Morgunblaðið - 26.07.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
„ÞETTA ER FRAMÞRÓUN. Í SÍÐUSTU
VIKU GASTU EKKI SETIÐ UPPRÉTTUR
ÁN ÞESS AÐ MISSA JAFNVÆGIÐ VEGNA
HÖFUÐSINS.“
„ÞÚ ERT EINS OG MÁGUR MINN. HANN ER
MEÐ STUTTA HANDLEGGI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda sambandi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG FÆ ALLTAF ÞAÐ SAMA Í
JÓLAGJÖF…OST!
HVERT… EINASTA… ÁR!
ALLTAFOST!
OST! OST! OST! OST!
OST!
EKKI
SPURNING!
LÍFIÐ ER SEM
SAGT LJÚFT?
EF ÞÚ JÁTAST MÉR MUN ÞESSI
ERFÐAGRIPUR VERÐA ÞINN!
EN
RÓMAN-
TÍSKT!
STEINNINN ER
SKORINN EINSOG
HAUSKÚPA!
HANN TILHEYRÐI FRÆNDA
MÍNUMOG SKIPSTJÓR-
ANUM RAUÐSKEGGI
SJÓRÆNINGJA!
ÉG
ÆTLA AÐ
HUGSA
MÁLIÐ.
arinnar og þar á meðal stóru hlut-
verki í Þjóðleikhúsinu. Hún starfaði
sem dagskrárgerðarmaður á Rás 2 í
tíu ár og meðfram listinni starfaði
hún einnig sem flugfreyja hjá Ice-
landair frá 2013 til 2018. Heiða hefur
gefið út tvær sólóplötur og sungið inn
á ótal upptökur og m.a. sungið í und-
ankeppni Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í mörg skipti og ver-
ið í ýmsum söngleikjum. Nýjasta
hlutverk Heiðu er eiginkonuhlut-
verkið, en hún giftist sínum heittelsk-
aða, Páli Helgasyni, á laugardaginn
var, 24. júlí.
Fjölskylda
Eiginmaður Heiðu er Páll Helga-
son, doktor í tölvunarfræði og gervi-
greind, og starfar sem tæknistjóri
hjá Activity Stream, f. 24.7. 1977. Þau
eru nýflutt í draumahúsið í Garðbæn-
um. Foreldrar Páls eru hjónin Helgi
Hjálmarsson arkitekt, f. 22.4. 1936,
og María Andrea Hreinsdóttir
menntaskólakennari, f. 28.8. 1938.
Þau búa í Fossvogi. Sonur Heiðu er
Snorri Snorrason, f. 26.8. 2015, og
stjúpbörn Hugi Hrafn Helgason, f.
29.8. 2005, og Kristín María Helga-
dóttir, f. 27.1. 2008. Bróðir Heiðu er
Halldór Ólafsson, sölustjóri í Kópa-
vogi, f. 4.9. 1978.
Foreldrar Heiðu eru hjónin Ólafur
Björn Halldórsson, skipstjóri og út-
gerðarmaður, f. 18.1. 1957, og Elsa
Björk Sigurðardóttir bankamaður, f.
9.6. 1958. Þau búa á Hólmavík.
Aðalheiður
Ólafsdóttir
Þuríður Guðmundsdóttir
húsfreyja, fiskverkakona og
fékkst við ýmis störf á Hólmavík
Ragnar Hafstein
Valdimarsson
bifreiðastjóri á Hólmavík
Aðalheiður Hafstein Ragnarsdóttir
húsfreyja á Hólmavík
Sigurður Árni Vilhjálmsson
bifreiðastjóri og sjálfstæður
atvinnurekandi á Hólmavík
Elsa Björk Sigurðardóttir
bankamaður á Hólmavík
Jakobína Áskelsdóttir
húsfreyja á Kaldraðarnesi
og síðar á Hólmavík
Jón Vilhjálmur Sigurðsson
bifreiðastjóri í Hólmavíkurhreppi
Sigrún Eggertína Björnsdóttir
húsfreyja á Göngustaðakoti,
Upsasókn, Eyj., síðast bús. á Akranesi
Björn Guðmundsson
búfræðingur og smiður á
Göngustaðakoti, Upsasókn, Eyj.
og víðar, síðast bús. á Akranesi
Fanney Björnsdóttir
húsfreyja á Hólmavík
Halldór Tryggvi Ólafsson
vörubílstjóri, ýtustjóri, fiskverkamaður
og grenjaskytta á Hólmavík
Kristjana Halldórsdóttir
húsfreyja, síðast bús. í Keflavík
Ólafur Jóhannsson
sjómaður og bóksali, síðar
bifreiðastjóri í Kópavogi
Úr frændgarði Aðalheiðar Ólafsdóttur
Ólafur Björn Halldórsson
skipstjóri og útgerðarmaður
á Hólmavík
Bjarni Sigtryggson yrkir „Örljóð
dagsins“á Boðnarmiði:
Sumarið
sunnanlands
er í fríi
norðaustanlands.
„Hátíð í bæ“ skrifar Guðmundur
Arnfinnsson og yrkir:
Nú er sól og sumardagur,
sem á jólum gleðin skín.
Hlýna ból og batnar hagur,
brosir fjóla, vina mín.
Kátur núna kveð ég bögur,
kyssir sólin laut og hól.
Úti á túni yndisfögur
er hún Fjóla á bláum kjól.
Tryggvi Jónsson hefur ráð undir
rifi hverju:
Litlir og stórir standa
strákar í vondum fjanda.
En með lögg af landa
leysa þeir allan vanda.
Og Gunnar J. Straumland veit
sínu viti:
Þegar frekjan hefur hátt
heimskan úr sér breiðir.
Þá skal opna uppá gátt
allar veiruleiðir.
Jón Atli Játvarðarson segir „erf-
itt að raða á lista Miðflokksins fyrir
þessar kosningar. Ekki allir
„þungavigtarmenn“ á eitt sáttir“:
Á Klaustri er viðhafnarvaka,
vélað um glingur og stáss.
En Miðflokks-tildrurnar taka
talsvert of mikið pláss.
Hallmundur Kristinsson segir, að
það séu margir áratugir síðan hann
uppgötvaði að nóg væri að nota lífs-
ins eitthvað í vísurnar til að þær
yrðu skáldlegar: – „Gríp stundum
til þessa ráðs (með misjöfnum ár-
angri)“:
Jafnvel þó að lífsins ljóðið
liggi á milli vatna,
virðist ekki vísnaflóðið
vera neitt að sjatna.
Hér eru tvær stökur eftir Sigurð
Breiðfjörð:
Ég er eins og veröldin vill
velta, kátur, hljóður,
þegar við mig er hún ill,
ekki er ég heldur góður.
Ef að við mig hún er hlý
og hugann eitthvað gleður,
er ég léttur eins og ský,
sem ýtir af sólu veður.
Limra eftir Gunnar J. Straum-
land:
Með von um að vísurnar batni
ég velja þarf orðin með natni,
en valkvíði þungur
sig vefur um tungur,
því heldur sú von ekki vatni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hátíð í bæ og lögg af landa