Morgunblaðið - 26.07.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 26.07.2021, Qupperneq 32
Hæ sæti – hvað vilt þú borða! Bragðgott, hollt og næringarríkt Smáralind | Kringlunni | Spönginni | Reykjanesbæ | Akranesi Sími 511 2022 | dyrabaer.is Víkingur Heið- ar Ólafsson er einleikari á Proms, tón- listarhátíð BBC í Royal Albert Hall í Lundúnum, laugardaginn 14. ágúst kl. 18.30. Hann kemur þar fram ásamt Philharmonia Orchestra undir stjórn Santtu-Matias Rouvali. Víkingur leikur hljómborðskonsert í f-moll, BWV 1056, eftir Johann Sebastian Bach og píanó- konsert nr. 24 í c-moll, K 491, eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Einnig verður flutt sinfónía nr. 1 í D-dúr eftir Sergej Prokofíev og sinfónía nr. 9 í Es-dúr eftir Dmítríj Shostakovitsj. Hlusta má á tónleikana beint á BBC Radio 3, en þeim verður einnig útvarpað á BBC Four sunnudaginn 15. ágúst. Víkingur Heiðar einleikari á Proms MÁNUDAGUR 26. JÚLÍ 207. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Kínverjar fengu flest gullverðlaun á fyrstu tveimur keppnisdögum Ólympíuleikanna í Tókýó en síðan komu Japanir og Bandaríkjamenn. Simone Biles og körfu- boltalandslið Frakklands og Bandaríkjanna voru í sviðs- ljósinu í gær. Fyrsti Íslendingurinn hefur lokið keppni og sá næsti stígur á stóra sviðið í dag. »27 Ólympíuleikarnir komnir á fulla ferð ÍÞRÓTTIR MENNING Björn Björnsson Sauðárkróki Veitingastaðurinn Sauðá var opnaður formlega á Sauðárkróki fyrir helgi og mættu fjölmargir bæjarbúar, sem og víðar að, til að fagna þessum nýja áfanga í veitingahúsaflóru bæjarins, ásamt eigendum og verktökum. Það er einkenni áræðinna frum- kvöðla og framkvæmdamanna að þeir sjá skemmtileg tækifæri, ef til vill með smábreytingum, frá því sem allir hinir hafa fyrir augunum hversdags- lega. Þannig fór það þegar arkitektinn og listasmiðurinn Magnús Freyr Gíslason flutti með eiginkonu sinni, Kolbrúnu Dögg Sigurðardóttur, aftur til Sauðárkróks eftir nokkurra ára fjarveru, að fljótlega vakti áhuga þeirra áratuga gömul hlaða, löngu af- lögð sem slík, og hafði staðið ónotuð eða sem geymsla og í stökustu nið- urníðslu, skammt frá Sauðánni í Sauðárgili. Í tvö til þrjú ár var hugmyndin að gerjast hjá þeim hjónum en mjög fljótlega bættust í samstarfið hjónin Selma Barðdal og Róbert Óttarsson bakarameistari. Þar sem hugmyndin var nú að mestu mótuð var lítið annað í boði en að hefjast handa. Hér vildu þau opna veitingastað, sem væri öðruvísi en þeir staðir sem fyrir eru á Króknum. Fyrir tíu mánuðum fengu þau yfirráð yfir hlöðunni og þar með fór allt af stað. Alls ekki að aðrir viti kostnaðinn Þau segja að þrátt fyrir ýmsa erf- iðleika vegna ástands í þjóðfélaginu hafi allar áætlanir staðist merkilega vel. Hlaðan stendur enn á sínum stað, en búið er að byggja við hana með- fram báðum langhliðum, mót suðri, rúmgóðan og vistlegan veitingasal. Að norðan er aðstaða starfsfólks, eld- hús og lager. Við suður- og vesturhlið er stór og glæsileg verönd, þar sem njóta má veitinga á góðviðrisdögum. Þeir Magnús og Róbert segja alla þá sem að framkvæmdinni komu hafa skilað verulega góðu verki og nefna þar til sögu Uppsteypuna ehf. sem annaðist alla steypuvinnu, Baldur múrara, Kára Björn pípara og Sigurð Ingimarsson og Tengil, sem annaðist raflagnir. Þá sá Þ. Hansen verktaki um alla jarðvegsvinnu. Hönn- unarvinna var unnin af Magnúsi Frey, en Verkfræðistofan Stoð ann- aðist burðarþols- og lagnateikningar. Auk þess komu að framkvæmdum ótaldir vinir og ættingjar sem lögðu hönd á plóg. Sammála eru þeir fé- lagar um að þetta átak hafi hafst í gegn á þrjósku, elju og því að hafa gaman af hlutunum. Þeir Magnús og Róbert voru að vonum býsna ánægðir með það að áfanga væri náð, og aðspurðir hvað þetta hefði nú kostað allt saman svar- aði Róbert: „Við viljum helst ekki vita það, að minnsta kosti ekki alveg strax.“ Og Magnús bætti við sposkur: „Og alls ekki að aðrir viti það.“ Afgreiðslutími Sauðár er enn að mótast, það mun eitthvað ráðast af móttökum og verður þá líklega frá hádegi og eitthvað fram á kvöldið, jafnvel til miðnættis. Örugglega munu margir leggja leið sína í veit- ingahúsið Sauðá, þar sem engin eru bílastæðin, enda ekki ætlast til að neinn aki heim eftir rólegt og afslapp- að kvöld í góðu og vistlegu umhverfi. Ljósmynd/Finnur Þór Friðriksson Sauðárkrókur Hjónin Kolbrún Dögg Sigurðardóttir og Magnús Freyr Gíslason og Róbert Óttarsson og Selma Barðdal við opnun veitingastaðarins, sem stendur við Sauðárgil fyrir miðju bæjarins. Gömul hlaða var gerð upp. Gömul hlaða gerð að öðruvísi veitingastað - Nýtt veitingahús opnað í Sauðárgili á Sauðárkróki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.