Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 2

Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 2
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI2 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021 TENERIFE 30. JÚLÍ - 10. ÁGÚST | 11 DAGAR FLUG & GISTING Á APARTHOTEL VERÐ FRÁ: 84.900 KR. *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR INNIFALIÐ Í VERÐI FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR FLUG OG HANDFARANGUR FLUG VERÐ FRÁ: 49.900 KR.* WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ragnhildur Þrastardóttir Urður Egilsdóttir Alls greindust 88 smit innanlands í fyrradag og 95 á föstudag. Flestir smitaðra eru bólusettir eða um 70%. Spurður hvort mikið sé um endursýk- ingar smitaðra segir Már Kristjáns- son, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítala, svo ekki vera. „Þetta er rétt að koma upp núna en þetta eru örfáar endursýkingar,“ segir Már og bætir við að í því felist að fólk hafi fengið veiruna og síðan almennt ekki þegið bólusetningu eftir smitið. „Við erum að reyna að átta okkur á hvers kyns þetta er.“ Már segir að um sé að ræða ein- staklinga sem séu nú að smitast af Delta-afbrigðinu en hafi smitast af öðru afbrigði fyrst. Vernd bólusetninga vonbrigði Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að það séu vonbrigði að bólu- setning gegn Covid-19 skuli ekki verja fólk betur fyrir kórónuveiru- smiti en án bólusetningar væru Ís- lendingar líklega búnir að missa tökin algjörlega á faraldrinum. Um 50% bólusettra virðast ná að verjast kór- ónuveirusmiti. Spurður hvort bólusetningin sé að bregðast hvað varðar vernd fyrir smitum segir Víðir: „Já, ég held að þetta séu vonbrigði. Það reiknuðu all- ir með því að þetta myndi verja betur og við erum alltaf að sjá nýjar tölur, til dæmis frá Ísrael þar sem vernd- arhlutfallið þar kemur verr út með hverri rannsókninni sem þeir birta. Það er svolítið að endurspeglast hjá okkur. Þetta Delta-afbrigði [kórón- uveirunnar] smitast mjög hratt og það er hár smitstuðull af því. Sem betur fer eru bólusetningarnar að virka vegna þess að annars værum við væntanlega með svo stóran far- aldur að við værum búin að missa al- gjörlega tökin á þessu. Við hefðum viljað sjá betri árangur en bólusetn- ingarnar eru klárlega að hjálpa mjög mikið.“ Smit í útskriftarferð Um helgina kom hópur nemenda Flensborgarskólans úr útskriftarferð frá Krít og eru þeir nú komnir í sóttkví. 30 nemendur greindust smit- aðir við komuna til landsins en allir samferðamenn þeirra í vélinni eru komnir í sóttkví. Alls eru nú 1.635 í sóttkví og 1.154 í skimunarsóttkví. 544 í eftirliti 544 einstaklingar eru nú í eftirliti á Covid-göngudeild Landspítala, þar af er 51 barn. Af þeim sem eru í eftirliti eru 15 gulmerktir og einn rauðmerkt- ur. Þá eru þrír sjúklingar inniliggj- andi á legudeildum. Þannig eru 97% smitaðra enn með lítil eða engin ein- kenni. Þá eru níu starfsmenn spítal- ans í einangrun, 22 í sóttkví og 242 í vinnusóttkví. Spítalann er nú á hættustigi og eru því í gildi mjög strangar heimsóknarreglur. Aðeins einn gestur má heimsækja sjúkling á dag og mælst til þess að börn undir 12 ára aldri komi ekki nema með sér- stakri undanþágu. Heimsóknargestir verða að virða grímuskyldu öllum stundum. Þá er starfsfólk beðið um að gæta ýtrustu varúðar varðandi ein- staklingsbundnar sóttvarnir. Nýjar reglugerðir Á miðnætti í fyrrinótt tóku gildi nýjar takmarkanir innanlands en þar ber helst að nefna að fjöldatakmark- anir eru 200 manns, nándarregla er almennt einn metri og grímuskylda er þar sem rými er illa loftræst eða ekki er unnt að tryggja fjarlægðar- takmörk. Á miðnætti í kvöld tekur einnig gildi ný reglugerð á landamær- unum þar sem segir að allir bólusettir einstaklingar, eða þeir sem eru með staðfesta fyrri sýkingu sem koma til Íslands, þurfi að framvísa neikvæðu Covid-prófi. Farið að bera á endursýkingum - 70% smitaðra síðustu daga bólusettir - Örfáar endursýkingar - Víðir segir vernd bólusetninganna vonbrigði - 30 smitaðir eftir útskriftarferð - 544 í eftirliti á Covid-göngudeild - 97% með lítil einkenni Morgunblaðið/Odd Skimun Smitum hefur fjölgað mikið undanfarið vegna Delta-afbrigðisins. Yfir 3.000 sýni eru nú tekin daglega. Már Kristjánsson Víðir Reynisson okkur sumarfrí í ágúst en hvort það verði af því er erfitt að segja. Við reynum að hvílast og gefa fólkinu okkar frí þegar það er hægt. Með þessari opnun í kvöld erum við nokk- uð vel sett, alla vega næstu vikurnar nema eitthvað enn verra gerist.“ Gylfi segir að fólk í farsóttarhús- inu sé yfirleitt frekar einkennalaust fyrstu vikuna en þegar byrjar að líða Logi Sigurðarson logis@mbl.is Róðurinn hefur verið þungur hjá starfsfólki farsóttarhúsa Rauða krossins, farsóttarhúsin tvö yfirfyllt- ust af fólki, en um 130 manns voru í einangrun í tveimur farsóttarhúsum í gær. Gripið var til þess ráðs að opna nýtt farsóttarhús við Skúla- götu, þar sem Fosshótel Baron er til húsa. Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónar- maður farsóttarhúsanna, segir vel hafa tekist að opna þriðja farsótt- arhúsið. Í fyrstu vantaði starfsmenn í nýja húsið en Gylfi sagði umsóknir byrjaðar að streyma inn. Sjálfboða- liðar innan Rauða krossins aðstoð- uðu við að opna húsið. „Við náðum að opna húsið og ég á ekki von á öðru en að fólk taki við sér. Umsóknir streyma inn til okkar. Fólk er greinilega með okkur í liði.“ Gylfi segir aðeins sjö starfsmenn sjá um farsóttarhúsin og sinni þeir um 130 manns. Lítið hefur verið um sumarfrí og virðist sem langt sé í það ef smitum heldur áfram að fjölga. „Einhver okkar hafa tekið nokkra daga í sumarfrí en alls ekki allir, við erum horfa til þess að reyna að taka á þá seinni verða einkenni svæsnari. „Við erum að sjá einkenni koma fram í upphafi seinni vikunnar jafn- vel eða í lok þeirrar fyrri. Þau ein- kenni geta verið ansi kræf, en hjá flestum ganga þau nokkuð hratt yfir á tveimur til þremur dögum. Þó hafa nokkrir farið upp á spítala til þess að fá aukna aðstoð og alla vega tveir gestir okkar hafa verið lagðir inn.“ Farsóttarhúsin fylltust og því þriðja bætt við - Sjö starfsmenn sáu um 130 smitaða í húsunum tveimur Morgunblaðið/Sigurður Unnar Covid Starfsmenn Rauða krossins tóku í gærkvöldi á móti fólki í nýju far- sóttarhúsi, þar sem Fosshótel Barón er til húsa við Skúlagötu. 544 voru í eftirliti á Covid-göngudeild Landspítala kl. 18 í gær. 528 voru þar af grænmerktir, með væg eða engin einkenni. 15 voru gulmerktir, með aukin einkenni. 1 var rauðmerktur á göngudeildinni, með alvarlegri einkenni 183 ný smit greindust á föstudag og laugardag. 130 voru í einangrun í gær í farsótt- arhúsum með virkt smit. 3 voru inniliggjandi á Landspítala vegna Covid-19. FJÓRÐA BYLGJA COVID-19 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.