Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 21

Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021 ✝ Laufey Þor- leifsdóttir fæddist 8. maí 1930. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Sólvangi 14. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru Þorleifur Eyjólfsson arki- tekt og Margrét Halldórsdóttir húsmóðir og bjuggu þau lengst af á Hjalla- landi við Nesveg þar sem Laufey ólst upp. Systkini hennar eru Þóra, f. 1927, d. 2017, Hörður, f. 1928, Nanna Sigfríð, f. 1931, og tvíburarnir Leifur, f. 1935, og Gulla fædd 1935, dáin 2013. Hinn 18. september 1948 gift- ist Laufey Albert Þorbjörnssyni frá Skálmarnesmúla í Múlasveit, f. 23. maí 1925, d. 23. mars 1998. Hann starfaði lengst af hjá Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Þau eignuðust fimm börn, tengdabörn, barnabörn og lang- ömmubörn og hópurinn er orð- inn stór. Laufey starfaði við versl- unarstörf, lengst hjá Kápunni, Laugavegi 66. Börn: 1) Hreiðar Svanur Albertsson, f. 5. janúar 1949, eiginkona María Olgeirsdóttir en hún lést í desember 2020. Börn: Davíð Kristján og Jóhanna Olga. 2) Sigurlaug Al- bertsdóttir, f. 14. febr- úar 1950, gift Eyþóri Þórarins- syni. Börn: Albert Örn, Eyrún, Jón Þór og Laufey. 3) Guðrún A. Farestveit, f. 13. júlí 1953, gift Hákoni. E. Farest- veit. Börn: Tryggvi Knut, Steinar Ingi og Róbert Eric. 4) Elín Albertsdóttir, f. 8. febr- úar 1957, gift Ásgeiri Tómassyni. Börn: Þorsteinn Jafet, Andri og Anna Soffía. 5) Þorbjörg Albertsdóttir, f. 8. ágúst 1959, gift Leópold Sveins- syni. Börn: Freyja, Aron Frank og Ingibjörg Thelma. Útförin fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag, 26. júlí 2021, klukk- an 13. Lífið er stórkostlegt ferðalag. Það afmarkast annars vegar af fæðingunni og hins vegar af dauðanum. Í flestum samfélögum fagnar fólk inngöngunni en græt- ur útgönguna. Þegar einstakling- ur kveður þennan heim eftir gott og árangursríkt líf, háaldraður og saddur lífdaga væri kannski eðli- legra að fagna góðu lífi hans en að trega dauðann. En söknuður er tilfinning sem erfitt er að hemja og ljúfar minningar þeirra sem eftir lifa gera þeim erfitt að fagna. Laufey tengdamóðir mín var farsæl í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Dugnaður hennar og ósérhlífni einkenndu orðsporið þótt manngæska, hlýja og heið- arleiki væri það sem flestir tóku fyrst eftir. Hún var hreinskiptin og sagði hlutina beint út án þess þó að skilja viðmælandann sáran eftir. Laufey var fljót að taka ákvarðanir og oft og tíðum enn fljótari að framkvæma þær. Hún var ekkert að tvínóna við hlutina þegar rétta leiðin blasti við. Hún var ákaflega vinnusöm og taldi það ekki eftir sér að vinna jafnvel á tveimur stöðum á sama tíma og hún rak heimili og ól upp fimm börn. Laufey kunni eitt öðrum betur en það var að laða að sér fólk. Hvort sem það voru vinir eða kunningjar, börn, tengdabörn, barnabörn eða barnabarnabörn – allir hændust að henni. En hverj- ir voru töfrarnir? Ekki kann ég svarið en hlýr faðmur, stórt hjarta, áhugi á hugðarefnum ann- arra, gott minni, jákvæð afstaða og hláturmildi voru sannarlega persónutöfrar sem prýddu þessa miklu konu. Og hún var einstak- lega heillandi. Laufey var sannur ættarhöfð- ingi sem hélt fjölskyldunni saman í blíðu og stríðu. Á hverjum sunnudegi töfraði hún fram veislu. Flest barnabörnin ólust upp við það að fara í sunnudags- kaffi til ömmu. Þar var alltaf gaman og mikið um að vera. Amma Laufey var ávallt með hlaðið borð af nýbökuðum hnall- þórum og sá til þess að allir færu saddir og sælir heim. Í rúm tuttugu ár nutum við Tobba þeirra forréttinda að fá Laufeyju og Freyju móður mína í mat flestar helgar ársins og stundum í miðri viku líka. Börnin okkar fengu að alast upp með þá fjölskyldumynd að ömmurnar væru hluti af okkar heimilislífi og við hjónin náðum að viðhalda nánum samvistum við mæður okkar lengur en flestir fá tæki- færi til. Það var okkur öllum dýr- mætt. Margar og verðmætar minn- ingar urðu til á þessum árum, áhugaverð skoðanaskipti og kær- leiksríkar stundir. Laufey var einstaklega skemmtilegur við- mælandi, hafði sterkar skoðanir á málefnum líðandi stundar þótt hún væri ekki áberandi pólitísk. Hún varði þó einarðlega þá stjórnmálamenn sem henni líkaði vel við. Þeir gátu alveg verið frá ólíkum flokkum ef svo bar við. Flokksskírteini voru engar ávís- anir á mannkosti. Að leiðarlokum langar mig að þakka Laufeyju fyrir allan þann stuðning, kærleika og vináttu sem hún sýndi okkur Tobbu, börnum okkar og barnabörnum. Börnum hennar, systkinum og ástvinum öllum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Við getum sem betur fer yljað okkur við hlýjar minningar um mikla og góða konu sem sannarlega auðg- aði líf okkar allra. Leópold Sveinsson. Elsku amma mín, ég er enn að átta mig á því að þú sért farin. Ég trúi því að nú sért þú komin á fal- legan stað og njótir þín vel, laus við veikindi og sársauka. Í síðasta skipti sem ég hitti þig sagðir þú við mig; „ég og þú – við náðum alltaf svo vel saman“. Það var hárrétt, við vorum bestu vin- konur, töluðum saman um hluti sem við gátum ekki rætt við neinn annan, áttum okkar eigin leyndarmál og tengdumst á ein- hvern sérstakan hátt. Allar þess- ar stundir okkar saman, ég er svo þakklát fyrir þær. Þú hafðir einhvern sérstakan eiginleika, að vita hvenær mér leið illa. Þú hringdir alltaf á hár- réttum tíma og sást á mér ef eitt- hvað var að. Þú varst alltaf tilbúin að hlusta á mig og vera til staðar. Eins hafðir þú alltaf trú á mér og hvattir mig áfram í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Í æsku vissu allar vinkonur mínar hver þú varst, amman sem allir elsk- uðu, skemmtilega amman. Þú varst alltaf tilbúin að skutla okk- ur vinkonunum hingað og þangað og elskaðir félagsskapinn. Þú kvartaðir aldrei yfir neinu enda duglegasta, já og þrjóskasta, kona sem ég hef á ævi minni kynnst. Með níu líf eins og kött- urinn náðir þú að sigrast á hinum ótrúlegustu hindrunum, lést ekk- ert og engan stoppa þig. Elsku besta amma mín, þó svo ég hefði meir en nokkuð annað viljað hafa þig lengur hjá okkur, þá er ég innilega þakkát fyrir þau 28 ár sem ég átti með þér. Það sem mér þykir þó erfiðast er að mín börn, þegar þau koma, munu ekki fá að kynnast Laufeyju lang- ömmu sinni. Ég lofa þér þó því að þau munu alltaf fá að vita af þér, hver þú varst og heyra sögur af mögnuðustu konu sem ég hef kynnst, ömmu Laufeyju. Elsku fallegasti engill á himn- um, Laufey amma mín, takk fyrir allar dýrmætu stundirnar okkar saman. Minningarnar munu lifa að eilífu. Þangað til við hittumst næst. Ég elska þig. Þín, Ingibjörg Thelma. Ákveðin, ljúf, hugrökk, sterk, vinnusöm, dugleg og sönn eru ör- fá lýsingarorð sem þó lýsa einni bestu vinkonu minni best. Við amma Laufey höfum alltaf haft sérstaka tengingu. Ég bjó hjá henni og afa þegar ég fæddist og var alltaf mikið hjá þeim sem barn. Ég fór margoft með ömmu í vinnuna, bæði í Kápuna á Lauga- vegi, sem var einn skemmtileg- asti staður sem hægt var að leika sér á, sem og að skúra Féló þar sem ég átti nokkur föst hlutverk. Ég leit á heimili ömmu og afa sem mitt annað heimili, ég var mikið hjá þeim og gisti í ófá skipti, með upptrekktu klukkuna mér við hlið. Ég átti alltaf skjólshús hjá ömmu, líka þegar unglingaveikin var sem verst hjá mér og allt ómögulegt í lífinu að mínu mati. Amma var sannkallaður ættar- höfðingi, límið í fjölskyldunni. Stórfjölskyldan er náin og afkom- endur margir. Vinir ömmu á öll- um aldri og margir kynnst henni í gegnum börn og barnabörn. Það elskuðu allir ömmu Laufeyju. Hún hefur alltaf munað allt, alla viðburði sem voru fram undan, hvenær allir eiga afmæli og jafn- vel hvernig veður var þegar við fæddumst og þrátt fyrir veikindi síðustu ára þá gleymdi hún ekki merkisdögum. Sunnudagskaffi ömmu var alltaf á sínum stað og súkkulaðikaka með hvítu kremi jafnan á borðum. Faðmurinn var hlýr, hjartað stórt og ávallt pláss fyrir knús og spjall um allt milli himins og jarðar. Amma hefur alltaf verið mín helsta klappstýra í lífinu, hún hef- ur alltaf haft trú á mér og hvatt mig áfram. Hún hafði einstaka eiginleika og mikla spáhæfileika, hún sá og fann meira en aðrir. Þrjóska hennar og ákveðni kom henni langt og margir afkomend- ur hafa erft þá eiginleika. Ég er þakklát fyrir öll þau ár sem við fengum saman og þakklát fyrir að börnin mín fengu að kynnast langömmu Laufeyju. Amma var ein af mínum helstu fyrirmynd- um í lífinu og sakna ég hennar gríðarlega. Elsku amma, afi tekur á móti þér með hlýjum faðmi og við ylj- um okkur við minningar af stór- kostlegri og einstakri konu. Að lokum segi ég eins og þú sagðir alltaf við mig: Guð geymi þig. Ég elska þig að eilífu Þín, Freyja. Í dag kveðjum við elsku ömmu okkar Laufeyju Þorleifsdóttur sem kvaddi þessa jarðvist 14. júlí síðastliðinn. Það er margs að minnast þegar hugsað er um elsku ömmu Laufeyju. Það sem helst þó stendur upp úr er hversu félagslynd hún var og hversu um- hugað henni var um afkomendur sína. Þangað til amma hætti að hafa heilsu til var hún ávallt með sunnudagskaffi þar sem börn hennar, barnabörn og barna- barnabörn mættu. Gengið var að því vísu að amma hefði bakað og stundum þegar hún var í stuði endaði kaffiboðið á því að hún spáði í bolla, sem var yfirleitt spá um bjarta framtíð og ferðalög. Amma var svona kona sem laðaði að sér fólk. Það var vegna þess að hún var opin og hress, hafði ávallt tíma fyrir spjall og gaf af sér hlýju og einlægan áhuga á því fólki sem hún umgekkst. Hún var óspör á hrós og stolt hennar af barnabörnum sínum leyndi sér ekki. Það er ekki sjálfgefið að fólk sem upplifir hindranir í lífinu búi yfir svona gleði, hamingju og um- hyggju fyrir náunganum eins og amma gerði. Líf hennar hafði langt frá því verið dans á rósum og frá því elstu barnabörn hennar muna vann hún mikið, jafnvel í fleiri en einni vinnu. Til dæmis muna elstu barnabörnin eftir því að fara með ömmu að skúra en gerðu sér ef til vill ekki grein fyr- ir því að amma var þegar búin að vinna fullan vinnudag annars staðar þegar mætt var í næstu vinnu, að þrífa. Amma var sko ekki að kveinka sér. Hún hafði ekki mikið á milli handanna og þurfi að hafa fyrir öllu sínu, hún var harðdugleg og þessi dugnað- ur, hvort sem hann hefur erfst með genum eða félagsmótun, hef- ur skilað sér til barna og barna- barna sem eru allt hörkuduglegt fólk. En amma kom einnig þrjósku og því að gefast ekki upp til afkomendanna og hafa margir haft á orði að konur í þessari fjöl- skyldu séu afskaplega sterkar og láti ekki neitt stoppa sig. Já, það var gróði að alast upp með svona fyrirmynd. Ömmu verður ávallt saknað og við mun- um hugsa hlýlega til hennar um ókomna tíð. Hvíl í friði elsku amma. Albert Örn, Eyrún, Jón Þór og Laufey Eyþórsbörn. Laufey Þorleifsdóttir ✝ Hafdís Stein- grímsdóttir fæddist á Berg- þórugötu 6b í Reykjavík 7. janúar 1945. Hafdís lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Sel- fossi 19. nóvember 2021. Foreldrar Haf- dísar voru Guð- mundína Sigurveig Stefánsdóttir, f. 15.9. 1906, d. 15.10. 1992, og Steingrímur Kristinn Jónsson, f. 17.7. 1906, d. 12.9. 1962, bæði úr Reykjavík. Hálfsystkini Hafdísar voru Sig- urður Sigurðsson, f. 28.4. 1926, d. 31.1. 2003, og Unnur Sólveig Vilbergsdóttir, f. 15.11. 1933, d. 16.4. 2012. Hafdís giftist Hafliða Krist- björnssyni, f. 28.1. 1930, d. 29.11. 2018, frá Birnustöðum á Skeiðum þann 21.12. 1968 en þau skildu seinna. Fyrir átti Hafdís tvö börn, Helgu Guð- laugsdóttur, f. 4.7. 1965, faðir Guðlaugur Jónsson, f. 21.1. 1930, d. 10.7. 2017, og Steingrím K. Reynisson, f. 6.7. 1967, faðir Reynir Guðlaugsson, f. 30.1. 1928, d. 13.2. 2011. Hafdís og Hafliði áttu sjö börn saman en þau eru Kristbjörn Hafliðason, f. 16.5. 1969, Guðmundur Haf- liðason, f. 11.11. 1971, Val- gerður Hafliðadóttir, f. 3.7. 1973, Ólafur Hafliðason, f. 10.5. 1975, Steinn Hafliðason, f. 4.9. 1977, Finnur Hafliðason, f. 10.12. 1979, og Friðjón Elli Haf- liðason, f. 16.9. 1981. Helga og Steingrímur ólust upp samhliða systkinum sínum á Birnustöð- um. Hafdís lætur sömuleiðis eft- ir sig 17 barnabörn. Hafdís ólst upp hjá móður sinni og bjó með henni í Reykja- vík fram yfir tvítugt. Hafdís gekk í Austurbæjarskóla í Reykjavík og tók landspróf úr Gagnfræðiskóla Vesturbæjar. Að loknu landsprófi sótti Hafdís nám í Húsmæðra- skólanum á Laug- arvatni veturinn 1962-1963. Hafdís fór snemma að vinna sveitastörf víða um sveitir, fyrst sumarlangt á unglingsaldri sem kaupakona en seinna meir sem ráðskona. Hafdís vann m.a. á Hlíð- arenda í Ölfusi, á Laxfossi í Staf- holtstungum, í Þykkva- bæjarklaustri í Álftaveri, Sumarliðabæ í Holtum, Hrísum í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, Ásmundarstöðum í Ásahreppi og Birnustöðum á Skeiðum þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, Hafliða Kristbjörnssyni. Hafdís var bóndi og húsfreyja að Birnustöðum þar til þau Haf- liði skildu. Einnig vann hún í þó- nokkur ár á saumastofu á Húsa- tóftum á Skeiðum meðfram sveitastörfum. Hafdís flutti að Nesi í Fljótum í Skagafirði árið 1995 og bjó þar með sambýlis- manni sínum, Gunnlaugi Páls- syni, f. 27.9. 1943, d. 28.9. 2015, til ársins 2000 er hún flutti á Sel- foss og bjó þar allar götur síðan, síðast til heimilis að Fossvegi 6. Hafdís vann um tíma við fiskeldi og heimahjúkrun í Skagafirði en eftir að hún flutti á Selfoss vann hún m.a. sem saumakona fyrir Maríu Lovísu fatahönnuð auk tilfallandi vinnu á ýmsum stöðum. Hafdís var virk í fé- lagsstarfi Kvenfélags Skeiða- hrepps um tíma og starfaði með Leikfélagi Selfoss síðustu 15 ár- in sem sauma- og búningakona þar sem hún kom að flestum sýningum félagsins. Útför Hafdísar fer fram í Sel- fosskirkju í dag, 26. júlí 2021, klukkan 13. Slóð á streymi má finna á www.mbl.is/andlat/. Stytt slóð á streymi: https://tinyurl.com/6vfspwzt. Hún Dísa föðursystir mín var einstök persóna á svo margvís- legan hátt. Glaðlynd með einstak- an húmor og sá gjarnan skondna hluti í hversdeginum, hún var ákveðin, en líklega var þessi lág- vaxna hlýlega kona einhver harð- asti nagli sem fyrirfannst. Þegar hún hafði tekið ákvörðun þá varð henni ekki þokað. Hörðust var hún þó líklega við sjálfa sig og neitaði sér um margt sem öðrum þótti sjálfsagt. Dísa var ákaflega listræn og skapandi alla tíð. Margir fallegir hlutir liggja eftir hana og jólakortin sem hún hand- gerði jafnan og sendi fjölskyldu og vinum voru oft algjör lista- verk. Pabbi og Dísa voru sam- mæðra og á einu stórafmæli hans fylgdi gjöfinni mynd af hesti. Myndin var öll gerð úr stráum, vöðvar hestsins hnykluðust, faxið bylgjaðist og augnaráð hans sýndi viljann. Þessi mynd var mikið listaverk og ótrúlegt að hún skuli aðeins hafa verið gerð úr stráum. Frá æsku hafði Dísa átt marga pennavini. Þeir voru víða um land en einnig á Norðurlöndum og hélt hún sambandi við suma þeirra fram á fullorðinsár. Á æskuárum Dísu bjuggu þær amma í Reyja- vík en Dísa fór oftast í sveit á sumrin og tengdist sveitinni meira en borginni og vildi frekar búa í dreifbýli. Þegar Dísa var sautján ára fór hún í Húsmæðra- skólann á Laugarvatni sem þá var eins árs skóli. Þar lærði hún margt nytsamlegt og kynntist góðum hópi sem hefur að stórum hluta haldið sambandi síðan. Þessi menntun leiddi síðan til þess að Dísa varð ráðskona í sveit á nokkrum stöðum. Þar til hún réð sig til Hafliða á Birnustöðum og síðan giftu þau sig. Dísa talaði stundum um að hún gæti alveg bætt sig varðandi skipulagningu í lífi sínu. En það átti þó ekki við um barneignir hennar. Því að frá því að hún eignaðist sitt fyrsta barn tvítug að aldri 1965 eignað- ist hún barn annað hvert ár, alltaf á oddatöluári, þar til níu börn voru fædd. Börnin voru hennar ríkidæmi og var hún ákaflega stolt af þeim. Enda mátti hún vera það. Þau eru vandað og gott fólk og hvert öðru myndarlegra. Þó að börnin hafi á sínum tíma verið mörg á heimilinu voru sum- arbörnin mjög velkomin til dvalar og afkomendur ættingja og vina fengu að njóta þess. Dísa bjó stærstan hluta ævinn- ar í sveit en síðustu áratugi bjó hún á Selfossi. Hún kunni vel við sig þar sem hún gat verið í ná- lægð við flest barna sinna. Sér- staka ánægju hafði hún líka af tímanum sem hún starfaði með leikfélaginu á Selfossi. Þar vann hún fyrir ánægjuna eina við saumaskap og margvísleg verk- efni sem tengjast starfsemi fé- lagsins og uppsetningu á leik- verkum, mála leikmynd eða aðstoða leikara við búningskipti o.fl. Hún lét sig stundum dreyma um, að ef hún næði heilsu aftur gæti hún e.t.v. eitthvað hjálpað til í leikfélaginu aftur. Það var alltaf gaman að spjalla við Dísu. Við vildum koma slíku spjalli í fast form og vorum komn- ar með þá reglu að ræða saman einu sinni í viku. Þannig höfum við haft það á annað ár. Við höfð- um ánægju af þessum samræð- um. Ég mun sakna Dísu frænku minnar og votta börnum hennar, tengdabörnum og afkomendum dýpstu samúð. Kristín Sæunnar- Sigurðardóttir. Hafdís Steingrímsdóttir Konan mín kær, STEINUNN JÓNSDÓTTIR Hafnfirðingur og Árbæingur, Suðurlandsbraut 68b, lést mánudaginn 19. júlí á Hrafnistu Laugarási. Útförin fer fram frá Árbæjar- kirkju miðvikudaginn 4. ágúst klukkan 13. Þorvaldur S. Þorvaldsson Jón Þór Þorvaldsson Guðrún Anna Ingólfsdóttir Herdís Sif Þorvaldsdóttir Þorvaldur Bjarni Þorvaldss. Þórunn Geirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn DR. AÐALGEIR KRISTJÁNSSON frá Finnsstöðum í Ljósavatnshreppi, sagnfræðingur og fyrrverandi skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands, verður jarðsunginn frá Þorgeirskirkju á Ljósavatni föstudaginn 30. júlí klukkan 13. Systkinabörn hins látna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.