Morgunblaðið - 26.07.2021, Síða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
595 1000
ur
br
s
á
60+
meðBirgitte Bengston
Benidorm
Verð frá kr.
189.900
FRÁBÆRT VERÐ!
16. eða 23. september í 16 nætur
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Síðasta launahækkun lífskjarasamn-
inganna tekur gildi 1. janúar en þeir
renna út um mitt næsta ár. Launa-
taxtar hækka þá um 25.000 krónur
en almenn laun um 17.250 krónur.
Spurður hvaða launakröfur menn
munu gera, í ljósi vaxandi verðbólgu
á síðari hluta samningstímans, sem
er frá 2019 til 2022, segir Ragnar Þór
Ingólfsson, formaður VR, að kaup-
máttur launþega verði tryggður.
Gengur verðbólgan til baka?
„Við erum þegar byrjuð að undir-
búa kröfugerð og farin að hugsa til
næstu endurskoðunar á samningun-
um sem verður 1. október. Þetta er
flókin staða. Margir þættir skapa
verðbólguna. Þar með talið ytri að-
stæður sem skýrast meðal annars af
áhrifum kórónuveirunnar á kostnað-
arverð innfluttrar vöru. Mun það
ganga til baka að einhverju leyti?
Svo er það þáttur húsnæðisverðs í
verðbólgunni. Það er erfitt að greina
stöðuna og það er ólíklegt að við
verðum komin
með skýra mynd
af henni við end-
urskoðun samn-
inga í haust. Það
er sömuleiðis
ólíklegt að farið
verði út í róttæk-
ar aðgerðir.“
– Hvað felst í
endurskoðuninni
í september?
„Þá verður horft til nokkurra
þátta. Fyrst ber að nefna kaupmátt-
inn og hvernig hann verður í haust.
Við gerðum kröfu um að vextir
myndu lækka sem gekk eftir. Hins
vegar stendur upp á efndir ríkis-
stjórnarinnar varðandi verðtrygg-
ingu, starfskjaralögin og ýmis önnur
mál en töluvert vantar upp á að þau
loforð hafi verið efnd. Eina atriðið
sem var tímasett varðaði afnám hús-
næðisliðar úr vísitölu neysluverðs.
– Ef verðbólgan verður áfram
4-5% mun þá verða gerð krafa um
launahækkun sem er að minnsta
kosti jafn mikil á ári á tímabili næsta
samnings?
„Já það munum við gera. Það er
okkar hlutverk að tryggja að kaup-
máttur haldist og aukist svo þegar
innistæða er fyrir því. Við munum
aldrei sætta okkur við það að kaup-
máttur launa rýrni, sérstaklega þeg-
ar vel gengur í atvinnulífinu að
ferðaþjónustunni undanskilinni.
Vilja ramma um fjarvinnuna
– En atvinnuleysið? Mun það
koma við sögu í næstu kröfugerð?
„Ég reikna með því að atvinnu-
stigið og breytingar á störfum, í kjöl-
far „fjórðu iðnbyltingarinnar“, verði
mjög fyrirferðarmikil í næstu samn-
ingum. Við þurfum að ramma fjar-
vinnuna betur inn og tryggja að al-
menn réttindi eins og veikinda-
réttur, tryggingar og hvíldartími
skerðist ekki ásamt því að jafnræðis
sé gætt á milli þeirra sem hafa að-
stöðu til heimavinnu og þeirra sem
hafa það ekki. Einnig að aðgangur að
nauðsynlegum búnaði verði tryggð-
ur. Svo eru það viðbrögð við mögu-
legri fækkun starfa og hvernig við
bregðumst við aukinni sjálfvirkni-
væðingu. Þar kemur áframhaldandi
stytting vinnuvikunnar sterk inn og
hvernig við getum notað skattkerfið
til að bregðast við alþjóðavæðingu,
aukinni sjálfvirkni og úthýsingu
starfa. Það jákvæða er að við höfum
nú þegar, í mjög góðu samstarfi við
atvinnulífið og stjórnvöld, hafið
þessa vinnu en eigum eftir að ramma
þetta betur inn í kjarasamninga.
Mestu máli skiptir að ávinningnum
sem af þessu verður verði skipt með
sanngjörnum hætti milli atvinnulífs-
ins og vinnandi fólks sem og sam-
félagsins alls,“ segir Ragnar Þór.
Hrakspárnar rættust ekki
Hagþróunin í faraldrinum sýni að
þvert á hrakspár hafi launahækkanir
lífskjarasamningsins haft jákvæð
áhrif á rekstur fyrirtækja.
„Við sjáum það á stöðu fyrirtækja
að þau eru flest að stórauka veltu
sína. Þá sérstaklega skráðu félögin í
kauphöllinni. Sömuleiðis hefur
launakostnaður sem hlutfall af veltu
farið lækkandi. Afkoman er umfram
væntingar og verðbréfavísitalan í
kauphöllinni hefur hækkað gríðar-
lega. Það er því ljóst að allt tal um að
launahækkanir myndu hafa neikvæð
áhrif á hagkerfið stangast á við raun-
veruleikann og þær hagtölur sem við
höfum fyrir framan okkur. Menn
virðast hafa mikla trú á hlutabréfum
og þau hafa hækkað.“
Grandaleysi hjá stjórnvöldum
– Nú hafa íbúðir hækkað í verði í
kjölfar þess að vextir voru lækkaðir
en það var auðvitað krafa ykkar að
draga úr vaxtamun við útlönd.
Hvernig hefur kaupmátturinn í hús-
næði þróast fyrir þína félagsmenn?
„Að mörgu leyti hefur þróunin
verið jákvæð. Að sama skapi var það
grandaleysi hjá stjórnvöldum að
vera ekki nógu vel búin undir þessa
spennu, eða áhlaup á fasteignamark-
aðinn, sem kemur í kjölfar þess að
fólk getur skuldsett sig meira og tek-
ið hærri lán. Það kom nýr hópur inn
á markaðinn sem hafði áður hvorki
greiðslugetu né aðgang að fasteigna-
markaðnum. Það er margt jákvætt
við það en um leið hefur þetta orðið
til þess að fasteignaverð hefur rokið
upp úr öllu valdi og það er mikið
áhyggjuefni.“
Verðbólguþróunin óvissuþáttur
- Formaður VR segir verkalýðshreyfinguna munu taka tillit til verðbólguþróunar í komandi kröfugerð
- Áfram verði barist fyrir styttingu vinnuvikunnar - Hækkun fasteignaverðs sé mikið áhyggjuefni
Ragnar Þór
Ingólfsson
Gjörgæslurýmum á Landspítalanum
hefur fækkað til muna í sumar og
sem stendur eru aðeins tíu rými opin.
Sigríður Gunnarsdóttir, starfandi
forstjóri Landspítalans, segir þetta
ekki óeðlilegt en margir starfsmenn
spítalans eru nú í sumarleyfi og erfitt
sé að fá afleysingar á gjörgæslu.
„Ef við sjáum fjölgun innlagna á
gjörgæslu vegna Covid þá opnum við
fleiri rými. Ef það verður mikið álag á
spítalann þá þyrftum við að kalla fólk
inn úr sumarleyfum og leita í bak-
varðalista og annað slíkt, sem við höf-
um gert í fyrri bylgjum. En við erum
að reyna á meðan það er ekki nauð-
syn að leyfa fólki að vera í sumarfríi.
Fólkið okkar er búið að standa langa
vakt og er þreytt.“
Sigríður segir ekkert benda til
þess að innlagnir á gjörgæslu séu að
fara að aukast, en það eigi eftir að
koma í ljós þegar á líður á þessa
bylgju.
„Það hafa margir greinst undan-
farið en þeir eru
ekki búnir að vera
veikir nógu lengi
til þess að vera
farnir að sýna
þessa týpísku
sjúkdómsmynd
sem verður þegar
þeir veikjast. Við
förum að sjá það
eftir viku, tíu
daga. Þá sjáum
við hver innlagnatíðnin verður miðað
við bylgjurnar á undan. Það eru vís-
bendingar um að það er ekki eins há
innlagnatíðni og áður. En við tökum
enga áhættu, við grípum til aðgerða
ef það stefnir í að við þurfum að
manna betur eða manna meira eins
og á gjörgæslu.“
Sigríður segir háa smittíðni í sam-
félaginu mikið áhyggjuefni, það
þyngi róðurinn á spítalanum ef
starfsfólk hans þurfi að sæta sóttkví
eða einangrun. logis@mbl.is
Rúmum á gjör-
gæslu fækkað
- Stöðugt verið að endurmeta stöðuna
Sigríður
Gunnarsdóttir
Útför Þórunnar Egilsdóttur, þingkonu Framsóknar-
flokksins í Norðausturkjördæmi, fór fram frá
Vopnafjarðarkirkju á laugardag. Kistu hennar báru
Arnar Már Ellertsson, Svava Sæberg, Gunnhildur
Louise Sigurðardóttir, Egill Örn Egilsson, Guðrún
Helga Ágústsdóttir, Axel Örn Sveinbjörnsson, Guð-
mundur Friðbjarnarson og Kristjana Louise Frið-
bjarnardóttir. Séra Þuríður Árnadóttir sóknar-
prestur jarðsöng. Þórunn lést 9. júlí sl. eftir baráttu
við krabbamein.
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Útför Þórunnar Egilsdóttur
Mikill gangur var í eldgosinu í Geld-
ingadölum í gær, þótt krafturinn í
gosinu mælist mun minni nú en áður.
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í
eldfjallafræði við Háskóla Íslands,
segir að staðan á gosinu sé að mestu
óbreytt þrátt fyrir að nokkuð styttra
sé á milli púlsandi virkni þess, eða
um sjö klukkustundir þar sem virkn-
in hefur dregið sig til hlés. „Það var
ansi góð hrina sem hófst um hádegi á
sunnudag og var það fimmta hrinan í
þessum fasa. Þetta er á nokkuð réttu
róli,“ segir Þorvaldur.
„Ég sé ekki neitt sem segir að
gangur gossins sé að breytast, það er
á sínum takti,“ segir hann og bætir
við að gott gengi sé í gosinu.
Hraunrennsli fer lækkandi
„Við sáum meira að segja góðan
bjarma og jafnvel strók eða glóð úti á
Reykjanesinu. Síðan datt þetta að-
eins niður,“ segir Sigþrúður Ár-
mannsdóttir, náttúruvársérfræðing-
ur hjá Veðurstofu Íslands, og bætir
við að gosið sé þó í góðum gír núna
og hraun renni ofan í Meradali.
Áður rann hraun einnig í Nátt-
haga en meðalhraunrennsli hefur
farið minnkandi og er aðeins 60-65%
af því sem var lengst af í maí og júní.
Gott gengi í eld-
gosinu um helgina
- Góður bjarmi sást af Reykjanesinu
Ljósmynd/Vefmyndavél mbl.is
Eldgos Mikill gangur var í eldgos-
inu í Geldingadölum í gær.
Fresta hefur þurft landsfundi sjálf-
stæðismanna í tvígang vegna Co-
vid-19, að sögn Þórðar Þórarins-
sonar, framkvæmdastjóra
flokksins. „Það var stefnt á að
halda hann í vor en honum var sleg-
ið á frest. Nú er búið að færa hann
yfir á 27. ágúst en það er allt saman
bara óvíst,“ segir hann í samtali við
Morgunblaðið.
Aðspurður segir Þórður ekki bú-
ið að taka ákvörðun um það hvort
fundinum verði frestað aftur eða
hvort hann verði með breyttu sniði
í ár. „Þetta er svo nýskeð allt saman
að það hefur engin umræða farið
fram um það hvaða möguleikar eru
í stöðunni.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forysta Frá síðasta landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins, sem fram fór árið 2018.
Fundarhöld í upp-
námi vegna Covid