Morgunblaðið - 13.07.2021, Page 20

Morgunblaðið - 13.07.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021 ✝ Ásthildur Sig- urrós Ólafdótt- ir fæddist 1. febr- úar 1941 í Norska bakaríinu á Ísa- firði. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Eyri 4. júlí 2021. Foreldrar hennar voru Unnur Hermannsdóttir, f. 31.7. 1919, d. 9.7. 2008, og Ólafur Ólafsson, f. 15.11. 1912, d. 22.8. 1990. Systkini Ásthildar eru: Þor- björg, f. 15.3. 1944, d. 9.2. 2020; Guðfinna, f. 5.8. 1946; Erla, f. 29.7. 1950; Páll, f. 25.1. 1953. I. Ásthildur giftist 29.6. 1963 Árna Guðbjarnasyni rafvirkjameist- ara, f. 14.10. 1939, d. 3.3. 1970. Foreldrar hans voru Elín Sig- urbjörg Árnadóttir, f. 4.2. 1914, d. 2.8. 2013, og Guðbjarni Þor- valdsson, f. 23.3. 1909, d. 23.11. 1977. Dætur þeirra eru: a) Elín leikskólakennari, f. 17.9. 1963, maki Ólafur Jóhann Sæmunds- son, pípulagningamaður og þjónn, f. 28.4. 1968. Synir þeirra eru Ólafur Árni, f. 31.1. 1994, skóla á Ísafirði og að loknu gagnfræðaprófi fór hún ásamt vinkonu sinni til Englands og vann í matsal sjúkrahúss í Man- chester í nokkra mánuði. Ást- hildur vann ýmis verslunarstörf á Ísafirði, var símamær hjá Landssímanum og bókari hjá Pólnum hf. Hún hóf störf sem ritari hjá Heilsugæslunni á Ísa- firði 1979 og færðist svo yfir í starf læknaritara á Sjúkrahús- inu á Ísafirði sem varð síðar Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Hún fékk löggildingu sem læknaritari 1989. Ásthildur lét af störfum síðla árs 2010. Hún tók virkan þátt í starfi kven- skátafélagsins Valkyrja, starf- aði með kvennadeild slysa- varnafélagsins og söng í kór Ísafjarðarkirkju í yfir 30 ár. Einnig var hún á tímabili í sókn- arnefnd Ísafjarðarkirkju. Ást- hildur og Guðjón áttu sumarhús í Tunguskógi en sá bústaður eyðilagðist í snjóflóði 1994. Þá færðu þau sig um set og settu niður hús í landi Hörgshlíðar í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi. Sum- arhúsið seldu þau 2015. Ásthild- ur og Guðjón ferðuðust víða um Evrópu og var það eitt af áhuga- málum þeirra. Ásthildur flutti á Hjúkrunarheimilið Eyri í mars 2019 og þar dvaldi hún þar til yfir lauk. Útför hennar fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju 13. júlí 2021 kl. 14. Sæmundur Þór, f. 3.8. 1998, og Ágúst Snær, f. 11.1. 2002. b) Unnur sjúkra- þjálfari, f. 6.3. 1966, maki Sig- urður Arnar Jóns- son slökkviliðs- stjóri, f. 8.6. 1964. Börn þeirra eru Jón Árni, f. 23.2. 1991, unnusta Kristín Björg Björnsdóttir, og Sara Rut, f. 25.6. 2001. II. Ásthildur, giftist 15.9. 1979 Guðjóni Bjarnasyni rafvirkjameistara, f. 26.3. 1942. Foreldrar hans voru Þorgerður Guðrún Guðjónsdóttir, f. 1.4. 1920, d. 2.3. 1971, og Haraldur Sigurðsson Íshólm, f. 5.3. 1923, d. 30.3. 1942. Fósturmóðir hans var Sigríður Bogadóttir, f. 28.5. 1899, d. 22.12. 1989. Dóttir þeirra er Sigríður íþróttafræð- ingur, f. 27.12. 1978. Börn henn- ar eru Guðjón Ólafur, f. 28.8. 2007, Ásthildur Elma, f. 24.3. 2009, og Baldur Ernir, f. 23.3. 2013. Ásthildur ólst upp á Ísa- firði og bjó þar alla tíð. Hún gekk í barna- og gagnfræða- Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara. Þar leiðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnunum á, er sofnum við síðasta blundinn. (Hugrún) Guðjón. Elskuleg mamma mín hefur lagt upp í ferð til sumarlandsins og nú er komið að kveðjustund. Þegar ég lít til baka sé ég ofur- hetjuna mömmu. Einhvern veg- inn gat hún allt þó mér hafi ekki fundist það hér áður fyrr. Hún var skáti, söngkona, fagmaður, sagna- kona, félagsmálakona og eflaust miklu meira en fyrst og fremst var hún mamma mín, fastinn í líf- inu og alltaf til staðar. Til hennar sótti ég þekkingu þegar á þurfti að halda. Hún kenndi mér og El- ínu systur á skíði þótt hún hafi sjálf ekki verið mikil skíðakona. Ég bað alltaf um ráð þegar ég var að sauma mér föt – gat ekki klippt í efnið fyrr en hún var búin að leggja blessun sína yfir málið. Man samt ekki eftir henni sauma mikið en ég veit að hún saumaði á okkur systur þegar við vorum litl- ar. Þegar ég flutti að heiman fékk ég allar helstu matar- og bökunar- uppskriftirnar hjá henni þar sem hennar matreiðsla var einfaldlega best. Mamma lét ekki mikið fyrir sér fara en lét verkin tala og hún var alltaf tilbúin að aðstoða mig og vildi allt fyrir okkur systurnar og barnabörnin gera. Hún var heimskona sem bjó alla sína ævi á Ísafirði, nafla al- heimsins. Talaði bæði ensku og dönsku og gat bjargað sér á þýsku. Mamma var mikill lestrar- hestur og ein af mínum fyrstu minningum er þegar hún sökkti sér ofan í bók og svaraði með hummi þegar ég reyndi að ná at- hygli hennar. Eflaust hennar leið til að slaka á. Mamma elskaði að ferðast og áttu hún og Guðjón góð ferðaár þar sem víða var farið. Ein af mínum góðu minningum með þeim er þegar þau heimsóttu okk- ur fjölskylduna til Pittsburgh og við ferðuðumst saman í nokkra daga. Nú hefur hún lagt upp í lokaferðina en ég geri ráð fyrir að nú ferðist hún óhindrað til allra þeirra staða sem ekki náðist að heimsækja í þessu jarðlífi. Síðustu árin dvaldi hún á Hjúkrunarheim- ilinu Eyri þar sem hún fékk góða umönnun. Ég kveð þig með kvöldsöng skáta, minning þín lifir, elsku mamma. Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær. Unnur. Elsku mamma mín hefur feng- ið hvíldina eftir erfið veikindi síð- ustu ár sem tóku hana smátt og smátt frá okkur. Það hefur verið erfitt að horfa upp á hana hverfa og hætta að vera hún sjálf. Það er skrítin tilfinning að syrgja lifandi manneskju. Mamma eins og hún var orðin er löngu farin. Hún var tilbúin að kveðja og ég er fegin að hún sé hætt að þjást. Ég er alveg viss um að það var tekið vel á móti henni og núna er hún umvafin fólkinu sínu. Ég var heppin með mömmu, þó svo að á tímabili hafi mér fundist hún rosalega gömul. Ég á góðar minningar úr æsku, ég fékk að upplifa margt. Við ferðuðumst mikið, innanlands sem utan. Ófáar ferðirnar sem við fórum þrjú sam- an í, ég hún og pabbi. Flug og bíll til Evrópu. Hún alltaf með landa- kortið í framsætinu. Það var bara búið að plana fyrstu nóttina og svo síðustu. Svo var bara fundin gist- ing þar sem við vorum og þar sem var laust. Á þessum tíma voru engir farsímar, hvað þá internet þar sem hægt var að fletta upp upplýsingum á Google. Það var bara kortabókin sem var notuð og mamma var algjör snillingur í þessu. Enda var hún skáti og stundaði það starf vel og lengi. Mamma var mikil tungumála- manneskja, talaði ensku, dönsku og reddaði sér á þýsku þegar þess þurfti. Hún hélt dagbók í ferða- lögunum okkar. Ég var hjá pabba að skoða myndir eftir að hún kvaddi okkur og sá þá í myndaal- búmi prentaða dagbók úr einni ferðinni og las og rifjaði upp góðar minningar. Mamma var virk í félagsstörf- um, var í skátunum, kvennadeild Slysavarnafélagsins og kór Ísa- fjarðarkirkju í mörg ár. Ég man að æfingar í kórnum voru á fimmtudagskvöldum kl. 20. Mamma var ofur stundvís, hún var tilbúin um kl. 19 í sjónvarps- sófanum með veskið í fanginu og mætt á æfinguna allavega hálf- tíma áður en æfingin byrjaði. Svona var mamma. Jólaæfingar kirkjukórsins voru oft haldnar í Sundstrætinu. Enda var stofan þar stór og mamma átti píanó. Mér fannst alltaf gaman að hlusta á þessar æfingar og vera heima. Etir að ég fór að halda heimili var alltaf gott að leita til mömmu, hún var alltaf með svörin. Ég átt- aði mig á því, þegar ég var hætt að geta hringt til hennar og spurt um hitt og þetta sem viðkom heimilis- haldi, hvað ég hafði misst mikið. Mömmur kunna allt og mömmur eru bestar. Elsku mamma mín, takk fyrir allt, ég sakna þín og ég elska þig. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahil Gibran) Sigríður (Sirrý). Hún Adda systir mín er fallin frá eftir langvarandi veikindi. Hún var elst 5 barna Unnar og Ólafs sem bjuggu á Seljalandsvegi 26 á Ísafirði. Hugurinn leitar til áhyggjulausu æskuáranna. Á svipuðum nótum skrifaði ég um Þorbjörgu systur sem lést snemma á síðasta ári. Nú er ég orðin elst sem áður var í miðjunni, en Adda var stóra systirin. Að lok- inni skólagöngu á Ísafirði fór Adda með vinkonu sinni til Eng- lands. Þær réðu sig í vist hjá gyð- ingafjölskyldu í Manchester. Okk- ur þótti þetta mjög merkilegt, útlönd fjarlæg okkur. Hún sagði okkur að þær hefðu meira að segja þurft að stífa vasaklúta hús- bóndans og þá fannst okkur nóg um. Þegar Adda kynnti Árna sinn verðandi eiginmann fyrir okkur þá vorum við Þorbjörg alveg heill- aðar. Hann stríddi okkur, hafði áhuga á því sem við vorum að gera og var eins og stóri bróðir. Þau hófu sinn búskap á Ísafirði og eignuðust dæturnar Elínu og Unni. Ég var oft í mat hjá þeim og passaði líka. Man að stundum var aðalmálið hjá systrunum hver stráði kanilsykri á grautinn og átti pabbi oftast að sjá um það. En hamingjan stóð ekki lengi því Árni fórst af slysförum árið 1970. Það var mikill harmur að sjá á eft- ir ungum manni í blóma lífsins, með unga konu og tvö ung börn. En Adda átti yndislega tengda- foreldra, sem höfðu misst sitt elsta barn. Þau stóðu eins og klettur við hlið Öddu og sáu ekki sólina fyrir litlu stelpunum þeirra. Ég varð vör við það á ferð minni fyrir vestan um daginn að fólk man ennþá eftir Árna og hans ör- lögum. Þannig lifir minningin um góðan dreng. En lífið var ekki búið hjá Öddu og dætrunum. Hún kynntist Guð- jóni og fann hamingjuna á ný, því- líkt gull af manni. Þau eignuðust Sigríði (Sirrý) sem hefur verið þeim mikill gleðigjafi. Þau komu sér vel fyrir í húsnæði á Eyrar- götu en síðar í Sundstræti. Adda hafði gaman af að syngja og söng í kórum í mörg ár, síðast í kirkju- kórnum. Þau festu kaup á sum- arbústað í „Skóginum“ og þar ætl- uðu þau að njóta sín í „ellinni“. En snjóflóð hrifsaði burtu flesta bú- staðina í Skóginum og þeirra líka. Þau vildu ekki byggja aftur á sama stað og settu niður lítið hús í landi Hörgshlíðar í Mjóafirði á yndislegum stað. Adda vel kunn- ug í Djúpinu, dvaldi mörg sumur í Þúfum hjá frændfólki okkar. Er stelpurnar voru búnar að stofna fjölskyldur og mennta sig ætluðu þau hjónin að njóta þess að dvelja í sveitinni með barnabörnunum. Adda var svo stolt af stelpunum sínum sem allar eru góðir og nýtir þjóðfélagsþegnar. Fyrir nokkrum árum fer heilsan að bila hjá systur minni og að lokum þarf hún að fara á hjúkrunarheimili og gat hún ekki fengið betri stað en Eyri úr því sem komið var. Höfðu þessi áföll sem Adda varð fyrir í lífinu áhrif á hennar örlög? Það fáum við aldrei að vita. Ég er þakklát fyrir að hafa getað eytt nokkrum stundum með henni síðustu vikurnar. Þá varð ég vitni að því hve vel var hugsað um hana. Við Mummi og börnin okkar vottum Guðjóni og fjölskyldunni okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning Öddu. Guðfinna Ólafsdóttir. Það var sárt að heyra að hún Adda, elsta og besta vinkona mín. væri látin jafnvel þó það væri líkn með þraut en hún var búin að berjast við erfið veikindi alllengi. Minningarnar streyma fram frá barnæsku okkar á Ísafirði og samfylgd frá fæðingu. Mæður okkar voru vinkonur úr sveitinni, þar sem þær ólust upp og héldu tryggð við til æviloka. Heima hjá Öddu var alltaf eins og annað heimili mitt og Unnur mamma hennar var hlý og góð við okkur stelpurnar. Yngri systkini Öddu eru líka hluti af þeim minningum. Ég man árin á Túngötunni, úti- leikina, leikritin í kjallaranum á Túngötu 9 og útiveruna í allskyns veðrum. Og einn daginn fylgd- umst við í skólann og við tók al- vara lífsisns. En það voru líka endalausar æfingar og skemmt- anir. Það var í sunnudagaskólan- um, hjá skátunum og í skólunum. Þar spilaði Adda alltaf einleik á pí- anó sem hún stundaði nám í árum saman. En það var líka mikið hlegið, sungið, samið og trallað. Adda var gæfumanneskja í lífi sínu þrátt fyrir mikið áfall er hún missti fyrri mann sinn af slysför- um. Dæturnar þrjár og barna- börnin voru henni gleðigjafi og syrgja nú góða móður og ömmu. Seinni maður hennar, Guðjón Bjarnason, var hennar stoð og stytta og ómetanlegur hluti af lífi hennar og dætranna. Hann á mik- ið hrós skilið fyrir alúð og dugnað eftir að veikindi hennar sögðu til sín. Ég sendi öllu þessu góða fólki hennar Öddu samúðarkveðjur. Hún mun lifa með okkur áfram í góðum minningum. Inga Rúna. Ásthildur Sigurrós Ólafsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR ZÓPHÓNÍASDÓTTIR, Austurvegi 39, Selfossi, sem lést þriðjudaginn 29. júní, verður jarðsungin frá Selfosskirkju fimmtudaginn 15. júlí klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Selfosskirkju, www.selfosskirkja.is. Ingibjörg Stefánsdóttir Guðjón Haukur Stefánsson Margrét Stefánsdóttir Gylfi Guðmundsson Jóhann Ingvi Stefánsson Elín Kristbjörg Guðbrandsd. Soffía Stefánsdóttir Reynir Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBORG BRAGADÓTTIR, lést 9. júlí á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin verður auglýst síðar. Sigurþór Ellertsson Sólveig Ragna Sigurþórsd. Sigþrúður Sigurþórsdóttir Páll Þórir Ólafsson Ellert Bragi Sigurþórsson Eva Arna Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn Okkar ástkæra FREYJA EGILSDÓTTIR M., sem lést í Danmörku 2. febrúar, verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 16. júlí klukkan 14. Bóthildur E. Hauksdóttir og fjölskylda Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN SIGRÍÐUR AXELSDÓTTIR frá Ásláksstöðum í Arnarneshreppi, andaðist á dvalarheimilinu Grund við Hringbraut í Reykjavík 4. júlí. Útför hennar fer fram frá Möðruvallaklausturskirkju í Hörgárdal þriðjudaginn 20. júlí klukkan 11:00. Þórður Ingimarsson Björn Ingimarsson Sveinn Ingimarsson og fjölskyldur þeirra Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ATLI BENEDIKTSSON, Brekatúni 2, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð þriðjudaginn 6. júlí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. júlí klukkan 13. Steinþóra Vilhelmsdóttir Álfheiður Atladóttir Sigtryggur Sigtryggsson Kristveig Atladóttir Heimir Finnsson Þóra Atladóttir Klara Bjartmarz barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.