Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 1
M Á N U D A G U R 2 6. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 173. tölublað . 109. árgangur .
Bókaðu borgarferð í haust og byrjaðu að telja niður dagana.
FÓR ÚR SÖNG
YFIR Í LEIKLIST
Á BROADWAY
DEILUR
Í NÍGERÍU
TEFJA SKILIN
VALUR OG VÍKINGUR
AÐ STINGA AF Í
PEPSI-DEILDINNI
BENIN-BRONSIÐ 29 ÍÞRÓTTIR 26HEIÐA FERTUG 24
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, væntir ekki mikilla átaka þegar
endurskoðunarákvæði lífskjara-
samningsins virkjast í haust.
„Maður veit ekki hvernig stemn-
ingin verður með haustinu eða hver
staðan á faraldrinum verður. Á þess-
ari stundu er ekki mikil stemning,
hvorki í samfélaginu né innan verka-
lýðshreyfingarinnar, fyrir átökum
eða aðgerðum
sem auka á óvissu
í þjóðfélaginu
samhliða fjölgun
smita. Það er mitt
mat, en þetta get-
ur breyst hratt og
það mun fara eft-
ir stemningunni
hjá okkar félags-
mönnum og í
samfélaginu hver
afstaða okkar verður til þessarar
endurskoðunar í haust,“ segir Ragn-
ar Þór um stöðuna.
Ekki staðið við loforðin
„Fulltrúar Alþýðusambands Ís-
lands og stóru félaganna munu setj-
ast niður og meta stöðuna út frá því
hversu mikil áhrif vanefndir ríkis-
stjórnarinnar munu hafa á kjara-
samningana. Þá munum við meta hin
hagrænu áhrif faraldursins, ekki að-
eins á Íslandi heldur í heiminum öll-
um, og hvort þau séu farin að ganga
til baka,“ segir Ragnar Þór og vísar
til áhrifa faraldursins á verðbólgu. Á
næsta ári verði gerð krafa um launa-
hækkanir sem jafni út verðbólguna.
Ragnar Þór segir vaxtalækkanir
Seðlabankans hafa haft jákvæð áhrif
á kaupmátt sinna félagsmanna. Hins
vegar hafi stjórnvöld sýnt granda-
leysi með því að vera ekki nógu vel
búin undir þá spennu sem myndaðist
í kjölfarið á fasteignamarkaðnum.
Ekki stemning fyrir átökum
- Formaður VR vísar til veirunnar - Skort hafi mótvægi við vaxtalækkanir
MVerðbólguþróunin … »6
Ragnar Þór
Ingólfsson
Líklega síðustu útihátíðir sumars-
ins fóru fram um helgina, þar á
meðal Bræðslan á Borgarfirði
eystri. Samkvæmt forsvarsmanni
hátíðarinnar gekk hún eins og í
sögu og var aðsóknin góð þrátt fyr-
ir samkomutakmarkanir innan-
lands sem tóku gildi á miðnætti á
laugardag. Öllum hátíðum versl-
unarmannahelgarinnar hefur verið
aflýst.
Alls greindust 183 ný smit á
föstudag og laugardag, um 70%
þeirra sem þau báru voru bólusett-
ir. Víðir Reynisson yfirlög-
regluþjónn segir það vonbrigði að
bólusetning skuli ekki verja fólk
betur gegn smiti. Hann segir þó að
ef ekki væri fyrir bólusetningar
væri um svo stóran faraldur að
ræða „að við værum búin að missa
algjörlega tökin á þessu“. Nú eru
544 í eftirliti á Covid-göngudeild
Landspítala og 130 í einangrun í
farsóttarhúsi. Már Kristjánsson
yfirlæknir segir að farið sé að bera
á endursýkingum í nokkrum til-
vikum. Það séu einstaklingar sem
hafi ekki þegið bólusetningu eftir
fyrra smit og eru nú smitaðir af
Delta-afbrigðinu. »2-6
Morgunblaðið/Ari Páll Karlsson
Síðustu
útihátíðir
sumarsins
Tónlistarhátíð Tónleikagestir á Bræðslunni njóta hér síðasta hálftímans án takmarkana innanlands sl. laugardagskvöld, að loknum tónleikunum.
_ Óbreyttar aðstæður í rekstri
kirkna kalla á uppstokkun í
starfi þeirra. Þetta segir sr.
Pálmi Matthíasson, sóknar-
prestur við Bústaðakirkju í
Reykjavík, sem í næsta mánuði
lætur af embætti vegna aldurs.
Sóknargjöld hafa ekki fylgt
verðlagsþróun sem kemur niður
á safnaðarstarfi, segir Pálmi,
sem telur jafnvel að ekki verði
grundvöllur fyrir rekstri ein-
hverra kirkna. Starf í sóknum
landsins segir Pálmi að standi
sterkt og standi fólki nærri, en
þjóðkirkjan sem stofnun sé í ann-
arri stöðu. » 10
Uppstokkun í starfi
kirkna er hugsanleg