Morgunblaðið - 13.07.2021, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021
✝
Gerður Jóna
Benediktsdóttir
fæddist í Skóla-
vörðuholti í Reykja-
vík 11. nóvember
1945. Hún lést á
heimili sínu í
Lönguhlíð 3 í
Reykjavík 2. júlí
2021. Gerður var
dóttir Benedikts J.
Benediktssonar, f.
10.1. 1904, d. 11.7.
1988 og Þorgerðar Halldórs-
dóttur, f. 8.5. 1903, d. 27.1. 1972.
Gerður átti fjórar systur: Hulda
Björnsdóttir (látin), Hafdís Guð-
mundsdóttir, Þóra Björk Bene-
diktsdóttir og Rós María Bene-
diktsdóttir.
Gerður giftist Magnúsi Páls-
syni, f. 5.8. 1936, þau skildu. Þau
eignuðust þrjú börn: 1) Hlíf
Magnúsdóttir, f. 1964, börn
hennar eru: a) Friðrik Þór Gests-
son, eiginkona hans er Ingunn M.
Vilhjálmsdóttir, börn þeirra eru:
Freyja Rún og Iðunn Ýr. b) Gauti
Fannar Gestsson, eiginkona hans
er Júlíana R. Júlíusdóttir, börn
þeirra eru: Arna Guðný, Bryndís
Lilja og Katrín Embla. c) Alma
Eir Gestsdóttir, sambýlismaður
hennar er Kristján V. Stein-
lá leiðin í Húsmæðraskólann á
Hallormsstað. Að því námi loknu
fór hún í Tungufell, Breiðdal, en
hún leit á það sem sitt annað
æskuheimili. Á þessum árum
kynnist hún eiginmanni sínum,
Magnúsi, og hófu þau búskap á
hans æskuheimili, Gilsárstekk í
Breiðdal. Bjuggu þar fyrstu árin
þar til þau fluttu í húsið sem þau
byggðu sér á Breiðdalsvík. Gerð-
ur starfaði við síldarsöltun, fisk-
vinnslu og barnaumönnun. Er
fram liðu stundir náði hún sér í
réttindi sem nuddari og starfaði
sem slíkur, þá var hún með ljósa-
stofu og Trimform. Eftir að hún
flutti endanlega til Reykjavíkur
1991 opnaði hún og rak nudd-
stofuna „Nudd fyrir heilsuna“.
Þá stóð hún einnig fyrir fram-
leiðslu á náttúrukremum og sölu
á þeim í Kolaportinu og á hinum
ýmsu mörkuðum hringinn um
landið. Hún tók þátt í stofnun og
uppbyggingu sunnudagaskólans
á Breiðdalsvík og var virk í starfi
Kvenfélagsins Hlífar. Hún var
einnig félagi í Kiwanis í Reykja-
vík. Gerður var listræn og söng-
elsk enda var hún barnastjarna,
söng á jólatrésskemmtunum með
Hauki Morthens og einnig söng
hún lagið „Æ, ó, aumingja ég“
inn á hljómplötu með Tríói Árna
Ísleifs. Gerður var í kirkjukór
Breiðdals og síðar Samkór
Stöðvarfjarðar og Breiðdals.
Útför Gerðar fer fram frá
Laugarneskirkju í dag, 13. júlí
2021, kl. 13.
grímsson, barn
þeirra er Lísa Kar-
en. d) Guðrún Selma
Hilmarsdóttir. 2)
Hrefna G. Magn-
úsdóttir, f. 1966,
eiginmaður hennar
er Þorsteinn V. Sig-
urðsson, börn
Hrefnu frá fyrra
hjónabandi með Jó-
el Jóhannssyni eru:
a)Rakel Ósk, sam-
býlismaður hennar er Jónas B.
Jónasson, börn þeirra eru: Vikt-
oría Mjöll og Lovísa Nótt. b)
Magnús Hlífar. Börn Þorsteins
eru: a) Sigríður Þóra, eig-
inmaður hennar er Pétur Þ. Guð-
jónsson, börn þeirra eru: Krist-
ófer, Sunneva, Pétur og Natalía.
b) Fanney Rut, sambýlismaður
hennar er Bjarki H. Sveinsson,
börn þeirra eru: Tristan, Eva og
Logi. 3) Benedikt Páll Magn-
ússon, f. 1972, eiginkona hans er
Auður Eiðsdóttir, börn þeirra
eru: a) Benedikt Jón (látinn), son-
ur hans er Brynjar Gauti. b) Eið-
ur Bragi, unnusta hans er Sarah
B. Hansen. c) Karel Magnús. d)
Hilmir Hrafn. Gerður giftist síð-
ar Cecil V. Jensen, þau skildu.
Eftir grunnskólanám Gerðar
Elsku mamma mín, þá er þinni
jarðvist lokið sem var þér oft ekki
auðveld. Ævi þín byrjaði á vöggu-
stofu, þér var þvælt á milli barna-
heimila ríkisins, alin upp hjá ein-
stæðri fátækri móður í
Höfðaborginni, þar sem fólkið á
jaðrinum bjó. Það var þér þung-
bært að pabbi þinn var kvæntur
maður úti í bæ, þetta var flókið
fyrir lítið barn að skilja, enda
fylgdi þetta þér alla tíð. Strax í
æsku birtist þinn sterki persónu-
leiki og hæfileiki til söngs, þetta sá
pabbi þinn sem kom þér á fram-
færi með stærstu tónlistarstjörn-
um þess tíma, eins og Hauki Mort-
hens og Árna Ísleifs. Þú varst
látin syngja á jólatrésskemmtun-
um heldra fólksins en fékkst ekki
að ganga í kringum jólatréð með
börnunum. Seinna söngstu inn á
plötu lagið „Æ, ó, aumingja ég“
með tríó Árna Ísleifs, þú varst
mjög stolt af því. Hugur minn leit-
ar á æskustöðvarnar á Breiðdals-
vík en ég var ekki gömul þegar ég
áttaði mig á því að þú varst ekki
eins og hinar konurnar í þorpinu,
þú klæddir þig öðruvísi, varst há-
vær, ófeimin og elskaðir athygli,
enda hæfileikarík, listræn og
skapandi manneskja með trú-
gjarnt hjartalag. Þú upplifðir ill-
girni og kaldhæðni fólks sem hló á
bak þér í öfund enda fékk Gróa á
Leiti að fitna og dafna eins og púk-
inn á fjósbitanum. Það var ósjald-
an sem þér leið illa vegna þessa,
þú skildir ekkert í aðstæðum. Þú
varst svo dugleg og hlífðir þér
aldrei hvorki í vinnu né fé-
lagsstarfi, endalaust að sækjast
eftir viðurkenningu annarra sem
þú fékkst sjaldnast. Þú elskaðir að
leika við okkur krakkana í þorp-
inu, kenna okkur leiki, þulur og
ljóð en þú hafðir ekkert sérstak-
lega mikla þolinmæði fyrir okkur
systkinunum enda upplifðum við
okkur oft í samkeppni við hin
börnin um þína athygli. Þú hafðir
heimili þitt opið fyrir ættingjum
þínum að sunnan sem dvöldu oft
heilu og hálfu sumrin hjá okkur.
Þú varst ótrúlega útsjónarsöm við
að skapa heimilinu aukatekjur, þú
varst umboðsmaður SG hljóm-
platna enda var hljómplötum
ósjaldan staflað í bílinn og síðan
keyrt um allar sveitir og seldar
plötur á hverjum bæ. Þú byrjaðir
einnig að tína jurtir og sjóða niður
krem en þannig hófst þín vegferð í
að vinna sem nuddari. Eftir að þið
pabbi fluttuð alkomin til Reykja-
víkur keyptuð þið húsnæði undir
nuddstofuna þína, „Nudd fyrir
heilsuna“. Um helgar seldirðu
krem í Kolaportinu úr jurtum sem
þið tínduð á sumrin. Þarna fannst
mér þitt blómaskeið vera, þarna
fékkstu að vera þú sjálf, en oft er
kapp best með forsjá, þú vannst
yfir þig og þínir undirliggjandi
sjúkdómar fóru að láta á sér kræla
og að lokum náðu þeir yfirhönd-
inni. Það var ekki auðvelt fyrir
mig að horfa á eftir þér út úr lífi
okkar og breytast í manneskju
sem ég þekkti ekki. Það var held-
ur ekki auðvelt, mamma mín, að
syrgja þig á lífi og þurfa oft að
standa frammi fyrir gömlu sam-
ferðafólki þínu með vægðarlausar
skoðanir á fjölskyldunni sem það
vissi ekki neitt um eða hafði nokk-
urn skilning á. En nú er kallið
komið og engu verður breytt en
ég er orðin sátt við liðna tíð og þá
ákvörðun þína að lifa þínu lífi eins
og þú gerðir. Hvíl í friði.
Hrefna G. Magnúsdóttir.
Komið er að kveðjustund, mín
kæra Gerða Ben. lést 2. júlí sl.,
mjög óvænt. Þótt heilsa hennar
hefði verið farin að bila er sárt að
kveðja eftir 55 ára vináttu. Kynni
okkar hófust á Breiðdalsvík þegar
þau Magnús byggðu sér hús við
hliðina á okkur Árna á Ásvegin-
um. Við vorum báðar aðfluttar,
ungar, rétt rúmlega tvítugar, að
hefja búskap og barneignir. Við
komum úr mjög svo ólíku um-
hverfi; ég frá Fáskrúðsfirði, hún
úr Reykjavík, alin upp af ein-
stæðri móður í Höfðaborginni, svo
veraldarvön, kát og skemmtileg
með sitt fallega breiða bros, hafði
sungið lag inn á plötu 12 ára og
kom í sveit í Breiðdalinn sem varð
alltaf síðan sveitin hennar.
Gerða var hörkudugleg, vann
alltaf utan heimilis, m.a. í frysti-
húsinu, og gekk þar óhikað í öll
störf, sum sem ætluð voru karl-
mönnum, og í síldarsöltuninni stóð
enginn henni á sporði, ætíð með
gleði og spaugsyrði á vör. Seinna
fór Gerða að vinna á leikskólanum
á Breiðdalsvík, þar var hún á rétt-
um stað; lék, sagði sögur og söng
með krökkunum, sem elskuðu
hana og dáðu.
Gerða var líka vinsæl nudd- og
grasakona, meðfram annarri
vinnu tíndi hún jurtir og grös og
bjó til alls konar smyrsl og á svip-
uðum tíma lærði hún nudd og varð
það hennar aðalstarf eftir að hún
flutti suður og stofnaði þar sína
eigin nuddstofu á Skúlagötu 40,
Nudd fyrir heilsuna.
Á tímabili vorum við saman í
Kiwanisklúbbnum Hörpu í
Reykjavík, þar var Gerða fremst í
flokki í öllu fjáröflunarstarfi, það
var skemmtilegur og gefandi tími
sem við áttum þá saman.
Í öll þessi ár höfum við haldið
vináttusambandi þótt stundum
hafi komið tímar sem við hittumst
ekki oft, en alltaf haldið símasam-
bandi og fylgst hvor með annarri
og þá oft rifjuð upp atvik frá liðn-
um árum, oftast mikið hlegið, líka
grátið, oft fór hún með falleg ljóð
fyrir mig sem hún hafði ort því
það lá vel fyrir henni, líka kom fyr-
ir að hún tók lagið, alltaf stutt í
sönginn hjá minni. Alltaf lauk
þessum símtölum með guðsbless-
unarorðum til mín og minnar fjöl-
skyldu.
Svona var Gerða; kát, hlý og
góð, vildi allt fyrir aðra gera, en
því fer fjarri að líf hennar hafi allt-
af verið dans á rósum, hún átti sín-
ar dimmu og döpru stundir, barð-
ist við sjúkdóm sem henni var oft
mjög erfiður.
Það hagar svo til hjá mér nú að
ég get ekki verið viðstödd útför
minnar góðu vinkonu. Við Árni
sendum Cecil, börnum hennar og
fjölskyldum þeirra, svo og öðrum
ástvinum, innilegar samúðar-
kveðjur.
Margrét (Gréta).
Gerður Jóna
Benediktsdóttir✝
Helga Skúla-
dóttir fæddist í
Urðarteigi í Beru-
firði 19. október
1944. Hún lést á
Sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað 2. júlí
2021. Foreldrar
hennar voru Mál-
fríður Halldóra
Snjólfsdóttir, f.
1909, d. 1992 og
Skúli Sigurðsson, f.
1904, d. 1981.
Systur Helgu eru: Lilja, f.
1932, d. 2005, Kristín Sigríður, f.
1934, Ásdís, f. 1936, d. 1982, og
Elsa, f. 1941. Málfríður var dótt-
ir hjónanna Ásdísar Sigurð-
ardóttur og Snjólfs Stefáns-
sonar frá Veturhúsum í
Hamarsdal. Skúli var sonur
hjónanna Sigríðar Helgadóttur
og Sigurðar Bergsveinssonar
frá Urðarteigi í Berufirði.
Eiginmaður Helgu er Þor-
steinn Ársælsson, fæddur á
Siglufirði 1943, ólst upp í Nes-
kaupstað. Móðir hans var Ind-
íana Guðmundsdóttir, frá Siglu-
firði, f. 1907, d. 1995. Kjörfor-
eldrar Þorsteins voru hjónin
Ársæll Júlíusson frá Mjóafirði, f.
1902, d. 1997, og Bjarney Stef-
son, f. 1995, Bjartur Hólm Haf-
þórsson, f. 2003.
4) Sigrún, f. 1977, sambýlis-
maður Snorri Halldórsson, f.
1975. Sonur þeirra er Styrmir, f.
2010.
Helga ólst upp í Urðarteigi
við Berufjörð í faðmi fjallanna
sem hún alltaf unni. Hún var
yngst af fimm dætrum Málfríðar
og Skúla. Í Urðarteigi tók hún
þátt í hinum almennu sveita-
störfum jafnt inni sem úti.
Helga og Þorsteinn giftu sig
27. maí 1964 og byrjuðu sinn bú-
skap í Huldubjargi á Blómst-
urvöllum 18 í Neskaupstað, þar
bjuggu þau til ársins 1972 er þau
fluttu í nýbyggt hús sitt að Urð-
arteigi 4 og hafa búið þar síðan.
Helga starfaði lengst af hjá
Pósti og síma og Íslandspósti.
Hún var mikil hestamanneskja
og starfaði með Hestamanna-
félaginu Blæ allt frá upphafi og
var í stjórn þess um tíma. Helga
var mikil hannyrðakona. Einnig
hafði hún mikinn áhuga á
blómarækt og ljósmyndun.
Útför Helgu fer fram í Norð-
fjarðarkirkju í dag, 13. júlí 2021,
klukkan 14.
Streymt verður frá útför:
https://www.facebook.com/
nordfjardarkirkja
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
ánsdóttir frá Norð-
firði, f. 1907, d.
1988.
Börn Helgu og
Þorsteins eru fjög-
ur:
1) Gunnar, f.
1964, eiginkona,
Anna Sigríður
Þórðardóttir, f.
1964, dóttir Gunn-
ars er Birgitta
Jóna, f. 1984, börn
hennar eru Róbert Snær, f.
2001, Sandra Ýr, f. 2002, Ind-
íana Rós, f. 2013, Ágúst Leó, f.
2014. Börn Önnu Sigríðar eru
Erla, f. 1984, d. 1984, Guðlaug
Erla, f. 1985, Sigrún, f. 1989,
Þóra Kristín, f. 1993, Lárus, f.
1995.
2) Bjarney Kolbrún, f. 1965,
sambýlismaður Þorgeir Jóns-
son, f. 1971. Sonur þeirra er
Hafsteinn Jökull, f. 2005. Sonur
Bjarneyjar er Þorsteinn Heiðar
Jóhannsson, f. 1989, synir hans
eru Jóhann Breki, f. 2014, Elmar
Snær, f. 2018.
3) Heiðrún, f. 1974, eiginmað-
ur, Halldór Freyr Sturluson, f.
1978. Börn þeirra eru Rökkvi, f.
2013, Rakel Arna, f. 2015. Synir
Heiðrúnar eru Elvar Örn Inga-
Mig langar til að minnast elsku
Helgu, móðursystur minnar, með
örfáum orðum.
Ég var svo heppin að fá að
kynnast henni mjög vel fyrir 40
árum þegar ég var 11 ára. Þá
fékk ég það skemmtilega hlut-
verk að gæta Heiðrúnar og Sig-
rúnar, yngstu dætra þeirra
Steina, á meðan þau hjónin voru í
vinnunni þá um sumarið. Ég fór
með flugi frá Reykjavík og mér
þótti þetta ofur spennandi ferða-
lag og fannst ég vera að taka að
mér mikla ábyrgð með því að
gæta þeirra systra í Neskaup-
stað.
Þarna kynntist ég góðu og
hlýju frænku minni, sem alltaf
var stutt í hláturinn hjá. Það er
ekki hægt að minnast Helgu án
þess að nefna Steina, því þau voru
eins og eitt. Alltaf stutt í húm-
orinn hjá honum, sallarólegur og
alltaf svo hlýr og góður. Það var
greinilegt að skotturnar sem ég
passaði og voru miklir fjörkálfar
ólust upp við ást og umhyggju.
Allan tímann leið mér vel
þarna enda alltaf líf og fjör á
heimilinu og svo mikið brallað.
Það eru mörg ljúf minninga-
brotin sem ég geymi hjá mér af
þeim, sérstaklega frá þeim tíma
sem ég dvaldi hjá þeim.
Ég er þakklát fyrir að hafa
kynnst þeim og öllum börnunum
þeirra svona vel og ég er sann-
færð um það að ef þessi stutta
dvöl mín þetta eina sumar í Nes-
kaupstað hefði ekki komið til, þá
hefði mér ekki tekist að tengjast
þeim eins vel og raunin varð.
Það voru blendnar tilfinningar
þegar ég fór frá Helgu á spítalan-
um í Reykjavík núna í lok júní.
Ég óttaðist að ég myndi ekki
hitta hana aftur en á sama tíma
var ég þakklát fyrir að hafa náð
að kveðja hana þar sem ég
hræddist það að það væri ekki
langt eftir.
Elsku Steini, Gunnar, Bjarn-
ey, Heiðrún, Sigrún og fjölskyld-
ur ykkar, hugur minn er hjá ykk-
ur. Mér finnst gott að geta yljað
mér við góðar minningar um
elsku frænku.
Blessuð sé minning hennar.
Birna Eggertsdóttir.
Helga Skúladóttir
✝
Helga Hólm
Helgadóttir
fæddist 4. júní
1928 á Geitagili í
Örlygshöfn. Hún
lést á Hjúkrunar-
og dvalarheimilinu
Höfða á Akranesi
1. júlí 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Helgi Sig-
urvin Einarsson,
fæddur 16. sept-
ember 1895 í Hænuvík, síðar
bóndi á Geitagili í Örlygshöfn,
dáinn 25. maí 1988 og kona
hans Guðmunda Helga Guð-
mundsdóttir frá Krossadal við
ur frá Syðstu-Fossum í Anda-
kíl, fæddur 1. desember 1907,
dáinn 10. maí 1995.
Þeirra dætur eru Salvör
Aradóttir, fædd 8. maí 1953 og
Inga Guðmunda Aradóttir,
fædd 31. desember 1955.
Helga ólst upp á Geitagili og
síðar Patreksfirði. Hún stund-
aði nám við Héraðsskólann á
Núpi 1944-1945. Fór seinna til
Reykjavíkur og lauk kennara-
prófi 1950. Starfaði víða sem
kennari, settist að á Akranesi
1959 og var kennari við Barna-
skóla Akraness sem nú heitir
Brekkubæjarskóli fram að
1990.
Hún gegndi lengi ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir stúkuna
Akurblóm og var þar meðal
annars æðstitemplar.
Útför Helgu fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 13. júlí
2021, og hefst klukkan 13.
Tálknafjörð, fædd
31. október 1889,
dáin 7. september
1945.
Bræður Helgu
voru Ingi Helga-
son, fæddur 30.
október 1919, dá-
inn 5. desember
1943, Einar Ingi-
mar Helgason,
fæddur 11. ágúst
1926, dáinn 21.
nóvember 1999 og Davíð Jó-
hannes Helgason, fæddur 29.
maí 1930, dáinn 8. apríl 2005.
Eiginmaður hennar var Ari
Gíslason, kennari og fræðimað-
Nokkur kveðjuorð vil ég setja
á blað við fráfall Helgu H. Helga-
dóttur, bekkjarsystur minnar úr
Kennaraskólanum, en skóla-
systkin mín hafa mörg mætt sínu
skapadægri síðustu árin.
Það var haustið 1948 sem við
Helga hittust í fyrsta sinn er við
vorum að hefja nám í Kennara-
skólanum. Helga kom vestan frá
Patreksfirði, mótuð af mikilfeng-
legu landslagi Vestfjarða og gró-
inni menningu. Helga var með
heilsteypta skapgerð, hæversk í
framkomu og bar með sér æðru-
leysi. Hún gat verið hnyttin í til-
svörum og komið með vísukorn ef
svo bar undir. Eins og velflestra
okkar sem lukum kennaranámi
vorið 1950 varð kennslan lífsstarf
Helgu. Hún kenndi í nokkur ár á
heimaslóðum á Patreksfirði og
víðar á landinu. Lengst af starf-
aði Helga á Akranesi, þar sem
hún og eiginmaður hennar áttu
heimili í áratugi og ólu upp dætur
sínar.
Eftir að Helga fluttist til Akra-
ness tengdist hún nánar okkur
sem áttum heimili á höfuðborg-
arsvæðinu. Hún varð þá kær-
kominn þátttakandi í hópnum
okkar sem við kölluðum sauma-
klúbbinn. Þar voru dægurmálin
rædd svo og fjölskyldumálin og
auðvitað kennslan. Margar
ánægjulegar stundir áttum við
saman heima hjá hver annarri.
Þar var hlutur Helgu ekki
minnstur. Þeirra stunda er kær-
komið að minnast.
Ég votta dætrum hennar, vin-
um og vandamönnum samúð
mína.
Elín Vilmundardóttir.
Helga Hólm
Helgadóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar end-
urgjaldslaust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minning-
argreinum til birtingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar
eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu
efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR J. JÓSAFATSDÓTTUR,
Brákarhlíð,
Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Brákarhlíðar.
Jónanna Björnsdóttir Níels Guðmundsson
Ari Björnsson Fanney Kristjánsdóttir
Guðríður Björnsdóttir Einar Hermannsson
Jón Jósafat Björnsson Dagný Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn