Morgunblaðið - 26.07.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.07.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir 544 5151 tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK af vinnulið einkabifreiða Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Sóknarkirkjan í hverfum, bæjum og sveitum stendur sterk og á sér stað í hjarta og vitund fólks,“ seg- ir séra Pálmi Matthíasson. „Þjóð- kirkjan er á öðrum stað, kannski vegna þess að stofnanir og kerfi eiga víða undir högg að sækja. Það virðist snúnara en áður að tengja kirkju, kristni og boðskap trúarinnar við strauma, stefnur og viðfangsefni líðandi stundar.“ Nú í sumarlok lætur sr. Pálmi af embætti sóknarprests við Foss- vogsprestakall í Reykjavík, sjö- tugur að aldri. Um þessar mundir eru 32 ár síðan Pálmi var kallaður til þjónustu við Bústaðakirkju, sem tilheyrir nú prestakalli sem nær yfir austurborgina sunnan Miklubrautar að viðbættri Safa- mýri. Áður þjónaði Pálmi í fimm ár sem prestur á Hvammstanga og í tæp níu ár á Akureyri. Í kviku mannlífsins Sr. Pálmi segir að strax á unglingsaldri hafi farið að blunda í sér að nema guðfræði, þótt Stýri- mannaskólinn, tannlækningar og nám í hótelstjórn í Sviss hafi einn- ig komið til greina. Guðfræðin varð þó niðurstaðan og jafnhliða námi var Pálmi rannsóknarlög- reglumaður. „Í lögreglunni vann ég með góðu fólki sem leiddi mig í gegn- um margan rússíbanann og ferlið sem fylgir slysum og andlátum. Oft voru þetta skelfileg mál, en sem lögregluþjónn var ég þarna í kvikunni og sá hvernig mannlífið getur verið veikast en líka sterk- ast,“ segir Pálmi. Fjótlega eftir nám í guðfræði- deild Háskóla Íslands tók Pálmi prestvígslu. Var vígður í Akureyr- arkirkju og tók við embætti í Mel- staðarprestakalli í Miðfirði og bjó á Hvammstanga. Fór svo fimm ár- um síðar í Glerárprestakall á Ak- ureyri, þar sem hann þjónaði Lög- mannshlíðarsókn og Miðgarða- sókn í Grímsey. Eyjuna og fólkið þar segir Pálmi eiga æ síðan stað í hjarta sínu. Kallaður til þjónustu „Á þessum tíma var engin kirkja komin í Glerárhverfi. Mess- að var í Glerárskóla og gömlu Lögmannshlíðarkirkjunni með strætisvagn sem skrúðhús fyrir fermingarbörnin. Einnig voru oft skírnir og giftingar á heimili okk- ar og eitt sinn skírð þar átta börn í einni athöfn,“ segir Pálmi og held- ur áfram: „Á stórhátíðum var messað í íþróttahúsi Glerárskóla. Allir lögðust á eitt og breyttu saln- um á svipstundu í 1.000 manna kirkju. Þetta voru skemmtilegir tímar og allir meira en tilbúnir að leggja lið ef þess þurfti. Þetta finnst mér hafa breyst. Áður bauð fólk fram krafta sína en nú þarf stundum aðeins að ýta við fólki og það kemur. Sumum er feimnismál að sýna hug og vilja í verki enda þótt trúin sé sterk í hjörtunum.“ Þegar embætti sóknarprests við Bústaðakirkju losnaði vorið 1989 var haft samband við Pálma og spurt hvort hann hygðist sækja um. Pálmi gaf afsvar. Nokkru síð- ar var haft samband og honum tjáð að sóknarnefnd hefði einróma samþykkt að kalla hann til þjón- ustu, eins og þá var heimilt. „Þegar þarna var komið sögu þurfti að hrökkva eða stökkva. Ákvörðunin var alls ekki auðveld og reyndist okkur fjölskyldunni erfiðari en ég bjóst við. Eftir góða gönguferð komumst við að þeirri niðurstöðu að svona tækifæri kæmi bara einu sinni á starfs- ævinni. Ég tók því boðinu, kom hér til starfa 1. júlí 1989 og datt strax inn í botnlausa vinnu,“ segir sr. Pálmi. „Ég hef sannarlega ekki staðið einn því Unnur konan mín hefur verið mér ómetanlegur styrkur sem og Hanna María dótt- ir okkar og hennar fjölskylda. Án þeirra hefði ég aldrei getað sinnt mínu starfi með þeirri gleði sem til þarf. Þegar ég er núna að hætta eru þetta líka tímamót þeirra.“ Pálmi segist fljótt hafa fundið eftir að hann kom til starfa í Reykjavík, að Akureyri og Bú- staðahverfi væru ekki ólík sam- félög. Takturinn svipaður. Öflugt og drífandi fólk á báðum stöðum, fólk sem láti sér annt um kirkjuna sína. Kirkjustarfið og messur í Bú- staðasókn hafi jafnan verið vel sóttar og gaman að þjóna fólkinu. Næring fyrir sálina „Í safnaðarstarfinu hefur ver- ið bryddað upp á ýmsu, svo sem námskeiðum og samverustundum undir ýmsum formerkjum. Þá hef ég messað í sundlaugunum, görð- um, skíðabrekkum skipum og víð- ar. Einnig höfum við breytt kirkj- unni í leikhús og sýnt stór verk með þátttöku unglinganna í hverf- inu. Þannig er reynt að koma til móts við fólk í ólíkum aðstæðum. Þetta hefur mælst vel fyrir,“ segir Pálmi og heldur áfram: „Í starfinu hef ég eignast vin- áttu og traust margra. Það gleður mig alltaf að sjá skírnar- og ferm- ingarbörn, eða aðra sem ég hef unnið með, blómstra eða ná ár- angri í lífinu. Ég hef líka unnið með fólki sem hefur lent úti á brún í tilverunni en komist aftur á beina braut. Að geta lagt fólki lið felur í sér mikla næringu fyrir sál- ina og löngun til að mæta í vinn- una. Það hefur alla tíð verið spennandi verkefni að vita aldrei fyrir hvert dagurinn getur leitt mann. Það er líka blessun og alls ekki sjálfgefið, að fá að vinna með frábæru samstarfsfólki og sókn- arnefndum.“ Uppstokkun er hugsanleg Fossvogsprestakall varð til á síðasta ári en því tilheyra Bú- staða- og Grensáskirkjur. Samein- ingu þessa segir Pálmi hafa tekist vel og hlutirnir hafi verið að slíp- ast til á síðustu misserum. „Kirkjur eru eins og fyrir- tæki, sem þurfa alúð og útsjón- asemi í rekstri. Sóknargjöld hafa ekki fylgt verðlagsþróun, sem kemur niður á starfinu. Óbreyttar aðstæður munu fyrr eða síðar kalla eftir frekari uppstokkun og jafnvel að ekki verði grundvöllur fyrir rekstri einhverra kirkna. Boðun trúarinnar og þjónusta við fólkið hlýtur og á alltaf að vera aðalatriði. Kirkjan er hjartað í hverfinu og þarf að hafa burði til að þjóna fólkinu og samfélaginu af kærleika og í auðmýkt,“ segir séra Pálmi Matthíasson að síðustu. Sr. Pálmi Matthíasson lætur af embætti í Bústaðakirkju eftir langa þjónustu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Saman Pálmi Matthíasson og Unnur Ólafsdóttir kona hans. „Ég hef sannarlega ekki staðið einn því Unnur hefur verið mér ómetanlegur styrkur sem og Hanna María dóttir okkar og hennar fjölskylda, segir Pálmi í viðtalinu. Kirkjan hafi burði til að þjóna samfélaginu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bústaðakirkja Safnaðarstarfið undir forystu sr. Pálma er öflugt og fólki er mætt í ólíkum aðstæðum þess. Hver er hann? - Pálmi Matthíasson er fædd- ur 21. ágúst 1951. Jafnhliða prestskap hefur hann sinnt fjölmörgum öðrum störfum, svo sem fyrir íþróttahreyf- inguna. Hann var um árabil í dómaranefnd, landsliðsnefnd og stjórn Handknattleiks- sambands Íslands og sat í hér- aðsnefnd Reykjavíkurprófasts- dæmis vestra auk annarra félagsstarfa á sviði líknar- og mannræktarfélaga. - Eiginkona Pálma er Unnur Ólafsdóttir og dóttir þeirra er Hanna María. Hún er gift Davíð Frey Oddssyni og eiga þau þrjú börn; Unni Maríu, Pálma Frey og Helga Frey. Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Fjóla Hrund Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri þingflokks Miðflokks- ins, sigraði í ráðgefandi oddvitakosn- ingu Miðflokksins í Reykjavíkurkjör- dæmi suður. Þar laut í lægra haldi Þosteinn Sæmundsson, þingmaður flokksins. Fjóla, sem er aðeins 33 ára, býr að talsverðri reynslu af stjórnmálastörf- um þrátt fyrir ungan aldur. „Ég byrj- aði fyrst í stjórnmálum 2013 þegar ég var varaþingmaður fyrir Framsókn- arflokkinn og starfaði líka fyrir Framsóknarflokkinn í um þrjú ár,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið. „Fyrir þremur árum kem ég svo inn í Miðflokkinn og er búin að starfa sem framkvæmdastjóri þingflokks síðast- liðin þrjú ár.“ Innt eftir því segist Fjóla vilja vera fulltrúi unga fólksins inni á þingi. „Það eru málefni unga fólksins sem ég er að hugsa um ásamt samgöngu- og heilbrigðismálum,“ segir hún. Þorsteinn segir niðurstöðurnar svar við ákalli eftir konum. Hann er að eigin sögn sáttur við störf sín hjá flokknum þótt hann hefði viljað hafa meiri tíma til að klára ákveðin mál. „Ég þarf meiri tíma til að klára mál sem ég er búinn að vera vinna að og enginn mun taka við. Þar á ég sér- staklega við um íbúðir sem Íbúða- lánasjóður hirti af fólki. Það þarf ein- hvern veginn að leiða það mál til lykta og ég mun reyna að gera það þótt ég verði ekki lengur á þingi því það verð- ur einhver að gera það,“ segir hann. „Ég kem áfram til með að tjá mig um pólitísk mál og mun berjast áfram fyrir þeim málum sem ég hef haft á minni könnu.“ Vill vera fulltrúi ungs fólks - Fjóla hafði betur gegn Þorsteini í oddvitakjöri Miðflokks Þorsteinn Sæmundsson Fjóla Hrund Björnsdóttir 2021 ALÞINGISKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.