Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 18

Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021 ✝ Björn Sigurðs- son, fv. lög- regluvarðstjóri, f. á Möðruvöllum í Hörgárdal 9. maí 1934 og d. í Kópa- vogi 5. júlí 2021. Foreldrar: Sr. Sigurður Stefáns- son, prófastur og vígslubiskup á Möðruvöllum í Hörgárdal, f. í Reykjavík 10.11. 1903, d. 8.5. 1971, og frú María Ágústs- dóttir, cand.phil., f. 30.1. 1904, d. 18.8. 1967. Systkini Björns voru Sigrún, f. 28.8. 1929, d. 17.6. 2019, sr. Ágúst Matthías Sigurðsson, f. 15.3. 1938, d. 22.8. 2010, og Rannveig, f. 6.4. 1940, d. í Stokkhólmi 18.8. 2015. Eiginkona Björns var Kristín Bögeskov, djákni og BS í íslensku og dönsku, f. í Reykjavík, 17.8. 1935, d. 15.8. 2003, dóttir hjónanna Sören Bögeskov, bónda í Reykjavík, f. í Kaupmannahöfn, og Ágústu Sigurðardóttur Böge- 1958, kvæntur, 12.9. 1987, Guðrúnu Helgu Bjarnadóttur, f. í Reykjavík 6.4. 1963. Þau búa í Skálholti. Dætur Krist- jáns af fyrra hjónabandi: a) Ólöf, f. 18.1. 1980, gift Pétri Vilhjálmssyni. Börn þeirra: Sigrún Elísabet, f. 10.5. 2008, Vilhjálmur Einar, f. 1.3. 2010, og Arnaldur Elfar, f. 23.2. 2018. Þau búa í Reykjavík, og b) Kristín Rut, f. 25.11. 1983. Hún er gift Fredrik Sjö og búa þau Flädje í Skáni ásamt börn- um sínum Freju Ísafold, f. 6.2. 2013, og Vallaði Magna, f. 12.12. 2015. Synir Kristjáns og Guðrúnar Helgu Bjarnadóttur eru c) Bjarni Benedikt, f. í Rvík. 1.2. 1989, býr í Ósló, í sambúð með Julia Viherlahti, og eru þeirra börn Lilja Björk, f. 23.12. 2018, og Snjólfur Helgi, f. 24.1. 2021, og d) Sig- urður Stefán, f. í Rvík. 22.11. 1990, býr í Kópavogi, í sambúð með Erlu Eyland, og er dóttir þeirra Sól, f. 30.1. 2021, og e) Björn Ásgeir, f. 2.7. 2003. 4) Björn Ágúst, f. 23.1. 1963, kvæntur Elísu Nielsen Eiríks- dóttir, f. 15.12. 1961. Þau búa í Þorlákshöfn. Börn þeirra eru: a) Halldór Atli, f. 18.5. 1979, kvæntur Fanneyju Friðþórs- dóttir. Börn þeirra Ísak Freyr, f. 2004, Harpa Karen, f. 2007, Freyja Rún, f. 2013, og Óðinn Atli, f. 2015. b) Hákon Davíð, f. 7.4. 1982. Barn hans með Sjöfn Ingvarsdóttur er Gabríel Elí, f. 2007, barn með Aðal- heiði Önnu Erlingsdóttir er Gunnar Erlingur, f. 2017, c) Karen Ósk, f. 27.7 1989, í sam- búð með Leifi Óskarssyni. Barn þeirra er Óliver Jarl, f. 2018. d) Ágúst Kaj, f. 15.1. 1991, e) Jóel Dan, f. 7.9. 1994, í sambúð með Andra Frey. 5) María Kristín, búsett í Kaup- mannahöfn, f. 15.9. 1968, gift Robert Lacy Shivers, f. í Chi- cago 22.11. 1957. Börn þeirra eru a) Steven Björn, f. 15.12. 1996, og b) Kristín Romesa Leonora, f. 14.4. 2005. Björn var formaður Lög- reglufélags Reykjavíkur og formaður Hestamannafélags- ins Gusts. Hann gegndi ýmsum öðrum trúnaðarstörfum og fé- lagsstörfum og skrifaði nokkr- ar greinar í Morgunblaðið og smásögur. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 26. júlí 2021, kl. 13. skov, f. að Lágu- Kotey í Meðal- landi. Börn og af- komendur: 1) Ágústa, f. í Rvík. 22.6. 1955. Hún var gift 1980 Hall- grími Kristinssyni, f. 8.7. 1951, d. 1.6. 1994. Synir þeirra a) Kristinn Logi, f. 6.8. 1980, kvæntur Söru Hlín Sigurðardóttur, f. 1.6. 1981. Synir þeirra: Grímur Logi, Garpur Nói og Garri Freyr. Þau búa í Kópavogi b) Björn Þór, f. 21.9. 1987. Hann býr í Kópavogi. 2) Sigurður, býr á Rauðalæk, f. 28.7. 1957. Í sam- búð með Hanne Margit Han- sen. Sonur Sigurðar og Sigríð- ar Pálsdóttur er a) Páll, f. 24.8. 1984, dóttir Sigurðar og Bjargar Thorberg er b) Björg, f. 9.2. 1986. Sonur hennar Geir Thorberg. Sonur Sig- urðar og Ágústu Hjaltadóttur er c) Hjalti, f. 26.5. 1994. 3) Kristján, f. í Reykjavík 6.12. Mig langaði að minnast pabba míns nú þegar hann er fallinn frá, rétt rúmlega 87 ára gamall. Auðvitað þarf að gera greinar- mun á milli aldurs foreldra sinna og manns sjálfs sem barns, unglings og fullorðins manns og það þekkir maður hvað best sem uppalandi eigin barna. Er gott foreldri sá sem alltaf er að hafa áhyggjur af ungum sínum, stjórnandi og skipandi fyrir eða er mild upp- eldisstefna besta ráðið við upp- eldi? Ég ólst upp í fimm systk- ina hópi, tveir eldri bræður, ein eldri systir og ein yngri en ég og eflaust var í nógu að snúast á frekar stóru heimili, mamma með alla stjórn á daglegu amstri og pabbi að vinna. Í minningu minni sem barn var allt frekar klippt og skorið, pabbi ekki heima vegna aðalvinnu, auka- vinnu eða í hestastússi og mamma að hafa stjórn á hlut- unum heima fyrir. Í augum mömmubarnsins míns var þetta bara ekkert mál og ofureðlilegt að sjá pabba skjótast heim og skipta um fatnað, einkennisbún- ingur, reiðfatnaður eða skíta- gallinn fyrir rifið. Eitt klikkaði aldrei, alltaf var stutt í tóbakið, vindlar, rettur eða neftóbak, bank á dósarlokið, væn lína á handarbakið, öflugt sog og vasa- klúturinn við höndina. Við fluttum á Hlíðarveginn 1968 þar sem okkur var búið gott heimili að alast upp á og ekki man ég eftir einu einasta atviki þar sem agnúast væri út í mig, alltaf studdur með ráðum og dáð, klárlega milda uppeldis- aðferðin. Pabbi var alltaf upp- tekinn af sögu og merkisatburð- um í lífinu, passaði að gera einhver smáatriði sem höfðu áhrif á barnið mig. Hringdi heim af vakt um miðja nótt 23. janúar til að vekja mömmu og segja henni frá gosinu í Eyjum en þar sem þetta hitti á tíu ára afmælið mitt bað hann mömmu að vekja mig og gaf sér tíma til að segja mér frá. Fréttir fóru ekki hratt yfir á þessum tíma og líklega sárafá börn sem vissu þetta svo snemma, þetta greyptist í huga minn sem stórmál. Einhverjum árum fyrr þegar hann var enn þá á gömlu stöð- inni í Pósthússtræti þótti honum fullkomlega eðlilegt að útbúa ökuleyfi á reiðhjól fyrir mig, fyllti út skírteini á löggilt plagg, hakaði við reiðhjól, setti í plast- vasa og ég þar með þetta flotta montplagg í vasanum. Þegar hinir merku skákmenn, Fischer og Spassky, voru að kljást við flotta borðið í Laug- ardalshöllinni 1972 tók pabbi vaktir þar, flestir lögreglumenn með mikinn áhuga á skák og pabbi auðvitað hinn ánægðasti að fá vaktir þarna. Honum datt þá í hug að leyfa mér að koma við á milli skáka, gekk með mér upp að borðinu, bauð mér sæti og við tókum nokkra leiki. Þarna er hann klárlega að gæta að því að drengurinn fengi snert af sögunni í rauntíma og þessa aðferð notaði ég sjálfur á mín börn ef færi gafst við uppeldi þeirra. Ekki ætla ég að fara yfir fleiri atriði en vona að þessar stuttu lýsingar nái að sýna hvaða hug ég bar til pabba, en svona vil ég minnast hans og þegar ég sat við banabeð hans fyrr í mán- uðinum voru það akkúrat slíkir smápunktar úr æsku sem höfðu mest áhrif á mig og kölluðu fram söknuð. Björn Ágúst Björnsson. Óvænt rekst ég á að hann Stóri-Björn sé allur. Björn var stór í sniðum hvar sem á hann var litið. Höfðingi í lund og hvers manns hugljúfi að mér fannst alla tíð. Við urðum samskipa til Nor- egs í skógræktarferð 1952. Hann vakti athygli mína fyrir það að vera sjóveikari en aðrir menn báðar leiðir yfir hafið en þá voru ekki flugferðir algengar hjá alþýðu. Við fórum utan með missjóneraskipinu Brandi V sem var þurrt skip og Guðrækilegt og lítið fjör um borð. En heim fórum við Heklunni þar sem allt flaut í lystisemdum þessa heims og nýmæla fyrir unglinginn. Okkar kynni hófust hins veg- ar ekki fyrr en ég fór að brjótast í að byggja yfir bólgnandi fjöl- skylduna. Eftir árangurslausar lóðaumsóknir í fæðingarbæ mín- um Reykjavík endaði ég með að hitta mann í Kópavogi sem vant- aði að selja húshelming sem hann ætlaði að byggja á lóð með minkabúi á við Hlíðarveg. Þar var kominn sá sjóveiki aftur. Gamli Sveinn útvegaði mér steypuúttekt og með því gerðust kaupin. Björn fór að slá upp. En hann vann eins og margir lög- regluþjónar við mótarifrildi á frívöktum og var því aldrei langt undan landi í byggingabransan- um alla tíð. Bæði byggði sjálfur og vann með öðrum. Húsið reis og inn komst ég á þrítugsafmæl- inu fyrir kraftaverk og hjálp tengdafólks og vina. Þar bjugg- um við fjölskyldan þar til að húsið sprakk utan af okkur. Í allan þennan tíma bjuggum við á neðri hæð hjá Stóra-Birni og Kristínu Bögeskov konu hans og fjórum börnum. Aldrei bar skuggann á í þessu sambýli og var þó talsverður samgangur mili hæðanna. Björn var for- maður í Gusti og kom okkur til að byggja hesthús með félögum Björn Sigurðsson ✝ Þórey Skag- fjörð Ólafs- dóttir fæddist á Ak- ureyri 1. nóvember 1928. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 15. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru Ólafur Tómasson, f. á Bú- stöðum í Austurdal 12.6. 1901, d. 6.9. 1952, og Stefanía Guðrún Ing- veldur Jóhannesdóttir, f. í Jarðbrúargerði í Svarfaðardal 17.12. 1905, d. 15.3. 1985. Systkini Þóreyjar eru tví- burabróðir hennar Ólafur Skag- fjörð, d. 11. október 2018, tví- burasysturnar Kristín Bára og Oddný Alda, f. 28.6. 1936, og Guðrún Hrönn, f. 17.1. 1945. Þórey giftist 17. júní 1954 í Möðruvallakirkju í Hörgárdal Þorsteini Marinó Kristjánssyni vörubifreiðarstjóra, f. 10. nóv- ember 1922 á Gásum við Eyja- fjörð, d. 1. október 2018. For- dís Alda, maður hennar er Árni Þór Bjarnason, búsett í Reykja- vík. Þeirra börn eru Bjarni Þór, Helga Björk, Linda Ósk og Tóm- as Viðar. 5) Ólöf Ásta, maður hennar er Sigurþór Guðmunds- son, búsett í Reykjavík. Þeirra börn eru Auður Ýr, Guðmundur og Bryndís Ýr. Afkomendur Þóreyjar og Þorsteins eru 45 talsins. Þórey ólst upp á Bústöðum í Austurdal í Skagafirði til 16 ára aldurs en vorið 1944 fluttist hún með foreldrum sínum og systk- inum í Garðshorn í Kræklinga- hlíð. Hún stundaði hefðbundin bústörf þess tíma á búi foreldra sinna ásamt íhlaupavinnu inni á Akureyri. Hún fór einn vetur á Húsmæðraskólann á Löngumýri í Skagafirði. Hún var heima- vinnandi húsmóðir framan af en vann síðan verkakvennastörf í fiski, þvottahúsi og við skúr- ingar og sem skólaliði í Lund- arskóla á Akureyri um 20 ára skeið. Þórey var mikil blóma- kona og garðyrkja var líf henn- ar og yndi. Útförin verður gerð frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 26. júlí 2021, klukkan 13. Jarðarförinni verður streymt á facebook- síðunni: Jarðarfarir í Akureyr- arkirkju – beinar útsendingar. eldrar hans voru Kristján Krist- jánsson, f. 1. októ- ber 1881, d. 4. mars 1964, og Friðrika Jakobína Svein- björnsdóttir, f. 4. janúar 1884, d. 2. júní 1966. Þau áttu heima á Akureyri alla tíð, fyrst í Hamarstíg 3 og síðan í Suð- urbyggð 12. Dætur þeirra eru: 1) Stefanía, maður hennar er Gísli Arnór Pálsson, búsett á Ak- ureyri. Þeirra börn eru Ólafur, Hulda Þórey, Inga Vala og Bjarki. 2) Kristín Jakobína, mað- ur hennar er Kristinn Frímann Sigurharðarson, búsett á Ak- ureyri. Þeirra börn eru Ásta, Þorsteinn Ingi og Jakob Frí- mann. 3) Sigrún Hrönn, maður hennar er Rögnvaldur Ólafsson, búsett í Flugumýrarhvammi í Skagafirði. Þeirra börn eru Þor- steinn, látinn, Freyr, Steinunn, Sindri, Þórunn og Jórunn. 4) Ás- Fallin er frá elskuleg móðir okkar, Þórey Skagfjörð Ólafs- dóttir. Mamma var sveitamann- eskja og átti alla tíð sterkar rætur í sveitinni, á Bústöðum í Austur- dal í Skagafirði og síðar í Garðs- horni í Kræklingahlíð. Hún vann alla tíð mikið enda dugnaðarfork- ur. Ekki varð skólaganga hennar löng en hún komst þó á Hús- mæðraskólann á Löngumýri í Skagafirði í einn vetur, hafði bæði gagn og gaman af og eignaðist þar vinkonur fyrir lífstíð. Þau pabbi bjuggu alla tíð á Akureyri, lengst af í Suðurbyggð 12 þar sem þau bjuggu okkur systrunum gott heimili. Mamma var þessi dæmigerða húsmóðir, saumaði og prjónaði flestallan fatnað á okkur systur og sá um allt á heimilinu af mikilli prýði. Á sjöunda áratugnum fór hún svolít- ið út á vinnumarkaðinn og vann síðan alla tíð verkakvennavinnu. Hún var félagslynd og hafði gam- an af að vera innan um fólk. Mamma var mikil blómakona og ræktunarkona. Garðurinn í Suð- urbyggð 12 var afskaplega falleg- ur, svo eftir var tekið og var verð- launaður þrisvar sinnum af Akureyrabæ. Margar góðar minningar eigum við tengdar blómum og ræktunaráhuga mömmu, ferðirnar með henni í Fróðasund á vorin að kaupa sum- arblómin voru skemmtilegar. Þegar hún var fimmtug eignaðist hún gróðurhús og þá var nú ald- eilis hægt að rækta. Hún sáði til sumarblóma og einnig til fjölda fjölæringa og átti fjölbreytt safn af þeim. Gjafmild var hún á plöntur, ekki bara til okkar dætr- anna heldur í allar áttir. Það hefur nú ekki alltaf verið auðvelt að ala upp fimm dætur, fæddar á þrettán árum og víst er að oft var mikið fjör og hávaði þannig að pabba, þeim hæglætis- manni fannst oft nóg um lætin í kvennaskaranum á heimilinu. Á matmálstímum átti að vera hljóð svo hægt væri að hlusta á frétt- irnar og þá var mjög óheppilegt ef einhver okkar fékk hláturskast og ekki bætti úr skák þegar við sáum mömmu berjast við að halda and- litinu. Þau voru mjög ólík, hún vildi drífa í hlutunum en hann fór þetta með hægðinni. Hún gat ver- ið mjög stríðin og ansi forvitin svo að manni fannst nóg um. Þegar tengdasynir og barnabörn komu til sögunar tóku þau mamma og pabbi þeim opnum örmum og vildu allt fyrir þau gera og mikla hjálp fengum við systur með okk- ar börn. Barnabörnin minnast hlýju þeirra og gestrisni alla tíð. Margs er að minnast, margt er að þakka nú við þessi tímamót þegar foreldrar okkar eru bæði fallin frá. Þessi strengur er rofinn og mikill söknuður er í hjörtum okkar en jafnframt mikið þakk- læti. Hvíl í friði elsku mamma, þínar dætur, Stefanía, Kristín, Sigrún, Ásdís og Ásta. Amma mín, Þórey Ólafsdóttir eða amma Tóta, hefur nú kvatt þennan heim. Eftir sitja dýrmæt- ar minningar og hugur fullur af þakklæti. Ég var svo lánsöm að búa stærstan hluta barnæskunn- ar í nálægð við ömmu Tótu og afa Steina. Við systkinin, og reyndar barnabörnin öll, vorum ávallt vel- komin til þeirra í Suðurbyggðina. Alltaf var til bakkelsi, sem með undraverðum hætti var komið á borðið nær samstundis og gestur steig fæti inn fyrir dyrnar, skipti engu hvort hann var eitthvert okkar barnabarnanna eða virðu- legur gestur kominn lengra að. Pönnukökur, kleinuhringir, snúðakaka og heitt súkkulaði á aðfangadagskvöldi – einhvern veginn var allt best hjá ömmu Tótu. Garðurinn fullur af blómum og amma einhvers staðar í miðju blómahafinu. Ein af mörgum góð- um minningum er þegar amma og afi buðu okkur Óla bróður með sér í útilegu. Þéttpakkað var í gamla bláa Citroën-inn, farið ró- lega yfir og landið skoðað. Nesti á köflóttu teppi, kaffi á brúsa, djús, smurt og svo sætt á eftir. Mý- vatnssveitin skoðuð og svo tjaldað í Hljóðaklettum – gamla góða gula og bláa A-tjaldið stóð fyrir sínu. Heimili ömmu og afa hélt áfram að vera fastur punktur í til- verunni eftir að afi flutti í Hlíð vegna heilsubrests. Tíminn sem fór í hönd reyndist ömmu að sumu leyti erfiður enda voru þau afi ein- staklega samrýnd. Áfram sinnti amma heimilisstörfunum og garð- inum eins og hún gat en naut í vaxandi mæli stuðnings. Stund- irnar með ömmu eftir að hún flutti í Hlíð voru dýrmætar. Samskiptin einkenndust af væntumþykju, brennandi áhuga á því hvað ég og aðrir afkomendur vorum að fást við, hvatningu og góðum skammti af glettni og hlátri. Ég var oftast glöð í bragði eftir heimsókn til ömmu og einhvern veginn endur- nærð. Takk fyrir allt elsku amma mín. Hulda Þórey Gísladóttir. Elsku amma, Þegar minningarnar eru svona margar er erfitt að átta sig á hvar maður á að byrja. Við systkinin komum aldrei að tómum kofunum hjá þér og afa, sama hvort um var að ræða góða sögu, pönnukökur eða spil. Við fengum ósjaldan að gista, og með fyrstu minningunum eru sá endalausi brunnur af þjóðsög- um sem þú sagðir okkur fyrir háttinn, þó að Búkolla hafi þá helst verið í uppáhaldi. Þegar við vöknuðum svo daginn eftir var nýlagaður hafragrautur í morg- unmat og svo var setið og spjallað við eldhúsborðið á meðan morg- unútvarp RÚV spilaðist í bak- grunninum. Það leið ekki sá dag- ur að ekki væri reynt að ota að manni auka pönnuköku eða kleinuhring með morgunmatnum og það sagði auðvitað enginn nei við því. Á vetrardögum fengum við heimaprjónaða sokka og vettlinga í gjafir, sem nýttust vel í kuldan- um þegar við byggðum snjóhús í garðinum. Þegar okkur var orðið kalt var setið inni og langa vit- leysa spiluð eða ólsen ólsen á með- an klukkan í Suðurbyggðinni tif- aði. Það gafst alltaf tími fyrir okkur, sama hvað annað þurfti að gera. Að sumri blómstraði svo garðurinn þinn, sem var ávallt sá fegursti á allri Akureyri. Það voru ófáir góðviðrisdagarnir þar sem setið var í sólbaði eða leikið í garð- inum. Þú hugsaðir svo vel um okkur öll og það mun aldrei gleymast. Góðvildin og brosmildi þín var alltaf í fyrirrúmi og það var aldrei langt í hláturinn þegar við vorum saman. Fjölskylda þín, bæði nær og fjær, var þitt helsta stolt og ánægja í lífinu og við erum öll svo glöð og þakklát fyrir að hafa feng- ið að eyða þessum tíma með þér. Þín verður sárt saknað. Takk fyrir allt, elsku besta amma. Bjarni Þór, Helga Björk, Linda Ósk og Tómas Viðar. „Nei ertu komin? Ég var ein- mitt að steikja pönnukökur. Fannstu lyktina eða fékkstu hug- boðið sem ég sendi þér?“ Í minn- ingunni finnst mér að amma Tóta hafi yfirleitt tekið á móti mér í Suðurbyggðinni með þessum orð- um, með svuntuna, bros á vör og glettnisglampa í augum. Það var alltaf gott að koma til ömmu og afa og finna hlýjuna frá þeim umvefja litla stelpu. Tifið í klukkunni, kaffi- og kökuilmur og blóm alls staðar. Amma Tóta töfr- aði ávallt fram kökur og kræsing- ar á meðan afi vakti athygli á fugl- unum fyrir utan gluggann. Þegar svo var sest við eldhúsborðið þá vildi amma heyra hvað væri að frétta og segja sjálf fregnir. Að því loknu tóku við sögur og frá- sagnir, gamlar og nýjar. Oft voru sögurnar komnar frá Óla bróður hennar í Garðshorni eða frá upp- eldisárunum á Bústöðum í Aust- urdal. Til dæmis hvernig þau tví- burasystkinin stálust stundum til að fara á rólu yfir Vestari-Jökuls- ána til að stytta sér leið í skólann. Amma vildi hafa bjart í kring- um sig, minnug myrkursins í torf- bænum. Nóg af birtu, fólki, hlátri og blómum. Garðurinn í Suður- byggðinni var sannkallaður skrúðgarður og var stór hluti af því bjarta og gleðiríka umhverfi sem amma og afi skópu. Amma fylgdist vel með og sér- staklega með sínu fólki. Á mínum fullorðinsárum spurði hún mikið um búskapinn; hvernig heyjaðist, hvað báru margar ær og hvernig vigtaði að hausti. Þegar ég spurði ömmu hvort hún héldi að ég gæti flutt í sveit og orðið bóndi sagði hún; „Ég held að þú getir orðið allt sem þú ætlar þér, Inga Vala mín, og aðlagast því sem þú þarft“. Þessi orð og trú hennar skiptu mig miklu máli sem og annar stuðningur sem hún veitti mér við þessa ákvörðun. Takk fyrir allt elsku amma, Þórey Skagfjörð Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.