Morgunblaðið - 13.07.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 13.07.2021, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mikil og ein- stök uppá- koma varð á Kúbu um helgina og kann hún að draga dilk á eftir sér. Tugþúsundir mótmælenda hópuðust út á götur landsins í tugum borga og bæja, þar með talið í höfuðborginni Havana, en mótmælin hófust ekki þar heldur í nálægri borg. Ekki er langt síðan komm- únistastjórnin á Kúbu leyfði netið í farsímum eyjarinnar og mögulega sér hún eftir því nú, sem og því að hafa fyrir skemmstu leyft samfélags- miðla, en þessi tækni nýttist al- menningi vel til að láta vita hvar til stæði að koma saman og mótmæla harðstjórninni. Við- brögð stjórnvalda voru þau að loka netinu að verulegu leyti meðan á þessu stóð. Það er lýsandi fyrir ástandið á Kúbu, þó að íslenskir vinstri- menn viðurkenni það ekki og hafi alla tíð haft undarlega sterkar taugar til þeirrar kúg- unar sem ríkir á eyjunni, að al- menningur hrópaði „Við erum ekki hrædd!“ og krafðist frelsis. Á Kúbu eru slík mótmæli óþekkt og það er full ástæða fyrir þá sem taka þátt í þeim að óttast viðbrögð yfirvalda, enda voru þau harkaleg. Forseti landsins, Miguel Dí- az-Canel, sem er fyrsti leiðtogi landsins sem ekki hertist í eldi byltingarinnar og nýtur ekki þeirrar dulúðar í huga almenn- ings sem því fylgir, sendi skila- boð til kommúnista að fara út á götur og mæta mótmælendum. „Byltingarmenn á göturnar,“ voru skilaboðin, og að auki: „Bardaga- skipun hefur verið gefin.“ Og það vantaði ekkert upp á að mótmælendur fengju að kenna á kylfum og táragasi yfirvalda. Ástandið á Kúbu er skelfi- legt, jafnvel verra en oft hefur verið og er þá mikið sagt. Ferðamenn hafa tryggt eyjunni ákveðnar gjaldeyristekjur, en þær féllu í faraldrinum, sem raunar fer mjög versnandi á eyjunni ofan á annað. Matar- skortur er vaxandi og raf- magnsleysi verða íbúar að þola klukkustundum saman dag hvern. Stjórnvöld kenna Bandaríkjunum um ástandið, líkt og þau hafa gert áratugum saman, en nú virðast landsmenn hafa fengið nóg af slíku tali og vilja ekki lengur sætta sig við hörmulegt ástandið. Full ástæða er fyrir Díaz- Canel að hafa áhyggjur. Staða hans er ekki eins sterk og Castro-bræðra áður og þó að hann njóti fulls stuðnings þeirra byltingarmanna sem enn lifa er óvíst að það dugi eins og það hefur gert í rúma sex ára- tugi. Átökin nú um helgina gætu verið upphafið að endalokunum fyrir kommúnistastjórnina á Kúbu, en þó skyldi enginn halda að kommúnistar hverfi þaðan baráttulaust. Fram undan gætu því verið afar erfiðir tímar á Kúbu með meira af ofbeldi ofan á þá kúgun og skort sem ríkt hefur. Það er því líklegt að ástandið eigi enn eftir að versna áður en það mögulega batnar. Almenningur fékk að kenna á því fyrir að lýsa skoðun sinni} Einstök mótmæli gegn kommúnistum á Kúbu Í samtali við Morgunblaðið í gær lýsti Halldór Benjamín Þor- bergsson, fram- kvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, þeirri eftirsóknarverðu efna- hagslegu stöðu sem Ísland er komið í og að henni megi ekki glutra niður. Efnahagsmálin hljóti að verða áhersluatriði í komandi kosningabaráttu. Full ástæða er til að taka undir það, því að þó að vel hafi gengið að rífa landið upp úr kórónuveiru- kreppunni er enn auðvelt að valda miklu tjóni með rangri efnahagsstefnu, svo sem með því að halda sköttum háum og skuldum sömuleiðis. Þá mætti það verða til um- hugsunar að Halldór Benjamín nefnir að launastigið í landinu sé nú ósjálfbært. Almenni markaðurinn eigi að leiða launaþróun en nú sé ríkið komið fram úr einkageir- anum og kjarabæt- ur síðustu samn- inga hafi komið sterkast fram í launahækkunum opinberra starfs- manna. Hann minnir einnig á að 18 mánuðir séu til næstu kjara- samninga og að hér séu að með- altali greidd hæstu laun sem þekkjast, sérstaklega í neðri hluta tekjustigans. Þetta er afar ólíkt því sem oft heyrist frá áköfustu tals- mönnum verkalýðshreyfing- arinnar, en nauðsynlegt er, eigi atvinnulífið að þrífast vel til framtíðar, að tekið verði tillit til þessara staðreynda næst þegar samið verður, í stað þess að leyfa samningum að ráðast af órökstuddum upphrópunum. Takist að láta hóf og skynsemi ráða geta landsmenn horft fram á miklar kjarabætur til fram- tíðar. Með réttum ákvörð- unum á næstu misserum er enn hægt að bæta kjörin} Eftirsóknarverð staða M ikilvægustu þjóðfélagsmálin hafa verið látin sitja á hak- anum síðustu þrjú misserin. Umræðan hefur snúist um veirur, sóttvarnir og bólu- setningar. Ríkisstjórnin treystir á skamm- tímaminni landsmanna og að hún njóti umb- unar fyrir að okkar færustu sérfræðingum tókst vel með sóttvarnir og í baráttunni við veiruna. Ráðherrar ferðast um landið með loforða- listana og ausa fé úr ríkissjóði sem er þó þurr- ausinn eftir faraldurinn. Skuldadagarnir eru handan við hornið. Vinstri flokkarnir hafa yf- irlýsta stefnu um að úr vandanum mætti kom- ast með því að auka skattlagningu og fjölga opinberum starfsmönnum. Miðflokkurinn vill minnka ríkiskerfið, ein- falda það og lækka skatta svo hjól atvinnulífsins geti snú- ist af fullu afli. Ryðja þarf þeim steinum úr vegi sem hindra öfluga atvinnusköpun. Á liðnu kjörtímabili tók þingheimur afstöðu til þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Ráðgjafar ríkis- stjórnarinnar höfðu bent á að tiltekin ákvæði í regluverk- inu gætu brotið í bága við stjórnarskrá Íslands. Þeir höfðu einnig bent á að með lögfestingunni gætu erlendir aðilar haft a.m.k. óbein áhrif á skipulag, ráðstöfun og hagnýtingu orkuauðlinda landsins. Miðflokknum tókst ekki að fá þing- heim til að svo mikið sem íhuga að leggja þessi atriði í pakkanum fyrir sameiginlegu EES-nefndina að nýju. Það skipti engu máli í hugum meirihluta þingheims þótt í EES-samningnum sé ákvæði einmitt um það að mál gætu farið þangað að nýju. Svona á svo sannarlega ekki að standa vörð um stjórnarskrá lýðveldisins. Áfram skal haldið á braut óvissu um fullveldi okkar og varðstöðu um auðlindirnar ekki sinnt. Þjónkun við reglu- verk EB er allsráðandi. Stofnanavæðing hálendisins er trúarbrögðum líkust. Ekkert er hlustað á sveitarfélögin, bænd- ur eða ferðaþjónustuna. Miðstýringaráráttan er allsráðandi. Friðunarglaður ráðherrann mætir ekki nokkurs staðar nema lýsa yfir friðun alls þess sem fyrir augu ber, bæði laust og jarðfast. Heilbrigðiskerfið er að verða að óskapnaði. Sovétið er mætt og ríkisrekstur er kjörorð dags- ins. Biðlistar og rándýrar utanstefnur sjúklinga og sýna eru helstu verkefnin. Innlendum aðilum er ekki treystandi, sér í lagi ef ríkisstimpillinn er ekki á launaseðli þeirra. Sveitarfélögin eru látin greiða hallarekstur hjúkrunarheimila og flýja nú óviðunandi að- stæður sem ríkisvaldið skapaði og viðheldur í rekstri þeirra. Spítalaþjónusta úti á landi heyrir nánast sögunni til og öllum landsmönnum er stefnt til höfuðborgarinnar ef þeir þurfa á henni að halda. Sjúklingar þurfa að fara í löng og erfið ferðalög. Kostnaðurinn við þetta fyrirkomulag er ómældur og sjaldnast er tekið með í reikninginn öll fyrir- höfnin, vinnutapið og tíminn sem fer í súginn, ekki síst fyr- ir aðstandendur. Karl Gauti Hjaltason Pistill Stöndum vörð og sækjum fram Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi. kgauti@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Andrés Magnússon andres@mbl.is Á föstudag féll dómur í Mannrétt- indadómstól Evrópu (MDE) í Strassborg þess efnis að dönsk lög, sem kveða á um að hælisleitendur þurfi að bíða í þrjú ár áður en þeir mega sækja um dvalarleyfi fyrir fjölskyldur sínar, stríddu gegn ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu um rétt til fjölskyldulífs. Þar segir að í lögunum sé ekki gætt jafnvægis milli réttmætra hagsmuna danska ríkisins og réttar hælisleitenda, að þrjú ár sé óhóflega löng bið eftir því að sameinast fjöl- skyldu sinni, sérstaklega þó ef hún hírist á stríðssvæði. Þriggja ára reglan svonefnda var nýnæmi í lögum frá 2016, en fram að því höfðu hælisleitendur þurft að bíða í ár áður en þeir gátu óskað dvalarleyfis fyrir fjölskyldu. Sú breyting var gerð í umróti flótta- mannabylgjunnar 2015 og var af- greidd með nokkrum meirihluta í danska þinginu. Venstre, Frjáls- lyndir (LA), Íhaldsflokkurinn, Danski þjóðarflokkurinn og Jafn- aðarmannaflokkurinn stóðu að henni, en fjórir flokkar lengst til vinstri voru á móti. Sýrlenski læknirinn Mosalam Albaroudi kom líkt og þúsundir ann- ara Sýrlendinga sem flóttamaður til Danmerkur árið 2015. Aðeins 5 mán- uðum eftir komuna þangað óskaði hann eftir að eiginkona hans fengi dvalarleyfi en fékk synjun. Þeirri ákvörðun var skotið til dómsvaldsins, en þar var hún stað- fest, fyrst í Eystri landsrétti og svo í Hæstarétti árið 2017, og svo áfrýjað til Strassborgar. (Konan kom samt til Danmerkur 2019.) Dómurinn bæði og Í fyrrgreindum dómi Mannrétt- indadómstóls Evrópu (MDE) er fall- ist á að Danmörk hafi réttmætar ástæður til þess að „hafa stjórn á innflutningi fólks til þess að verja efnalega farsæld, tryggja aðlögun og viðhalda samheldni þjóðfélagsins,“ líkt og raunar er sagt í sáttmálanum að ríki megi gera. Hins vegar þótti dómnum að þriggja ára biðtími væri óhóflega langur og gefur til kynna að tvö ár sé mátulegt! Dönsk stjórnvöld fara sér í engu óðslega vegna dómsins og vilja móta afstöðu til hans. Þau virðast halda fast við það sem lögmaður þeirra sagði í Strassborg, að það sé danskra yfirvalda að ákveða hver fái dvalarleyfi, það geti ekki verið sjálf- stæður réttur sem kvikni hjá hverj- um sem er við það að komast yfir landamærin frá Tyrklandi til Grikk- lands. Róttæki vinstriflokkurinn, sem var andsnúinn þriggja ára reglunni á sínum tíma, vill einfaldlega að lögin verði afnumin, en Íslandsvinurinn Pia Kjærsgaard frá Dansk Folke- parti telur að Danir eigi að fá að ráða sjálfir sinni útlendingapólitík og að halda beri í þriggja ára regluna. Í viðtali við Ritzau sagði hún ekkert mega vera æðra dönskum lögum. Undir síðastnefnda sjónarmiðið taka fleiri og telja að MDE hafi seilst fulllangt. Dómstóllinn líti fram hjá skyldu ríkja til að verja landa- mæri sín og hafa stjórn á innflutn- ingi fólks, sem bakað geti skatt- greiðendum verulegan kostnað. Útlendingamál hafa verið mjög á döfinni í Danmörku síðustu ár, en í febrúar voru samþykkt ný hælisleit- endalög. Þau miða við að hælisleit- endur komist til síns heima þegar aðstæður leyfa, fremur en að þeir séu aðlagaðir dönsku samfélagi. Sú umræða dofnar vart á næstunni. Mannréttindadómur gegn dönskum lögum Í Mannréttindasáttmála Evrópu, sem undirritaður var árið 1950 er kveðið á um margskonar mannréttindi, þar á meðal til friðhelgi og fjölskyldu, líkt og tiltekið er í 8. gr. sáttmálans: 1. Sérhver maður á rétt til friðhelgi einkalífs síns, fjölskyldu, heimilis og bréfaskipta. 2. Opinber stjórnvöld skulu eigi ganga á rétt þennan nema samkvæmt því sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis, almannaheilla eða efnalegrar farsældar þjóð- arinnar, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra. Friðhelgi og fjölskylda MANNRÉTTINDASÁTTMÁLI EVRÓPU Mannréttindadómstóllinn AFP Flóttamannastraumur Sýrlenskur hælisleitandi biðst fyrir við vegar- brún í Danmörku, en fjölmargir gengu þangað frá Þýskalandi árið 2015.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.