Morgunblaðið - 13.07.2021, Qupperneq 24
S
veinn B. Ólafsson fæddist
á Krosshóli í Skíðadal 13.
júlí 1926. „Við fæddumst
öll systkinin í torfbænum
Krosshóli en flytjum það-
an 1931 niður í Syðra-Holt í Svarf-
aðardal og ég var þar fram yfir tví-
tugt.“
Sveinn gekk 2,5 km niður á Dalvík
til að fara í skólann. „Ég hef alltaf
haft mjög gaman af því að skrifa. Ég
var byrjaður a ævisögu Guðlaugs
Bergssonar á Dalvík innan við ferm-
ingu, en svo datt það niður þegar leið
mín lá til Akureyrar.“ Síðan hefur
Sveinn haldið dagbók frá árinu 1942
og allar færslurnar byrja á veðurlýs-
ingu.
Sveinn hafði alltaf mikinn áhuga á
tækni og tækjum. „Ég byrjaði á því
að reisa rafstöð í mínu ungdæmi og
kom ljósi í kjallarann, eldhúsið og
fjósið í Syðra-Holti.“ Tvítugur ætlaði
hann að læra rafvélavirkjun á Ak-
ureyri, en lítil vinna var í faginu svo
hann fór að vinna á saumastofunni
Gefjun. Veturinn eftir fékk hann
vinnu hjá Samúel Kristbjarnarsyni
rafvirkjameistara, sem gat þó ekki
tekið hann á samning, en hann vann í
versluninni í viðgerðum og af-
greiðslu. „Fyrsta verkefnið sem mér
var falið var að skipta um þráðinn í
öryggjum í rafmagnstöflum. Við
gerðum við öll gömul tæki, því það
var ekki hægt að hlaupa út í búð og
kaupa ný.“ Sveinn sá að litlar líkur
væri á samningi fyrir norðan og brá
því á það ráð að skrifa rafvirkja-
meistara fyrir sunnan, Halldóri
Ólafssyni. „Eftir nokkrar vikur
hringir Halldór og segir mér að
koma strax, svo ég pakka saman í
hvelli í lítið koffort og tók bara sæng-
ina og koddann.“ Ég fór suður og
ferðalagið tók heilan sólarhring.“
Sveinn fékk fyrst inni á efstu hæð
á Rauðarárstíg 20, í húsi fyrirtækis
Halldórs. Fyrsta vinnudaginn var
Sveinn sendur í Brynju til að kaupa
sér hamar, en hann var ekki til. „Það
var ekkert til á þessum tíma.“
Sveinn rifjar upp hvernig viðskipta-
umhverfið var á eftirstríðsárunum.
„Það þurfti meira að segja að sækja
um leyfi fyrir nánast öllu niðri á Inn-
flutningsskrifstofu á Skólavörðu-
stígnum. Nokkrum árum síðar fékk
ég neitun þegar ég sótti um að kaupa
bíl.“
Sveinn vann hjá Halldóri í níu ár
en þá ákvað hann að stofna sitt eigið
fyrirtæki. „Ég stofnaði Ljósbogann
árið 1957 niðri á Hverfisgötu og
starfrækti það í hálfa öld.“ Það er
enn starfrækt uppi á Höfða. Sveinn
segir þó að reksturinn hafi verið erf-
iður á þessum tíma og margir um
hituna í stórum verkefnum. „Við
gerðum við rafkerfi bíla, heimilis-
tæki og fleira og svo fór ég að flytja
inn varahluti í bíla þegar hagurinn
fór að vænkast. Fyrirtækið flutti í
eigið húsnæði í Mjölnisholti og síðan
í Rauðagerði.“
Sveinn kynntist konu sinni strax
og hann kom í höfuðstaðinn. „Ég
hafði ekkert farið á böll, en þegar ég
loksins fór, hitti ég konuna. Ég var
nú svo mikill sveitamaður í mér að
ég hafði ekki sinnu á því að spyrja
hvort hún hefði síma svo ég gæti
hringt. En stuttu síðar var ég að að
keyra niður Bankastrætið og sá
hana og þá ákváðum við að fara sam-
an í bíó. Það sannaði fyrir mér að ævi
manns er að mörgu leyti fyrirfram
ákveðin.“ Bjarni Jónsson dómkirkju-
prestur gifti ungu hjónin 1. janúar
1950.
Sveinn hefur alltaf verið ber-
dreyminn og segir mikið lán hafa
verið í sínu lífi. „Það var kona sem
saumaði á mig fermingarfötin heima
og þegar ég fer að máta, kem ég inn í
húsið og heilsa. Ég sé að inn af eld-
húsinu er lítið herbergi og þar situr
mjög fullorðin kona og er að spinna.
Hún lítur á mig og segir: „Það fylgir
þér ljós. Ég sá það á kommóðunni
hérna áðan.“
Sveinn saknar mjög konu sinnar,
sem dó árið 2008. „Hún var mikil
hannyrðakona, listakona alveg
hreint og yndisleg í alla staði. Ég
vildi halda þeirri góðu reglu að kona
skyldi ala upp börnin.“ Sveinn og
Anna byrjuðu búskap inn í leiguíbúð
á Njálsgötu og leigðu síðan risíbúð á
Grettisgötu, þar til þau fluttu í eigið
hús sem þau byggðu í Kópavoginum
1960. „Ég sá í bandarísku blaði aug-
lýsingu um efni sem hægt var að
steypa úr styttur og við fórum að
flytja þetta inn og seldum m.a. í
versluninni Liverpool á Laugavegi
og þetta hjálpaði okkur við bygging-
arkostnaðinn.“
Þegar börnin voru komin til
manns fór Anna að vinna, fyrst í
netahnýtingu og síðan hjá Nóa Sí-
ríus. Þau bjuggu lengst af á Háteigs-
vegi og í Rauðagerðinu og höfðu
gaman af að sækja danstíma hjá
Heiðari Ástvaldssyni. Sveinn var
enn þá að vinna þegar hann varð átt-
ræður árið 2006 og var í bílskúrnum í
Rauðagerðinu að gera við rafmagns-
Sveinn Blómkvist Ólafsson rafvélavirki og rafverktaki – 95 ára
Heiðursfélagi Sveinn var
gerður að heiðursfélaga í
Félagi löggiltra rafverk-
taka 15. nóvember 1997.
Ljósið alltaf fylgt mér
Sveinn Hér er Sveinn ungur.
Börnin Hér eru Sigríður og Ólafur.
Hjónin
Sveinn með
Önnu eigin-
konu sinni.
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021
50 ÁRA Valdimar
fæddist 13. júlí 1971 á
Landspítalanum.
Hann ólst upp á Litlu-
Heiði í Mýrdal en
fluttist til Reykjavíkur
árið 1987. „Það var
spennandi og nýr
heimur að ganga um
Reykjavík og snuðra í
fornbóksölukompum
og hitta aðra sérvitr-
inga og skáld og fræði-
menn og tilbreyting
frá því að ræða um
fjármörk og landa-
merki og gras-
sprettu.“
Valdimar hóf nám
við Menntaskólann í
Reykjavík og fór það-
an í Fjölbrautaskólann
í Ármúla og nam sam-
hliða organleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Meðfram náminu vann hann í
Pylsuvagninum í Austurstæti og í Bókavörðunni hjá Braga Kristjónssyni.
Hann sá um vísnaþátt DV 2 1994-95 og hefur líka verið fjárhúsavaktari og
landvörður. „Ég hef alltaf haft áhuga á gömlum bókum, pésum, ljóðlist og
bókmenntum og seinna á útgáfu og prentsögunni. Það sem er aska í einni
hendi er gnótt í annarri. Gömul, lúin bók getur verið gersemi, því ekki lítur
allt fallega út sem er einhvers virði.“
Valdimar hefur gefið út fimm frumortar ljóðabækur: Enn sefur vatnið
2007, Sonnettugeigur 2013, Dvalið við dauðalindir, Vetrarland 2018 sem
komu út í Ljóðasafni 2019 og þá Veirufangar og Veraldarharmur 2020. Hann
er þekktur fyrir að gauka að fólki ljóðum á förnum vegi. „Ég hef gefið þessar
fimm ljóðabækur út. Ég er náttúrulega að selja þær eins og gengur en svo
vitna ég mikið í kveðskap og hef hann á hraðbergi og eys yfir saklaust fólk
ljóðum.“
Valdimar Tómasson
Morgunblaðið/Einar Falur
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þér finnst öll spjót standa á þér
þannig að þú náir ekki andanum. Gakktu
samt með lukkuhlutinn þinn. Hann færir þér
gæfu, hvort sem þú trúir á hann eða ekki.
20. apríl - 20. maí +
Naut Allt verður meira spennandi þegar þú
ert með. Munið að gagnrýni hefur mikil áhrif
en hvatning enn meiri.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Ekki er allt sem sýnist, leiðin að
hamingjusömu lífi er oft þyrnum stráð. Búðu
þig samt undir harða samkeppni sem þú þó
átt að geta sigrast á.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú vilt gefa öðrum ráð eða deila
reynslu þinni með þér yngra fólki. Rök-
hugsun þín og vilji til þess að hjálpa verður
þess valdandi að aðrir virða þig.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Fólk álítur þig mikla áhrifamanneskju í
dag. Frumkvæði þitt hefur jákvæð áhrif á
fólkið í kringum þig svo nýttu þér það.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Að vera innan um fólk sem trúir á þig
og hvetur, hefur áhrif á viðhorf þitt og þar
með hæfileika og framleiðni. Búðu þig undir
annasaman dag og örlitlar tafir.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú ert vinsæll meðal vina þinna og þeir
leita skjóls hjá þér þegar þeir þurfa á að
halda. Vinnan er bara ánægjuleg og þú færð
orku úr umhverfinu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Málefni tengd ástinni, rómantík
og jafnvel léttúðugu daðri gera daginn mjög
spennandi fyrir þig. Nú er kominn tími til
þess að hrista af sér þennan óþroskaða ótta
og standa andspænis ógninni.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Í störfum þínum ert þú yngra
fólkinu fyrirmynd og þú getur miðlað því
mörgu af reynslu þinni.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú vilt gera öllum til geðs en
þarft að muna að það er ekki alltaf mögu-
legt. Leitaðu ráða varðandi málið hjá ábyggi-
legum aðilum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er stórskemmtilegt að horfa
á hlutina með augum barnsins. Hugsaðu þig
tvisvar um áður en þú hættir þér út í rök-
ræður.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Stundum er betra að láta það vera
að segja öðrum hug sinn og leyfa þeim að
komast að niðurstöðu í málunum sjálfir.
Sýndu væntumþykju og þá mun allt fara vel.
Til hamingju með daginn