Morgunblaðið - 13.07.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.07.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Vel hefur tekist til með að halda kórónuveirunni í skefjum hér á landi, en í ljósi mikils vilja til þátt- töku og góðs skipulags á fram- kvæmd bólusetninga verður að telj- ast sennilegt að Ísland sé nú þegar komið með betri samfélagslega vörn gegn Covid-19 en flest samanburð- arlönd séu líkleg til að ná, að því er segir í tilkynningu frá stjórnar- ráðinu. Víða í Evrópu er staðan þó enn mjög slæm. Meðalfjöldi kórónuveirusmita í Hollandi hefur áttfaldast síðan 30. júní en yfir helgina greindust nærri 20 þúsund manns með veiruna þar í landi. Staðan á Spáni er einnig slæm en spænsk yfirvöld ákváðu á þriðjudag að herða sóttvarnaaðgerðir í landinu á ný vegna bylgju smita sem þar geisar, sér í lagi á meðal ungs fólks sem ekki hefur verið bólusett. Eig- endum skemmtistaða í Katalóníu hefur verið gert að loka þeim og munu íbúar svæðisins þurfa að sýna fram á gilt bólusetningarvottorð til að mega taka þátt í fjölmennum við- burðum sem fara fram utandyra, segir talsmaður svæðisstjórnarinnar í viðtali við frönsku fréttastofuna France24. „Við getum ekki þóst hafa sigrast á veirunni,“ segir hann. „Faraldrinum er ekki lokið, nýja af- brigði veirunnar er mjög smitandi og stór hluti þjóðarinnar hefur ekki enn verið bólusettur.“ Tæplega 40% af 47 milljón íbúum á Spáni hafa verið fullbólusett. Með- alfjöldi smitaðra í landinu yfir tveggja vikna tímabil nam 204 á hverja 100.000 íbúa á mánudag en það eru 95 fleiri tilfelli en tilkynnt voru tveimur vikum áður, sam- kvæmt upplýsingum frá heilbrigð- isráðuneytinu þar ytra. Nærri helmingur nýrra smita í Frakklandi er af Delta-afbrigði veir- unnar sem talið er vera 60% meira smitandi en önnur afbrigði hennar. Hópur franskra vísindamanna hefur varað við því að 95% íbúa í Frakk- landi þurfi að vera fullbólusett til að halda útbreiðslu Delta-afbrigðisins í skefjum. Nú er um helmingur íbúa í Frakklandi hálfbólusettur og 40% fullbólusett. Staðan enn þá slæm víða í Evrópu - Evrópsk stjórnvöld herða sóttvarnaaðgerðir á ný í ljósi nýrrar bylgju smita af Delta-afbrigðinu AFP Kórónuveiran Evrópsk stjórnvöld hafa hert sóttvarnaaðgerðir á ný vegna ótta við frekari útbreiðslu Delta-afbrigðisins, sem smitar meira en önnur. Tæknimenn um borð í eistneska ísbrjótnum EVA-316 láta mælitæki síga í Eystrasaltið þar sem farþegaferjan Estonia sökk 28. september árið 1994 og 852 manns fórust. Áformað er að taka nákvæmar hljóðsjármyndir af hafsbotninum og flakinu til að rannsaka nánar sprungur á skrokknum. Rann- sóknarnefnd samgönguslysa í Svíþjóð ákvað í samvinnu við eistnesk stjórnvöld að hefja að nýju rannsókn á orsökum þess að Estonia sökk eftir að bornar voru brigður á niðurstöður fyrri rannsókna í nýrri heimildarmynd. AFP Flak farþegaferjunnar Estoniu rannsakað að nýju Aukin hætta er á sjaldgæfum taugasjúkdómi hjá þeim sem feng- ið hafa Janssen-bóluefnið. Frá þessu greinir Matvæla- og lyfjaeft- irlit Bandaríkjanna, sem hefur fundið fylgni milli Janssen- bóluefnisins og sjaldgæfs tauga- sjúkdóms sem nefnist Guillain- Barré-heilkennið. Þótt líkurnar séu litlar á að fá sjúkdóminn þá eru þær allt að fimmfalt meiri hjá þeim sem voru bólusettir með Janssen-bóluefninu. Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkj- unum hafa greint ríflega hundrað tilfelli sjúkdómsins meðal ein- staklinga sem bólusettir voru með Janssen. Þess ber að geta að í Bandaríkjunum hafa 12,5 milljónir einstaklinga verið bólusettar með Janssen. Af þessum hundrað tilfellum sem komu upp voru 95 þeirra álitin al- varleg og fólk lagt inn á spítala. Eitt þeirra leiddi til dauða. Flestir ná þó bata. Karlmenn yfir fimmtugt Hópurinn sem viðkvæmastur er fyrir sjúkdómnum eru karlmenn yfir fimmtugt og hafa einkenni komið fram tveimur vikum eftir bólusetningu. Eftirlitið telur þetta ekki ástæðu til að banna bóluefnið en verið er að útbúa upplýsingar um fylgikvill- ann sem munu fylgja bóluefninu framvegis. Guillain-Barré-heilkennið Taugasjúkdómurinn sem um ræðir hrjáir 3.000 til 6.000 Banda- ríkjamenn. Á Íslandi greinast að meðaltali þrjú til fjögur tilfelli á ári. Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að ónæmiskerfi líkamans ræðst á taugafrumur hans og veldur þann- ig vöðvaverkjum, slappleika og máttleysi eða doða í útlimum. Í sumum tilfellum getur doðinn breiðst út og valdið lömun. Aukin hætta á tauga- sjúkdómi vegna Janssen - Guillain-Barré-heilkennið - 100 af 12,5 milljónum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.