Morgunblaðið - 13.07.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021
SÍMI 587 2000 · KLETTHÁLSI 2, 110 REYKJAVÍK · WWW.TOPPBILAR.IS
VOLVO XC90
T8 INSCRIPTION TWIN ENGINE
Raðnúmer 396729
Árgerð 2018
Ekinn 45 Þ.KM
Nýskráður 3/2018
Næsta skoðun 2022
Verð kr. 9.490.000
Aðfellanlegir hliðarspeglar
Aðgerðahnappar í stýri -
Aksturstölva
Álfelgur
Bakkmyndavél
Bluetooth hljóðtengi
Filmur
Fjarlægðarskynjarar
Hiti í framrúðu
Hraðastillir
Hraðatakmarkari
Leðuráklæði
Leðurklætt stýri
Leiðsögukerfi
Loftkæling
Lykillaus ræsing
Lykillaust aðgengi
Minni í framsætum
Nálægðarskynjarar
Rafdrifið lok farangursrýmis
Rafdrifin framsæti
Rafdrifnir hliðarspeglar
Stafrænt mælaborð
Topplúga
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Góð laxagengd hefur verið í Elliða-
ánum að undanförnu sem gefur fyr-
irheit um góða veiði. Nú hafa farið
um 900 laxar upp í gegnum teljarann
í ánum, sem er skammt fyrir neðan
gömlu Elliðaárstöðina. „Þetta árið
fór ganga laxins rólega af stað. Samt
sem áður er fjöldi fiska sem hafa skil-
að sér nú þegar orðinn ríflega það
sem gerist á þessum tíma sumars, að
meðaltali,“ segir Jóhannes Stur-
laugsson líffræðingur.
Jóhannes hefur sl. ellefu ár annast
árlegar vöktunarrannsóknir á fiski í
vatnakerfi Elliðaánna. Ef göngur
laxins þetta sumar þróast í sama dúr
og reyndin hefur verið síðasta ára-
tuginn má vænta þess að heild-
argangan þetta sumarið verði 1.300-
2.400 laxar.
Skynsamleg nýting
„Elliðaárnar eru í góðu standi og
vel er fylgst með lífríki þeirra,“ segir
Jóhannes. Orkuveita Reykjavíkur
sinni vel umsjón með vatnakerfi El-
liðaánna og veiðimálin eru sem fyrr í
góðum höndum Stangaveiðifélags
Reykjavíkur. Sex stangir eru í ánni
og frá í fyrra hefur verið áskilið að
öllum laxi sem veiðist skuli sleppt.
„Í raun má segja að Elliðaárnar
vitni um að ef vel er hugað að um-
hverfismálum og ef nýtingin er skyn-
samleg þá gengur dæmið upp hvað
það varðar að viðhalda sjálfbærni
laxastofna. Að ein besta og fengsæl-
asta laxveiðiá landsins sé inni í miðri
borginni er ævintýri út af fyrir sig,“
segir Jóhannes.
Dregið er úr drápi
„Við erum mjög ánægðir með Ell-
iðaárnar og stöðu þeirra,“ segir Árni
Guðmundsson, formaður árnefndar
Elliðaánna á vettvangi SVFR.
„Göngurnar í árnar síðustu daga hafa
verið stórar og fiskurinn fallegur.
Núna hafa veiðst um það bil 90 laxar.
Við erum því bjartsýn á að sumarið
verði ekki lakara en árið í fyrra, þeg-
ar lokatalan var 565 fiskar. Já, menn
eru líka aðeins að venjast því að veiða
og sleppa fiskinum svo. Dregið er úr
drápi samanber viðhorf nútímans.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Elliðaár Árni Guðmundsson, formaður árnefndar SVFR, til vinstri, og
Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur við mælingar sem sýndu góða stöðu.
Elliðaár vaktaðar
og mikið af fiski
- 900 laxar farið í gegnum teljarann
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Regluleg laun launafólks í fullu
starfi voru að meðaltali 670 þúsund
krónur á mánuði árið 2020. Helm-
ingur launafólks var með laun á
bilinu 480 til 749 þúsund krónur á
mánuði. Tíundi hver launamaður
var með regluleg laun undir 400
þúsund krónum og tíundi hver með
yfir eina milljón króna í mánaðar-
laun. Helmingur launafólks var með
heildarlaun á bilinu 570 til 908 þús-
und krónur á mánuði, að jafnaði 794
þúsund krónur. Þetta kemur fram í
frétt Hagstofu Íslands.
Mismunandi dreifing launa
Laun og dreifing þeirra er mis-
munandi eftir atvinnugreinum.
Heildarlaun launafólks í fullu starfi
voru að jafnaði hæst í fjármála- og
vátryggingastarfsemi og veitum,
það er vatnsveitum, fráveitum, með-
höndlun úrgangs og afmengun árið
2020, eða tæplega 1,1 milljóna króna
á mánuði. Lægst voru heildarlaunin
að jafnaði í rekstri gististaða og
veitingarekstri eða um 597 þúsund
krónur á mánuði. Dreifing heildar-
launa var mest í fjármálastarfsemi
en minnst í rekstri gististaða og
veitingarekstri. Það skýrist meðal
annars af samsetningu starfa innan
atvinnugreina.
Hagstofan segir að mismunandi
dreifing launa innan starfsstétta
geti einnig skýrst af því að störf inn-
an einstakra starfsstétta séu ólík.
Þannig var dreifing heildarlauna
skrifstofufólks árið 2020 frekar lítil.
Um 80% skrifstofufólks voru með
heildarlaun á bilinu 444 þúsund
krónur til 789 þúsund krónur.
Heildarlaun stjórnenda voru á hinn
bóginn mjög dreifð en 80% þeirra
voru með heildarlaun á bilinu 725
þúsund krónur til 1,9 milljónir
króna á mánuði. Þessi mikla dreif-
ing skýrist helst af ólíkum störfum
innan starfsstéttarinnar stjórnenda.
Þar má bæði finna æðstu stjórn-
endur fyrirtækja og yfirmenn
deilda.
Árið 2020 var óvenjulegt
„Laun í lægri tíundum hækkuðu
meira á milli 2019 og 2020 en í þeim
hærri. Þannig var hlutfallsleg
hækkun reglulegra launa í lægstu
tíund um 9,5% meðan sambærileg
hækkun í efstu tíund var 5,1%,“
skrifar Hagstofan. Hún segir það
meðal annars skýrast af áherslum
kjarasamninga á almennar krónu-
töluhækkanir og sérstakar hækk-
anir kauptaxta. „Hlutfallsbreyting á
launum varð því hærri eftir því sem
laun voru lægri og öfugt.“
Hagstofan bendir á að árið 2020
hafi verið um margt óvenjulegt.
Miklar breytingar urðu á vinnu-
markaði vegna áhrifa kórónuveiru-
faraldursins. Nokkur hluti launa-
fólks færðist úr fullu starfi í
hlutastarf vegna hlutabótaleiðar.
Það hafði áhrif á meðallaun í
ákveðnum störfum þegar horft er til
launa eftir vinnutíma. Fækkun
launafólks á vinnumarkaði var eink-
um í lægri launuðum störfum. Það
hefur áhrif til hækkunar á meðaltali
launa. Um leið varð vart breytingar
á vægi atvinnugreina, einkum sem
tengjast ferðaþjónustu og því opin-
bera.
Greiddum stundum fullvinnandi
launafólks fækkaði að meðaltali um
1,4% milli áranna 2019 og 2020.
Þessa fækkun má rekja bæði til
samninga um styttingu vinnutíma
en einnig til færri yfirvinnustunda
sem unnar voru á árinu. Að jafnaði
vann fólk í fullu starfi 10% færri yf-
irvinnustundir árið 2020 en 2019.
Lægstu launin hækkuðu mest í fyrra
- Launafólk
með 670 þúsund
í mánaðarlaun
að meðaltali
Mánaðarlaun fullvinnandi launafólks 2020
Dreifing reglulegra og heildarmánaðarlauna m.v. líkindaþéttni
0,0025
0,0020
0,0015
0,0010
0,0005
0
250 500 750 1.000 1.250 1.500 1.750 2.000
Mánaðarlaun, þúsundir kr.Líkindaþéttni
Heimild: Hagstofa Íslands
Regluleg laun
Greidd mánaðarlaun fyrir
umsaminn vinnutíma
Heildarlaun
Samtala allra stað-
greiðsluskyldra launa
Morgunblaðið/Hari
Kjarasamningar SA og verkalýðsfélög undirrituðu lífskjarasamninginn
2019. Lægstu launin hækkuðu hlutfallslega mest í fyrra.
Samkvæmt talningu Ferðamála-
stofu og Isavia voru brottfarir er-
lendra farþega frá landinu um
Keflavíkurflugvöll ríflega 42 þús-
und talsins í nýliðnum júnímánuði.
Er það sjöföldun frá sama mánuði í
fyrra, þegar brottfarir voru um sex
þúsund.
Frá áramótum hafa tæplega 75
þúsund erlendir farþegar farið frá
Íslandi, sem er um 78% fækkun
miðað við sama tímabil í fyrra en þá
voru brottfarir erlendra farþega
tæplega 342 þúsund.
Langflestar brottfarir í júní má
rekja til Bandaríkjamanna eða um
helming. Þar á eftir fylgja brott-
farir Pólverja (8,6% af heild), Þjóð-
verja (7,5% af heild), Breta (5,3% af
heild) og Frakka (4,2% af heild).
Brottfarir Íslendinga í júní voru um
13.500 talsins en í sama mánuði í
fyrra voru þær ríflega fimm þús-
und.
Brottfarir í júní sjöfalt fleiri
en í sama mánuði í fyrra
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Erlendum ferðamönnum
fjölgar ört um þessar mundir.