn áhuga á magnkaupum á raforku vegna skorts á Íslandi. „Það verður ekkert gert varðandi vinmyllugarð á Hólaheiði ef ekki fæst bæði tenging [við Landsnet] og kaupandi að raf- orkunni,“ segir Friðjón og útskýrir þar með að tenging við vindorku- garð á Sléttu ætti að styrkja flutn- ingsnet til jaðarbyggða á svæðinu. Fjölmargar athugasemdir við tillög- ur að breyttu aðalskipulagi Norð- urþings þar sem gert er ráð fyrir iðnaðarsvæði á Hólaheiði bárust þar sem fólk og stofnanir viðruðu áhyggjur, m.a. af dýralífi á svæðinu. Friðjón segir að ljóst sé að vind- myllur hafi áhrif á fuglalíf „en þú getur dregið stórkostlega úr þeim með margvíslegum mótvægisað- gerðum“. Hann segir að hefðbundin skylda sé eitt ár í rannsóknir á fuglalífi en á svæðum sem eru við- kvæmari en önnur er rannsóknar- ferlið tvö ár. „Ef þær rannsóknir sýna fram á að áhrif okkar á fuglalíf séu verulega neikvæð verður ekki af vindmyllugarðinum,“ segir Friðjón. Hann segir fuglarannsóknirnar um- fangsmesta liðinn í að þróa vind- myllugarð. Rannsóknir á fuglalífi í forgrunni - Segir vindmyllugarð þrýsta á betri tengingu - Rannsóknir umfangsmiklar Ljósmynd/EFLA Árni Sveinn Sigurðsson Hnotasteinn Fyrirhugað uppbyggingarsvæði vindmyllugarðs á Hólaheiði. Karlmaður sem dyraverðir höfðu yfirbugað á hátíðarsvæðinu við Hrísmýri á Selfossi, aðfaranótt sunnudags, vegna ölvunar og óspekta, var handtekinn og færður í fangahús á Selfossi. Fram kemur í dagbók lögregl- unnar að vegna ástands mannsins hafi verið fylgst sérstaklega með honum. Fljótlega eftir komu í fangahús kastaði hann upp og fór í framhaldi af því í öndunarstopp. Lögreglan segir, að endurlífgunaraðgerðir hafi þegar verið hafnar af lögreglumönnum og hjúkrunarfræðingi sem staddur var í fangahúsinu og komst maðurinn fljótlega til meðvitundar á ný. Hann var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en útskrifaður þaðan, heill heilsu, undir morgun. „Þar sem um alvarlegt atvik er að ræða er málið tilkynnt til nefnd- ar um eftirlit með störfum lögreglu og þess að auki óskað við ríkis- saksóknara að hann, eða sá er hann felur málið, taki rannsókn þess yfir. Það er mat þess er þetta ritar að lögreglumenn og nærstaddur hjúkrunarfræðingur hafi með ár- vekni sinni og skjótum og fumlaus- um viðbrögðum bjargað lífi manns- ins,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. Morgunblaðið/Eggert Lögreglan Lögreglu og hjúkrunarfræðingi tókst að endurlífga mann. Fór í öndunarstopp - Lögreglumenn og hjúkrunarfræð- ingur náðu að endurlífga manninn Lystisnekkjan Satori hefur verið á hringferð í kringum landið að undanförnu. Var á Siglufirði um helgina en var í gær komin til Ak- ureyrar. Hafði áður átt viðkomu m.a. í Reykjavík, Grundarfirði og á Ísafirði. Snekkjan er í eigu banda- rísks auðkýfings, Jay Alix, smíðuð árið 2018 og kostaði um 75 milljónir dollara, jafnvirði um 9 milljarða króna. Fleyið er reyndar skráð á Cay- man-eyjum, 64 metrar að lengd og 12 metra breitt. Snekkjan lá við bryggju á Siglufirði en t.d. í Grund- arfirði lá hún fyrir akkerum úti fyr- ir höfninni. Á vef Grundarfjarðar- hafnar kom fram að um borð væru fimm farþegar og 15 manna áhöfn. Hjá höfninni á Siglufirði fengust þær upplýsingar að í sumar væri von á 15 smærri skemmtiferða- skipum en áttu upphaflega að vera alls um 40. Bandaríska lystisnekkjan Satori á hringferð í kringum landið Níu millj- arða króna snekkja Morgunblaðið/Björn Jóhann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.