Morgunblaðið - 13.07.2021, Page 16

Morgunblaðið - 13.07.2021, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021 Soroptimist Int- ernational eru al- þjóðleg samtök kvenna sem hafa það að mark- miði að bæta stöðu kvenna, vinna að jafn- rétti og mannrétt- indum og þjóna sínu samfélagi. Nafn sam- takanna kemur úr lat- ínu „sorores ad optim- um“ – systur sem vinna að því besta. Gaman er að skoða rætur þessara samtaka sem eiga sér nokkuð sér- stakt upphaf og eru orðin eins og fram hefur komið 100 ára gömul. Árið 1921 var Stuart nokkur Mor- row á fullu að undirbúa stofnun nýs Rótarý-klúbbs í Kaliforníu. Hann hringdi í Parker-Goddard Secret- arial School í þeirri vissu að skólinn væri rekinn af körlum. Honum til mikillar undrunar reyndust eig- endur skólans konur og því ekki gjaldgengar í klúbbinn sem var bara fyrir karla. Adelaide Goddard, eig- andi skólans, sem svaraði Stuart í símann, tilkynnti honum einfaldlega að svo lengi sem ekki væri pláss fyr- ir konur í svona samtökum hefði hún ekkert við hann að tala. En Stuart var klókur karl og sá sér leik á borði að stofna bara hliðstæð kvenna- samtök með svipuð markmið og Rót- arý þar sem Rótarý var bara fyrir karlmenn. Þannig varð Soroptim- istahreyfingin til 3. október 1921 og úr varð mjög blómlegt félagsstarf sem síðan hefur breiðst um heiminn. Fyrstu klúbbarnir í Evrópu voru stofnaðir 1924 og hreyfingin kom til Íslands 19. september 1959 þegar Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur var stofnaður. Í dag starfa hér 19 klúbbar víðs vegar um landið með um 600 konum. Veljum að vaxa eru kjörorð for- seta Soroptimistasambands Íslands stjórnartímabilið 2020-2022 og ná þessi orð bæði til mannræktar og umhverfismála innan og utan klúbb- anna. Hver klúbbur vinnur sem ein heild að verkefnum sem efla konur og stúlkur, s.s. sjálfstyrkingu ungra kvenna, menntun kvenna, stuðningi við verðandi mæður og mæður með geðheilsuvanda. Samtökin hafa lagt áherslu á aðstoð við konur sem eru þolendur ofbeldis og má þar t.d. nefna að íslenskir Soroptimistar hafa stutt við Kvennaathvarfið, Bjarkahlíð – miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og Sigurhæðir sem eru ný- opnað úrræði á Selfossi fyrir konur sem eru þolendur kynbundins of- beldis. Einnig má nefna ýmiss konar aðstoð við konur af erlendum upp- runa. Mikilvægur armur starfseminnar er verndun umhverfis og náttúru sem hefur orðið viðfangsefni margra klúbba sem hafa tekið að sér gróð- urreiti eða farið í hreinsunarferðir í nærumhverfi sínu. Íslenskir Soroptimistar fagna af- mælinu á ýmsa vegu, m.a. með því t.d. að gróðursetja trjáplöntur víða um landið. Þann 19. júní, kvenrétt- indadaginn, gróðursetti Guðrún Lára Magnúsdóttir, forseti Soropt- imistasambands Íslands, ilmreyni í trjásafninu í Meltungu í Kópavogi í tilefni aldarafmælisins. Er það tákn- rænt og vel við hæfi þar sem Soropt- imistahreyfingin hefur látið um- hverfismál og sjálfbærni til sín taka í sínu starfi. Klúbbar víðs vegar um landið munu sjá um gróðursetningu í sínu nærumhverfi. Með gróðursetn- ingarátakinu í tilefni aldarafmæl- isins er ætlunin að vekja athygli á samtökunum hér á landi og þeim fjölmörgu verkefnum sem íslenskir klúbbar vinna að. Alþjóðasamband Soroptimista hefur náin tengsl við stofnanir Sam- einuðu þjóðanna enda falla markmið Soroptimista vel að markmiðum SÞ sem eru friður, skilningur meðal þjóða heimsins og stuðningur við mannréttindi. Auk þess að eiga ráð- gjafaaðild að stofnunum SÞ hafa Soroptimistar sett þrjú heimsmark- miðanna í forgang í starfi sínu. Markmiðin eru að tryggja öllum jafnan aðgang að góðri menntun og tækifæri til náms alla ævi; jafnrétti kynjanna verði tryggt og staða allra kvenna og stúkna styrkt; og að tryggja aðgengi allra að hreinu vatni og sjálfbæra nýtingu þess svo og hreinlætisaðstöðu. Þátttaka íslenskra Soroptimista í ýmsum atburðum tengjast heims- markmiðunum og má í því sambandi nefna þátt þeirra í atburðum 8. mars, alþjóðlegum baráttudegi kvenna, til að vekja athygli á vald- eflingu kvenna, kynjajöfnuði, menntun og forystu. Einnig taka klúbbar, ásamt mörgum kvenna- samtökum, þátt í árlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi sem stendur yfir frá 25. nóvember til 10. desember en sá dagur er jafnframt mannréttindadagur Sameinuðu þjóðanna og dagur Soroptimista. Soroptimistum er í mun að efla ungar konur og því hafa norrænir Soroptimistar undanfarin ár staðið fyrir leiðtoganámskeiði (Soroptimist Nordic Leadership Academy) sem haldið er til skiptis á Norðurlönd- unum. Markmið námskeiðsins er að efla leiðtogafærni ungra kvenna á aldrinum 20-30 ára, undirbúa þær undir hugsanlegar stjórnunarstöður og efla tengslanet þeirra. Soroptimistahreyfingin telur nú um 72.000 konur um víða veröld og með þátttöku í hreyfingunni gefst konum kostur á að efla tengslanet sitt, kynnast konum með ólíkan bak- grunn og starfsvettvang sem allar vinna að sömu markmiðunum, hver með sínum hætti. Þó að margt hafi áunnist á þessum 100 árum frá því Stuart karlinn átti þetta örlagaríka símtal þá er leiðar- ljósið það sama – að gera heiminn betri fyrir konur og stúlkur. Á kvenréttindadaginn afhentu Soroptimistasamband Íslands og klúbbar hreyfingarinnar Lífi – styrktarfélagi kvennadeildar Land- spítalans styrk að upphæð þrjár milljónir til að bæta aðbúnað og þjónustu. Að gera heiminn betri fyrir konur og stúlkur Eftir Ásgerði Kjartansdóttur og Sigrúnu Klöru Hannesdóttur » Þó að margt hafi áunnist á þessum 100 árum frá því Stuart karlinn átti þetta ör- lagaríka símtal þá er leiðarljósið það sama – að gera heiminn betri fyrir konur og stúlkur. Ásgerður Kjartansdóttir Höfundar eru félagar í Soroptimistaklúbbi Reykjavíkur. Sigrún Klara Hannesdóttir Kjartan Ólafsson skrifaði síðastliðið haust merka bók, Draumar og veru- leiki, um samtvinnaða sögu íslenskra komm- únista og sósíalista. Í Kiljuviðtali fylgdi hann bókinni eftir og sagði þar hin fleygu orð: „Mannskepnan er hvort tveggja í senn, bæði góð og ill, og þannig mun það ætíð vera hvernig sem þjóðskipulagið kann að vera.“ Eðli- legt er að gefa lesandanum rými til að rýna í þessi um- mæli hans. Þjóð- skipulag getur vissu- lega magnað upp kosti mannanna og sömu- leiðis lesti þeirra. Lít- um okkur nær, nútím- inn einkennist af óheftri símanotkun, tölvuleikjaspilun og endalausu sjónvarps- glápi. Þessi tækniund- ur kunna, rétt eins og áfengið, að kalla fram kosti og lesti okkar allra. Lög eru ekki fyrirskipuð að of- an, heldur viðleitni okkar til þess að búa í betra samfélagi. Ef tölvu- leikjaspilun innan fjölskyldunnar verður fullmikil þá kemur hún sér saman um reglur sem beri að virða. Tæknin er þjónn en ekki húsbóndi. Fækkum skjástundum Eftir Jóhann Ólaf Sveinbjarnarson Jóhann Ólafur Sveinbjarnarson »Þessi tækniundur kunna, rétt eins og áfengið, að kalla fram kosti og lesti okkar allra. Höfundur er leiðbeinandi johann@mr.is –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 20. júlí 2021 SÉRBLAÐ B A BLAÐ Þegar talað er um fundi, ráðstefnur og alþjóðasamþykktir fylgir því virðing sem gengur næst því að vera alsannleikur í þeim málum sem Sameinuðu þjóðirnar samein- ast um. Það er mikill þungi sem lagður er í frásagnir af slíku og enginn efast um að þetta sérvalda lið er að bjarga jörðinni í bók- staflegum skilningi. Þar er nú ekki töluð vitleysan. Því kemur það á óvart þegar maður vill trúa t.d. loftslagssamþykktum að sjá í skýrslum alls konar tölur og stað- hæfingar. Til dæmis að við, græn- asta þjóð í heimi, værum að fram- leiða svo og svo mikið af okkar tárhreina rafmagni með hjálp kola eða olíu. Jafnvel með kjarnorku sem væri ekki svo bölvað en kallast þó hið versta af öllu vondu. Þegar svona bókunarbrellur eru látnar líðast og í öðru orðinu tekn- ar sem staðreyndir, þá fer maður að efast um fleira sem frá heims- endafólki kemur. Þá eru umræð- urnar og tiltækin komin inn á svið hinnar óendanlegu umræðu fárán- leikans, sem Íslendingar hafa lengi kennt við seppann sinn. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Hnattrænar hundakúnstir Orka Rafmagn er framleitt með endurnýjanlegum hætti hérlendis. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auð- velt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfs- fólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.