Morgunblaðið - 13.07.2021, Side 27

Morgunblaðið - 13.07.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 2021 Fótboltinn kom ekki heim. Hann fór til Rómar. Þetta hljóm- ar að sjálfsögðu betur og rímar rétt á enskri tungu en þannig fóru leikar á Wembley. Ítalir eru Evrópumeistarar karla í fótbolta í fyrsta sinn í 53 ár en Englendingar þurfa að bíða enn lengur en 55 ár eftir stórum titli í heimsfótboltanum. Spurn- ing hvort þeir fái betra tækifæri en þetta. Allt stóð þetta og féll með síðustu vítaspyrnunni þar sem nítján ára enskur strákur kiknaði undan álaginu og 22 ára Ítali stóð uppi sem hetja. Donn- arumma varði tvær síðustu víta- spyrnur Englendinga (ekki þrjár eins og við sögðum í gær!) og það réð úrslitum. En þarna mættust tvö flott lið. Besta enska landslið sem sést hefur í háa herrans tíð og óvenjusóknarsinnaðir Ítalir sem vanalega hafa ekki glatt augað með tilþrifum fyrir framan miðju. Svo er ekki hægt annað en að hrífast með hinum lífsglaða Giorgio Chiellini, fyrirliða Ítala. Varnarjeppi af gamla ítalska skólanum en magnaður karakter. (Hlýtur að vera skyldur Palla Kretovic sem spilaði sömu stöðu í vörn Blika undir lok síðustu ald- ar. Þeir eru fáránlega líkir!) Chiellini bauð upp á skemmtiatriði fyrir víta- spyrnukeppnina gegn Spánverj- um í undanúrslitunum. Hann fagnaði tæklingum og björgunar- aðgerðum í vítateig Ítala og brosti út að eyrum við öll mögu- leg tækifæri. Þetta voru tvö bestu lið mótsins. En þau fá harða sam- keppni á HM í Katar í lok næsta árs þegar Spánverjar, Frakkar, Þjóðverjar og Belgar gætu hæg- lega verið búnir að ná vopnum sínum á ný. Ásamt fleirum. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þrátt fyrir meiri stigamissi en búast hefði mátt við eru Valur og Breiða- blik að hrista af sér aðra keppinauta í úrvalsdeild kvenna og allt stefnir í enn eitt einvígi þeirra um Íslands- meistaratitilinn. Valskonur þurftu að hafa talsvert fyrir því að vinna Stjörnuna 2:0 í Garðabæ í gærkvöld en eru áfram tveimur stigum á undan Blikum. „Leikurinn sem slíkur mun ekki lifa lengi í minninu, andleysi og laus við færi í fyrri hálfleik en aðeins lifn- aði yfir honum eftir hlé þegar efsta lið deildarinnar tók völdin,“ skrifaði Stefán Stefánsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. _ Mary Alice Vignola og Lára Kristín Pedersen skoruðu báðar sitt fyrsta deildarmark fyrir Val. Lára var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn síð- an hún kom frá Napoli fyrr í þessum mánuði. _ Naya Lipkens, bandarískur markvörður, varði mark Stjörn- unnar í fyrsta sinn en hún kom frá Víkingi R. um helgina. Breiðablik var hinsvegar ekki í teljandi vandræðum með Fylki og vann öruggan 4:0 sigur í Árbænum. „Með innkomu belgísku landsliðs- konunnar Chloé Vande Velde er komið meira jafnvægi á miðjunni hjá Breiðabliki og Íslandsmeistararnir stýrðu leiknum frá a til ö. Þá var gaman að sjá Hildi Antonsdóttur koma inn á og skora en hún lék að- eins tvo leiki síðasta sumar vegna meiðsla. Sigurinn var mjög verð- skuldaður, þótt Fylkiskonur séu ef- laust svekktar yfir hve stór hann var,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórs- son m.a. í grein um leikinn á mbl.is. _ Áslaug Munda Gunnlaugs- dóttir skoraði tvö fyrri mörk Breiða- bliks. Hún hefur þá skorað fjögur mörk í deildinni í ár og öll gegn Fylki. Hún gerði hin tvö í fyrstu um- ferðinni þegar Blikar unnu heima- leikinn gegn Árbæjarliðinu 9:0. _ Hildur Antonsdóttir innsiglaði sigur Blika með glæsilegu marki í uppbótartíma leiksins. Morgunblaðið/Unnur Karen Garðabær Valskonan Ída Marín Hermannsdóttir með Stjörnukonurnar Heiðu Ragneyju Viðarsdóttur og Gyðu Kristíni Gunnarsdóttur á hælunum. Allt stefnir í annað einvígi - Valur og Breiðablik unnu bæði Samningur miðjukonunnar við stórlið Lyon rennur út næsta sum- ar en hún gekk til liðs við franska félagið frá Wolfsburg sumarið 2020. „Í besta falli fæ ég nýjan samn- ing hjá Lyon og fæ góðan tíma til þess að koma mér aftur í mitt besta form,“ sagði Sara Björk. „Ég átta mig líka á því að ef ég er ekki í góðu standi þá gæti sú staða komið upp að þeir vilji ekki endursemja við mig. Ég tel mig samt vera búna skapa mér ákveðið nafn og ég ætti þar af leiðandi að vera með einhverja möguleika í stöðunni, sama hvað gerist. Ég er alls ekki búin og mig langar að spila í hæsta gæðaflokki sem móð- ir,“ bætti Sara Björk við. „Ég hef alltaf verið í líkamlega góðu formi og vonandi mun það hjálpa mér þegar ég sný aftur á knattspyrnuvöllinn,“ sagði Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði ís- lenska kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu og leikmaður Lyon í Frakklandi, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgun- blaðsins. Sara Björk, sem er þrítug, á von á sínu fyrsta barni í nóvember á þessu ári ásamt sambýlismanni sínum Árna Vilhjálmssyni. Vill spila áfram í hæsta gæðaflokki Morgunblaðið/Eggert Barnshafandi Sara Björk á von á sér í nóvember á þessu ári. FYLKIR – BREIÐABLIK 0:4 0:1 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 34. 0:2 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 56. 0:3 Taylor Ziemer 63. 0:4 Hildur Antonsdóttir 90. MM Áslaug M. Gunnlaugsdóttir (Breiðab.) M Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (Fylki) Sæunn Björnsdóttir (Fylki) Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki) Heiðdís Lillýardóttir (Breiðablik) Taylor Ziemer (Breiðabliki) Cloé Vande Velde (Breiðabliki) Selma Sól Magnúsdóttir (Breiðabliki) Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki) Dómari: Aðalbjörn Þorsteinsson – 7. Áhorfendur: 384. STJARNAN – VALUR 0:2 0:1 Mary Vignola 72. 0:2 Lára Kristín Pedersen 81. M Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni) Málfríður Erna Sigurðardóttir (Stjörn.) Heiða Ragney Viðarsdóttir (Stjörnunni) Mary Alice Vignola (Val) Dóra María Lárusdóttir (Val) Ída Marín Hermannsdóttir (Val) Dómari: Arnar Þór Stefánsson – 8. Áhorfendur: Um 100. MEISTARADEILD Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Íslandsmeistarar Vals fá Króat- íumeistara Dinamo Zagreb í heim- sókn á Origo-völlinn að Hlíðarenda í kvöld þegar liðin mætast öðru sinni í 1. umferð Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikurinn í Zagreb í síðustu viku tapaðist naumlega, 3:2, eftir magnaðan endasprett Valsmanna. Í stöðunni 3:0 blés ekki byrlega fyrir Val og útlitið dökknaði enn frekar þegar Dinamo fékk sína aðra vítaspyrnu seint í leiknum. Hannes Þór Halldórsson varði hana hins vegar og Kristinn Freyr Sigurðsson og Andri Adolphsson skoruðu svo sitt markið hvor fyrir Val með mín- útu millibili skömmu fyrir leikslok. Birkir Már Sævarsson þakkar góðri innkomu varamanna helst fyr- ir endurkomuna frábæru. „Þeir sem komu inn á voru vel stemmdir, góðir og ferskir. Leikmenn Dinamo urðu kannski ögn kærulausir og við geng- um bara á lagið. Þeir voru farnir að liggja til baka og beita skyndisókn- um til þess að halda leiknum í 3:0 og fannst það bara fínt. Þeir hafa kannski ætlað að reyna að spara orku og sækja hratt á okkur,“ sagði hann við Morgunblaðið. Þeir voru komnir á hælana „Þeir voru næstum því búnir að ná inn þessu fjórða marki og það hefði verið helvíti þungt. En sem betur fer varði Hannes vítið og svo komu varamennirnir sterkir inn þegar við þurftum á ferskum fótum að halda. Við héldum áfram að gera okkar, það sem við vorum að gera. Það gekk svolítið illa í fyrri hálfleik, við vorum ekkert sérstakir í honum og þeir auðvitað góðir, en við héldum áfram, héldum okkar striki og það skilaði sér í þessum tveimur mörk- um undir lokin,“ hélt Birkir áfram. Spurður hvort vítaspyrnuvarsla Hannesar hafi gefið Val byr undir báða vængi sagði hann: „Já það er alltaf peppandi þegar víti er varið, það er frábært, en hvort það hafi gefið okkur eitthvert spark í rassinn veit ég ekki. Fyrra markið gaf okk- ur smá aukinn kraft til þess að halda áfram. Við sáum að þeir voru komnir aðeins á hælana.“ Möguleikarnir fínir Birkir Már sagði leikinn í kvöld leggjast vel í Valsliðið. „Eftir fyrri leik á móti sterkum liðum í Evr- ópukeppni vill maður eiga mögu- leika í seinni leiknum og við eigum það klárlega. Við erum bara spennt- ir og með mikla trú á verkefninu.“ Mikilvægt væri að byggja ofan á lokaspretti fyrri leiksins. „Við sáum það í fyrri leiknum, sérstaklega í seinni hálfleik sem var auðvitað miklu betri en fyrri hálfleikurinn, að við þorðum aðeins meira og það var allt aðeins betra í honum. Við þurf- um að halda áfram þar sem frá var horfið í lokin á síðasta leik.“ Því mæti hann möguleika liðsins á að komast áfram í næstu umferð sem prýðilega. „Við sáum að það væri möguleiki á því að skora á þá mörk þannig að við þurfum að gera aðeins betur varnarlega og reyna að koma í veg fyrir að þeir refsi fyrir öll mistök okkar. Nánast fyrir hver einustu mistök sem við gerðum í fyrri leiknum var refsað með marki. Ef við náum að forðast að gera mistök og reynum að nýta þessa möguleika fram á við eins og við gerðum í síðasta leik þá eru mögu- leikarnir fínir,“ sagði Birkir Már að lokum í samtali við Morgunblaðið. Vinnur Valur kraftaverk? - Marki undir gegn sterku liði Dinamo fyrir seinni leikinn á Hlíðarenda í kvöld Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Einbeittir Orri Sigurður Ómarsson, Birkir Már Sævarsson og Rasmus Christiansen glíma við sterka sóknarmenn Dinamo Zagreb í kvöld. Enska knatt- spyrnufélagið Manchester Unit- ed hefur fengið leyfi til að ræða við franska varn- armanninn Raphaël Varane sem leikur með Real Madrid. United og Real eiga hins vegar enn eftir að komast að sam- komulagi um kaupverðið. Paris SG hefur einnig áhuga á Varane. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Real Madrid og vill Unit- ed að kaupverðið verði lágt vegna þessa, en hann getur annars farið á frjálsri sölu til enska félagsins eftir tímabilið. Varane hefur verið í her- búðum Real frá 2011 og leikið yfir 350 leiki með liðinu. Þá á hann 79 landsleiki að baki fyrir Frakkland. United má ræða við Varane Raphaël Varane Úrslitakeppni NBA Þriðji úrslitaleikur: Milwaukee – Phoenix ....................... 120:100 _ Staðan er 2:1 fyrir Phoenix og fjórði leik- ur í Milwaukee annað kvöld. 4"5'*2)0-#

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.