Morgunblaðið - 26.07.2021, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SCARLETT
JOHANSSON
FLORENCE
PUGH
DAVID
HARBOUR
O–T
FAGBENLE
RAY
WITHWINSTONE
RACHEL
ANDWEISZ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
Breskir leiklistargagnrýnendur eru
ekki á eitt sáttir um ágæti upp-
færslu Theatre Royal Windsor á
Hamlet eftir William Shakespeare
þar sem hinn 82 ára gamli Ian
McKellen fer með titilhlutverkið.
Sýningunni hefur verið lýst sem
„djarfri“, „sannfærandi“ og „handa-
hófskenndri óreiðu“. Uppfærsl-
unnar, sem var frumsýnd í liðinni
viku, hafði verið beðið með mikilli
eftirvæntingu, enda þótti það
spennandi nálgun hjá leikstjóranum
Sean Mathias að hafa sýninguna
„aldurs-, lita- og kynjablinda“.
Blekkir ekki áhorfendur
Arifa Akbar, gagnrýnandi The
Guardian, hrósar McKellen fyrir
„framúrskarandi blæbrigði og djörf-
ung“ í túlkun sinni á Hamlet, en hún
gefur uppfærslunni þrjár stjörnur.
Segir hún leikstjórann kynna sæg af
áhugaverðum hugmyndum til sög-
unnar, en að þær komist aldrei á
flug. „Það sem bjargar uppfærsl-
unni er leikritið sjálft sem hvílir al-
farið á herðum aðalleikarans,“ sem
takist að skapa prins fyrir alla, óháð
aldri og tíma.
„Aldursblindur prins McKellen
blekkir ekki áhorfendur þrátt fyrir
gott úhald leikarans,“ skrifar Ben
Lawrence, rýnir The Telegraph. Í
samantekt BBC um leikdómana er
rifjað upp að McKellen hafi í viðtali
í apríl gantast með það að þegar
hann lék Gandalf í Hringadrótt-
inssögu, sem var meira en 7.000 ára
gamall, hafi „enginn kvartað undan
því að ég væri of ungur. Ég get ekki
þóst vera 20 ára, enda myndi enginn
trúa því. En mér getur liðið eins og
tvítugri manneskju,“ sagði McKel-
len.
Paul Taylor, gagnrýnandi The
Independent, gefur uppfærslunni
fjórar stjörnur og tekur fram að
aldursbilið milli leikarans og per-
sónunnar sem hann lék hafi hrein-
lega gufað upp í rafmagnaðri og
kjarkmikilli uppfærslunni.
Sam Marlowe, rýnir hjá i News,
deilir ekki hrifningu Taylor og segir
að þrátt fyrir að McKellen búi yfir
miklum sviðssjarma þá hafi upp-
færslan verið „sundurlaus“.
Einstakur viðburður
Marlowe segir vissulega djarft að
fela leikara á níræðisaldri að leika
prinsinn unga, en „þrátt fyrir alla
sína kunnáttu og persónutöfra“ tak-
ist McKellen „aldrei að láta okkur
gleyma aldri sínum,“ skrifar Mar-
lowe og tekur fram að McKellen sé
það góður leikari að túlkun hans
verði þó aldrei óáhugaverð. „Þrátt
fyrir þátttöku fjölda hæfileikafólks
verður útkoman handahófskennd
óreiða sem vekur upp þá spurningu
hvað maður hafi í raun verið að sjá –
og hvað listafólkið var að pæla.“
Patrik Marmion hjá Mail Online
lýsir túlkun McKellen sem
„töfrandi“ og segir uppfærsluna
bjóða upp á „nýja sýn á Danaprins-
inn“. Vissulega finnist fágaðri upp-
færslur en þessi, en „þetta er án efa
einstakur viðburður sem ég efast
um að við munum upplifa aftur,“
skrifar Marmion. Sem fyrr segir var
uppfærslunnar beðið með mikilli
eftirvæntingu og spurn leikhúsgesta
eftir miðum það mikil að sýningar-
tímabiliið var lengt um þrjár vikur.
Sýningum lýkur því ekki fyrr en
undir lok septembermánaðar.
Ljósmynd/Theatre Royal Windsor, Marc Brenner
Danaprins Ian McKellen sem Hamlet.
„Handahófs-
kennd óreiða“
- Skiptar skoðanir eru um Hamlet
Deilur ráðamanna í Edo-fylki í Níg-
eríu gætu hindað að menningar-
verðmætum verði skilað þangað, að
því er kemur fram í frétt BBC. Um
er að ræða Benin-bronsið svokallaða
(e. the Benin Bronzes), þúsundir
járnskúlptúra og fílabeinsútskurð,
sem voru tekin ófrjálsri hendi þegar
breski herinn árið 1897 fór um
vesturafríska konungsríkið Benin,
þar sem nú er fylkið Edo í Suður-
Nígeríu. Evrópsk stjórnvöld hafa
verið undir miklum þrýstingi und-
anfarin ár um að bæta fyrir
nýlenduglæpi sína og skila þeim
menningarverðmætum sem numin
voru á brott þegar farið var með
gripdeildum um nýlendur Evr-
ópuríkja. Stjórnvöld í Þýskalandi og
nokkur söfn á Englandi hafa sýnt
áhuga á að skila þeim hluta bronsins
sem er í þeirra vörslu og væri það
stórt skref í eftirlendusögu Nígeríu.
Ósætti meðal ráðamanna í Ebo-
fylki hefur hins vegar sett strik í
reikninginn. Þeir eru ekki sammála
um hvar eigi að geyma Benin-
bronsið. Konungurinn, eða Obainn
af Benin, Ewuare II, sem er barna-
barnabarn þess konungs sem réð
ríkjum í Benin árið 1897, kallaði
menn á fund þar sem hann varaði
við þeirri tilraun að beina bronsinu í
ranga átt. Hópur, sem Obainn kallar
„gervihóp“ (e. artificial group) og
kallast Legacy Restoration Trust
(LRT) hafði ætlað að koma bronsinu
fyrir í safninu Edo Museum of Wes-
tern African Art, með stuðningi
fylkisstjórans í Edo, manns að nafni
Godwin Obaseki.
Þessu hefur Obainn mótmælt
harðlega. Honum þykir það eina
rétta í stöðunni vera að koma brons-
inu fyrir á konunglegu safni, það
væri eini réttmæti staðurinn fyrir
gersemarnar.
British Museum hafði samið við
LRT um fornleifaverkefni og þýsk
stjórnvöld höfðu velt því fyrir sér að
gera slíkt hið sama, enda töldu
stofnanirnar að LRT og Obainn
ynnu saman. Deilurnar virðast
sprotnar vegna vantraust og rígs
milli Obans og fylkisstjórans. Þær
setja verkefnið í hættu enda ólíklegt
að evrópsku stofnanirnar láti verð-
mætin af hendi nema Nígeríumenn
komist að samkomulagi.
Verðmæti Benin-bronsið var numið á brott árið 1897 og er geymt á ýmsum söfnum í Evrópu og Bandaríkjunum.
Deilur um Benin-bronsið
- Ósætti ráðamanna í Nígeríu tefur að menningarverð-
mætum verði skilað - Numin á brott á nýlendutímanum
Benin-bronsið Þúsundir járn-
skúlptúra og fílabeinsútskurða.
Ljósmynd fengin af vefnum britishmuseum.org