Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 6

Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Logi Sigurðarson logis@mbl.is Nú hefur öllum tónlistarhátíðum um verslunarmannahelgina verið aflýst eða frestað eftir að stjórnvöld hertu á ný sóttvarnaaðgerðir innanlands til þess að sporna við dreifingu Delta- afbrigðsins svokallaða. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir landann og skipuleggjendur hátíðarhaldanna, en eins og margir héldu þeir að nú loks- ins værum við komin yfir þennan „kórónuhól“. Enn er óljóst hver örlög Þjóðhátíðar í Eyjum eru en forsvars- menn hennar segja að henni verði frestað til seinni tíma. Kotmóti Hvítasunnukirkjunnar hefur verið aflýst og einnig er búið að aflýsa Síld- arævintýrinu á Siglufirði. Ásgeir Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Innipúkans, segir mik- il vonbrigði að hafa þurft að aflýsa hátíðinni annað árið í röð, en Inni- púkinn er tónlistarhátíð haldin í Reykjavík á hverju ári. „Maður tekur þetta á kassann eins og allt annað.“ Ásgeir bætir við að fólk fái endur- greitt sem hafði borgað miðana. „Það fá allir fjórtán daga til þess að sækja sína endurgreiðslu sem allir eiga rétt á og afgangurinn fer til þeirra lista- manna sem áttu að koma fram á há- tíðinni,“ segir hann. Ásgeir segir það óljóst hvert tekju- tapið verður en síðustu daga hafa þeir reynt að takmarka skaðann. „Innipúkinn er ekki hagn- aðardrifin hátíð. Við reynum að hafa kostnaðinn lítinn og eyðum í raun ekki stórum fjárhæðum þannig að þetta er ekki endilega mikið högg á okkur skipuleggjendur. Við finnum mikið til með tónlistarfólkinu okkar sem missir að einhverju leyti sitt lifi- brauð aftur.“ Taka þetta á bringuna Davíð Rúnar Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Viðburðastofu Norð- urlands, tekur í sama streng og Ás- geir og segir mikil vonbrigði að það hafi þurft að aflýsa bæjarhátíð Ak- ureyringa; Einni með öllu. „Ég held að allir skilji þetta vel. Það sýnist okkur og þau skilaboð sem við höfum fengið er að fólk telur þetta mjög skynsamlegt. Það er í rauninni ekkert annað í stöðunni og ekkert sem við getum gert nema að brosa og taka þetta á bringuna,“ seg- ir hann. Davíð segir að þótt hátíðinni hafi verið aflýst búist hann við að margir sæki bæinn heim vegna blíðviðris sem á að vera um verslunarmanna- helgina á Akureyri, samkvæmt veð- urspá. „Sem betur fer er góð veð- urspá og við gerum ráð fyrir að fólk komi samt.“ Davíð segir að auðvitað hafi þetta mikil áhrif, sérstaklega á þá tónlistarmenn sem áttu að stíga á stokk um helgina. „Þetta er mikið tekjutap fyrir alla, það er enginn að fá neitt því miður, það fær enginn tónlistarmaður borgað.“ Útihátíðin Bræðslan var haldin með pompi og prakt á Borgarfirði eystri um helgina. Áskell Heiðar Ás- geirsson, einn forsvarsmanna Bræðslunnar, segir hátíðina hafa gengið eins og í sögu. „Stemningin var algjörlega frá- bær, svona hátíðir standa alltaf og falla með veðrinu. En við unnum í veðurlottóinu enn eina ferðina og höfum sem betur fer oftast gert. Hér var fólk í alsælu, í yndislegri náttúru, í yndislegu veðri með frábæra tónlist, þannig að þetta fór allt saman afskaplega vel fram.“ Áskell segir aðsóknina hafa verið góða þrátt fyrir yfirvofandi innan- landsaðgerðir. „Við höfum venjulega verið að klára um miðnætti en við flýttum dagskránni um klukkutíma og það voru allir komnir út vel fyrir miðnætti.“ Mikil vonbrigði en ekkert annað í stöðunni - Öllum tónlistarhátíðum aflýst eða frestað - Finna til með tónlistarfólki Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Mærudagar Haffi Haff og Svala Björgvins voru meðal þeirra listamanna sem stigu á svið á Húsavík. Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Sala á metangasi hefur rokið upp á Akureyri undanfarna mánuði. Á sama tíma og sölutölur eru á áður óþekktu flugi upp á við eru óþekkt vandkvæði í gangi við framleiðsluna sem annar ekki aukinni sölu með þeim gæðum sem til er ætlast. Mikl- ir og langvarandi þurrkar eru líkleg skýring. Norður- orka hefur annast framleiðslu á met- angasi úr gömlu sorphaugunum á Glerárdal frá árinu 2014. Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, segir að menn hafi velt vöngum yfir ástæðum þess að fram- leiðslan nær ekki að svara auknu magni. „Þurrkarnir sem einkennt hafa veðurfar norðan heiða undan- farnar vikur virðast vera stór áhrifa- valdur í þessu,“ segir Helgi. Mold- arþekja ofan á haugunum virðist ekki vera næg. Samkvæmt spálíkani sem gert var á sínum tíma átti magn til vinnslu í haugunum að vera nægilegt í það minnst til ársins 2030 og í besta falli til ársins 2040. „Spálíkan gerði ráð fyrir að haugarnir gætu annað allt upp í 600 þúsund rúmmetra fram- leiðslu á ári og við höfum undanfarin gert ýmislegt til að auka og viðhalda framleiðslunni. Raunin er auðvitað sú að haugurinn og hauggasframleiðsl- an er í eðli sínu ein stór tilrauna- stofa,“ segir Helgi. Samfélags- og umhverfismál „Kannski var spálíkanið að oftúlka framleiðslugetu haugsins,“ segir hann og bætir við að menn skoði nú hvort verið geti að framleiðsluhá- marki sé náð fyrr en ráð var fyrir gert. Annar þáttur sem gæti valdið minni framleiðslu nú er veðráttan, gríðarlegir þurrkar hafa verið und- anfarnar vikur og verið getur að að þeir hafi áhrif. „Þetta er flókin staða og við kappkostum að finna út úr þessu. Við erum ef til vill komin á þann tímapunkt að þurfa að taka nýja ákvörðun, þ.e. hvort byggja eigi nýja framleiðslustöð fyrir metan og þá á hvers hendi það eigi að vera. Þannig er málið pólitískt samfélags- og um- hverfismál.“ Sala á metani hefur aukist jafnt og þétt frá því hún hófst. Áætluð árs- framleiðsla á yfirstandandi ári er á bilinu 270 til 290 þúsund rúmmetrar. „Nú síðustu mánuði hefur salan rokið upp, fyrstu tvo mánuði ársins var aðeins minni sala en árið á undan en svo kemur alger sprenging, í mars var 20% meiri sala en í sama mánuði árið á undan, 47% aukning varð í apr- íl, 30% í maí og 25% í júní,“ segir Helgi. Hann segir því bagalegt að lenda í vandræðum við öflun á hauggasi þeg- ar sala er mikil og vaxandi, en grípa hefur þurft til lokunar af og til. Það sé einkum gert til að vernda einorkubíl- ana, svo nægt magn fáist fyrir þá, en í þeim hópi eru meðal annars strætis- vagnar á Akureyri. „Það eru heilmiklar áskoranir í þessu en einn af stóru óvissuþáttun- um er að á gömlu sorphaugunum var rusl urðað óflokkað og þar ægði öllu saman, járn, plast, sláturúrgangur, múrbrot, þangað fór allur úrgangur. Því er eðlilega erfitt að áætla með einhverri vissu hversu mikið haugur- inn getur gefið í stóra samhenginu,“ segir Helgi. Ávinningur af framleiðslu metan- gass er mikill en það veldur skaðleg- um áhrifum á umhverfið fái það að steyma óbeislað út í andrúmsloftið. Þá sparast einnig einn lítri af inn- fluttu jarðefnaeldsneyti fyrir hvern rúmmetra metans sem brennt er. Ljósmynd/Norðurorka Metangas Nokkrir bílar Norðurorku og strætó sem nota metangasið. Roksala á metangasi en efnisöflun erfið - Norðurorka annar ekki spurn eftir metangasi - Langvarandi þurrkar hafa áhrif á framleiðsluna Helgi Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.