Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Page 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021 Þ egar Anna Gréta Oddsdóttir varð ófrísk að fyrsta barni þeirra Fann- ars Guðmundssonar á síðasta ári var gleðin að vonum fölskvalaus. Meðgangan gekk vel framan af en í tuttugu vikna ómskoðun kom í ljós að ekki var allt með felldu; garnir barnsins voru útþandar og stíflaðar. Sjaldgæfur kvilli en ekki óþekktur og læknar töldu til að byrja með ágætar líkur á því að hægt yrði að laga hann með aðgerð án þess að geta lofað neinu. Ekki kæmi í ljós fyrr en barnið væri fætt hversu alvarleg staðan væri. Fyrir vikið var Anna Gréta undir stöðugu eftirliti út meðgönguna. „Þetta var að sjálf- sögðu áfall en við héldum í vonina um að allt yrði í lagi,“ segir Fannar, þegar fundum okkar ber saman í höfuðstöðvum Morgunblaðsins í Hádegismóum í vikunni. Þegar Theodór Máni fæddist 18. september 2020 var hann eins og hvert annað barn en í ljósi þess sem á undan var gengið var hann strax settur í ítarlegar rannsóknir. Strax á öðrum degi kom í ljós að ástand hans væri alvarlegra en gert hafði verið ráð fyrir. Litli drengurinn greindist með afar fágætan erfðasjúkdóm en aðeins eru um 80 tilvik skráð í heiminum og þetta er það fyrsta hér á landi. Fannar segir til- vikin þó ábyggilega hafa verið fleiri en börnin dáið ung án þess að hafa fengið greiningu en ekki eru nema um 15 ár síðan vísindamenn gerðu sér grein fyrir þessari stökkbreytingu á genum sem á sér stað. „Íslensk erfðagreining veit um alls konar þekktar stökkbreytingar og þessi er tíu sinnum algengari hér á landi en gengur og gerist víðast annars staðar; þess vegna er talað um svokallað landnámsgen. Tíðnin er líka óvenjuhá í frönsku- mælandi Kanada, svo dæmi sé tekið,“ upplýsir Fannar. Ónæmiskerfið verulega laskað Vandamál í meltingarvegi eru í raun bara eitt einkenni sjúkdómsins, aðalvandamálið er ónæmiskerfið sem er verulega laskað. Theodór Máni var ekki orðinn tveggja vikna gamall þeg- ar foreldrum hans var gerð grein fyrir því að hann ætti ekki langt líf fyrir höndum. „Það var auðvitað gríðarlegt áfall og engin leið að búa sig undir slík tíðindi,“ segir Fannar. Strax í upphafi var myndað teymi í kringum Theodór Mána á Barnaspítala Hringsins og samband haft við færustu sérfræðinga úti í heimi. Niðurstaðan var sú að sjúkdómurinn væri ólæknandi og ekkert annað að gera en að tryggja litla drengnum sem mest lífsgæði með- an hann lifir. Fyrstu sex vikurnar var Theodór Máni á spít- ala en fékk þá að fara heim með foreldrum sín- um. „Við vorum hvött til að fara með hann heim og reyna að lifa eins eðlilegu lífi og hægt er til að njóta samvista við son okkar og skapa minn- ingar. Það var mikið gæfuspor,“ segir Fannar. Óvissan vofði þó áfram yfir og með öllu óvíst að litli drengurinn yrði enn þá hjá þeim um jól- in. Hann veiktist einmitt alvarlega yfir hátíð- irnar og var hætt kominn. „Það stóð tæpt nokkrum sinnum og við lifðum eiginlega bara klukkustund fyrir klukkustund í marga daga. En hann hristi þau veikindi af sér og hefur sem betur fer lítið veikst síðan; fengið hita af og til og við nældum okkur öll á heimilinu í flensu um daginn en ekkert af því hefur verið eins alvar- legt og um jólin. Hann þurfti ekki einu sinni að fara upp á spítala í það skipti,“ segir Fannar. Foreldrunum er þó ljóst að skjótt getur veð- ur skipast í lofti. „Sjóndeildarhringurinn hjá okkur er tveir dagar, varla meira, og engin leið að plana nema kannski tvær vikur fram í tím- ann. Það er engin leið að spá fyrir um fram- haldið. Við þá óvissu búum við alla daga.“ Hann gerir hlé á máli sínu. Algjör nagli „Staðan er í reynd óbreytt,“ heldur hann áfram. „Theodór Máni hefur komið öllum á óvart og er búinn að sýna að hann er algjör nagli. Hann hef- ur farið langt fram úr öllum væntingum, bæði hvað varðar lífslengd og lífsgæði. Hann hefur til dæmis bara þurft að verja tveimur af þessum fyrstu tíu mánuðum á spítala. Theodór Máni er mjög þægur og kveinkar sér yfirleitt ekki, þrátt fyrir að hafa þurft að ganga í gegnum meira heldur en flestir þurfa að gera yfir langa ævi. Hann er afskaplega lífsglaður lítill strákur og byrjar alla daga á breiðu brosi. Það er einstakt viðhorf og enginn hefur kennt mér eins mikið um lífið og Theodór Máni.“ Foreldrarnir eru gríðarlega þakklátir fyrir að hafa haft drenginn sinn svona mikið heima enda er það alls ekki sjálfgefið. „Við vitum um börn í sömu sporum erlendis sem varið hafa allri sinni stuttu ævi á spítala. Sem betur fer hefur það ekki verið hlutskipti Theodórs Mána; honum líður best heima.“ Litli drengurinn þarf stöðuga umönnun en hann er tengdur við næringu í 21 klukkustund á sólarhring, þannig að foreldrarnir hafa þrjá tíma til að fara með hann úr húsi. Þær hafa þau nýtt vel til að sýna honum heiminn. Þurftu að læra umönnun Fannar er verkfræðingur að mennt en vinnur sem stærðfræðikennari í Verslunarskóla Ís- lands og Anna Gréta er með gráðu í sálfræði og markaðsfræðum. Þau þurftu að læra frá grunni að annast um son sinn, umgangast legginn hans og þar fram eftir götunum. Fyrir hefur komið að hann hafi rifið af sér sontuna um miðja nótt og þá er ekkert annað í stöðunni en að þræða hana á ný. Fjölskyldan fær heimsókn frá heimahjúkrun á hverjum degi og vinkona Önnu Grétu leysir þau af í fjórtán nætur í mánuði, úr- ræði sem kostað er af borginni. Einnig kemur hjúkrunarfræðinemi í sex nætur á mánuði. „Það er engin leið fyrir tvær manneskjur að fylgjast með veiku barni allan sólarhringinn, þannig að við gerðum okkur snemma grein fyrir því að við þyrftum aðstoð. Þessi úrræði hafa virkað vel og við erum óendanlega þakklát fyrir alla hjálp- ina,“ segir Fannar. „Án hennar værum við ábyggilega bæði búin að missa vitið og gæðin í tímanum sem við höfum með syni okkar væru miklu minni.“ Það segir sig sjálft að þau hafa lítið sem ekk- ert getað unnið. Fannar kom þó stuttlega til starfa í vor og kveðst hafa haft afskaplega gott af því að skipta aðeins um umhverfi og vera „eðlilegur“ til skamms tíma. „Ég er mjög þakk- látur Verslunarskólanum fyrir sitt viðhorf og stuðninginn sem við höfum fengið.“ Fannar vill einnig koma á framfæri þakklæti til fjölskyldu og vina sem hafa staðið þétt við bakið á þeim í gegnum allt þetta ferli. „Þau eru búin að vera ótrúleg! Við gerum okkur grein fyrir því að það er alls ekki sjálfsagt að fólk rísi upp í erfiðum aðstæðum eins og þessum, en þau eru svo sannarlega búin að gera það og meira til.“ Í algjöru öryggisneti Talið berst að íslenska heilbrigðiskerfinu. „Oft er talað á neikvæðum nótum um það kerfi en reynsla okkar er þveröfug. Heilbrigðiskerfið tók frá fyrsta degi þétt utan um okkur og við hefðum ekki getað fengið betri þjónustu; höfum lent í algjöru öryggisneti. Það munar um minna. Í raun er sama hvar borið er niður, allir hafa staðið sig eins og hetjur, læknar, hjúkr- unarfræðingar, prestar, sálfræðingar, fé- lagsráðgjafar, bara nefndu það. Ég á ekki nógu sterk orð til að hrósa þessu fólki.“ Margt hefur breyst á þessum tíu mánuðum frá því Theodór Máni fæddist. „Ég átti afmæli um daginn og venjulega þegar það gerist þá finnst mér ótrúlegt að ég sé ekki yngri. Núna snerist það algjörlega við, ég hugsaði með mér; Er ég virkilega ekki eldri en 35 ára?“ Hann brosir. „Mér finnst ég hafa elst mikið á þessum tíu mánuðum enda breytir svona lífsreynsla öllu innra með manni. Það á sér stað ákveðin gild- isbreyting og maður sér bókstaflega allt í öðru ljósi en áður. Theodór Máni hefur fært okkur margar gjafir; eins og að lifa í augnablikinu og taka eftir öllu því fallega í kringum okkur. Það er viðhorfsbreyting sem mun duga okkur út líf- ið. Undanfarna tíu mánuði hef ég verið að horf- ast í augu við dauðann en á sama tíma hefur mér aldrei fundist ég vera eins lifandi. Það er absúrd tilfinning. En ákaflega góð. Þessi reynsla hefur gert það af verkum að ég er stað- ráðinn í að fá meira út úr lífinu á hverjum ein- asta degi. Allt sem skiptir máli er að líða vel – núna!“ Knúsa börnin sín fastar Við tökum heilsunni oft sem sjálfsögðum hlut en ekki þarf að fjölyrða við Fannar að það er hún svo sannarlega ekki. „Hvorki okkar eigin heilsa né barnanna okkar. Góð heilsa er mikil blessun og vinir okkar hafa margir hverjir tjáð okkur að þeir knúsi börnin sín fastar í dag en þeir gerðu áður en Theodór Máni fæddist. Þeg- ar alvarleg veikindi koma upp sér maður svart á hvítu hvað tíminn er takmörkuð auðlind og að hann snýst ekki um magn, heldur gæði. Við er- um svo gæfusöm að hafa átt mikinn gæðatíma með Theodóri Mána. Ég óska ekki nokkrum manni þess að lenda í svona löguðu en á sama tíma er ég óendanlega þakklátur fyrir þessa lífsreynslu. Það besta sem fyrir mig hefur kom- ið um dagana er að vera pabbi Theodórs Mána.“ Í ljósi aðstæðna segist Fannar oft leiða hug- ann að endalokunum; stundinni þegar þau koma til með að þurfa að kveðja litla drenginn sinn. „Ég stend mig oft að því að búa mig ósjálf- rátt undir endalokin; þegar að því kemur að ég fæ ekki lengur að halda á honum, horfa í augun á honum og brosa til hans. Ég reyni alltaf að bremsa mig af og með tímanum gengur það alltaf betur og betur. Þá hugsa ég með mér: Hann er hérna núna og njóttu þess í botn með- an það er. Það er engin leið að búa sig undir kveðjustundina; það verður aldrei rétti tíminn! Um jólin hugsaði ég með mér: Ekki taka hann frá okkur núna; ég er ekki tilbúinn. Núna veit ég hins vegar að ég verð það aldrei.“ Fannar, Anna Gréta og aðrir aðstandendur Theodórs Mána gera sér fulla grein fyrir því að sorgin og sársaukinn eru handan við hornið. „Við verðum að mæta sársaukanum þegar hann kemur. En við getum alltaf huggað okkur við það að enda þótt ævi Theodórs Mána verði stutt þá er hún innihaldsrík og góð. Hann hefur þeg- ar haft áhrif á marga og ábyggilega fleiri en margir á langri ævi.“ Fagleg aðstoð mikilvæg Að sögn Fannars hefur það verið algjört lyk- ilatriði til að höndla þessar aðstæður að segja já við allri faglegri aðstoð sem þeim hefur boðist. „Fyrir utan heilbrigðisstarfsfólkið þá hafa prestar og sálfræðingar hjálpað okkur mjög mikið og við erum mjög þakklát fyrir þá aðstoð. Við vorum seinast hjá sálfræðingi í morgun og hann hefur hjálpað okkur að losa um uppsafn- aða spennu, stöðugan ótta og að skoða okkar aðstæður frá ýmsum sjónarhornum. Maður Sjóndeildarhringurinn er bara tveir dagar Theodór Máni Fannarsson fagnar tíu mánaða afmæli sínu í dag, sunnudag. Hann er lífsglaður og brosmildur snáði og augasteinn foreldra sinna, Fannars Guðmundssonar og Önnu Grétu Oddsdóttur. Eitt greinir Theodór Mána þó frá flestum öðrum börnum og það er að hann er með afar sjaldgæfan erfðasjúkdóm og er ekki hugað langt líf. Er raunar þegar kominn fram úr öllum væntingum, bæði hvað varðar lífslengd og lífsgæði. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Theodór Máni er tengdur við næringu í 21 klukkustund á sólarhring en lætur það ekki hafa áhrif á sig; er glaðsinna og brosmildur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.