Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Qupperneq 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021 skráin átti enga sök á efnahagshruni eins og hér varð eða að alþjóðleg fjármálakreppa kæmi til landsins. Sannleikurinn er sá að þegar Ísland var í þess- ari veiku stöðu — stórhættulegri stöðu, sem hefði getað farið miklu verr — þá höfðum við engar leiðir eða bjargráð. En við höfðum lögin og full- veldið. Ekkert efnahagslegt afl við þessum al- þjóðlegu ofurkröftum, við höfðum bara vörnina sem fólst í lögunum. Við settum neyðarlög á grundvelli stjórnarskrár, sem okkar Hæstiréttur komst að því að stæðist og enginn getur fett fing- ur út í. Við beitum þarna fullveldinu og það var Íslandi til bjargar.“ En er það ekki skrýtið að þegar talið um nýja stjórnarskrá hefst, hvað það er mikið af fólki í þinginu, fólk sem hefur unnið eið að stjórnar- skránni, sem talar stjórnarskrána niður, grefur undan henni, grefur undan stofnunum ríkisins, grefur undan eigin umboði og stöðu? Og sumir enn að? „Stór orð og tilfinningahiti hafa einkennt þetta mál frá upphafi, litað af þeim átökum og ólgu sem voru í samfélaginu á sínum tíma. Auðvitað eru margir sem líta svo á að þetta sé helg arfleifð Búsáhaldabyltingar. Að það hafi verið gerð bylt- ing og margir litu svo á að það hafi verið bylting- arástand í landinu. Það hefur óneitanlega tengst svolítið þessari hreyfingu, sem er að berjast fyrir þessum málstað í dag. Það er ekki stjórnlagaráð- ið sem er að berjast fyrir því, heldur ákveðnir hópar eins og Stjórnarskrárfélagið, sem hafa tek- ið þennan gunnfána upp. Sú umræða hefur gengið svo langt að mætur maður eins og Ragnar Aðalsteinsson lögmaður lýsti því yfir í viðtali að valdarán væri eðlilegt svar ef „nýja stjórnarskráin“ tæki ekki gildi. En þá eru menn ekki lengur að virða stjórnarskrána og þar með hættir að virða grunngildi frjálslynds, stjórnarskrárbundins lýðræðis. Sem er graf- alvarlegt. Ég segi fyrir sjálfa mig, sem hef starfað í Sam- fylkingunni, stjórnmálaflokki vinstra megin við miðju, að jafnaðarmenn og jafnaðarmannaflokkar hafa aldrei verið þarna. Sósíaldemókratar eru þingræðissinnar, framfarasinnar sem vilja ná markmiðum sínum innan ramma stjórnar- skrárbundins lýðræðis, sem virðir þingræðið.“ Enginn þjóðarvilji Af hverju er umræðan komin á þennan stað? „Það er ekki hægt að koma tillögu stjórnlaga- ráðs í gildi með lögmætum hætti. Það er útilokað. Það er útilokað vegna þess að hún er ekki tilbúin. Útilokað af því að ferlið allt í þinginu fór út um þúfur.“ Hvernig þá? „Jóhanna Sigurðardóttir féllst á breytingar- regluna snemma í ferlinu þegar hún áttaði sig á því að annað væri ekki hægt, en það var misræmi milli þess sem hún gerði og þess sem hún sagði. Hún lét alltaf eins og það væri að koma algerlega ný stjórnarskrá og tönnlaðist á því að þjóðin hefði samið þessa nýju stjórnarskrá og svo framvegis. Tal um það, að það sé einhver einn þjóðarvilji, sem liggi fyrir og megi finna […] þjóðarvilji er ekki til nema í fasískri hugmyndafræði.“ Heldur þú að Jóhanna hafi trúað þessu? „Ég held að hún hafi haft mikinn áhuga á þessu máli, kannski meiri áhuga en flestir aðrir. Það hafði sjálfsagt mikil áhrif.“ Það voru auðvitað ýmsir í hruninu, sem fannst þeir eiga stefnumót við Íslandssöguna, en af hverju að hjakka enn í sama farinu, eins og ekk- ert hafi gerst í millitíðinni? „Já, það er bara þeirra val og lítið um það að segja. En maður getur á heiðarlegan hátt sest niður og reynt að skrifa greiningu á þessu máli, reynt að útskýra af hverju „nýju stjórnarskrána“ sé hvergi að finna. Svarið við spurningunni „Hvar er nýja stjórnarskráin?“ er einfaldlega að hana sé hvergi að finna. Þjóðaratkvæðagreiðslan um tillögurnar var svo gölluð að hún gat ekki leitt málið til lykta.“ Var verið að plata fólk á kjörstað? „Spurningarnar voru mismunandi, en aðal- spurningin var hvort það ætti að leggja tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar frumvarpi að stjórnarskrá. Þessi spurning er svo gölluð, bund- in svo miklum ef og þegar og kannski skilyrðum, að það er ekki hægt að úrskurða núna frekar en þá, hvaða texta var átt við. Það var illa útskýrt fyrir almenningi að það var búið að taka tillögur stjórnlagaráðs og breyta þeim mjög mikið. Raun- ar var haldið áfram að breyta þeim mikið eftir at- kvæðagreiðsluna. Um hvað var þá verið að kjósa?“ Atkvæðagreiðslan leiddi málið ekki til lykta, heldur jók á óvissuna? „Já. En svo er annað. Hvenær var var það ákveðið að breyta allri stjórnarskránni, að skrifa algerlega nýja stjórnarskrá? Það var aldrei ákveðið. Stjórnlagaráð var ekki beðið um það. Sú hugmynd að gerbylta stjórnarskrá í mjög vel virkandi lýðræðisþjóðfélagi, sem ég tel að Ís- land sé, er mjög áhættusöm. Hún getur ekki að- eins valdið upplausn í stjórnmálum, heldur hefur hún einnig óheillavænleg áhrif á réttarríkið sjálft, setur öll fordæmi í uppnám og eyðir öllum fyrir- sjáanleika, sem samfélagið hvílir að miklu leyti á. Við þekkjum það öll, meðal annars úr hruninu, að óvissan var óþolandi, hvort sem er fyrir sam- félagið, einstaklinga eða fjölskyldur. Það hefði verið eitt hið versta sem við hefðum getað gert, að láta það sama ganga yfir stjórnlög okkar.“ Það gæti nú enn gerst. „Það er blekking að halda því fram að til hafi staðið að gerbreyta stjórnarskránni í einu vet- fangi. Það var engin leið þá og það er engin leið til þess nú. Stjórnmálamaður, sem heldur því fram að hann ætli að fara að lögfesta tillögur stjórnlagaráðs, hann getur ekki gert það, hann getur ekki efnt það kosningaloforð.“ Fjármálahrun og búsáhalda- bylting var óheppilegur grund- völlur stjórnarskrárbreytinga. Morgunblaðið/Ómar Hugmyndin um nýja stjórnar- skrá varð til í andrúmsloftinu á Íslandi skömmu eftir banka- hrunið 2008, í óðagoti, uppnámi og ólgu. Þá átti að búa til Nýja Ísland og moka flórinn, koma á nýrri skipan. Leiðin að þessum mark- miðum reyndist kræklótt. Kosn- ing til ráðgefandi stjórnlagaþings um breytingar á stjórnarskrá var ógilt af Hæstarétti, en þá greip ríkisstjórnin til þess úr- ræðis að skipa stjórnlagaráð nánast sama fólki og hafði orðið efst í hinni ógildu kosningu. Það samdi tillögu að glænýrri stjórn- arskrá á fjórum mánuðum, í stað hinnar gömlu. Sú tillaga vafðist fyrir þinginu, enda margháttaðir gallar á henni. Samt var efnt til þjóðar- atkvæðagreiðslu um nokkrar greinar hennar og spurt hvort tillögur stjórnlagaráðs ættu að vera lagðar til grundvallar frum- varpi að nýrri stjórnarskrá. Innan við helmingur atkvæð- isbærra manna tók þátt, en 2/3 þeirra svöruðu spurningunni játandi; innan við þriðjungur kjósenda. Stuðningurinn við heildarumskipti á stjórnarskrá var því veikur, svo ekki sé meira sagt. Sumir drógu í efa þekkingu almennings á tillögunum, sem ekki er fráleitt í ljósi þess að Al- þingi var enn að breyta tillögun- um meðan og eftir að atkvæða- greiðslan fór fram. Þær stjórnarskrárbreytingar döguðu svo uppi en komust aft- ur í umræðuna í fyrra með her- ferð á félagsmiðlum og ýmsum gjörningum, þar sem gjarnan var spurt „Hvar er nýja stjórnar- skráin?“ #HVARERNYJA Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.