Morgunblaðið - 13.07.2021, Side 25
tækin. Núna fimmtán árum síðar er
hann ótrúlega ern og gæti auðveld-
lega verið tuttugu árum yngri.
Fjölskylda
Eiginkona Sveins var Anna Þor-
gilsdóttir húsfreyja, f. 14.3. 1928, d.
2008. Foreldrar hennar voru hjónin
Þorgils Þorgilsson, f. 5.9. 1884, d.
18.6. 1971, bóndi á Þorgilsstöðum í
Fróðárhreppi, og Áslaug Kristensa
Jónsdóttir, f. 1.12. 1892, d. 25.2. 1973,
húsfreyja á Þorgilsstöðum og síðar á
Sólvangi í Hafnarfirði.
Börn Sveins og Önnu eru 1) Ólafur
Þorgils Blómkvist, f. 5.9. 1953, við-
skiptafræðingur í Garðabæ kvæntur
Björgu Guðmundsdóttur. Dóttir
þeirra er Anna Kristín, f. 2. 7. 1978,
förðunarfræðingur og háskólanemi í
Kópavogi, og María, f. 31.3. 1986,
gullsmíðameistari og býr í Austin í
Texas. 2) Kristlaug Sigríður, f. 5.5.
1958, hjúkrunarfræðingur í Reykja-
vík. Eiginmaður hennar er Guð-
mundur Hannesson, húsa- og hús-
gagnasmiður. Börn þeirra eru
Áslaug Rós, f. 13.10. 1983, Hannes, f.
10.7. 1988, og Valdís, f. 9.10. 1992.
Systkini Sveins voru Snjólaug Að-
alheiður, f. 24.10.1918, d. 1941; Sig-
urður, f. 29.7. 1916, d. 2005; Jón
Gunnlaugur, f. 29.11. 1917, d. 1993 ;
Kjartan, f. 27.2. 1919, d. 1973; Ívar, f.
21.11. 1921, d. 1999, og Stefanía, f.
21.10. 1927, d. 1930.
Foreldrar Sveins voru hjónin
Ólafur Tryggvi Sigurðsson bóndi, f.
2.3. 1891, d. 2.10. 1952, og Kristjana
Jónsdóttir húsfreyja, f. 1.7. 1882, d.
25.2. 1970. Þau bjuggu í Syðra-Holti
í Svarfaðardal.
Sveinn
Blómkvist
Ólafsson
Helga Jónsdóttir
húsfreyja á Fyrirbarði, Barðssókn, Skag.
Seinni kona Guðmundar Árnasonar.
Guðmundur Árnason
bóndi á Steinavöllum í Flókadal,
Skagafirði
Helga Guðmundsdóttir
bústýra í Háakoti í Stíflu, á Brúarlandi í Deildardal, í
Bjarnastaðaseli í Kolbeinsdal og í Klaufabrekknakoti
Jón „læknir“ Halldórsson
bóndi á Hofsá og í Klaufabrekknakoti í Svarfaðardal,
Eyj., Bjarnastaðaseli í Kolbeinsdal og víðar í Skagafirði.
Hagur smiður og fékkst einnig mikið við lækningar.
Kristjana Jónsdóttir
húsfreyja í Syðra-Holti
í Svarfaðardal, Eyj. og á
Krosshóli, Skíðadal, Eyj.
Helga Björnsdóttir
húsfreyja á Bakka í Svarfaðardal, Eyj.
Halldór Jónsson
bóndi og smiður á Bakka í Svarfaðardal.
„Mikill smiður“, segir Espólín.
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal
Runólfur Ísaksson
bóndi á Hreiðarsstöðum í
Svarfaðardal
Júlía Runólfsdóttir
húsfreyja á Þverá í Svarfaðardal
Sigurður Ólafsson
bóndi í Koti og Þverá í Svarfaðardal og á Krosshóli í Skíðadal, Eyj.
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja á Koti í Svarfaðardal
Ólafur Sigurðarson
bóndi á Koti í Svarfaðardal
Úr frændgarði Sveins B. Ólafssonar
Ólafur Tryggvi Sigurðsson
bóndi og meðhjálpari í Syðra-
Holti í Svarfaðardal, Eyj. Síðar á
Krosshóli, Skíðadal, Eyj.
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021
RAGNAR ÆFÐI SIG HELST Á
MINNIHLUTAHÓPUM.
„AFMÆLISGJÖFIN ÞÍN ER ÚTI Í BÍLSKÚR
AÐ HLAÐA RAFGEYMINN Í BÍLNUM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda sambandi þó
höf skilji að.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KÆRI JÓLI,
ÉG VIL EINKAKOKK Í
JÓLAGJÖF.
TIKK, TIKK, TIKK TIKK, TIKK, TIKK
ÍTALA, SEM GERIR
ÞRUSUGOTT
LASAGNA.
HEI, EF MAÐUR SPYR EKKI
FÆR MAÐUR EKKERT!
ÓKEI…
ÞÚ ERT REKINN!FÉLAGAR, ÉG VIL HEYRA ÁLIT
YKKAR! HVERNIG GET ÉG
ORÐIÐ BETRI LEIÐTOGI?
TAKTU SKYNSAMLEGAR
ÁKVARÐANIR!
HEIM
S-
ENDI
R ER
Í NÁN
D
HÆ, MAMMAOG PABBI!
Bók Birgis Kjarans, „Til varnar
frelsinu“, lýkur svo: „Ólafur
Thors var óvenjulaus við að vera
orðsjúkur maður og aðra hafði
hann aldrei að skildi fyrir sér. Það
var ljúft að fylgja þeim leiðtoga.
Vel tel ég þessi vísuorð Þorsteins
Erlingssonar lýsa honum, þótt um
annan sé kveðið:
Þó að öðrum bregði í brún,
bólgni og rjúki leiðin,
siglir hann alltaf efst við hún,
á því þekkist skeiðin.“
Þórunn, dóttir Jóns Arasonar,
var gift Ísleifi Sigurðssyni á Grund
í Eyjafirði. Hann var höfðingi og
skartmaður mikill, en gat ekki börn
við konu sinni. Því lét Þórunn
kveða til hans í vikivaka:
Í Eyjafirði upp á Grund,
á þeim garði fríða,
þar hefur bóndi búið um stund,
sem barn kann ekki að smíða.
Hallur Bjarnason bjó lengi á
Möðrufelli. Hann var svaðamenni
en duglegur og skarpvitur. Hallur
var á alþingi sem Vaðlasýslumaður
1640 en 1641 var hann frá sýslu.
Hann dó nokkrum árum síðar. Við
útför hans var staddur Magnús
Björnsson lögmaður. Er þá sagt að
hann hafi ölvaður kveðið til ekkju
Halls vísu þessa:
Kroppurinn leggst í kistu af tré,
kann ei lengur bramla,
en hvar ætlarðu að sálin sé
seima þöllin gamla?
Ég tók upp Ljóðmæli Gríms
Thomsens af gömlum vana og fletti
upp á „Vísunni hans Æra-Tobba“
en hún er svona:
Veit ég víst hvar vaðið er,
vil þó ekki segja þér.
Fram af eyraroddanum
undan svarta bakkanum.
Út af þessari vísu leggur Grímur
Thomsen þannig:
„Veit ég víst hvar vaðið er“
vaðið yfir lífsins straum;
á bakkanum sætum sofnast þér
svefni fyrir utan draum.
„Veit ég víst hvar vaðið er
vil þó ekki segja þér.“
Enginn þetta þekkir vað,
þó munu allir ríða það.
„Fram af eyraroddanum,
undan svarta bakkanum“,
feigðar út af oddanum
undan grafar bakkanum.
Ég læt þessa stöku Gríms fylgja:
Ljáið byrði lífs mér alla,
létt skal bera meir’ en það,
megi’ eg þreyttur höfði halla
hálsi björtum meyjar að.
Hannes Hafstein kvað:
Karlmanns þrá er, vitum vér,
vefja svanna í fangi.
Kvenmanns þráin einkum er
að hann til þess langi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur héðan og þaðan