Morgunblaðið - 13.07.2021, Page 32
Myndlistarmaðurinn Páll Haukur Björnsson er iðinn við
kolann og tekur nú þátt í fjórum myndlistarsýningum á
jafnmörgum stöðum. Páll er á mála hjá galleríinu BERG
Contemporary og eru sýningarnar ýmist einka- eða
samsýningar og eru í Listasafni Reykjavíkur, Verksmiðj-
unni Hjalteyri, Neskirkju og í BERG Contemporary, eins
og lesa má um á vefsíðu hans, pallhaukur.com.
Páll Haukur Björnsson tekur þátt
í fjórum myndlistarsýningum
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sveitasjoppa er miðlæg stofnun:
mannlífsmiðstöð þar sem fólk sækir
nauðsynjar en líka til þess að blanda
geði og ræða málefni dagsins. Á
löngum tíma hér hef ég kynnst mikl-
um fjölda fólks sem hér hefur staldr-
að við; mér finnst ég stundum
þekkja hálfa þjóðina,“ segir Gunnar
Egilsson, kaupmaður í versluninni
Árborg í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi. Söluskálinn er nærri Árnesi
og er við þjóðbraut, þar sem leiðin
liggur í Þjórsárdal og inn á hálendið.
Festum rætur í þessu umhverfi
Þau Gunnar og Sigrún Halldórs-
dóttir kona hans fluttu úr Reykjavík
árið 1985. Voru tvö ár í Reykjanesi
við Djúp með mötuneyti og sumar-
hótel, stóðu vaktina í Skálholtsskóla
í eitt ár en árið 1988 fregnuðu þau að
fólk vantaði til að sjá um verslun við
Árnes sem Olíufélagið hf. setti á fót
tveimur árum fyrr.
„Við tókum hér við í aprílbyrjun
1988. Festum fljótt rætur í þessu
umhverfi sem hentar okkur vel. Er-
um í hestamennsku, eigum hér land-
spildu og hús hér í þorpinu við Ár-
nes. Satt að segja verður ekki á
betra kosið. En auðvitað er maður
ekki að yngjast og barátta við
krabbamein tók toll. Við höfum því
gefið út að við viljum selja rekst-
urinn, ef einhver er kaupandinn.
Fyrir framtakssamt fólk er þetta
frábært tækifæri,“ segir Gunnar.
Árborg er í alfaraleið
Sveitafólkið stoppar gjarnan í Ár-
borg, þar sem seld er dagvara og
raunar margt fleira. Yfir sumartím-
ann eru ferðamenn allsráðandi með-
al viðskiptavina. Eftir ládeyðu síð-
ustu misserin er ferðaþjónustan
komin á fullt – og margir fara þá ein-
mitt í uppsveitir Árnessýslu.
„Nú í morgun komu hér við þrjár
rútur með ferðamenn á leið í Land-
mannalaugar. Margir sem staldra
hér við stefna í Veiðivötn, norður
Sprengisand og svo framvegis. Ár-
borg er í alfaraleið og nafnið verður
ekki frá okkur tekið, þótt sveitarfé-
lag í Flóanum heiti það sama. Við
vorum langt á undan,“ segir Gunnar.
Afgreiðslan er ævintýrið
Í verslunarrekstrinum í Árborg er
verkaskiptingin skýr. Sigrún sér um
pantanir, innkaup og að ekkert vanti
en Gunnar um að sækja aðföng og
útisvæðið, plön, bensíndælur og um-
hverfið sem þarf að vera snyrtilegt.
„Auk þess að vera með starfsfólk er-
um við svo bæði í afgreiðslu sem
auðvitað er ævintýrið í þessu starfi;
að spjalla við fólkið – ólíkt eins og
það er margt,“ segir Gunnar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveitaverslun Gunnar Egilsson og Sigrún Halldórsdóttir við söluskálann Árborg þar sem margir staldra við.
Mér finnst ég stundum
þekkja hálfa þjóðina
- Gunnar og Sigrún hafa verið 34 ár á sjoppuvakt í Árnesi
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 194. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Skagamenn eru komnir í vonda stöðu á botni úrvals-
deildar karla í fótbolta eftir ósigur gegn Leikni í Efra-
Breiðholti í gærkvöld. Þeir eru nú verr settir en þeir
voru á sama tíma í öll þrjú skiptin sem þeir hafa áður
fallið úr deildinni á þessari öld. Leiknismenn eru hins-
vegar komnir í efri hluta deildarinnar og hafa fengið
þrettán stig á heimavelli sínum. »26
Slæmt útlit hjá Skagamönnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
400l farangursboxið er núhægt að kaupa á netinu
og fá fría heimkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu.
Hlaupahjól semer byggt til að endast.Með fjöðrun á bæði
fram- og afturdekki. Öryggi er einnig í fyrirrúmimeð lýsingu
að framanog aftan.
Hjólafesting frá Thule sempassar gjörðum frá 16-29".
Togstýring kemur í veg fyrir að festingin sé hert ofmikið
og fer því beturmeðhjólið þitt.
Farangursbox
InvictaMicroMerlin
Hjólafesting á toppboga
Verð frá:49.990kr.
Verð frá: 109.990kr.
Verð frá:28.990kr.
VefverslunBL
Frábært úrval af aukahlutum, ferðabúnaði,
gjafavörum og rafhjólum í nýrri vefverslun okkar.
Kíktu á úrvalið áwww.bl.is/vefverslun
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
6
6
2
0