Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is Verið velkomin í heimsókn Mikið úrval hvíldarstóla fyrir alla Hvíldin byrjar í LÚR LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Á fimmtudag hófst dómshald í máli þriggja meðlima bresku rokkhljómsveitarinnar sálugu Sex Pistols. Steve Jones, gítarleikari hljómsveitarinnar, og Paul Cook, trommari hennar, hafa stefnt John Lydon sem fór fyrir hljómsveitinni á sínum tíma sem rauðhærði söngvarinn Johnny Rotten. Vilja þeir Jones og Cook nota lög hljóm- sveitarinnar í sex þátta þáttaröð um hljómsveitina sem Danny Boyle leikstýrir og mun kallast Pistol. Hljómsveitin var stofnuð árið 1975 en hennar tími leið undir lok þremur árum síðar. Síðan þá hefur hljómsveitin komið saman af og til, en nú virðist stirt á milli þeirra fé- laga. Lydon sagði í pistli fyrir stuttu að hann hefði verið settur „út í horn eins og rotta“ og væri ekki tilbúin að leyfa notkun laganna nema honum verði skipað það af dómstól. Við upphaf dómshaldsins í London á fimmtudag sagði lögmaður þeirra Jones og Cook að gerður hefði verið samningur á milli meðlimanna árið 1998 um að meirihluti þeirra þyrfti að samþykkja notkun á lögum hljómsveit- arinnar. Sá meirihluti liggi nú fyrir þar sem auk þeirra fé- laga hafi Glen Matlock, sem yfirgaf hljómsveitina 1977, auk dánarbús Sids Vicious, lagt blessun sína yfir notk- unina. Af orðum lögmanns Lydon má ætla að hann sé ósáttur við hvernig hann er túlkaður í endurminningabók Jones sem þættirnir munu byggja á. Meðlimirnir eftirlifandi árið 1996. Frá vinstri, Paul Cook, John Lydon, Steve Jones og Glen Matlock. AFP Sex þættir um Sex Pistols Ósætti ríkir á milli eftirlifandi meðlima hljómsveitarinnar Sex Pistols um notk- un á lögum hljómsveitarinnar í nýjum þáttum og er málið komið fyrir dóm. Greint var frá því í Morgun- blaðinu fyrir réttum sextíu árum að ný söluskrifstofa Loftleiða hefði verið opnuð í Rockefeller Center í New York. „Öll stjórn Loftleiða var stödd í New York þennan dag. Og hafði hún boð inni í tilefni þessa nýja áfanga í þróunarsögu félags- ins. Til hófs þessa kom sendi- herra Íslands í Bandaríkjunum, Thor Thors, fréttaritarar frá ýmsum stórblöðum, forystu- menn á ýmsum sviðum flug- mála, forstjórar ferðaskrifstofa og annarra viðskiptafyrirtækja Loftleiða í New York, auk all- margra starfsmanna félagsins,“ sagði í frétt blaðsins. Að loknum ræðuhöldum voru sýndar fagrar litskuggamyndir, sem Bandaríkjamaðurinn Mr. Gallagher hafði tekið á Íslandi Fram kom að nýja söluskrif- stofan væri á götuhæð í Rocke- feller Center, rétt við mikla ferðamanna- og umferð- armiðstöð, þar sem skautasvell er á vetrum en veitingastaður, umlukinn fánaborg, á sumrum, „og munu flestir þeir Íslend- ingar, sem til New York hafa komið, kannast við þann stað“. Allur búnaður skrifstofunnar var í senn mjög nýtískulegur, en þó íslenskur að yfirbragði. Á aðalvegg voru þrjú stór málverk eftir Ásgrím Jónsson. GAMLA FRÉTTIN Loftleiðir í New York Þessi mynd frá Rockefeller Center birtist með fréttinni í blaðinu árið 1961. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Patrick Dempsey leikari Sverrir Bollason verkfræðingur Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.