Morgunblaðið - 26.07.2021, Qupperneq 27
6.373 stig og Ísak Óli Traustason úr
UMSS varð þriðji með 5.997 stig.
_ Haraldur Franklín Magnús hafnaði í
60. sæti á Italian Challenge-mótinu
sem lauk í Furpine á Ítalíu í gær en það
var liður í Áskorendamótaröð Evrópu.
Haraldur lék þriðja hringinn á laug-
ardag á 72 höggum og lokahringinn í
gær á 75 höggum. Hann lauk keppni á
fjórum höggum yfir pari vallarins.
_ Spánverjinn Jon Rahm, efsti kylfing-
urinn á heimslista karla í golfi, þarf að
hætta við þátttöku í Ólympíuleikunum
eftir að hann greindist með kórónuveir-
una. Það er í annað sinn á rúmum
tveimur mánuðum sem það gerist en
Rahm þurfti að hætta keppni á Me-
morial-mótinu í Ohio í júní af sömu
sökum. Þá var hann
með góða forystu
fyrir lokahringinn
þegar niðurstaða
kom úr skimun.
_ Bryson DeC-
hambeau frá
Bandaríkjunum
þurfti einnig að
hætta við keppni á
Ólympíuleikunum af sömu ástæðu en
hann er í sjötta sæti heimslistans í
golfi. Patrick Reed kemur í hans stað en
fyrir í bandaríska ólympíuliðinu eru
Justin Thomas, Collin Morikawa og
Xander Schauffele.
_ Golfklúbbur Reykjavíkur varð á laug-
ardaginn tvöfaldur sigurvegari á Ís-
landsmóti golfklúbba. Karlalið félagsins
vann mótið í 24. skipti og kvennaliðið í
22. skipti. Í karlaflokki vann GR sigur á
GKG í úrslitaleiknum, 3:2, og krækti þar
með í titilinn í fyrsta sinn í níu ár. Í
kvennaflokki vann GR sigur á Golf-
klúbbi Mosfellsbæjar með þremur og
hálfum vinningi gegn einum og hálfum.
Golfklúbburinn Keilir féll úr 1. deild
karla og Golfklúbburinn Oddur úr 1.
deild kvenna. Keppt var á Hlíðavelli í
Mosfellsbæ og Korpúlfsstaðavelli.
_ Handknattleikslið ÍR fékk mikinn
liðsstyrk um helgina því þeir Kristján
Orri Jóhannsson og Sigurður Ingiberg
Ólafsson munu leika með liðinu á kom-
andi tímabili. ÍR-ingar féllu úr úrvals-
deildinni í vor og leika því í 1. deildinni á
næstkomandi tímabili. Bæði Kristján og
Sigurður Ingiberg
áttu stóran þátt í
því að Kría vann
sér inn sæti í úr-
valsdeildinni, en
að lokum hætti
Kría við að senda
lið til leiks næsta
vetur. Kristján og
Sigurður léku áður
báðir með ÍR.
_ Bandaríski bakvörðurinn Larry
Thomas hefur yfirgefið herbúðir Ís-
landsmeistara Þórs frá Þorlákshöfn í
körfuknattleik og samið við Ventspils í
Lettlandi. Thomas átti stóran þátt í Ís-
landsmeistaratitli Þórsara en hann
skoraði 20 stig, tók sex fráköst og gaf
sex stoðsendingar að meðaltali í leik.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Staðan í einvígi Vals og Breiðabliks
um Íslandsmeistaratitilinn er
óbreytt eftir að bæði unnu leiki sína
á laugardaginn. Síðasta von Selfyss-
inga um að nálgast toppliðin brast
með 2:1 ósigri gegn Breiðabliki á
Kópavogsvellinum.
Breiðablik þurfti að hafa mikið
fyrir sigrinum en mörkin komu á
fimm mínútna kafla seint í leiknum.
Í fyrri hálfleiknum varði Telma Ív-
arsdóttir í marki Blika vítaspyrnu
frá Brennu Lovera.
_ Agla María Albertsdóttir skor-
aði sitt 9. mark í deildinni í ár þegar
hún kom Blikum yfir úr vítaspyrnu.
_ Bergrós Ásgeirsdóttir skoraði
sitt fyrsta mark á sjö árum á Ís-
landsmóti þegar hún jafnaði fyrir
Selfoss.
Valur vann öruggari sigur á Þór/
KA, 3:1 á Akureyri og heldur
tveggja stiga forystu á Breiðablik.
Þór/KA tapaði í fyrsta sinn í sex
leikjum og er áfram á hættusvæði
deildarinnar.
_ Dóra María Lárusdóttir skoraði
sitt 94. mark í deildinni þegar hún
kom Val í 2:1 beint úr aukaspyrnu.
ÍBV er komið á lygnan sjó í deild-
inni eftir sigur á Tindastóli á Há-
steinsvelli, 2:1, í gær. Eyjakonur eru
nú sjö stigum frá fallsæti en Tinda-
stóll situr áfram tveimur stigum fyr-
ir ofan Fylki og Keflavík.
_ Þóra Björg Stefánsdóttir var
áfram á skotskónum og skoraði sitt
fjórða mark í síðustu sjö leikjum
ÍBV.
_ Aldís María Jóhannsdóttir
skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild
þegar hún kom Tindastóli yfir í
leiknum.
_ Ítarlega er fjallað um leikina á
sérvefnum Íslenski boltinn á íþrótta-
vef mbl.is.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Lára Kristín Pedersen í
baráttunni gegn Þór/KA.
Erfiðara hjá Blikum en Val
- Eyjakonur eru komnar á lygnari sjó ÞÓR/KA – VALUR 1:3
0:1 Sjálfsmark 17.
1:1 Margrét Árnadóttir 35.
1:2 Dóra María Lárusdóttir 45.
1:3 Ásdís Karen Halldórsdóttir 46.
MM
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
M
Harpa Jóhannsdóttir (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Mist Edvardsdóttir (Val)
Lára Kristín Pedersen (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Sólveig Larsen (Val)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val)
Dómari: Eiður Ottó Bjarnason – 7.
Áhorfendur: 87.
BREIÐABLIK – SELFOSS 2:1
1:0 Agla María Albertsdóttir 77.
1:1 Bergrós Ásgeirsdóttir 79.
2:1 Taylor Ziemer 81.
M
Telma Ívardóttir (Breiðabliki)
Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki)
Ásta Eir Árnadóttir (Breiðabliki)
Karitas Tómasdóttir (Breiðabliki)
Áslaug M. Gunnlaugsdóttir (Breiðab.)
Guðný Geirsdóttir (Selfossi)
Bergrós Ásgeirsdóttir (Selfossi)
Eva Núra Abrahamsdóttir (Selfossi)
Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi)
Emma Checker (Selfossi)
Dómari: Jóhann G. Guðmundsson – 6.
Áhorfendur: 110.
ÍBV – TINDASTÓLL 2:1
0:1 Aldís María Jóhannsdóttir 21.
1:1 Þóra Björg Stefánsdóttir 30.
2:1 Olga Sevcova 57.
MM
Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV)
Olga Sevcova (ÍBV)
M
Liana Hinds (ÍBV)
Amber Michel (Tindastóli)
Jacqueline Altschuld (Tindastóli)
Aldís María Jóhannsdóttir (Tindastóli)
Laufey Harpa Halldórsd. (Tindastóli)
Dómari: Elías Ingi Árnason – 8.
Áhorfendur: 56.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Meistaravellir: KR – Fylkir................. 19.15
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kaplakriki: FH – Augnablik................ 19.15
Grindavík: Grindavík – Grótta ............ 19.15
Víkingsv.: Víkingur R. – Haukar ........ 19.15
Kórinn: HK – Afturelding ................... 19.15
2. deild kvenna:
Þróttarvöllur: SR – ÍR......................... 19.15
Í KVÖLD!
Ólympíuleikarnir
Riðlakeppni karla:
Íran – Tékkland.................................... 78:84
Þýskaland – Ítalía................................. 82:92
Ástralía – Nígería................................. 84:67
Frakkland – Bandaríkin ...................... 83:76
>73G,&:=/D
Ólympíuleikarnir
Riðlakeppni karla:
Svíþjóð – Barein .................................. 32:31
- Aron Kristjánsson þjálfar Barein.
Þýskaland – Spánn.............................. 27:28
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Danmörk – Japan ................................ 47:30
- Dagur Sigurðsson þjálfar Japan.
Noregur – Brasilía ............................... 27:24
Frakkland – Argentína ........................ 33:27
Portúgal – Egyptaland ........................ 31:37
Riðlakeppni kvenna:
Noregur – Suður-Kórea ..................... 39:27
- Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Holland – Japan.................................... 32:21
Rússland – Brasilía .............................. 24:24
Svartfjallaland – Angóla ...................... 33:22
Spánn – Svíþjóð .................................... 24:31
Ungverjaland – Frakkland.................. 29:30
E(;R&:=/D
ÓL TÓKÝÓ
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Kína, Bandaríkin og Japan fara best
af stað í baráttunni um verðlaunapen-
ingana á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Alls voru 29 gullpeningar í boði á
fyrstu tveimur keppnisdögum leik-
anna um helgina. Kínverjar kræktu í
sex þeirra, Japanir í fimm og Banda-
ríkjamenn í fjóra. Þá fengu Kínverjar
flesta verðlaunapeninga samanlagt
um helgina, 11 talsins, Bandaríkja-
menn fengu 10, Rússar sjö og Japanir
sex.
Kínverjar hafa unnið gull-
verðlaunin sín í skotfimi kvenna, lyft-
ingum karla og kvenna og dýfingum
kvenna.
_ Stórtíðindi urðu í körfuknattleik-
skeppni karla í gær þegar Frakkland
sigraði stjörnum prýtt NBA-lið
Bandaríkjanna, 83:76, eftir magn-
aðan lokasprett. Frakkar gerðu þar
sextán stig gegn tveimur og Evan
Fournier, sem sjálfur leikur með
Boston Celtics í NBA-deildinni, átti
stórleik og skoraði 28 stig. Þetta er
fyrsta tap Bandaríkjanna á Ólympíu-
leikum frá árinu 2004.
_ Stórstjarnan Simone Biles fór
ekkert sérstaklega af stað í fim-
leikakeppni leikanna í gær. Hún vann
aðeins eina grein í fjölþrautinni,
stökkið, en varð önnur í gólfæfingum,
sjöunda á jafnvægisslá og tíunda á
tvíslá. Átta bestu komast áfram í úr-
slit á einstökum áhöldum en þar sem
aðeins tvær frá hverju landi mega
fara áfram sleppur Biles í úrslitin á
tvíslánni. Fjórir Rússar voru meðal
átta efstu og tvær þeirra sitja því eft-
ir.
Biles vann samt fjölþrautina, var
með flest stig samanlagt, 57.731, og
getur því enn hreppt sex gullverðlaun
á leikunum, fimm í einstaklings-
keppni og svo í liðakeppni en hún
hlaut fjögur í Ríó fyrir fjórum árum.
Sveit Rússa var efst, á undan þeirri
bandarísku, eftir liðakeppnina í fjöl-
þrautinni í gær.
_ Snæfríður Sól Jórunnardóttir
keppir í fyrri grein sinni, 200 metra
skriðsundi, í dag. Hún syndir í þriðja
riðli af fjórum klukkan 10.09 að ís-
lenskum tíma en þá er klukkan orðin
19.09 að kvöldi í Japan. Snæfríður á
23. besta tímann af 30 keppendum í
greininni. Íslandsmet hennar er
2:00,50 mínútur og miðað við tíma
annarra keppenda þarf hún að bæta
það um einar þrjár sekúndur til að
komast í undanúrslit en þangað fara
sextán bestu í undanrásunum.
_ Ásgeir Sigurgeirsson keppti
fyrstur Íslendinganna á leikunum
eldsnemma á laugardagsmorgun að
íslenskum tíma. Hann hafnaði í 28.
sæti af 36 keppendum í loftskamm-
byssu af 10 metra færi og fékk 570
stig.
Ásgeir átti góðar fjórar umferðir af
sex, fékk 95 og 98 stig í fyrstu tveim-
ur og 97 í tveimur þeim síðustu. Um-
ferðir númer þrjú og fjögur felldu
hann en þar fékk Ásgeir aðeins 91 og
92 stig. Íslandsmet hans í greininni er
589 stig og hann hefði þurft 578 til að
komast í átta manna úrslitin en efstu
menn í undankeppninni í Tókýó
fengu 586 stig.
Kínverjar fara best af stað
- Fyrri greinin hjá Snæfríði Sól í dag
- Biles og NBA-liðið voru í basli í gær
Ljósmynd/Simone Castrovillari
Tilbúin Snæfríður Sól Jórunnardóttir ásamt Eyleifi Jóhannessyni þjálfara á
æfingu í Tókýó í gær. Hún keppir í 200 m skriðsundi um tíuleytið í dag.
Danmörk
AaB – Midtjylland.................................... 0:1
- Mikael Anderson lék í 87 mínútur með
Midtjylland og Elías Rafn Ólafsson var
varamarkvörður liðsins.
Nordsjælland – AGF ............................... 0:0
- Jón Dagur Þorsteinsson lék ekki með
AGF vegna meiðsla.
Köbenhavn – Silkeborg .......................... 0:0
- Hákon Arnar Haraldsson var ekki í leik-
mannahópi Köbenhavn.
- Stefán Teitur Þórðarson lék ekki með
Silkeborg vegna meiðsla.
Randers – OB ........................................... 1:1
- Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 78 mín-
úturnar með OB.
B-deild:
Nyköbing – Lyngby................................. 1:2
- Frederik Schram var ekki í hópi
Lyngby. Freyr Alexandersson þjálfar liðið.
Bandaríkin
Orlando Pride – OL Reign...................... 0:2
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Orlando Pride.
Houston Dash – Portland Thorns.......... 0:1
- Andrea Rán Hauksdóttir var varamaður
hjá Houston og kom ekki við sögu.
Svíþjóð
Hammarby – Norrköping....................... 2:1
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
- Ari Freyr Skúlason lék í 59 mínútur með
Norrköping og lagði upp markið. Ísak B.
Jóhannesson var í leikbanni og Jóhannes
Kristinn Bjarnason ekki í hópnum.
Häcken – Elfsborg................................... 1:1
- Oskar Tor Sverrisson lék allan leikinn
með Häcken en Valgeir Lunddal Friðriks-
son var á bekknum allan tímann.
- Hákon Rafn Valdimarsson var vara-
markvörður Elfsborg.
Sirius – Degerfors ................................... 2:0
- Aron Bjarnason lék ekki með Sirius
vegna meiðsla.
Belgía
Anderlecht – Royal Union St. Gilloise .. 1:3
- Aron Sigurðarson var ekki í leikmanna-
hópi Royal Union.
Rúmenía
Academica Clinceni – CFR Cluj............. 1:2
- Rúnar Már Sigurjónsson lék síðari hálf-
leikinn með CFR Cluj.
Ólympíuleikarnir
Riðlakeppni karla:
Egyptaland – Argentína.......................... 0:1
Nýja-Sjáland – Hondúras........................ 2:3
Frakkland – Suður-Afríka....................... 4:3
Brasilía – Fílabeinsströndin.................... 0:0
Ástralía – Spánn ....................................... 0:1
Rúmenía – Suður-Kórea.......................... 0:4
Japan – Mexíkó......................................... 2:1
Sádi-Arabía – Þýskaland ......................... 2:3
Riðlakeppni kvenna:
Síle – Kanada ............................................ 1:2
Kína – Zambía........................................... 4:4
Svíþjóð – Ástralía ..................................... 4:2
Japan – Bretland ...................................... 0:1
Holland – Brasilía..................................... 3:3
Nýja-Sjáland – Bandaríkin ..................... 1:6
KNATTSPYRNA